Morgunblaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.04.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 Nýkynnt fjármálaáætlun ríkis-stjórnarinnar fyrir árin 2018- 22 ber með sér að embættismenn en ekki stjórnmálamenn móti stefnuna í ríkisfjármálunum um þessar mundir.    Þessi áætlun – 5ára áætlun, nema hvað – fjallar til að mynda með af- ar sérkennilegum hætti um skattamál.    Samkvæmt áætluninni er áhugiþeirra sem hana leggja fram á að lækka skatta í besta falli afar takmarkaður.    Þar er þess vegna kafli semfjallar um „Umbætur á skatt- kerfinu“ en enginn um lækkun skatta.    Umbæturnar eru þær að hækkaskatta á ferðaþjónustuna og að lækka almenna virðisauka- skattsþrepið sem nemur þeim auknu tekjum sem þannig eiga að koma í kassann, eða úr 24% í 22,5%.    Svo verður kannað „hvort rýmisé fyrir lækkun niður í 22%,“ eða um hálfa prósentu til viðbótar!    Þá verður „litið til þess“ að lækkatryggingagjald, en aðeins „eft- ir því sem svigrúm verður til“.    Hvernig má það vera að ríkis-stjórnin stefni ekki að neinum raunverulegum skattalækkunum fram til ársins 2022?    Ekki er langt síðan skattar hér álandi voru hækkaðir af mikl- um móð. Gæti ekki verið að „svig- rúm“ og „rými“ hafi þegar skapast til að vinda ofan af því? Benedikt Jóhannesson Er svigrúm fyrir rými árið 2022? STAKSTEINAR Veður víða um heim 31.3., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 2 alskýjað Akureyri 5 alskýjað Nuuk -8 skýjað Þórshöfn 5 rigning Ósló -1 léttskýjað Kaupmannahöfn 6 skúrir Stokkhólmur 1 skýjað Helsinki 2 léttskýjað Lúxemborg 15 heiðskírt Brussel 15 heiðskírt Dublin 12 súld Glasgow 11 súld London 14 léttskýjað París 15 heiðskírt Amsterdam 15 heiðskírt Hamborg 13 þoka Berlín 10 súld Vín 15 skýjað Moskva 0 heiðskírt Algarve 19 heiðskírt Madríd 6 heiðskírt Barcelona 9 heiðskírt Mallorca 18 heiðskírt Róm 14 heiðskírt Aþena 18 léttskýjað Winnipeg 6 skýjað Montreal 1 alskýjað New York 1 rigning Chicago 6 rigning Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:45 20:20 ÍSAFJÖRÐUR 6:45 20:29 SIGLUFJÖRÐUR 6:28 20:12 DJÚPIVOGUR 6:13 19:50 Páll Vígkonarson, fyrr- verandi framkvæmda- stjóri, lést á Landspít- alanum síðastliðinn þriðjudag, 85 ára að aldri. Páll fæddist í Reykja- vík 5. júlí 1931. Foreldar hans voru Vígkon Hjör- leifsson húsasmíða- meistari og kona hans Sigríður Pálsdóttir. Páll stundaði nám í Iðnskólanum í Reykja- vík. Hann lauk sveins- prófi í prentsmíði árið 1953 og prentmynda- ljósmyndun 1965. Hann hlaut meist- araréttindi árið 1966. Páll var verkstjóri hjá prent- myndastofunni Litrófi 1955-1957, stofnandi og framkvæmdastjóri Myndamóta hf. 1957-1989 og fram- kvæmdastjóri H. Pálssonar frá 1989 til starfsloka. Mynda- mót önnuðust prent- myndagerð og lit- greiningu fyrir Morgunblaðið jafn- hliða því að veita ut- anaðkomandi við- skiptamönnum slíka þjónustu. Morgunblaðið átti því 28 ára samstarf við Pál Vígkonarson, sem hvergi bar skugga á. Páll sat um árabil í stjórnum félaga og fyrirtækja í prentgeir- anum, m.a. í stjórn Fé- lags íslenska prentiðnaðarins 1974- 1982. Eftirlifandi eiginkona Páls er Erna Arnar. Synir þeirra eru Bern- hard Örn og Hákon. Fósturdóttir Páls og dóttir Ernu er Rannveig E. Arnar. Andlát Páll Vígkonarson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rafmagnsmælar sem algengastir eru hér á landi hafa staðist prófanir mjög vel og mælt rafmagnið rétt, að sögn Bjarna Bentssonar, sérfræðings á mælifræðisviði Neytendastofu. Að hans mati þurfa íslenskir raforkukaupendur ekki að óttast að þeir séu hlunnfarnir vegna rangra rafmagns- mæla. Um 190 þúsund rafmagnsmælar