Morgunblaðið - 01.04.2017, Síða 24
Creditinfo býður nú öllum Íslend-
ingum eitt frítt lánshæfismat á ári á
heimasíðu sinni, en lánshæfismatið
getur nýst fólki til að styrkja stöðu
sína gagnvart fjármálastofnunum.
Algjör spreng-
ing hefur orðið í
notkun láns-
hæfismats eftir
að lög um neyt-
endalán voru inn-
leidd árið 2013,
en þar var láns-
hæfismat gert að
skilyrði fyrir lán-
veitingum. Láns-
hæfismat er töl-
fræðilegt mat á
því hversu miklar líkur eru á að að-
ili fari í vanskil á næstu 12 mán-
uðum. Meðal þess sem áhrif hefur á
lánshæfismat einstaklinga er aldur,
tengsl við atvinnulífið, fjöldi upp-
flettinga í vanskilaskrá, upplýsingar
úr skattskrá, búseta og hjúskapar-
staða.
Brynja Baldursdóttir, fram-
kvæmdastjóri Creditinfo, segir að
það þekkist víða erlendis að fólk fái
mismunandi lánakjör út frá láns-
hæfismati og velji sér lán í sam-
ræmi við það. „Í Bretlandi og í
Bandaríkjunum, þar sem lánshæfis-
mat er mikið notað, er fólk með-
vitað um fjármálasögu sína og veit
að það að draga að greiða reikninga
mun skila sér í verra lánshæfismati,
sem aftur skilar sér í verri lána-
kjörum. Það sem er mikilvægt í
þessu er að lánshæfismat er fyrst
og fremst notað til að verðleggja
lánsviðskipti rétt, út frá áhættunni
sem felst í því að veita lánið. Þannig
eru góðir lántakendur ekki að
greiða fyrir afskriftir þeirra sem
ekki standa í skilum.“
Brynja segir Íslendinga mjög
duglega að nota vanskilaskrá til
þess að meta hvort hleypa eigi
fyrirtæki eða einstaklingi í reikn-
ingsviðskipti. Gjarnan er talað um
jákvæð og neikvæð gögn í þessu
samhengi. „Neikvæð gögn eru upp-
lýsingar um vanskil, en jákvæð
gögn eru til dæmis yfirlit yfir
skuldastöðuna, og hvernig þú ert að
greiða þína reikninga. Hér á Íslandi
er mjög takmarkaður aðgangur að
jákvæðum gögnum sem eru til þess
fallin að umbuna góðum lántökum.“
Brynja segir að jafnvel slæmt
lánshæfismat geti gefið einstaklingi
aðgang að fjármagni sem hann
hefði annars ekki fengið, en þá
mögulega á lakari kjörum.
Fjármálaþjónusta er að þróast
mjög hratt þessi misserin og sjálf-
virkni að aukast. Aukin krafa er
einnig um afgreiðsluhraða. „Góð
gögn eru grundvöllurinn að því að
hægt sé að sjálfvirkja ákvarðana-
tökur í viðskiptum. Lánshæfismat
er eitt af púslunum í því.“
Brynja segir að ýmis tækifæri
felist í notkun lánshæfismats, meðal
annars að fjármálafyrirtæki geti
boðið viðskiptavinum vörur og þjón-
ustu að fyrra bragði í auknum mæli
og keppt þannig á virkari hátt um
viðskipti fólks. Slíkt hljóti á end-
anum að vera neytendum til góða.
Morgunblaðið/Golli
Lánshæfi Lántakendur aðgreindir.
Einstaklingar fái
sterkari stöðu
Sprenging hefur
orðið í notkun
lánshæfismats
Brynja
Baldursdóttir
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell keramik hitarar sem
blása hita allt í kring.
Úrval af hiturum
frá Honeywell 1. apríl 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 112.83 113.37 113.1
Sterlingspund 140.43 141.11 140.77
Kanadadalur 84.44 84.94 84.69
Dönsk króna 16.191 16.285 16.238
Norsk króna 13.123 13.201 13.162
Sænsk króna 12.628 12.702 12.665
Svissn. franki 112.66 113.28 112.97
Japanskt jen 1.0085 1.0143 1.0114
SDR 152.96 153.88 153.42
Evra 120.43 121.11 120.77
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.0185
Hrávöruverð
Gull 1241.7 ($/únsa)
Ál 1954.5 ($/tonn) LME
Hráolía 52.39 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Birna Ósk
Einarsdóttir hefur
verið ráðin fram-
kvæmdastjóri
markaðs- og
viðskiptaþróunar-
sviðs Landsvirkj-
unar. Birna Ósk
hefur verið fram-
kvæmdastjóri hjá
Símanum frá árinu
2011, síðast yfir
sölu- og þjónustusviði, en hún hefur
starfað hjá félaginu frá árinu 2001.
