Morgunblaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Frábært fyrirtæki í innflutningi og sölu á vélum, tækjum, verkfærum og rekstrarvöru til iðnfyrirtækja af ýmsu tagi. Velta 750 mkr. og EBITDA 85 mkr. Fyrirtækið er að vaxta hratt og auðvelt að sjá fyrir sér verulega stækkun þess. • Glæsilegt nýtt 30 herbergja hótel í virðulegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Hótelið er í útleigu með langan og góðan leigusamning við traustan og öflugan hótelaðila. • Heildsala með vörur fyrir ferðamenn. Hér er um að ræða lítið en aðrbært fyrirtæki sem hannar og lætur framleiða fyrir sig vörur ætlaðar ferðamönnum. Ársvelta 45 mkr. og ársverk um tvö. • Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting. • Meðferðarstofa, búin mjög sérhæfðum tækjum og sú eina á sínu sviði, sem sérhæfir sig í meðferð sem bætir útlit líkamans. Arðbær rekstur. • Hádegisverðarþjónusta fyrir stofnanir og fyrirtæki og veislumatur fyrir sérstök tækifæri. Tilvalið fyrir kokk sem hefur áhuga á að byggja á góðum grunni. • Ört vaxandi fyrirtæki í framleiðslu myndefnis (auglýsingar og kynningar) vil vaxa enn hraðar með því að fá inn hluthafa sem getur lagt slíkri uppbyggingu lið. Fyrirtækið er með gott orðspor, ársveltu um 100 mkr. og góða framlegð. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á fimmtán mánuðum hefur íbúum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi fjölgað um 86 og nú búa í sveitinni 607 manns, borið saman við 521 í byrjun ársins 2016. Fjölgunin nemur 14% á árinu 2016 og er óvíða meiri. Að sögn Kristófers Arnfjörðs Tómassonar sveitarstjóra er ein helsta skýringin á þessari fjölgun sú að erlendir starfsmenn, svo sem Eistar og Pól- verjar, sem starfa við byggingu Búr- fellsvirkjunar II eru með skráð lög- heimili í sveitarfélaginu en slíkt hefur ekki tíðkast í neinum mæli hér á landi til þessa. Má þar nefna fram- kvæmdir við Kárahnjúka á sínum tíma þar sem hundruð manna störf- uðu um lengi tíma, en höfðu þar ekki skráða heimilisfesti. Búrfellsstarfsmennirnir eru um fjörutíu talsins og búa í vinnuskálum skammt frá virkjuninni nýju. „Ég reikna með að þessir íbúar, sem eru starfs- menn ÍAV, verði á íbúaskrá hjá okkar fram eftir næsta ári. Okkur falla til ágætar út- svarstekjur frá þessum íbúum sem jafnframt njóta allrar þjónustu sveitarfélagsins, þótt lítið hafi reynt á það enn,“ segir Kristófer. Skv. upp- lýsingum frá Landsvirkjun má búast við að um 200 manns verði við störf í virkjuninni. Að hinu leytinu segir sveitarstjór- inn að íbúafjölgunin helgist af því að nokkuð sé um að fólk sem eigi hugsanlega tengsl eða rætur á þess- um slóðum vilji snúa aftur í sveitina sína. Víða séu til dæmis eldri íbúða- hús sem hafi staðið lítt notuð og þá geti verið góður kostur að flytja þangað inn ef um semjist. „Sjálfsagt hefur erfið staða á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu hér einhver áhrif, það er setið um allar eignir sem losna,“ segir Kristófer. „Undirstaða þess að fólk flytur hingað er samt sú að hér hefur verið og er næga vinnu að hafa, svo sem við ferðaþjónustuna, landbúnað og ýmsar framkvæmdir, og ekki útlit fyrir annað en að það haldist,“ nefnir Kristófer. Gjaldfrjáls leikskóli Hann telur það einnig gera Skeiða- og Gnúpverjahrepp að fýsilegum bú- setukosti fyrir barnafólk að leikskóli sveitarinnar, sem er á Brautarholti á Skeiðum, er gjaldfrjáls. Alls eru 33 börn í leikskólanum, en 49 grunn- skólanemar eru í Þjórsárskóla í Ár- nesi. Þar eru krakkarnir í 1. til 7. bekk – en elstu árgangarnir í Flúðaskóla. Eru skráðir með lög- heimili í sveitarfélaginu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Afl Framkvæmdir við Búrfellsvirkjun II eru í fullum gangi og það fjölgar í sveitinni af þeim sökum.  