Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Síða 32
TÍSKA
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.3. 2017
Ofurfyrirsætan Kate Moss prýðir forsíðu bresku útgáfu aprílheftis
Vogue. Þar er hún í opinskáu viðtal um nýtt hlutverk sem eigandi
fyrirsætuskrifstofunnar Kate Moss Agency og breyttan lífsstíl.
Kate Moss í nýju hlutverki
Breski fatahönnuðurinn
Stella McCartney sýndi
línu með heldur sveitalegu
ívafi fyrir næsta vetur. Þá
greindi McCartney frá því að í
upphafi sýningarinnar hefði inn-
blásturinn verið Bretland og
hvaða þýðingu það hefði að
vera bresk. Hún hefði síðan
tekið þá hugmynd, endurhugsað
hana og tekið í sundur svo úr
hefði orðið öðruvísi sýn á hug-
takið sem endurspeglaðist í línu
tískuhússins.
Lína Isabel Marant fyrir
veturinn 2017/2018
einkenndist af glamúr
og sterkum svip frá ní-
unda áratugnum. Hönn-
un Marant einkennist
iðulega af frönskum
glæsileika og var nýjasta
línan engin undantekning.
Marant lagði við hönnun
línunnar áherslu á að kon-
an gæti verið þokkafull en í
þægilegum fötum á sama
tíma og má með sanni
segja að það hafi heppnast. AFP
ISABEL MARANT STELLA
MCCARTNEY
AFP
SAINT
LAURENT
Hönnun Anth-
ony Vaccarello
fyrir Saint Laur-
ent einkenndist
af níunda áratug síð-
ustu aldar. Hönnuðurinn
vann með Swarowski-
-kristalla, bæði í fatnaði og
skóm, sem juku glamúr í lín-
unni. Línan var afar rokkuð
og fór Vaccarello ekki of
langt frá stíl forvera síns,
Hedi Slimane, hvað varðar
karakter.
AFP
Tískuvikunni í París lauk í
vikunni og markar það
lok tískuviknanna allra
fyrir veturinn 2017/
2018. Mörg af stærstu
tískuhúsum heims
sýna á tískuvikunni
í París og getur hér
að líta nokkrar vel
heppnaðar línur
sem gefa okkur
innsýn í útlitið
næsta vetur.
Sigurborg Selma Karlsdóttir
sigurborg@mbl.is
Vetrarlína Dior er önnur
lína Maria Grazia Chiuri
fyrir tískuhúsið en fyrri lína
hönnuðarins, fyrir sumarið
2017, vakti gríðarlega at-
hygli fyrir femíníska
stefnu. Þar sýndi hönn-
uðurinn meðal annars
stuttermabol sem á var
ritað: „We should all be
feminists.“ Vetrarlínan var
ekki síður femínísk og lýst sem
dökkbláum, femínískum her Di-
or. Bláa litinn valdi hönnuðurinn
vegna þess að sá litur var í miklu
eftirlæti hjá Christian Dior.
DIOR
AFP
CÉLINE
Phoebe Philo, yfirhönn-
uður franska tískuhúss-
ins Céline, sýndi glæsilega
línu sem samanstóð af
mikilli sídd og sléttum lín-
um. Þá notaði hönnuður-
inn jafnframt kögur í flík-
um og faldi, sem gerði
línuna meira spennandi.
Línan er módernísk og
elegant og því líkleg til að
höfða til margra.
Tískan
næsta
vetur