Morgunblaðið - 01.04.2017, Síða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017
Bandaríski hipp-
hopp-tónlistarmað-
urinn Post Malone
heldur tónleika í
Silfurbergi í Hörpu
11. júlí nk. ásamt
tveimur íslenskum
upphitunarhljóm-
sveitum sem til-
kynnt verður um
síðar. Í tilkynningu
segir að Post Mal-
one sé „sjóðandi heitt nafn þessa
dagana“ og hafi slegið rækilega í
gegn með lögum á borð við „Congra-
tulations“ og „White Iverson“ auk
þess að hafa hitað upp á tónleikum
Justins Bieber á ferðum hans um
heiminn í fyrra.
Laginu „White Iverson“ hefur
verið streymt yfir 250 milljón sinn-
um á Spotify og er horft hefur verið
á myndbandið við það 280 milljón
sinnum á vefsíðunum YouTube og
Vevo. Í tilkynningu segir að ævintýri
Post Malone hafi hafist í febrúar ár-
ið 2015 þegar
hann setti fyrr-
nefnt lag á vefinn
SoundCloud.
„Um leið byrjuðu
nöfn á borð við
Wiz Khalifa og
Mac Miller að
tvíta um hann,
Complex og Noi-
sey lofuðu hann í
bak og fyrir,
hann fékk frábær gigg á stórum tón-
listarhátíðum og stóru útgáfurisarn-
ir hófu að berjast um hann. Kanye
West, Jay-Z og 50 Cent buðu sig
fram sem samstarfsfélaga. Í ágúst
sama ár samdi hann við Republic Re-
cords,“ segir í tilkynningu.
Fyrsta breiðskífa Post Malone,
Stoney, kom út í desember í fyrra og
mun hann nú vera á tónleikaferð um
heiminn að kynna nýja tónlist.
1.200 miðar verða seldir á tónleik-
ana og hefst miðasala 12. apríl kl. 10
á vefslóðinni harpa.is/malone.
Post Malone heldur tónleika í Silfurbergi
Rapparinn
Post Malone
FRÁ LOS ANGELES
Gunnar Valgeirsson
gvalgeir@gmail.com
Íslenskt tónlistarfólk hefurinnrás hingað í Disney Halltónleikahöllina 1. apríl, en þá
hefst svokölluð Reykjavíkurhátíð í
samvinnu þess og Sinfóníuhljóm-
sveitar Los Angeles (LA Philharm-
onic). Þrátt fyrir dagsetningu
fyrstu hljómleikanna, er ekki um
neinar ýkjur að ræða því þá leikur
Maxímús Músíkús tónlistarhóp-
urinn með sinfóníuhljómsveitinni
undir stjórn Daníels Bjarnasonar.
Helgina þar á eftir verður
opnunarhátíð undir titlinum Búið
til á Íslandi þar sem ýmist kunn-
uglegt listafólk, s.s. Múm, amiina,
JFDR, og Dj.flugvél og geimskip,
koma fram. Annað tónlistarfólk í
klassíska tónlistarheiminum verð-
ur með tónleika fyrstu vikuna, s.s.
Kammerkórinn Schola Cantorum,
en á annarri helgi hátíðarinnar
verður hápunkturinn þrennir tón-
leikar Sigur Rósar sem seldust upp
á hálftíma þegar miðarnir fóru í
sölu hér vestra.
Meginhátíðinni lýkur svo með
tónleikum Jóhanns Jóhannssonar,
þar sem Valgeir Sigurðsson og
annað íslenskt og erlent tónlist-
arfólk kemur fram.
Að hátíð lokinni mun Björk
Digital vídeósýningin verða á The
Reef sýningarstaðnum niðri í
miðbæ og verður hún frá 19. maí
til 4. júní.
Eftir að þessi hátíð var sett
upp í samvinnu sinfóníu Los Angel-
es og íslenska listafólksins, var tón-
leikum Bjarkar Guðmundsdóttur
bætt við þann 30. maí sem hluta af
hátíðinni. Þeir tónleikar seldust
upp nær samstundis á netinu og
eru miðar á þá mjög dýrir á endur-
sölumarkaðnum.
Eins og sjá má af þessum lista
verður hér um fjölbreytta hátíð að
ræða þar sem klassískt tónlistar-
fólk, raflistafólk, popplistafólk,
kórar, og annað listafólk kemur
fram. Frá Íslandi koma fimmtíu
tónskáld og sextíu tónlistarflytj-
endur fram, með 18 ný verk og
þrjár listasýningar.
