Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Side 16
SAMGÖNGUMÁL
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
Rán Freysdóttir er alin upp áDjúpavogi og vill hvergi ann-ars staðar vera. Hún flutti
burt í tuttugu ár, bjó erlendis og
flutti þá til baka. Hún er innanhús-
arkítekt, situr í bæjarstjórn og rek-
ur veitingastaðinn Við Voginn.
Hvað finnst þér um að það sé búið
að slá af að gera nýjan veg?
„Skelfilegt. Algjörlega út í hött.
Það er ekki hægt að bjóða okkur upp
á þetta, þetta er hluti af þjóðveg-
inum, fimm kílómetrar,“ segir hún.
„Það er mjög mikil umferð hér,
allt árið. Og margar rútur sem fara
hér í gegn og það þarf að þvo rút-
urnar í hvert skipti sem þær hafa
keyrt veginn, þetta er ekkert smá
mikil drulla. Ef það er ekki þurrt og
allt fullt af holum sem sprengja
dekkin hjá þér er svo mikil leðja að
þetta er eins og skautasvell,“ segir
Rán.
Okkur er misboðið
„Við eigum að sækja okkar þjónustu
austur, það er sjúkrahús á Norðfirði
og læknar á Egilsstöðum og okkur
er beint þangað. Þetta er ekki
hægt,“ segir hún og bendir á að
sjúkrabílar og slökkviliðsbílar þurfi
að keyra þennan veg hægt.
Rán segir mikla reiði í samfélag-
inu fyrir austan. „Okkur er algjör-
lega misboðið. Við erum fyrsti
fjörðurinn á Austfjörðum og þú
þarft alltaf að fara þennan veg ef þú
ætlar norður, þá þarftu að fara þessa
drullu.“
Ellefu rútur í hádeginu
Rán segir ferðamannastrauminn
sífellt meiri og mikið álag á vega-
kerfinu.
„Ég rek kaffihús hér og bara í há-
deginu á sumrin erum við að fá hing-
að ellefu rútur. Ég held að ráðamenn
átti sig ekki á umferðinni sem er að
fara hér í gegn. Fyrir utan alla bíla-
leigubílana.“
Rán segir hugmyndina um að
setja á vegatolla ekki góða lausn.
„Ef við erum svona blönk, ríkasta
þjóðin, þá ættum við að setja hér
komugjald á ferðamenn sem fer þá
gagngert í að laga vegakerfið. En að
ég sé að fara að borga vegatoll ef ég
skrepp til læknis, ekki séns.“
Rán Freysdóttir segir
þunga umferð um
veginn í Berufirði.
Okkur er algjör-
lega misboðið
Halldóra, skólastjóri Djúpavogs-
skóla, segir bagalegt að börnin
þurfi að þola holóttan malarveg.
að okkar rödd skuli ekki hafa jafn mikið
vægi og annarra.“
Upplifið þið ykkur sem annars flokks
hérna fyrir austan?
„Já, það er algjörlega þannig. Maður
hlýtur að spyrja sig hvort þetta ætti ekki
að vera í forgangi, og allar þessar ein-
breiðu brýr. Það hafa orðið alvarleg slys
þarna og bílveltur. Það eru margir erlend-
ir ferðamenn sem kunna ekki að keyra á
malarvegum,“ segir hún.
Mikil samstaða fólks
„Það er mjög þungur undirtónn í þessari
baráttu og mikil reiði, fólk skilur þetta
ekki. Og þrátt fyrir að það sé vanmáttur
hjá mörgum er fólk hér til í að standa sam-
an, fólk hér hefur sterka réttlætiskennd.
Mjög mikil samstaða. Sumir mættu með
börnin sín í mótmælin um daginn og mér
fannst mjög krúttlegt að þar var einn lítill
fjögurra ára sem hrópaði: áfram vegur!“
Halldóra segir alla sem vilja keyra á
Austfjörðum þurfa að keyra veginn.
„Þetta er ekkert einkamál okkar sem bú-
um hér í Berufirði eða á Djúpavogi. Allir
sem eiga erindi hingað austur á firði þurfa
að keyra þennan veg. Þetta er hagsmuna-
mál allra.“
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir erskólastjóri Djúpavogsskóla og ereins og fleiri afar vonsvikin.
„Þetta er bara mjög alvarlegt og við erum
búin að sýna mikla þolinmæði. Það hafa
verið deilur um þennan veg varðandi
landamæri og hvar hann ætti að liggja en
svo var búið að leysa það og þá sáum við
fram á að loksins yrði þetta klárað. Þegar
þessi frétt kom fékk ég jafn mikið áfall og
allir aðrir,“ segir hún.
„Það sem snýr að mér sem skólastjóri
er öryggi minna skjólstæðinga sem eru
börnin í dreifbýlinu sem þurfa að keyra
þennan veg,“ segir hún en sex börn koma í
skólabíl sem þarf að fara þennan veg-
arkafla. „Á hverjum einasta degi, fram og
tilbaka. Sama hversu holóttur hann er. Við
erum ekki að tala um einhvern vegarslóða
uppi á hálendi, við erum að tala um þjóð-
veg númer eitt. Þegar talað er um að það
þurfi að forgangsraða, það að setja slitlag
á þjóðveg eitt ætti að vera númer eitt,“
segir Halldóra.
Rödd okkar heyrist ekki
„Við búum hér á hjara veraldar og það er
langt til Reykjavíkur þar sem þeir sem
ráða búa, en það er alveg ótrúlega skrítið
Börnin hrópa „áfram vegur!“
Berglind Häsler sést hér við mótmælin á
fimmtudag en þá var veginum um Berufjörð
lokað í tvær klukkustundir.