Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Page 46
Vikublað 20. október 2017 18
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
Sandra kennir hippsterum bjórjóga á KEX
Föstudagurinn byrjar bara á kaffi um níu leytið eins og vanalega. Svo fer ég í blóma-
búðina mína, Dögg í Bæjarhrauni í
Hafnarfirði, en hana keypti ég fyrir
sirka ári. Ég vinn þar til hádegis
og þá fer ég að kenna jóga í Sólum
úti á Granda. Svo fer ég aftur í
blómabúðina og vinn fram eftir
degi. Um kvöldið ætla ég bara að
slaka á og hafa það náðugt. Klukk-
an þrjú á laugardaginn mæti ég í
KEX til að kenna bjórjóga. Tíminn
kostar 3.500 krónur og bjórinn er
innifalinn. Það hefur verið mikil
eftirspurn eftir þessu á KEX og
því var ákveðið að hafa þessa tíma
mánaðarlega í vetur. Byrja klukkan
þrjú á laugardögum, líklegast
næstsíðasta laugardaginn í hverjum
mánuði. Það á eftir að skýrast.
Bjórjóga byrjaði einhvers staðar
á útihátíð í San Francisco minnir
mig. Það hefur verið mjög vinsælt í
Berlín og ég þróaði mína rútínu út
frá því sem ég lærði af jógakennara
þar. Týpurnar sem mæta í bjórjóga
eru bara svona hipsterar, konur og
karlar, sem taka sig ekkert allt of
alvarlega og hafa gaman af þessu,
enda er þetta ekki alvarleg athöfn.
Þetta er aðallega bara leikur en
hefur stundum þau áhrif að fólk
sem hefur aldrei prófað jóga getur
komist í stuð við þetta og áttað sig
á því að það getur meira en það
heldur. Þetta er auðvitað ekkert
rosalega „jógíst“. Snýst aðallega
um að teygja og fá sér einn kaldan
á meðan. Það er ótrúlega fyndið
hvað gerist með jafnvægið eftir
örfáa sopa. Á sunnudögum reyni
ég oftast að slaka á enda í svo mörg
horn að líta þegar maður er að reka
fyrirtæki og gott að ná smá hvíld.
Ég þarf samt eitthvað að mæta
enda mikið að gera á sunnudögum
í blómabúðinni. Kannski kíki ég
líka í Kolaportið, mér finnst það
alltaf geggjað næs, en ætli akkúrat
þessi sunnudagur verði samt ekki
frekar viðburðalítill.“
Unnið í
samstarfi við
CUrtisson Kids
LeiKfangaLeiga svo
börnin fái eKKi Leiða
Fjölbreytni og ferskar áskor-anir eru þroskandi fyrir börn sem eru að vaxa úr grasi og
þessir útgangspunktar eru hafðir að
leiðarljósi hjá leikfangabúðinni og
leikfangaleigunni Curtisson Kids.
Í versluninni fæst gott úrval af
þroskaleikföngum sem eru aðallega
gerð úr vönduðum viðarefnum og
framleidd í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Í versluninni er einnig boðið
upp á skemmtilega nýjung sem er
fólgin í því að foreldrar geta leigt
leikföng handa börnum sínum og
skipt þeim út á mánaðar fresti.
„Í flestum tilfellum gerist það
allt of fljótt að börn fá leiða á leik-
föngum sínum. Þess vegna er leik-
fangaleigan góður kostur fyrir þau
sem vilja spara peninga við kaup
á þroskaleikföngum en sjá samt til
þess að krakkarnir hafi alltaf eitt-
hvað nýtt að fást við, og þroskast
um leið. Meðalverð fyrir vandað
leikfang er um 5.000 krónur en
með aðild að Leikfangaleigunni fá
börnin fjögur leikföng í hverjum
mánuði til að leika sér með og
verðið er aðeins 4.900 krónur. Öll
leikföngin eru að sótthreinsuð við
hver skil,“ útskýrir Rósa Amelía
Árnadóttir verslunareigandi.
Hjá Curtisson Kids fæst
einnig gott úrval af svokölluðum
hlutverkaleikföngum sem hvetja
börnin til að skella sér í alls kon-
ar hlutverk og auðga með því
ímyndunaraflið og þroskann.
„Þroskaleikföng auka
hugmyndaflæði og hjálpa
börnum að fullnýta og þróa
hæfileika sína, fínpússa allar
hreyfingar og kenna þeim að
hugsa út fyrir kassann. Leikur
að þroskaleikföngum getur
líka hjálpað börnunum að
meðhöndla aðstæður og vinna
betur að lausnum þegar þau
verða eldri samkvæmt nýjum
rannsóknum,“ segir Rósa.
Curtisson Kids er styrkt-
araðili UNICEF á Íslandi,
Mæðrastyrksnefndar og Umhyggju
– Félags langveikra barna.
www.curtisson.is
facebook.com/curtissonkids
instagram.com/curtisson_kids
Kynningarverð í
leikfangaleigunni
15% afsláttur fyrir alla
nýja viðskiptavini sem
skrá sig í Curtisson
klúbbinn fyrir áramót
3.900 kr. til 31. des. 2017
4.900 kr. frá og með 1. jan. 2018
sandra Dögg jónsdóttir er sérfræðingur í að
kenna fólki jóga meðan það drekkur bjór.
m
yn
d
si
g
tr
yg
g
u
r
ar
i
Birta mælir með
bleika línan hjá lindex
er æðisleg. ekki nóg
með það hversu falleg
hún er þá styrkirðu gott
málefni þegar þú kaupir
vöru úr bleiku línunni.
bleiki liturinn verður áfram
vinsæll í vetur. Þessir
ljósbleiku new balance
skór fást í versluninni
geysir í Kringlunni og
við skólavörðustíg.
kreo.is var að fá
sendingum af nýjum ullar-
teppum frá vachtvanvilt.
Þetta bleika teppi er
einstaklega fallegt.
birta mælir með því að
þú kaupir bleiku slaufuna
ef þú ert ekki þegar búin
að því.
Kitchenaid hrærivél er
á óskalista nær allra
kvenna. 10.000 krónur
renna til Krabbameins-
félagsins ef þú kaupir
Kitchenaid hrærivél hjá
raflandi í október.
2.000 kr.
84.990 kr.
4.690 kr.
4.690 kr.
15.800 kr.
26.990 kr.