Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
FAÐIR Neymar á eitt barn, soninn Davi Lucca, með
Carolina Nogueira Dantas. Drengurinn, sem nú er
orðinn sex ára, kom í heiminn þegar Carolina var að-
eins 17 ára og faðirinn tveimur árum eldri. Bæði eru
kaþólskrar trúar og ákváðu því að eignast barnið;
ekki kæmi til greina að Carolina færi í fóstureyðingu.
Lucca þykir afar fallegt barn og heillar marga með
miklum krullum og ljósu hári. Hann er hvítur á hör-
und eins og móðirin. Dantas og Neymar voru í raun
aldrei kærustupar, heldur „bara vinir“ og Lucca kom
óvart undir. Þau kynntust í gegnum sameiginlega
kunningja, eru enn vinir og hafa sameiginlegt forræði
yfir drengnum. Hann er mest hjá móður sinni heima í
Brasilíu en fer til föðurins eins oft og tækifæri gefst.
Flýgur þá á milli heimsálfa, gjarnan í för foreldranna.
„Þegar ég varð ófrísk þorði ég ekki að segja honum
frá því en eftir að hafa talað við fjölskyldu mína ákvað
ég að gera það. Ég vildi ekki að sonur minn þyrfti að
spyrja að því þegar hann stækkaði hver faðir hans
væri,“ sagði Dantas einhverju sinni í viðtali. Neymar og sonurinn David Lucca fyrir nokkrum árum.
Sonurinn flýgur á
milli heimsálfa
NEYMAR Brasilíski framherjinn Neymar da Silva Santos Júnior var í lyk-
ilhlutverki þegar Barcelona frá Spáni lagði annað stórveldi, Paris Saint-
Germain, með undraverðum hætti að velli í 16 liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu í fótbolta á miðvikudagskvöldið. Leikið er heima og að heiman;
spænska liðið var niðurlægt í fyrri leiknum í París; tapaði 4:0, en komst í 3:0 á
heimaslóðum. Eftir að PSG minnkaði muninn í 3:1 var ljóst að Barcelona yrði
að gera þrjú mörk til viðbótar til að komast áfram í keppninni og þegar tvær
mínútur voru eftir af hefðbundnum 90 mínútna leiktíma var staðan sú sama.
Þá tók okkar maður – oftast „bara“ kallaður Neymar – til sinna ráða og hóf
lokasprettinn á einhverri ótrúlegustu atburðarás fótboltasögunnar: skoraði
með stórkostlegu skoti beint úr aukaspyrnu utan teigs í þann mund sem vall-
arklukkan gaf til kynna að leikið hefði verið í 90 mínútur. Þá þurfti Barcelona
hins vegar tvö mörk enn til að slá PSG út og það tókst, á þeim fimm mínútum
sem dómarinn bætti við vegna tafa sem höfðu orðið. Fljótlega skor-
aði Neymar aftur, úr víti, og á lokaandartökunum sendi hann bolt-
ann á Sergi Roberto sem skoraði. Ekki er ofsagt að flestir við-
staddir hafi gengið af göflunum, og raunar fjöldi fólks við
sjónvarpstæki úti um allan heim! Hið ómögulega hafði gerst.
Neymar er besti knattspyrnumaður Brasilíu um þessar mundir
og landsliðsfyrirliði. Slíkir garpar eru jafnan í hávegum hafðir í
heimalandinu, jafnvel teknir í guða tölu, enda skipar íþróttin óvíða
meiri sess en einmitt þar. Þessi frábæri leikmaður er gríðarlega
leikinn með boltann, fljótur og útsjónarsamur en helstur ljóður á
leik hans er hve auðveldlega Neymar fellur í gras þegar mótherjinn
gerist of nærgöngull; sumum þykir hann þurfa að taka sig á í þeim
efnum og standa slíkar árásir af sér í stað þess að sýna leikræna til-
burði og „plata“ dómarann. Hefur þó skánað hvað þetta varðar.
