Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Side 20
VIÐTAL
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
N
ýr sendiherra Bretlands flutti
frá Afríku til Íslands í sept-
ember en vill ekki fella dóm
um landið fyrr en hann hefur
dvalið hér allar fjórar árstíð-
irnar. „Við eigum alveg eftir að upplifa íslenskt
sumar svo við bíðum þar til fyrsta árið er liðið
áður en ég segi þér hvað mér finnst um Ís-
land,“ segir Michael Nevin sendiherra kíminn.
Hann og eiginkona hans, Sawako Nevin,
dvöldu síðustu átta ár í Afríku og eru við-
brigðin því mikil. „Fólk er alltaf að spyrja okk-
ur hvernig okkur líki Ísland en við höfum ekki
ferðast mikið út fyrir höfuðborgarsvæðið
nema stöku dagsferðir. Og maður getur í raun
ekki metið heilt land út frá höfuðborginni svo
ég ætla ekkert að láta uppi fyrr en ég hef
kynnst landinu almennilega.“
Michael og Sawako hafa hins vegar mikinn
hug á að skoða landið betur með vorinu, um
leið og golfvellirnir umhverfis landið verða
opnaðir. „Við spilum bæði mikið golf og vorum
virkilega ánægð með að heyra að á Íslandi
væru um 60 golfvellir svo við ætlum að skoða
Ísland með því að þræða golfvellina og spila á
þeim öllum.“
Erfiðara fyrir makann
Þau hjónin höfðu einu sinni komið til Íslands áð-
ur en hann ákvað að sækja um stöðu sendiherra
hér. „Íslenskt vinafólk okkar bauð okkur að
halda upp á áramótin á Íslandi árið 2007 svo við
dvöldum hér í nokkra daga, í svartasta skamm-
deginu og upplifðum stemninguna hér, sáum
alla þessa flugelda sem þið eruð þekkt fyrir og
prófuðum dálítið af íslenskum mat. Ég er nokk-
uð viss um að Reykjavík var minni þá, það var
ekki eins margt fólk á ferli og borgin hefur þan-
ist meira út,“ segir hann og bætir við að þau
hjónin hafi þó lúmskt gaman af því þegar borg-
arbúar býsnist yfir umferðarþunga í Reykjavík,
og hversu langan tíma það taki þá að komast til
og frá úthverfum borgarinnar. „Það sem þið
kallið úthverfi og nágrannabæi þykir mér nú
bara vera nokkuð miðsvæðis. Við bjuggum í
Naíróbí þar sem mannfjöldinn er gríðarlegur og
umferðarþunginn getur verið með ólíkindum,
svo trúið mér, þetta gæti verið mun verra.“
Sendiherrahjónin fluttu svo að segja bara
tvö saman til Íslands, tvö barnanna þeirra eru
í heimavistarskóla á Englandi og koma því að-
eins heim í skólafríum og það elsta starfar sem
arkitekt í Cardiff í Wales. Hann segir svona
flutninga vanalega erfiðari fyrir maka sendi-
herrans. „Ég myndi segja að á hverjum stað
taki um það bil sex mánuði að setja sig inn í
starfið og um eitt ár að finna sig heima í nýju
landi. Ég held að það sé auðveldara fyrir mig
að flytjast á milli því ég hef alltaf vinnuna og
fer inn í ákveðna rútínu um leið. Það er aðeins
erfiðara fyrir Sawako því hún þarf frekar að
finna sér eitthvað að gera á nýjum stað þar
sem hún þekkir engan og kynnist til að byrja
með eingöngu starfsfólki sendiráðsins. Hún er
mjög aktíf manneskja og alltaf að leita sér að
störfum eða samstarfsverkefnum og eftir að
hún flutti hingað byrjaði hún að prjóna og
prjónar nú fyrir sýrlenska flóttamenn svo hún
er strax komin með nýtt áhugamál.“
Þegar blaðamaður spjallaði við sendiherr-
ann voru þau hjónin hins vegar nýkomin úr
fyrstu skíðaferðinni í Bláfjöll og vonuðust til að
geta stundað skíði meira áður en veturinn væri
úti. „Ég hafði ekki farið í 25 ár og Sawako var
að fara í fyrsta sinn en henni fannst mjög gam-
an svo við viljum endilega fara aftur.“
Norður-Írinn kannast við sig hér
Michael Nevin starfaði fyrir utanríkisþjónustu
breska samveldisins í Kenýa í fjögur ár og var
svo sendiherra í Malaví önnur fjögur ár áður
en hann tók við sendiherrastöðunni á Íslandi.
„Ég er frá Norður-Írlandi svo viðbrigðin eru
kannski ekki eins mikil fyrir mig og eiginkonu
mína, sem er frá Japan. Og jafnvel þótt Kenýa
og Malaví séu bæði Afríkulönd þá eru þau
mjög ólík og talsverð viðbrigði að fara þar á
milli hvort eð er. En jú, óneitanlega er veður-
farið eitthvað sem þarf að venjast. Um þarsíð-
ustu jól vorum við í Afríku og borðuðum úti á
veröndinni í dásamlegu veðri. Við gerðum það
hins vegar sannarlega ekki þessi jólin.“
Írar og Íslendingar eru taldir náskyldir og
eyjarnar líkar um margt og segir sendiherr-
ann ýmislegt á Íslandi því koma sér kunnug-
lega fyrir sjónir. „Ég held að við eigum mjög
margt sameiginlegt, það er sama seiglan í fólk-
inu, það er duglegt til vinnu til að sjá sér og
sínum farborða og samfélagskenndin er mjög
sterk hjá báðum þjóðum; það er sama náttúran
í fólkinu og landslaginu og veðrið er oft líka
svipað.“
Spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að
sækja um stöðu sendiherra á Íslandi segist
hann hafa viljað færi sig nær heimalandinu á
ný. „Þótt okkur hafi líkað mjög vel í Afríku þá
var ég búinn að starfa þar alls í 12 ár og fannst
nauðsynlegt að breyta til. Mig langaði líka að
vera nær því sem er nú að gerast í Bretlandi
og Evrópu allri. Það er svo margt sem þarf að
greiða úr á næstunni, Evrópumál, öryggismál
og viðskipti, og svo langaði okkur að búa nær
börnunum og fjölskyldunni minni.“
Áhugaverðir tímar í Evrópu
Hann sótti um starfið áður en úrslit Brexit-
atkvæðagreiðslunnar voru ljós en hann segir
þá staðreynd að Ísland sé ekki í Evrópusam-
bandinu hafa haft áhrif á val sitt. „Já, það var
hluti af ástæðunni fyrir því að við völdum Ís-
Mikilvægt að
læra íslensku
Þrátt fyrir mikið umrót í evrópskum stjórnmálum og óvissu um stöðu gamla heims-
veldisins er sendiherra Bretlands á Íslandi spenntur fyrir framtíðinni og komandi
tækifærum sem og því að spila golf á hverjum einasta golfvelli landsins.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com
Sendiherrahjónin Michael
og Sawako Nevin eru þakk-
lát fyrir að fá að kynnast
ólíkri menningu. Þau vörðu
átta árum í Kenýa og Malaví
áður en þau fluttu til Íslands.