Erlendir verkamenn í Búrfellsvirkjun verða Gnúpverjar Kristófer Tómasson Borgarráð hefur samþykkt ósk skrifstofu eigna og atvinnuþróunar um að veita Símanum hf. vilyrði fyrir lóð við Hólmsheiði undir rekstur gagnavers. Er lóðin veitt með fyrir- vara um að deiliskipulag fyrir lóðina verði samþykkt með auglýsingu í B- deild Stjórnartíðinda. Til skoðunar er að hámarksbygg- ingarmagn lóðarinnar verði allt að 8.000 fermetrar. Þá hefur borgarráð einnig samþykkt lóðavilyrði sem heimilar byggingu allt að 10.000 fer- metrar að stærð. Samtals gætu þetta því orðið 18.000 fermetra byggingar. Fram kemur í greinargerð að Síminn geti óskað eftir úthlutun lóðarinnar þegar deiliskipulag hefur verið samþykkt með fyrrnefndum hætti. Stærð og nánari staðsetning lóðarinnar verður ákveðin í deili- skipulagi. Síminn mun greiða fyrir lóðina markaðsverð eða verð sam- kvæmt gjaldskrá sem borgarráð staðfestir. Á sama fundi samþykkti borgarráð lóðarvilyrði gegn greiðslu, sem heimilar byggingu allt að 10.000 fermetra að stærð. Í greinargerð kemur fram að upp- bygging gagnavera sé fjármagns- frek og mikilvægt sé að búa þannig um hnúta að auðvelt verði að stækka við gagnaver án þess að binda mikið fjármagn ef aðstæður verða hag- felldar síðar fyrir rekstur gagna- versins. Á fundi borgarráð 2. mars var samþykkt að veita fyrirtækinu Green Atlantic Data Centers vilyrði fyrir lóð á Hólmsheiði til að byggja hús undir rekstur gagnavers. Til skoðunar er að hámarksbyggingar- magn lóðarinnar verði allt að 10.000 fermetrar. Borgarráð staðfesti einn- ig samning við sama fyrirtæki um lóðarvilyrði gegn greiðslu, sem heimili byggingu allt að 30 þúsund fermetra húss. sisi@mbl.is Síminn fær lóðir undir gagnaver á Hólmsheiði Morgunblaðið/RAX Hólmsheiði Þarna munu væntanlega rísa gagnaver í framtíðinni. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Öryggismyndavél verður sett upp á hringtorgi á Álftanesvegi með vorinu til að vakta umferð inn í hverfið. Bæj- arráð Garðabæjar fól bæjarstjóra ný- verið að láta setja búnaðinn upp í samráði við lögregluna og Neyðarlín- una. Um tilraunaverkefni er að ræða. Gróf kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að verkefnið kosti um tvær milljónir króna. Engin áform eru hjá bæjaryf- irvöldum í Garðabæ um að setja eft- irlitsmyndavélar víðar að svo stöddu. Gunnar Einarsson bæjarstjóri sagði að lögreglan hefði gefið grænt ljós á þetta sem þróunarverkefni í samvinnu við Garðabæ. „Þetta mun hafa ákveðinn fælingarmátt. Ef eitt- hvað gerist mun lögreglan geta skoð- að myndirnar úr myndavélinni,“ sagði Gunnar. Hann sagði að talsverð umræða hefði orðið í samfélaginu um þörf á eftirliti eftir svonefnt Birnu- mál. „Það kom undirskriftalisti frá íbúum á Álftanesi. Þar var hvatt til þess að leiðin inn í hverfið yrði vökt- uð. Við skoðuðum það með jákvæðum hug og ætlum að gera þessa tilraun. Við höfum verið með nágrannavörslu í mörg ár, fengið lögregluna á fundi og hvatt íbúana til að hafa augun op- in. Ég hef viljað efla nágrannavörsl- una.“ Gunnar sagði að innbrotatíðni hefði verið fremur lág í Garðabæ en eitt innbrot væri einu of mikið. Hann kvaðst hafa orðið þess áskynja á fundum með íbúum bæjarins að um- ræðan um öryggismál væri að aukast. Hann sagði að fyrirtæki og sumir einstaklingar væru með myndavélar á húsum sínum. Þær hefðu stundum komið að gagni við að upplýsa mál. Öryggismynda- vél á Álftanesi  Mun vakta umferð inn í hverfið  Verður sett upp með vorinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.