Fréttablaðið - 04.11.2017, Page 91
Guðjón og Júlían koma næstum á hverjum degi.Hér var eitt sinn sjoppa þar sem bólugrafnir unglingar
seldu flöskur fyrir kúlur. Það er af sem áður var.
Virkilega léttir og skemmtilegir og
gaman að fá þá til okkar í morgun-
kaffi. Ég passa upp á að eiga alltaf
nóg af kleinum og vínarbrauði.“
Að þeim orðum sögðum var María
rokin í eldhúsið þar sem að hádeg-
isösin var að ná hámarki og því
margt og mikið að gera.
„Ég kem hingað alla virka daga
í hádeginu, maturinn er mjög
góður og vel útilátinn,“ segir Þor-
steinn Matthíasson sem starfar við
múrverk. Aðspurður kvaðst hann
oftast fá sér fisk sem væri afbragðs-
góður og hráefnið greinilega fyrsta
flokks.
Ekta íslenskur dæner
í Kópavogi
Þar sem áður voru seldar kúlur
og lakkrísrör eru nú afgreidd rif,
kjötbollur, sósa og salat. Veit-
ingasalan Matstöðin kúrir í Kárs-
nesinu í Kópavogi og þar er fullt
út úr dyrum alla daga. „Hér er
afgreiddur heiðarlegur heimilis-
matur“, gall við í kokkinum sem
gaf sér ekki tíma fyrir frekara spjall
og hélt áfram að bera fram steiktan
fisk á fati. Matseðillinn er fjöl-
breyttur kjöt, fiskur, sósa og salat
og að sjálfsögðu dísætir kleinu-
hringir í eftirrétt. Hér er ekkert
gefið eftir hvað gæði og skammta-
stærð snertir.
Þegar blaðamann og ljósmynd-
ara bar að garði var nokkuð ljóst
að orðatiltækið þröngt mega sáttir
sitja átti mjög vel við. Fullt var út
úr dyrum, en staðurinn er lítill
og kósý og því ekki erfitt að fylla
hann. Réttur dagsins var steiktur
fiskur og rif í barbíkjúsósu og rauð-
kálið langvinsælasta meðlætið.
Félagarnir Sigurður Steinþórs-
son og Matthías Leó Árnason voru
sársvangir eftir morgunverkin, en
þeir félagar vinna við borun hjá
Vatnsborun. „Það var sko kominn
tími til að fá svona stað í Kópavogi.
Við komum hingað næstum því á
hverjum degi“, segir Sigurður og
sporðrennir síðasta fiskbitanum.
Matthías félagi hans hrósaði matn-
um einnig og sagði að besti fiskur-
inn í bænum væri á Matstöðinni.
Þeir félagar voru sammála um
að rauðkálið og grænu baunirnar
væru órjúfanlegur hluti af mál-
tíðinni.
við opnum snemma
og hér sitja menn og
skrafa um heims málin
yfir kaffibolla og
kleinum. Það er til
dæmis fimmtán
manna hópur sem
hittist hér alla
morgna og hefur gert
í fjölmörg ár.
„Staðurinn er lítill og ég vona að
hann verði þannig áfram, það yrði
ekki eins ef hann myndi stækka“,
bætti Matthías við og sneri sér að
máltíð dagsins.
Á næsta borði sátu Guðjón Eiðs-
son og Júlían Elí Steingrímsson,
starfsmenn Skemmtigarðsins í
Grafarvogi. „Geggjaður matur
hérna, það kemur varla fyrir
að maður sleppi úr degi,“ segir
Guðjón en hann skellti sér á rifin
þennan daginn og var ekki lengi
að vinna á vel kúfuðum diski.
„Þetta er miklu meiri matur,“
bætir félagi hans við, „maður
verður betur saddur en ef við
værum að borða hamborgara á
hverjum degi, svo er þetta bara
ódýrara.“ Þeir félagar voru á einu
máli um að það hefði verið löngu
tímabært að opna svona stað í
Kópavogi.
Viðmælendur fóru saddir út í
daginn og blaðamaður var sendur
heim með stútfullan matarbakka
af kjötbollum, kartöflum og sósu,
sem voru gerð góð skil.
Þrátt fyrir síbreytilegar tísku-
bylgjur í mataræði, þar sem allt
þarf að vera grænt, vegan og líf-
rænt, þá hefur það ekki rutt kótil-
ettunni og rauðkálinu af stalli
sínum – heimilismaturinn blífur.-
HINN EINSTAKI
BILL MURRAY
Í ELDBORG
14
JÚN
15
JÚN
MIÐASALA HAFIN Á
LISTAHATID.IS OG TIX.IS
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 43l A U g A R D A g U R 4 . n ó v e m B e R 2 0 1 7
0
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
2
5
-9
C
8
8
1
E
2
5
-9
B
4
C
1
E
2
5
-9
A
1
0
1
E
2
5
-9
8
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
3
_
1
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K