Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 20. október 2017 Í Rokksafni Íslands í Reykjanesbæ stendur yfir sýning um Björgvin Halldórsson. Kolbrún Bergþórs­ dóttir hitti söngvarann ástsæla í Rokksafninu og ræddi við hann um ferilinn, fjölskylduna, pólitík, trúmál og verkefnin sem eru framundan. S ýningin í Rokksafninu um Björgvin Halldórsson hefur yfirskriftina Þó líði ár og öld. Ferill Björgvins hefur verið afar farsæll og hann söng með hljómsveitum eins og Bendix, Flowers, Ævintýri, Hljóm- um, Brimkló, HLH-flokknum og fleirum. Á sýningunni má sjá fjöl- marga muni úr eigu hans, þar á meðal glæsilegt gítarsafn, föt sem hann hefur klæðst á tónleik- um, myndir, plaköt, plötur, mynd- bönd, textablöð og fleira. Björn G. Björnsson, samstarfsmaður Björg- vins, setti upp sýninguna ásamt honum. Sýningin stendur fram á næsta ár. „Það er mjög sérstakt að ganga um þessa sýningu. Saga mín er á þessu safni. Ég hugsa til liðins tíma og geri mér um leið grein fyrir því að það sem ég hef afrekað hef ég ekki gert einn. Mér verður hugsað til allra þeirra frábæru samstarfs- manna sem ég hef unnið með í gegnum tíðina og eiga stóran hlut í velgengni minni,“ segir Björgvin. „Ég er enn að halda tónleika þar sem alltaf er fullt hús, er enn að spila og er enn í stúdíóinu. Ég hef aldrei verið í meira stuði. Það er ekki sjálfgefið heldur óskaplega þakkarvert og ég er fullur auð- mýktar.“ Þegar þú lítur til baka finnst þér þú hafa breyst mikið sem mann­ eskja? Hvernig var ungi maðurinn og hvernig ertu núna? „Ungi maðurinn hélt að hann myndi lifa að eilífu. Með árunum þroskast maður, verður pólitískari og skoðanir manns verða mótaðri, einfaldlega vegna þess að maður hefur öðlast lífsreynslu. Ég hef að sjálfsögðu breyst og vonandi til hins betra. Lífsgildin eru önnur og áherslurnar eru aðrar. Ég er ekki eins upptekinn af sjálfum mér og ég var í gamla daga og hugsa meira til náungans. Ég er alltaf að reyna að verða betra eintak af sjálfum mér. Ég reyni að láta gott af mér leiða og hjálpa ef ég get hjálpað.“ Hverjum hjálparðu? „Þeim sem eiga bágt og þarfn- ast aðstoðar. Ég gef í safnanir og syng í góðgerðarskyni. Mér finnst það meira en sjálfsagt, það er hluti af lífsskoðunum mínum. Ég elska mannúð og trúi á það að vera sannur sjálfum mér.“ Baráttan við hrekkjusvínin Það er ekki laust við að töffara­ ímynd hafi fylgt þér í gegnum tíð­ ina og þú ert þekktur fyrir að vera snöggur að svara fyrir þig. Er töffaraskapurinn brynja eða kannski bara leikur? „Ef maður er í hljómsveit verð- ur maður að vera smá töffari. Í þessu fagi er ekki hægt að vera rola. Sumum finnst ég vera með nefið upp í loftið og stundum heyri ég sagt að ég sé hrokafullur. Það er ekki rétt, ég er alls ekki hrokafullur. Ég geri hins vegar miklar kröfur til fólks í kringum mig, en það eru al- veg sömu kröfur og ég geri til sjálfs mín. Fyrst þú talar um brynju þá eru allir með brynjur eða grímur. Svo er sálin þarna fyrir innan. Mín brynja held ég að hafi mótast í gamla daga þegar ég var í barna- skóla. Þá var ég lítill vexti og þurfti að standa uppi á kassa á bekkjar- myndinni til að sjást. Þetta truflaði mig ekki mikið því ég átti afskap- lega góða vini og góða æsku. Svo lenti ég í því að stórir strák- ar lögðu mig í einelti eins og það heitir í dag. Í gamla daga hétu svona guttar hrekkjusvín. Þá var ekki talað um einelti, það var ekki gert fyrr en einhver sálfræðingur í Svíþjóð eða Bandaríkjunum fann upp orðið. Ég varð dálítið fyrir barðinu á hrekkjusvínunum og varð einhvern veginn að bregðast við og þá notaði ég bara kjaftinn. Ég sagði ýmislegt við stóru strák- ana, stakk upp í þá þannig að þeir göptu og spurðu: Hvað er þessi litli naggur eiginlega að segja? Þetta voru einlínungar, „oneliners“, úr kanasjónvarpinu, þáttum eins og Combat, Bonanza, Gunsmoke og Hollywood Palace. Ég dembdi þeim yfir þá og svo notaði ég bara fæturna, hljóp burt eins og fætur toguðu.