Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.03.2017, Page 45
12.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
SJÓNVARP Breska ríkissjónvarpið, BBC, sýnir þessa
dagana glænýja dramaseríu, SS-GB, sem byggist á sam-
nefndri skáldsögu eftir Len Deighton frá 1978. Sagan ger-
ist í miðri heimsstyrjöldinni seinni og gefur sér að Þjóð-
verjar hafi unnið orrustuna um Bretland og beiti
heimamenn að vonum miklu harðræði. Sem dæmi má nefna
að Bretakóngur er í haldi SS-sveitanna og andspyrnuhreyf-
ingin hefur áform um að leysa hann úr haldi og senda til
Bandaríkjanna, sem þó virðast hafa lítinn áhuga á að taka við
honum. Með helstu hlutverk í SS-GB fara breski leikarinn
Sam Riley og bandaríska leikkonan Kate Bosworth.
Þættirnir hafa fengið misjafna dóma og er meðal ann-
ars legið á hálsi fyrir slaka hljóðmynd. BBC hefur lof-
að að kippa því í liðinn.
Bretland hernumið
Kate
Bosworth.
AFP
MÁLMUR Það var málmsögulegt augnablik
þegar Iggy gamli Pop steig á svið með
Metallica í Mexíkó um liðna helgi. Kappinn
hitaði upp fyrir málmskrímslin á þrennum
tónleikum í Foro Sol-leikvanginum þar í
landi og var aukinheldur kallaður á svið til
að syngja gamla Stooges-slagarann T.V. Eye
með James Hetfield. Fór vel á með þeim fé-
lögum og Iggy virðist engu hafa gleymt, en
hann verður sjötugur í næsta mánuði. Sam-
tals sáu tæplega tvö hundruð þúsund manns
tónleikana þrenna og notaði trymbillinn Lars
Ulrich tækifærið meðan hann var í Mexíkó til
að andmæla múrbyggingu Donalds Trump.
Iggy Pop steig á svið með Metallica
Iggy Pop eldhress á Golden Globe fyrr í vetur.
AFP
Skonrok(k) Þorgeirs Ástvalds-sonar er á dagskrá sjónvarpsí kvöld og hefst þáttur hans
klukkan 20.40. Í þættinum mun
Þorgeir kynna ný og eldri lög með
ýmsum þekktum listamönnum ef að
líkum lætur. Þáttur þessi hefur ver-
ið á dagskrá sjónvarps nú um nokk-
urt skeið, og virðist njóta talsverðra
vinsælda, einkum meðal fólks af
yngri kynslóðinni, enda eru þætt-
irnir líflegir og Þorgeir þaulvanur
framkomu í fjölmiðlum. Þá virðist
ekki vera hörgull á efni, eins og oft
var áður fyrr, þegar alþýðutónlist
átti í hlut, enda hefur höfundum og
flytjendum léttrar tónlistar orðið æ
ljósara hve mikilvægur miðill sjón-
varpið er til að koma efni af þessu
tagi á framfæri.“
Ég rakst á þessa dásamlegu
kynningu í gömlum Mogga frá 1980
á dögunum og um mig fór notaleg
þáþrá enda tengjast mínar fyrstu
sjónvarpsminningar einkum
þrennu; bandarískum vestrum,
ensku knattspyrnunni í umsjá
Bjarna Fel. og Skonrok(k)i.
Engu er logið upp á Þorgeir í
kynningunni; hann var frábær gest-
gjafi í Skonrok(k)i og tengdi tónlist-
armyndböndin iðulega með meitl-
uðum skeytum til áhorfenda. Ljúfur
andi sveif yfir vötnum.
Síðar tók Edda Andrésdóttir við
þættinum og reyndist engu síðri.
Það er engin tilviljun að þetta góða
fólk hefur siglt á öldum ljósvakans
allar götur síðan. Að ósekju mætti
Þorgeir þó sjást oftar á skjánum.
Er ef til vill kom-
inn tími til að
dusta rykið af
Skonrok(k)i? Yfir
til þín, Skarphéð-
inn!
Ég sat árum
saman límdur yf-
ir Skonrok(k)i
meðan ég afplánaði æskuna og man
ekki betur en þátturinn hafi fært
mér mína fyrstu uppáhalds-
hljómsveit heim í stofu – ensku
rokkabillípönk-
hljómsveitina
Tenpole Tudor.