Hlutverk markaðs- og viðskipta-
þróunarsviðs er að hámarka tekjur
Landsvirkjunar til langs tíma. Í því felst
þróun, kynning og sala á orkuvörum og
þjónustu, samskipti við núverandi og
væntanlega viðskiptavini vegna samn-
inga og reksturs þeirra og greining við-
skiptatækifæra. Birna Ósk tekur við
framkvæmdastjórastarfinu af Björgvini
Skúla Sigurðssyni, sem lét af störfum
fyrir nokkru eftir fjögur ár í starfi.
Í tilkynningu Símans til Kauphallar
segir að næstu vikurnar hnýti hún lausa
enda hjá félaginu áður en hún hverfi á
braut.
Birna ráðin framkvæmda-
stjóri hjá Landsvirkjun
Birna Ósk
Einarsdóttir
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri vék að því á ársfundi bank-
ans í vikunni að hægt væri að
stuðla að jákvæðu eigin fé bankans
með því að dreifa kostnaði af
gjaldeyrisforðanum á milli þeirra
aðila sem njóta góðs af honum,
eins og hann orðaði það í ræðu
sinni. Hann sagði að vegna mikils
neikvæðs vaxtamunar sem tengd-
ist annars vegar forðanum, þar
sem hann væri fjárfestur á sögu-
lega lágum vöxtum erlendis, og
hins vegar vaxtakostnaði af krónu-
skuldum Seðlabankans sem bæru
mun hærri vexti, þá sýndu fram-
reikningar til ársins 2025 að af-
koma Seðlabankans yrði að
óbreyttu neikvæð frá og með árinu
2018 um 18 milljarða króna á ári
og að eigið fé Seðlabankans yrði
neikvætt í framhaldinu.
Þá kom fram í máli hans að mið-
að við landsframleiðslu væri forð-
inn sá stærsti frá lokum seinni
heimsstyrjaldar.
„Það eru í sjálfu sér engin
ragnarök og margir virtir seðla-
bankar hafa starfað með ágætum
með neikvætt eigið fé. Eigi að síð-
ur er af margvíslegum ástæðum
heppilegra að Seðlabankinn hafi
þokkalega eiginfjárstöðu. Fram-
reikningar Seðlabankans sýna að
með margvíslegum aðgerðum og
eðlilegri dreifingu kostnaðarins af
forðanum á milli þeirra aðila sem
njóta góðs af honum sé hægt að
loka þessu gati. Þar með telst
möguleg aukin ávöxtun forðans
með því að skipta honum upp í tvo
eða fleiri hluta með tilliti til bind-
ingar og ávöxtunar,“ sagði Már í
ræðu sinni.
Gert kleift að losa höft
Hann sagði jafnframt að Íslend-
ingar hefðu haft mikinn hag af
þessum „tiltölulega stóra forða“.
„Það er hann sem hefur gert okkur
kleift að losa fjármagnshöftin án
þess að taka of mikla áhættu varð-
andi efnahagslegan og fjármálaleg-
an stöðugleika. Hann leikur stórt
hlutverk í nýlegri hækkun á láns-
hæfismati eins og sjá má af tilkynn-
ingum lánshæfismatsfyrirtækjanna.
Það leiðir síðan til þess að lánakjör
ríkissjóðs, bankanna og stærri fyr-
irtækja á erlendum lánamarkaði
batna,“ sagði Már.
Kostnaði forðans
dreift til að loka gati
Morgunblaðið/Ómar
Eigið fé Virtir seðlabankar hafa starfað með ágætum með neikvætt eigið fé.
Gjaldeyrir
» Gjaldeyrisforðinn er fjár-
festur á sögulega lágum
vöxtum erlendis.
» Gjaldeyrisforði Seðlabank-
ans nam í lok febrúar sl.
rúmum 810 milljörðum króna.
» Stór gjaldeyrisforði gerir
kleift að milda áföll framtíð-
arinnar.
» Á síðasta ári varð tap á
rekstri Seðlabankans sem
nam 35 milljörðum króna.
Mikill hagur orðinn af stórum forða Kjör margra batna
● Seðlabanki Íslands hefur sett nýjar
reglur um lausafjárhlutfall lánastofnana
sem byggðar eru á alþjóðlegum staðli
Basel-nefndarinnar um bankaeftirlit.
Nýju reglurnar munu ekki hafa mikil
áhrif á lausafjárkröfur sem gerðar eru
til banka, að því er fram kemur í frétt á
vef Seðlabankans.
Nýju reglurnar miða að því að inn-
leiða sömu skilgreiningar og framsetn-
ingu og hafa tekið gildi í Evrópusam-
bandinu og eru að mestu leyti sam-
hljóða reglum ESB. Í nýjum reglum
Seðlabankans eru þó áfram gerðar sér-
stakar kröfur um lágmark lausafjárhlut-
falls fyrir erlenda gjaldmiðla sem ekki
er að finna í lausafjárreglum Evrópu-
sambandsins.
Seðlabankinn uppfærir
reglur um laust fé