Morgunblaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Nokkur hópur fólks kom saman fyrir utan ráð- húsið í Reykjanesbæ í gærkvöldi og krafðist þess að rekstri kísilverksmiðjunnar United Silicon í Helguvík yrði hætt. Sagði hópurinn mengun stafa af starfseminni og að ekki gengi að hafa verksmiðjuna svo nærri íbúðabyggð. Óvissa er nú um áreiðanleika arsen-mælinga í nágrenni við verksmiðjuna, en vísbendingar eru um að styrkur arsens sé minni en fram hefur komið. Víkurfréttir/Hilmar Bragi Íbúar í Reykjanesbæ mótmæltu kísilverinu í Helguvík Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Félagsmálaráðherra mun leggja fram á Alþingi á næstunni lagafrum- varp um keðjuábyrgð. Mun aðalverk- taki bera ábyrgð á því að undirverk- takar hans stundi ekki félagsleg undirboð. Frumvarpið var kynnt í ríkisstjórn í gær og vonast Þorsteinn Víglundsson til þess að það verði að lögum á vorþingi. Annað slagið birtast fréttir um brot á ákvæðum kjarasamninga eða ásakanir um slíkt og félagsleg undir- boð af ýmsu tagi. Þetta er áberandi í efnahagsuppsveiflu þegar vinnuafl er sótt til útlanda í meiri mæli en ella og tengist sérstaklega verktakastarf- semi í byggingariðnaði en einnig fleiri atvinnu- greinum. Jafnar sam- keppnisstöðu Nokkrir stórir verkkaupar hafa sett reglur um keðjuábyrgð í samninga sína, meðal annars Landsvirkjun, Ríkiskaup, Reykjavíkurborg og Akureyrarbær. Málið hefur verið tekið upp í kjarasamningum á al- mennum vinnumarkaði og síðustu ár hefur verið unnið að gerð lagafrum- varps í velferðarráðuneytinu í sam- vinnu við aðila vinnumarkaðarins. „Ég tel að við séum að stíga tíma- mótaskref til að sporna við félagsleg- um undirboðum,“ segir Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra. Í frumvarpinu felst að hans sögn að ábyrgðin er færð á hendur aðal- verktaka. Hann beri ábyrgð á undir- verktökum sem samið er við og und- irverktaka þeirra. Sem sagt allri keðjunni. „Þetta leggur verulegar skyldur á herðar aðalverktaka. Mestu máli skiptir að ekki sé verið að ráðast í verk með miklum undirboð- um sem augljóslega er ætlað að mæta með því að svína á fólki eða undir- verktökum. Við teljum að með þess- um hætti sé verið að girða mjög fyrir þann möguleika. Það er óþolandi að fyrirtæki, hvort sem þau starfa hér eða koma hingað í einstök verkefni og virða alla kjarasamninga og reglur um kjör starfsfólks, þurfi að keppa við fyrirtæki sem hyggjast ekki gera það,“ segir Þorsteinn. Nær til kjara starfsfólks Keðjuábyrgðin nær til kjara starfsfólks, þar á meðal launa og af- dreginna gjalda og skatta. Það nær ekki til almennra skatta fyrirtækj- anna. Þorsteinn segir að gengið hafi ver- ið eins langt í því að nota keðju- ábyrgð og reglur EES-samningsins heimila. Hún nær ekki yfir að minnsta kosti eitt mál sem hefur komið upp í umræðunni, það er þegar erlendar rútur sem koma með Nor- rænu að vori sækja síðan nýja far- þega í Leifsstöð. Ekki var talið fært að stöðva það með þessum reglum. Keðjuábyrgð innleidd  Reynt verður að sporna við félagslegum undirboðum með ábyrgð aðalverktaka á kjörum starfsfólks undirverktaka  Stefnt að afgreiðslu frumvarps á vorþingi Þorsteinn Víglundsson „Hérna er hart að mæta hörðu,“ segir Þórarinn Ævarsson, fram- kvæmdastjóri IKEA á Íslandi, en fyrirtækið hefur stofnað IKEA- klúbb til að svara komu Costco til landsins. Þórarinn segir ósigur í harðri samkeppni ekki í boði, en meðlimir klúbbsins munu njóta ým- issa fríðinda. „Þeir verða náttúrlega hérna beint á móti og við óttumst helst að traffíkin beinist þangað í auknum mæli,“ segir Þórarinn. IKEA mun bæði bjóða upp á ein- staklings- og fyrirtækjaaðild sem kostar 1.990 krónur á ári. Þeir sem skrá sig í dag fá hins vegar fyrsta ár- ið frítt auk þess sem ókeypis máltíð, heimsending og samsetning á vöru fylgir með. Þá ætlar IKEA einnig að stækka matvöruverslun fyrirtækisins um- talsvert og bjóða upp á