Eins og nærri má geta var Neymar eftirsóttur af stórliðum Evr-
ópu eftir að hann sló í gegn í heimalandinu. Aðallega voru það
spænsku risarnir Real Madrid og Barcelona sem bitust um hann og
á tímabili leit út fyrir að Real hreppti hnossið. Hann samdi hins veg-
ar við Barcelona og var kynntur til leiks í júní 2013. Greint var frá
því að kaupverðið hefði verið 57 milljónir evra. Í ársbyrjun 2014 hóf
saksóknari í Madrid rannsókn á félagaskiptum Neymars og komst
að því að maðkur var í mysunni. Í ljós kom að Barcelona hafði greitt
rúmlega 86 milljónir evra fyrir leikmanninn og 40 milljónir evra af
þeirri upphæð höfðu runnið til foreldra hans. skapti@mbl.is
TRÚAÐUR Neymar er vellauðug-
ur eins og allir bestu knatt-
spyrnumenn heimsins enliggur
ekki á gullinu eins og ormur.
Leikmaðurinn er strangtrúaður
og fram hefur komið að Neymar
láti tíund af tekjum sínum renna
til kirkjunnar. Hvergi fæst það
reyndar staðfest. Þá skipuleggur
hann árlega knattspyrnuleik
ásamt öðrum brasilískum fót-
boltamanni, Nene (Anderson Luiz
de Carvalho), sem um árabil lék í
Evrópu, í Jundiai, heimabæ þess
síðarnefnda. Fé sem safnast er
ætíð varið til matarkaupa handa
þurfandi fjölskyldum á svæðinu.
Tíund til
kirkjunnar?
AFP
Neymar ásamt ungum suðurafrískum dreng sem hljóp í óleyfi inn á völlinn til
að hitta goðið þegar Brasilía og Suður-Afríka mættust í vináttuleik árið 2014.
UNGSTIRNI Neymar hóf að
spila fótbolta barnungur eins og
flestir Brassar, og útsendarar
Santos (sem frægast er fyrir að
með því lék hinn eini, sanni Pele)
komu fljótlega auga á hann. Strák
var boðinn samningur við félagið
2003, þegar hann var 10 ára, lék
með unglingaliðum þess næstu ár
en tók fyrst þátt í leik með meist-
araflokki vorið 2009, 17 ára að
aldri. Kom þá inn á sem varamað-
ur en helgina á eftir gerði hann
fyrsta markið. Þetta sama ár lék
Neymar frábærlega á HM 17 ára
og yngri í Japan þar sem hann lék
m.a. með Philippe Coutinho, sem
nú gerir garðinn frægan með
Liverpool á Englandi.
Eftir HM hvöttu margir
Dunga, þjálfara A-landsliðs-
ins, til að velja Neymar í hóp
sinn fyrir HM fullorðinna ár-
ið eftir en af því varð ekki.
Neymar og Coutinho, leikmaður Liv-
erpool, saman í unglingalandsliðinu.
Sló ungur
í gegn
Neymar
tryllir lýðinn
Neymar og Luis Enrique,
þjálfari Barcelona, fagna
að loknum ótrúlegum
sigri liðsins gegn PSG í
Meistaradeild Evrópu á
miðvikudagskvöldið.
AFP
Neymar kynntur til leiks í
Barcelonaborg 3. júní árið
2013. Til vinstri er Sandro
Rosell, forseti Barcelona, og
hægra megin Andoni Zubizar-
reta, þá æðsti prestur í
knattspyrnudeild félagsins.
’Neymar er besti leik-maður Brasilíu um þess-ar mundir og fyrirliði lands-liðsins. Slíkir garpar eru í
hávegum hafðir í þessu
mikla fótboltalandi
Neymar vekur oft athygli
fyrir klæðaburð.
Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is
Fagleg & persónuleg þjónusta
Dæmi:
COSMETAL J-CLASS
Kolsýruvatnskælir
fyrir kröfuharða
5.500,- án VSK
Þjónusta- & leigugjald á mán.
Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki
Hagkvæmara en þú heldur!