eru í notk- un á Íslandi. Sumir mældu allt of mikla raforkunotkun Prófun sem gerð var í Háskólanum í Twente í Hollandi á níu gerðum rafmagnsmæla sýndi að sumar þeirra mældu allt að 582% meiri rafmagns- notkun en hún raunverulega var. Frank Leferink prófessor áætlaði að ónákvæm- ir mælar hefðu verið settir upp í a.m.k. 750.000 hollenskum heimilum. Í frétt frá Háskólanum í Twente segir að nú sé verið að skipta gömlu raf- magnsmælunum með snúningsdisknum út fyrir rafræna mæla. Ein útgáfa af þeim er svonefndir snjallmælar. Leferink og samstarfsmenn hans tengdu mæl- ana við ýmsan algengan heimilisbúnað, þar á með- al sparperur, hitunartæki, LED-perur og dim- mera. Raunveruleg rafmagnsnotkun þessara tækja var svo borin saman við niðurstöður raf- magnsmælanna. Fimm gerðir mæla gáfu miklu hærri niðurstöðu en raunveruleg rafmagnsnotkun var, eða allt upp í 582% meiri notkun en hún var. Tveir mælanna sýndu 30% minni notkun en hún var. Mesta frá- vikið var við mælingu á dimmerum sem tengdir voru við snjallperur. Ónákvæmni mælanna var aðallega rakin til hönnunar þeirra og eins til skiptibúnaðar. Í hon- um aflagast rafbylgjurnar, sem virðist trufla mæl- ana. Mælarnir sem sýndu hæstu niðurstöðurnar voru búnir Rogowski-spólu og þeir sem sýndu lægstu niðurstöðurnar voru með Hall-nema. Mælar sem notaðir eru hér reyndust vel Neytendastofa fékk upplýsingar um þessar prófanir á rafmagnsmælum fyrir um hálfum mán- uði, að sögn Bjarna. Fulltrúar Neytendastofu höfðu heyrt í rafveitunum sem nota mæla hér og eins frá mælifræðistofnunum í Evrópu. Hann sagði að Rogowski-spólur væru ekki í rafmagns- mælum sem notaðir væru hér á landi. Hall-nemar eru í rétt rúmlega 100 einfasa mælum og þar á þetta ekki að valda truflunum á mælingum. „Mælarnir sem eru notaðir hér voru prófaðir í þessari rannsókn og komu mjög vel út,“ sagði Bjarni. Hann sagði að þeir væru sambærilegir við Kamstrup-mælana, sem eru algengastir. Mæl- arnir koma sannprófaðir frá framleiðanda. Þeir eru síðan endurlöggiltir eftir ákveðinn tíma. Óhætt að treysta mælum hér  Prófun sýndi að sumir rafmagnsmælar mældu allt að 582% of mikla notkun Morgunblaðið/Skapti Rafmagn Sparperur, LED-ljós og dimmerar trufluðu suma mælana svo þeir mældu skakkt. Leikritið Elly, sem fjallar um eina dáðustu söngkonu Íslands, Elly Vil- hjálms, verður flutt á Stóra sviði Borgarleikhússins í haust. Verkið var frumsýnt 18. mars sl. og hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá bæði áhorfendum og gagnrýnend- um. „Uppselt er á allar sýningar á verkinu fram á sumar og eru haust- sýningarnar komnar í sölu. Vegna mikillar eftirspurnar verður sýning- in því flutt á Stóra sviðið í haust og umgjörð hennar löguð að því,“ segir í tilkynningu Borgarleikhússins. Úrvalslið leikara á sviðinu Leikritið varpar ljósi á líf og söngferil Elly, en söngurinn þótti fágaður, túlkunin hógvær og ígrunduð og röddin silkimjúk og hlý. Elly bjó yfir óræðri dulúð og töfraði marga með söng sínum og leiftrandi persónuleika, en líf henn- ar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara. Úrvalslið leikara og tónlistar- manna tekur þátt í sýningunni og hefur frammistöðu þeirra verið hrósað af gagnrýnendum, ekki síst Katrínar Halldóru Sigurðardóttur í hlutverki Elly en fyrirsögn gagn- rýnanda Morgunblaðsins var: „Stjarna er fædd.“ Sýningarnar á Stóra sviði Borgarleikhússins hefjast 31. ágúst næstkomandi og er miðasala nú þegar hafin, en hægt er að kaupa miða á heimasíðu leikhússins. Leiksýningin Elly fer á Stóra sviðið  Leikarar og verk hafa hlotið einróma lof
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.