fjölbreyttara vöruúrval. Verslunin verður þó ein- ungis opin meðlimum. „Okkur finnst sanngjarnt að þeir sem greiða með- limagjöldin njóti ágóða þeirra,“ seg- ir Þórarinn. Hægt er að skrá sig í klúbbinn á mbl.is auk þess sem tekið verður á móti skráningum í verslun IKEA í dag. sunnasaem@mbl.is IKEA svarar Costco með eigin afsláttarklúbbi  Hægt að skrá sig á mbl.is í dag Afsláttur Ýmis tilboð verða í gangi á hverjum tíma. „Við sendum tölvupóst með skömmum fyrirvara. Fólk verður að hafa hraðar hendur,“ segir Þórarinn. TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslu Íslands, lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær eftir liðlega tveggja mánaða fjarveru frá Íslandi. Þar með er lok- ið að sinni verkefnum flugvélarinnar fyrir Landamæra- og strandgæslu- stofnun Evrópu, Frontex. Flugvélin hélt utan um miðjan janúar. Framan af hafði hún bæki- stöðvar í borginni Hania á grísku eynni Krít en svo færði hún sig um set til Catania á Sikiley. Verkefni vélarinnar fólust í reglubundnu eft- irlitsflugi fyrir Frontex víðs vegar um Miðjarðarhafið, meðal annars á hafsvæðum sem bátar og skip sem flytja flótta- og farandfólk til álf- unnar sigla um. Fyrri hluta aprílmánaðar gengst TF-SIF undir hefðbundið viðhald á meðan áhöfnin sækir reglubundna þjálfun, samkvæmt tilkynningu Landhelgisgæslunnar. Að því búnu taka við hefðbundin verkefni, fyrst og fremst þó löggæsla og eftirlit á Íslandsmiðum, m.a. í tengslum við árlegar úthafskarfaveiðar. Fastlega er búist við því að TF- SIF fari aftur í Miðjarðarhafið á síð- ari hluta ársins, um nokkurra vikna skeið til að sinna frekari verkefnum fyrir Frontex. Gæsluvélin hefur lokið störfum Aðalfundi Landssamtaka sauð- fjárbænda lauk í gær og var sam- þykkt stefna til ársins 2027. Í henni kemur meðal annars fram að stefnt sé að því að kolefnisjafna alla grein- ina eins fljótt og auðið er. Samtökin samþykktu einnig sér- staka neytendastefnu sem kveður á um að neytendur fái réttar og góðar upplýsingar hvar sem þeir kaupa matvörur, hvort sem er í verslunum, á veitingastöðum eða í mötuneytum. Þetta er í fyrsta sinn sem Lands- samtök sauðfjárbænda setja sér neytendastefnu og er hún undir yfir- skriftinni „Okkar afurð – okkar mál“. Þessi stefna verður lögð til grundvallar í allri samvinnu bænda við þá sem vinna og selja afurðirnar. Í stefnunni kemur fram að þetta séu sameiginlegir hagsmunir bænda og neytenda. mhj@mbl.is Lambakjöt verði kol- efnisjafnað „Það hefði verið mjög óvenjulegt ef hinn hefði ekki smitast líka. Mislingar eru svo svakalega smitandi,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, en fyrir fáeinum dögum greindist annað barn hér á landi með sjúkdóm- inn. Er um að ræða 10 mánaða gamalt óbólusett barn sem er tvíburasystkini barnsins sem greindist fyrir tæpum tveimur vikum. Börnin voru á ferðalagi í Taílandi með fjölskyldu sinni og komu aftur hingað til lands 2. mars. Þórólfur seg- ist aðspurður ekki óttast fleiri smit, en síðasti mislingafaraldur á Íslandi var árið 1997. 95% barna eru bólusett hér „Þetta er nokkuð sem við vissum að myndi gerast og við höfum ekki feng- ið neinar fregnir af smiti annars stað- ar. Fyrra barnið sem smitaðist var sennilega í snert- ingu við um 200 manns sem komu að því og flestir af þeim voru bólu- settir. Það náðist að bólusetja marga af þeim sem ekki voru bólusettir og ég held að það hafi náðst að koma í veg fyrir frekara smit,“ segir hann, en allt að 95% barna hér á landi eru bólu- sett gegn mislingum ásamt rauðum hundum og hettusótt. Er það eitt hæsta hlutfall bólusettra barna í Evr- ópu. „Við búumst ekki við fleiri smit- um þótt það sé aldrei hægt að útiloka það,“ bætir Þórólfur við, en barninu heilsast vel og er í einangrun heima hjá fjölskyldu sinni. Hinn tvíburinn smitaðist einnig  Tvö mislingasmit á skömmum tíma Þórólfur Guðnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.