Það voru kappar
í lagi; ef þeir riðu
ekki um héröð,
brynjaðir upp úr
hvirfli, höggvandi
mann og annan,
sigldu þeir rupl-
andi og rænandi um heimshöfin. Gat
tíu ára drengur í fásinninu norður á
Akureyri hugsanlega bundið sitt
trúss við annað band? Ekki smuga!
Talandi um alþýðutónlist. Maður lif-
andi.
Adam Ant skaut líka reglulega
upp kollinum í Skonrok(k)i. Hann
var líka minn maður. Eitthvað
ómótstæðilegt við Dandy gamla
Highwayman. Verst hvað hann hef-
ur átt erfiða ævi, blessaður. Hver sá
það fyrir á þessum tíma?
Minna var um málm í þættinum
enda var slík ómenning aðeins fyrir
óða menn og stofnanatæka á þess-
um árum. Það hefur sem betur fer
breyst. Rakst samt á brot af Eddu á
YouTube, við rannsóknir mínar
vegna þessa pistils, að boða endalok
glyströllanna í Kiss. Það var á því
herrans ári 1983.
Sú andlátsfregn var augljóslega
stórlega ýkt!
Þeir kumpánar í Tenpole Tudor. Ferillinn varð af einhverjum ástæðum stuttur.
SETJUM SKONROK(K) AFTUR Á DAGSKRÁ!
Enginn hörgull
á alþýðutónlist
Edda Andrésdóttir
Þorgeir Ástvaldsson
Á skjánum
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
FRÆGÐ Eftir að hafa reynt árum saman að halda
einkalífi sínu fyrir sig hefur bandaríska leikkonan
Kristen Stewart komist að þeirri niðurstöðu að ásta-
mál hennar komi öðrum við – alltént upp að vissu
marki. Stewart var um tíma í sambandi við leikarann
Robert Pattinson, sem lék með henni í Twilight-
myndunum vinsælu, en var á þeim tíma mjög treg að
veita fjölmiðlum upplýsingar. Í fyrra kom hún svo út
úr skápnum. „Ég var svo sem ekki að fela neitt; vildi
bara hafa þessa hluti út af fyrir mig,“ tjáði hún The
Sunday Times. „Ég þoldi ekki að smæstu atriði
í lífi mínu væru höfð að féþúfu og útvarp-
að um allan heim. Síðan áttaði ég mig á
því, að fyrst augu svona margra bein-
ast að mér varðar einkalíf mitt fleira
fólk en bara mig. Ég nýtti því tæki-
færið og gaf eftir agnarögn af því
sem tilheyrir mér til að freista þess
að láta öðrum líða betur; þó ekki
væri nema einni manneskju.“
Stewart viðurkennir að það
hafi reynt á hana að verja það sem
henni fannst öðrum ekki
koma við. „Þegar ég var
að slá mér upp með
Rob var almenningur
óvinurinn – og það er vond leið til að lifa líf-
inu,“ segir hún en bætir við að hún hafi alls
ekki verið ringluð og skyndilega séð ljósið.
„Allt í einu fannst mér þetta bara skipta
máli.“
Í dag þykir leikkonunni notalegt að geta
leitt ástkonu sína á almannafæri, en hún
hefur verið að slá sér upp með belgísk/írsku
fyrirsætunni Stellu Maxwell.
Nýjasta kvikmynd Stewart er sálfræðitryll-
irinn Personal Shopper eftir Olivier
Assayas, auk þess sem annar
þriller er væntanlegur, Liz-
zie eftir Craig William
Macneill.
Kristen Stewart ásamt Robert Pattinson í Twilight. Þau
voru par um tíma en nú er hún komin út úr skápnum.
AFP
KRISTEN STEWART BREYTIR UM KÚRS
Opnar sig
um einkalífið
Kristen
Stewart
í essinu sínu.
AFP
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRAKvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Eigum úrval af
álhjóla- og veggjapöllumÁlhjóla og
veggjapallar Sorpkvarnir íeldhúsvaska
Álstigar og tröppur
fyrir iðnaðarmenn
Íslensk framleiðsla í 32 ár
Tröppur frá