Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
Leikarinn Josh Gad segist
mjög stoltur af því að fara
með hlutverk fyrsta samkyn-
hneigða mannsins í Disney-
kvikmynd. Ekki hafi verið
skipað svo fyrir í handritinu
að LeFou ætti að vera sam-
kynhneigður en persónan
þróast þannig á æfingatím-
anum. Gad fullyrðir að
„samkynhneigða
augnablikið“ í
myndinni, sem
mikið hefur verið
fjallað um, sé ekki
mjög áberandi en
hins vegar afar
áhrifaríkt.
Tíðindum þykir sæta að sam-kynhneigð persóna kemurloks fyrir í Disney-mynd,
Beauty and the Beast (Fríða og dýr-
ið) sem frumsýnd verður um miðjan
mánuðinn. Í þeim aragrúa mynda
sem fyrirtækið hefur framleitt í
gegnum tíðina hefur samkynhneigð
sem sagt aldrei komið við sögu, eins
ótrúlegt og það hljómar í raun.
Margir fagna þessum tímamótum
en aðrir reyta hár sitt af reiði.
Disney sendi frá sér teiknimynd
byggða á þessu sama ævintýri árið
1991 en nú er um leikna söngva-
mynd að ræða. Þannig hefur verið
tekið til orða að í kvikmyndinni sé
„samkynhneigt augnablik“ en eng-
inn farið nánar út í hvað það ná-
kvæmlega merkir.
Áttar sig á tilfinningunum
Leikstjórinn, Bill Condon, segir í
samtali við tímaritið Attitude að
LeFou, sem Josh Gad leikur, sé að
einhverju leyti tvístígandi í lífinu, en
sé um það bil að átta sig á hvaða til-
finningar hann ber í brjósti til
Gastons, en Luke Evans fer með
hlutverk hans.
Margir eru óánægðir með þessa
stefnubreytingu hjá Disney. Yf-
irvöld í Rússlandi hafa til dæmis
ákveðið að banna myndina börnum
yngri en 16 ára og eitt kvikmynda-
hús í Bandaríkjunum, bílabíó í Ala-
bama hefur tilkynnt að það muni
ekki taka myndina til sýningar.
Vissulega er það lítið í stóra sam-
henginu því myndin verður frum-
sýnd í 4.000 bandarískum bíóhúsum
17. mars. Vekur samt athygli.
„Margir eru hræddir við það sem
þeir skilja ekki,“ sagði leikarinn Gad
í samtali við Attitude. Hann telur að
áhorfendur ættu að einblína á hatrið
sem býr innra með Gaston – ekki að
samkynhneigð komi við sögu.
„Gaston nýtir sér hvað hann er
heillandi til að æsa fólk upp í að ráð-
ast á einhvern sem það þekkir ekki.
Einhvern sem talinn er öðru vísi og
hættulegur, einungis vegna þess að
Gaston segir hann hættulegan.“
Leikarinn segir umfjöllunarefnið
skipta jafn miklu máli nú og þegar
ævintýrið var skrifað fyrir 300 ár-
um.
Fyrst hermir af Fríðu og dýrinu í
sögu sem frönsk kona skrifaði
snemma á 18. öld. Það var rithöf-
undurinn Gabrielle-Suzanne Barbot
de Villeneuve. Þar eru þau hluti
skáldsögu í fullri lengd en eftir lát
höfundarins tók sig til stallsystir
hennar og landi, Jeanne-Marie
Leprince de Beaumont, endurritaði
söguna af Fríðu og dýrinu – La
Belle et la Bete – og birti 1756 í eig-
in tímariti. Barbot de Villeneuve er
þar reyndar hvergi getið.
„Þegar fyrirtæki troða skoðunum
sífellt ofan í okkur verðum við að
spyrna við fótum,“ sagði í tilkynn-
ingu á Facebook-síðu áðurnefnds
kvikmyndahúss sem er í Henagar,
2.500 manna bæ í Alabama-ríki.
„Við erum fyrst og fremst krist-
innar trúar og miðlum ekki málum
varðandi það sem boðað er í Biblí-
unni. Við sýnum áfram fjöl-
skyldumyndir þar sem fólk þarf
ekki að hafa áhyggjur af því að
horfa á kynlíf, nekt, samkyn-
hneigð eða hlusta á blóts-
yrði,“ sagði ennfremur á
Facebook-síðu bíósins.
