Morgunblaðið - 01.04.2017, Page 37

Morgunblaðið - 01.04.2017, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 ✝ GuðsteinnVignir Guð- jónsson fæddist á Tunguhálsi í Lýt- ingsstaðahreppi 5. maí 1940. Hann lést að heimili sínu, Lækjarbakka 11, 17. mars 2017. Foreldrar hans voru Guðjón Jóns- son, f. 27. janúar 1902, d. 30. júlí 1972, og Valborg Hjálmars- dóttir, f. 1. maí 1907, d. 27. sept- ember 1997. Guðsteinn var fjórði í aldursröð systkina. Hin eru í aldursröð: 1) Valgeir, f. 1929, d. 1981, maki Guðbjörg G. Fel- ixdóttir. 2) Auður, f. 1930, d. 2008 maki Stefán A. Ingólfsson, d. 1995. 3) Garðar Víðir, f. 1932, maki Sigurlaug Gunnarsdóttir, d. 2015. 4) Hjálmar, f. 1943, d. 2007, maki Þórey Helgadóttir. 5) Stefán Sigurður, f. 1952, maki Steinvör Ingibjörg Gísladóttir. Guðsteinn kvæntist 31. janúar 1965 Ingu Björk Sigurðardóttur Smári, f. 18. október 1993, unn- usta Hólmfríður Böðvarsdóttir, og Hugrún Ása, f. 6. júlí 1999. 4) Ásdís Anna, f. 12. mars 1977, maki Magnús Kristjánsson, f. 9. mars 1974. Börn: Sunna, f. 25. apríl 2000, Birta Ósk, f. 20. apríl 2014, d. 20. apríl 2014,Thelma Ósk f. 20.4. 2014, d. 20.4. 2014 og Óskar Logi, f. 29. september 2015. Guðsteinn bjó til ársins 1991 á Tunguhálsi I og stundaði þar bú- skap. Flutti þaðan til Sauð- árkróks og bjó þar til ársins 1996 og keypti þá Laugardal í Lýt- ingsstaðahreppi og bjó þar til ársins 2015. Síðast var hann bú- settur að Lækjarbakka 11 í sömu sveit. Hann var mikill aðdáandi söngs og söng í karlakórnum Heimi og kirkjukór Lýtingsstaðahrepps. Hann var mikil refaskytta og byrjaði á grenjum aðeins 16 ára. Hann hafði mikinn áhuga á ýmiskonar véla- og viðgerðavinnu og vann mikið við vörubílaakstur með bú- skapnum. Hann gegndi ýmsum nefnda- og félagsstörfum. Hann hafði mjög sterkar skoðanir á málefnum líðandi stundar, sér- staklega stjórnmálum. Útför Guðsteins verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag, 1. apríl 2017, klukkan 11. frá Borgarfelli í Lýtingsstaðahreppi, f. 21. júlí 1944. For- eldrar hennar voru Sigurður Eiríksson, f. 12 ágúst 1899, d. 25. janúar 1974, og Helga Guðrún Sveinbjörnsdóttir, f. 27. september 1918, d. 4. júlí 2005. Dæt- ur Guðsteins og Bjarkar eru: 1) Val- borg Inga, f. 29. september 1964, maki Ólafur Kr. Jóhannsson, f. 8. júní 1964. Börn: Brynjar Páll, f. 14. mars 1994, faðir Jóhannes Jó- hannesson, f. 20. apríl 1966, og Jóhann Steinn, f. 20. ágúst 2003. 2) Heiðrún Edda, f. 11.desember 1968, maki Haraldur Birgisson, f. 10. ágúst, 1964. Börn: Birgir Þór, f. 19. apríl 1991, unnusta Harpa Birgisdóttir, og Bjarki Már, f. 6. júní 1995, unnusta Sig- ríður Vaka Víkingsdóttir. 3) Guðrún Brynja, f. 8. desember 1971, maki Gylfi Ingimarsson, f. 14. mars 1970, börn: Hafþór Elsku pabbi minn. Ég sit hér og rifja upp okkar bestu stundir sam- an. Það er margt sem flæðir í gegn- um hugann eins og til dæmis fjallaferðin okkar upp að Ytri- Stafnsvötnum sl. sumar. Ekki grunaði mig að það yrði okkar síð- asta fjallaferð saman. Á fjöllum leið þér best og aldrei sagðir þú nei væri þér boðið í slíka. Þú þekktir hvern einasta stein, hverja einustu þúfu. Þú varst mik- il grenjaskytta og í öllum fjalla- ferðum varst þú tilbúinn ef lágfóta sýndi sig. Til útlanda fórst þú aldrei og sagðir að þú hefðir ekk- ert að gera í mengunina þar enda undir þú sáttur við þitt í sveitinni. Elsku pabbi minn. Nú er ferða- lagi okkar saman lokið, í bili að minnsta kosti. Megi algóður guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Farðu í friði, pabbi minn. Þín dóttir, Guðrún Brynja. Jæja, elsku pabbi minn. Mig langar bara að óska þér góðrar ferðar. Ég