“ Söngvarinn inni í skáp Björgvin hóf ungur að syngja í hljómsveitum og árið 1969, átján ára gamall, var hann kosinn popp- stjarna ársins á mikilli popphátíð sem haldin var í Laugardalshöll- inni. Hljómsveit hans Ævintýri var kosin hljómsveit ársins. Segja má að Björgvin hafi orðið þjóðþekktur á einni nóttu. Það getur varla verið hollt fyrir ungan mann að fá svo mikla athygli spyr blaðamaður. „Þetta var snúið,“ segir Björgvin. „Eftir þessa kosningu opnuðust allar dyr, við félagarnir í Ævin- týri ferðuðumst um allt land og það voru hrópandi stelpur á eftir okkur. Það greip um sig eins konar æði. Ég varð frægur á einni nóttu. Ég tók eftir því að fólk horfði mikið á mig og það fór aðeins í taugarn- ar í mér fyrst um sinn, ég vildi eiga mitt eigið sjálf. Svo gerði ég mér grein fyrir að ég væri fyrirmynd hjá krökkum og að því fylgdi ábyrgð og fór að hegða mér samkvæmt því. Svo liðu árin, ég var enn að syngja og skemmta og með tímanum varð ég eins og leikari í hlutverki. Þegar ég kom heim var söngvar- inn settur inn í skáp og hékk þar á herðatré í öllum skrúðanum. Svo var söngvarinn sendur út til að skemmta og gerði sitt besta. Á seinni árum eru þessir tveir menn farnir að renna saman, það eru ekki sömu skil og áður milli mannsins og söngvarans. Ég er kominn á þann stað í lífinu að ekki verður aftur snúið og er sáttur við það.“ Var mikið um partí og óreglu á þessum árum? „Jú, jú, það voru partí og stuð og verið að prófa alls konar hluti. Ég prófaði þetta allt, en lét mér nægja að prófa. Margir af vinum mínum fóru upp og komu aldrei niður aftur. Þessi efni áttu ekki við mig. Aftur á móti finnst mér afskaplega gott að fá mér rauðvín með mat, en ég sit ekki við fram á nótt og hringi á bíl, það er ekkert gaman af því.“ Grúskari og safnari Björgvin hefur ekki einungis starf- að sem tónlistarmaður og söngvari, heldur unnið við fjölmörg störf, þar á meðal sem markaðsfulltrúi, út- varpsstjóri og sjónvarpsstjóri og sinnt ýmsum stjórnunarstörfum. Hann er spurður hvort hann telji sig vera jarðbundinn mann. „Ég hef alltaf verið mjög jarðbundinn og er alltaf að læra. Ég er eins og svampur og soga í mig umhverfið. Ég er nætur karl, fer seint að sofa en vakna samt klukkan sjö á morgnana og fer strax að hlusta á fréttir til að vita hvað er að gerast í heiminum,“ segir hann. „Ég er algjör fréttafíkill og er stöðugt að leita mér upplýs- inga á netinu. Ég er með allan fjöl- miðlapakkann og nokkur hundruð stöðvar en horfi bara á fimm eða sex. Þegar allt þetta úrval kom hélt ég að ég myndi bara ruglast en nú hef ég bara meira úrval og kann að velja.“ Þú hefur farið í ótal viðtöl á ferl­ inum. Er eitthvað sem fólk veit ekki um þig? „Það vita kannski ekki allir hversu mikill grúskari og safnari ég er. Ég safna hljóðfærum, blöðum, plakötum og alls kyns dóti. Ég hendi ekki hlutum. Ég hef ekki bara haldið upp á það sem tengist mér heldur einnig það sem tengist sam- starfsmönnum mínum og sam- tíma. Gamlir félagar hringja enn og spyrja: Áttu plakatið frá tónleik- unum 1972? Þá svara ég stundum: Hvaða lit viltu? Því ég á þetta allt. Þessi söfnunarárátta minnir stund- um á bandarísku þættina sem mað- ur sér í sjónvarpinu af fólkinu sem á svo mikið dót að það kemst ekki inn í húsið sitt fyrir drasli. En þessi söfn- unarárátta hefur skilað miklu varð- andi þessa sýningu hér á Rokksafn- inu, hér eru alls konar hlutir sem ég og Baldvin bróðir minn höfum sankað að okkur gegnum árin.“ Íþróttafólkið sameinar þjóðina Þú sagðist fyrr í viðtalinu verða æ pólitískari. Hefurðu alltaf haft mikinn áhuga á pólitík? Ég er kominn af Sjálfstæðisfólki, pabbi var sjómaður og mamma húsmóðir. Áður en ég kveikti á því hvað pólitík væri fór ég, árið 1961 eða 1962, með pabba og móð- urbróður mínum á framboðs- fund í Hafnarfjarðarbíói. Þetta var framboðsfundur hjá Sjálfstæðis- flokknum og Ólafur Thors var að tala, gríðarlega flottur og hreif alla með sér. Þá var kjörorðið stétt með „Nú stendur leðju­ slagur milli stjórn­ málamanna sem hæst og hnútuköst sem eru alveg á barmi velsæmis. Það væri frábært ef við gætum öll unnið saman, en stjórnmálamönnun­ um hefur mistekist að sameina þjóðina. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Björgvin í Rokksafninu „Ég er ekki eins upptekinn af sjálfum mér og ég var í gamla daga og hugsa meira til náungans.“ Mynd SiGtRyGGuR ARi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.