Fljótlega eftir að
„stórfréttin“ um þann
fyrsta samkynhneigða
barst úr herbúðum
Disney-fyrirtækisins,
greindi innanbúð-
armaður frá því að í
þessari sömu mynd kyssist líka fólk
af ólíkum kynstofni, í fyrsta skipti í
leikinni Disney-kvikmynd!
Margir muna eflaust þegar indí-
ánastúlkan Pocahontas kyssti John
Smith á sínum tíma, en það var, vel
að merkja, í teiknimynd. Nú eru það
leikarar af holdi og blóði sem kyss-
ast á hvíta tjaldinu; hin þeldökka
Audra McDonald, sem fer með hlut-
verk Madame de Garderobe, og sá
skjannahvíti Stanley Tucci, sem
leikur Cadenza.
Líka í sjónvarpsþætti
Disney gerir það í raun ekki enda-
sleppt um þessar mundir …
Í síðasta mánuði var sýndur vest-
anhafs þáttur í röðinni Star vs. the
Forces of Evil, sem einnig er úr
smiðju fyrirtækisins, þar sem fólk af
sama kyni kysstist í kvikmyndahúsi:
nokkur pör í einu, svo því sé haldið
til haga, sáust við þá iðju þegar
strákahljómsveit lék rómantískt lag
á tónleikum.
Loks sam-
kynhneigður
hjá Disney
Sumum þykir ekki seinna vænna, árið 2017 eftir
Krist, að samkynhneigður maður birtist í Disney-
kvikmynd. Ekki eru þó allir kátir með uppátækið.
Mjög
stoltur
AFP
Josh Gad, til vinstri, í hlutverki LeFou, í kvikmyndinni og Luke Evans sem Gaston. Josh Gad leikur þann samkynhneigða.
’
Við erum kristinnar trúar og miðlum ekki málum varð-
andi það sem boðað er í Biblíunni. Við sýnum áfram fjöl-
skyldumyndir þar sem fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að
horfa á kynlíf, nekt, samkynhneigð eða hlusta á blótsyrði.
Skilaboð kvikmyndahúss í Alabama sem sýnir ekki Fríðu og dýrið.
ERLENT
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
BANDARÍKIN
LOS ANGELES Mustang GT-bíll sem Steve heitinn
McQueen ók í Bullitt árið 1968 „gufaði upp“ eftir tökur
á myndinni og ítrekaðar tilraunir McQueens til að finna
hann báru aldrei árangur. LA Times greinir nú frá því að
Mustanginn hafi nýlega fundist á
brotajárnssvæði í Kaliforníu og
verið gerður upp. Staðfest mun
ð framleiðslunúmer bílsins séa
rétta. Bíllinn þykir einn sáþað
merkilegasti í sögu kvikmyndanna.
MALTA
GOZO-EYJA Azure-glugginn, steinbogi sem
lengi hefur verið eitt þekktasta kennileiti Möltu,
hrundi í miklu óveðri á dögunum. Eftir rannsókn
árið 2013 var upplýst um talsvert landrof, en þó
greint frá því að ekki væru taldar miklar líkur
á að glugginn hryndi, skv. frásögn Times of Malta. Forsætisráðherrann,
Joseph Muscat, segir atvikið „átakanlegt“, en kennileitinu hefur brugðið
fyrir í nokkrum kvikmyndum og í fyrsta þættinum af Game of Thrones.
KÍNA
PEKING Fræðsla eða klám? Um það er nú deilt í Kína vegna
bókaraðar sem ætluð er börnum á aldrinum 6 til 13 ára og fjallar
um kynlíf. Peking-háskóli gaf bókina reyndar út fyrir drjúgum áratug,
eftir margra ára undirbúning, og hún hefur síðan verið notuð við
kennslu í grunnskólum og seld í bóka-
verslunum. Bókin komst í fréttirnar í
vikunni þegar foreldri birti mynd af efni
hennar á samfélagsmiðli og kvaðst sjálft
of feimið til að lesa innihaldið.
SUÐUR-AFRÍKA
PRETORÍA Stjórnvöld í Suður-Afríku íhuga að koma á
sykurskatti í landinu, fyrst allra Afríkuríkja, til að berjast gegn
offitu, sem er sívaxandi vandamál þar eins og víða annars staðar.
Hugmyndin er að leggja 20% skatt á gosdrykki frá og með
1. apríl. Gosdrykkja hefur aukist hratt og örugglega í Suður-
Afríku á síðustu 50 árum og offita er einna mest þar í álfunni.