heyrði í þér síðast í síma á miðvikudaginn í vikunni sem þú lést. Þá varstu á leiðinni í bæinn í fermingu helgina eftir. Þú sagðir að það væri kominn tími til að koma í heimsókn en þú varst ekki búinn að sjá nýja heimilið okkar. Enda varstu ekki mikið fyrir að fara úr firðinum fagra þannig að það var alltaf viss við- burður þegar þú komst í bæinn. Ég veit að þú átt eftir að koma í heimsókn, það verður bara með öðru sniði en áður. Þú ert ávallt velkominn, pabbi minn. Þú varst búinn að spyrja nokkrum sinnum hvort Óskar Logi væri ekki farinn að labba. Líklega hefur þér þótt hann heldur seinn af stað, enda orðinn eins og hálfs árs, en núna er hann farinn að labba um allt. Elsku pabbi minn, hvíldu í guðs friði, ég veit að núna ertu búinn að hitta stelpurnar mínar og þið passið upp á hvort annað. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. Engið, fjöllin, áin þín, yndislega sveitin mín, heilla mig og heim til sín huga minn úr fjarlægð draga. Blessuð sértu, sveitin mín, sumar, vetur, ár og daga. (Sigurður Jónsson) Góða ferð og góða nótt, elsku pabbi minn. Þín Nína, eins og þú kallaðir mig alltaf, Ásdís. Elsku pabbi. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Faðmlögin okkar voru ekki mörg en þú faðmaðir mig þétt að þér og kysstir mig á kinnina 8. desember síðastliðinn á tröppun- um á Lækjarbakka þegar ég var búin að aðstoða þig við svolítið sem þú réðir ekki við einn. Þetta var mér meira virði en þú getur ímyndað þér. Að lokum vil ég færa þér mínar bestu þakkir fyrir hversu góður þú varst við syni mína. Þú kenndir þeim svo margt sem mun nýtast þeim um ókomin ár. Hvíldu í friði, elsku pabbi. Þín dóttir, Heiðrún Edda. Elsku afi Guðsteinn. Það er svo erfitt að hugsa sér að þú sért far- inn frá mér, við áttum eftir að gera svo margt saman. Á sama tíma er ég svo þakklátur fyrir allt sem við gerðum saman í sveitinni, hvort sem það var að sinna sveitastörf- unum eða viðhalda tækjunum þín- um. Ég man hvað ég hlakkaði allt- af til þegar þú komst heim af grenjum til að fá fréttir af veiðinni og ferðinni, enda er allur veiði- áhugi minn frá þér kominn. Alla tíð hef ég litið upp til þín enda varst þú traustur félagi og alltaf samkvæmur sjálfum þér í einu og öllu. Farðu nú vel með þig, elsku afi minn, þér mun ég aldrei gleyma. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þitt barnabarn, Hafþór Smári Gylfason. Elsku afi minn, margs er að minnast. Við vorum góðir vinir og gerðum svo margt saman. Þú varst líka eini afi minn sem ég gat treyst á. Ég er þakklátur fyrir allt það sem þú kenndir mér, það mun nýtast mér alla ævi. Eftirminni- legar eru ferðirnar sem við fórum á greni í framsveitum Lýtings- staðahrepps. Þá fórum við ríðandi og þú varst með riffilinn framan á þér. Þarna vorum við kóngar um stund og þessu mun ég aldrei gleyma. Mikið sem var nú líka gaman hjá okkur þegar við vorum einir í heyskapnum og átum svið í hvert mál sem amma hafði soðið áður en hún fór til útlanda. Ég man þegar þú varst með pólsku smiðina með þér á gamla Crusier þegar við fórum í Krók- inn. Þú skildir nú lítið það sem þeir voru að segja og réttir þeim alltaf neftóbak þegar þeir sögðu eitthvað og svo hlógum við saman að þessu. Oft vorum við búnir að hringjast á og ræða hina ýmsu hluti og það er svo skrýtið að geta ekki tekið upp símann og hringt í afa. Þú varst stoltur og glaður daginn sem ég hringdi í þig og til- kynnti þér um jarðarkaupin hjá okkur Hörpu. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir það að þú komst í heimsókn til okkar í sveitina og tókst út búskapinn, það verður gott að vita af þér þarna uppi að fylgjast með okkur í framtíðinni. Við hugsum vel um ömmu og hjálpum henni að sjá um hrossin ykkar. Ég mun alltaf vera stoltur af því að vera afkomandi þinn og hugsa um allar góðu stundirnar sem við áttum saman í sveitinni og víðar. Hvíldu í friði, elsku besti afi. Þinn vinur, Birgir Þór Haraldsson. Elsku afi. Það hefur verið frek- ar tómlegt eftir að þú fórst frá okkur þar sem við töluðum saman nánast daglega um alla heimsins hluti en sérstaklega hross, þar sem þau eru mikið áhugamál okk- ar beggja. Ég hjálpaði þér eins og ég gat í einu og öllu og er engin hætta á öðru en að ég reyni eins og ég get að halda hrossastofni þínum áfram í ræktun, þar sem mér þykir ofboðslega vænt um hrossin þín. Það eru margar minn- ingar sem þú skilur eftir þig, eins og síðasta stundin sem við áttum saman, þegar við fórum saman með meri í tamningu í Eyjafjörð- inn miðvikudaginn 15. mars til Agnars bónda og tamningar- manns að Syðra-Garðshorni. Þetta var skemmtilegur dagur og eftirminnilegur. Haustið 2015 fór- um við ásamt pabba ferð suður á land að sækja hest sem Ketill bóndi og vinur gaf mér. Var þetta eins og heimsreisa fyrir þig að komast á sunnlenskt undirlendi og var oft minnst á þessa ferð, þar sem þér fannst við hafa fengið svo höfðinglegar móttökur. Þú hafðir sterkar skoðanir á flestum hlutum og lést þær óspart í ljós og var ég yfirleitt sammála þér. Við munum minnast þín og vitna í þig alla daga. Hvíldu í friði, afi minn. Bjarki Már Haraldsson. Látinn er Guðsteinn Guðjóns- son, góður nágranni og vinur. Kynni okkar hófust þegar við fórum að dvelja langdvölum í Skagafirði fyrir nokkrum árum. Í sveitinni er dýrmætt að eiga góða nágranna og það er ekki sjálfgefið. Guðsteinn var mjög greiðvikinn maður og var alltaf einstaklega hjálplegur ef við þurftum á aðstoð að halda. Guðsteinn og Björk eiginkona hans bjuggu með fé og hross í Laugardal í Dalsplássi þar til fyrir tveimur árum. Þá hættu þau fjárbúskapnum og fluttu sig um set í nærliggjandi Steinsstaða- hverfi en héldu áfram með hest- ana á jörð sinni Borgarfelli í sömu sveit. Guðsteinn var mjög áhuga- samur um hross og oft var hann að sýsla eitthvað með hestana sína heimavið í Laugardal eða á veg- inum í Dalsplássinu. Þau ár sem við vorum að kynnast var hann oft og iðulega að frumtemja ung- hrossin og mörg þeirra voru áber- andi falleg. Hann gerði þau band- vön og kenndi þeim að teymast með öðrum hrossum og kom þeim síðan í hendurnar á atvinnutamn- ingarfólki og hafa margir góðir hestar komið úr röðum Laugar- dalshrossanna. Guðsteinn hafði t.d. mjög glöggt auga fyrir fram- tíðarstóðhestum og notaði oft hesta sem seinna urðu þekktir í ræktun sína. Bera hestar hans vitni um að hann var góður hrossaræktandi. Guðsteinn var stór maður vexti, svipmikill, orðvar og fastur fyrir ef því var að skipta. Hann reyndist okkur afar vel og er minnisstæður persónuleiki. Það var orðinn nokkuð fastur liður í tilverunni að sjá þá félaga saman á ferð, Guðstein við stýrið og hundinn hans Asa, sem stóð sperrtur aftan á pallbílnum, skim- andi í allar áttir, ef þeir lögðu leið sína niður í Dalspláss, þeirra fyrri heimaslóðir. Við söknum Guð- steins og þökkum honum kærlega fyrir samfylgdina og biðjum góð- an Guð að veita Björk og fjöl- skyldunni allri styrk á þessari skilnaðarstundu. Gunnar og Þórdís. Það er gæfa hverrar mann- eskju að eignast góða vini – og það var gæfa mín fyrir 23 árum, að kynnast Guðsteini á sameiginleg- um vinnustað, því þá tókst með okkur afar góð vinátta sem entist meðan báðir lifðu. Guðsteinn tók unglingnum sem jafningja og vin- skapurinn óx og treystist með ár- unum. Mikil vinskapur hafði verið milli Guðmundar langafa míns á Breið og Guðsteins – og ég er ekki frá því að hann hafi látið mig njóta þess fyrst í stað. Ótal minningar koma upp í hugann þegar litið er um öxl og öllum fylgir þeim góð tilfinning, hlýja og bros. Ég minnist allra góðu heim- sóknanna í Laugardal, til þeirra Bjarkar; svolítið eins og að koma heim. Stundum var bara spjall; ég settist í „sætið mitt“ á bekknum og síðan var spjallað yfir góð- gjörðum drjúga stund. Stundum var hrossabras ýmiskonar; stund- um útreiðar, jafnvel fyrirdráttur í Vötnunum eða bara skoðunar- ferðir um landareignina. Oftast í asaleysi og rólegheit- um, þó ekki alltaf. Ég minnist sögulegrar þriggja daga hesta- ferðar fram í Þorljótsstaði í Vest- urdal, Hraunþúfuklaustur og Runu. Þar naut Guðsteinn sín; sögumaður eins og best gerðist, greindi frá staðháttum og gömlum atburðum, svo ljóslifandi stendur í hugskoti. Ég minnist Guðsteins á Grámúla sínum á flugaskeiði fram við Stafnsvötn – eða með Brá hnarreista í fanginu. Ég minnist alls söngsins í leik og starfi með kirkjukór Mælifellsprestakalls. Við stóðum hlið við hlið í ten- órnum og létum oft „blíva“ á háu nóturnar, bara til gamans og þá var þrefalda amenið í uppáhaldi; þurfti stundum ekki annað en smá olnbogaskot til að espa upp. Ég minnist ótal, ótal símtala sem gátu varað á annan tíma, um allt og ekkert – eða bara stutt, til að taka stöðuna. Ég minnist hláturs, kímni og hnyttinna tilsvara. Guðsteinn var vinur vina sinna og ég er viss um að það var betra að hafa hann með sér en á móti. En hann var hreinn og beinn og fólk gekk ekki í graf- götur um hvorumegin það var. Ég hringdi í Guðstein í byrjun mánaðar og boðaði komu mína – sagðist samt ekkert vilja tefja þau hjónin. Það stóð ekki á svari: „Nú til hvers ertu þá að koma, ef þú ætlar ekkert að tefja?“ – Og hlátur í kjölfarið. Það var mín síðasta heimsókn til Guðsteins. Þegar ég hafði tafið svolítið kvöddumst við með virktum eins og alltaf. Traust, hlýtt og þétt handtak að lokum. Kæri vinur – þakka þér ára- langa, trausta og gefandi vináttu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Elsku Björk og fjölskyldan öll. Innilegar samúðarkveðjur til ykk- ar allra. Ólafur Atli Sindrason. Guðsteinn Vignir Guðjónsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Okkar ástkæri faðir, KJARTAN FRIÐRIKSSON, Faxatúni 14, Garðabæ, andaðist 27. mars. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 5. apríl klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim er vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Ingibjörg Kjartansdóttir Salómon Kristjánsson Kristín Kjartansdóttir Sigurður Þór Sigurðsson Anna Kjartansdóttir Brynja Kjartansdóttir Albert B. Hjálmarsson og fjölskyldur Okkar ástkæra, FJÓLA SIGURÐARDÓTTIR, Vesturgötu 7, lést á hjartadeild Landspítalans 27. mars. Útför hennar fer fram frá kapellu Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. apríl klukkan 15. Guðrún Hjálmarsdóttir og fjölskylda Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, GRÓA BJÖRNSDÓTTIR, Efstalandi 10, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans 28. mars, verður jarðsungin frá Seljakirkju fimmtudaginn 6. apríl klukkan 13. Jóhanna Eivinsdóttir Eivin Christiansen Sólveig Eyvindsdóttir Kjartan Æ. Kristinsson Elín Gróa Kjartansdóttir Lára Hlín Kjartansdóttir Sigurbjörn Björnsson Svava Björnsdóttir Sigurður Björnsson Ásdís Magnúsdóttir Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN JÚLÍUSSON, Heiðarbrún 1, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 31. mars. Útförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.