Hljómsveitarstjórinn Daníel
Bjarnason frá Íslandi og fyrrver-
andi hljómsveitarstjóri sinfóníu
Los Angeles, Finninn Esa-Pekka
Salonen, verða listrænir stjórn-
endur hátíðarinnar.
List og land heillar
Aðdragandann að hátíðinni
má rekja allt til 2012 þegar fram-
kvæmdastjóri sinfóníuhljómsveit-
arinnar hér í bæ, Chad Smith,
heyrði verk Daníels á tónleikum í
Disney-höllinni. Smith heillaðist af
verkinu og ákvað að heimsækja Ís-
land í fylgd stjórnarforseta LA
Philharmonic, Debrah Broda. Það
sem heillaði þau í heimsókninni var
hversu frjáls íslenski tónlistar-
heimurinn var, þar sem samvinna
tónlistarfólks rauf alla jaðra ým-
issa tónlistartegunda og tónlist-
arhópa. Þetta er þráður sem marg-
ir hafa bent á í gegnum áratugina
og hefur verið vel útlistað í heim-
ildarmyndum s.s. Rokk í Reykjavík
og Screaming Masterpiece.
„Hin ótrúlega dýpt og vídd lif-
andi og nýrrar tónlistar í Reykja-
vík var óvænt uppgötvun af okkar
hálfu,“ sagði Smith nýlega. „Þetta
mátti finna á allskonar stöðum og í
nokkra daga í apríl munum við hér
í Los Angeles hafa tækifæri til að
sjá áhrifamikið listafólk frá Ís-
landi.“
Undirritaður hefur búið hér í
landi yfir þrjá áratugi og hef ég oft
haft á orði við aðra Íslendinga hér-
lendis að þrátt fyrir útflutning
okkar á fiski, sé útrás tónlistar-
fólks af klakanum út í heiminn
kannski sú verðmætasta hvað varð-
ar landkynningu – okkar raun-
verulegu nútímaútrásarvíkingar.
Ekki er laust við að maður sé
eftirvæntingarfullur varðandi
þessa hátíð. Þegar tillit er tekið til
þeirrar breiddar á tónlist sem flutt
verður er ekki laust við smá stolt
af listafólki klakans. Tónlistar-
fólkið á þessari hátíð þarf ekkert
að hafa neina minnimáttarkennd.
Undirritaður hefur séð Sigur Rós,
Múm, amiinu og Björk Guðmunds-
dóttir á tónleikum hér í borg í
gegnum árin og er allt þetta lista-
fólk á heimsmælikvarða. Það sama
má segja um Daníel Bjarnason og
Jóhann Jóhannsson, að öðrum
ólöstuðum.
Í viðtali við blaðakonu Los
Angeles Times nýlega var haft eft-
ir Georg Hólm, bassaleikara Sigur
Rósar, að það að koma fram með
stórum sinfóníuhljómsveitum gæti
annaðhvort heppnast mjög vel eða
valdið miklum vonbrigðum þar
sem um mjög flókna samvinnu
væri að ræða.
Hann þarf lítið að hafa
áhyggjur af hinu síðara, ekki frek-
ar en hitt tónlistarfólkið sem hing-
að kemur.
Í Gróttu Úr 360°myndbandi Bjarkar við lagið „Stonemilker“ sem verður á sýningunni Björk Digital.
Innrás frá Reykjavík
» Þegar tillit er tekiðtil þeirrar breiddar
á tónlist sem flutt
verður, er ekki laust við
smá stolt af listafólki
klakans. Tónlistarfólkið
á þessari hátíð þarf
ekkert að hafa neina
minnimáttarkennd.
Morgunblaðið/hag
Innlifun Jónsi á tónleikum Sigur
Rósar á Iceland Airwaves árið 2012.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Einbeittur Daníel Bjarnason á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
SÝND KL. 2, 5.30, 8, 10.15 SÝND 2, 4, 6 laugardag - SÝND 2 sunnudag
SÝND KL. 8, 10.35
SÝND KL. 2, 4, 6SÝND KL. 8, 10.15
Guðrún Antonsdóttir
lögg. fasteignasali
Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu.
Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð.
Núna er tækifærið ef þú vilt selja.
Hringdu núna í 697 3629
og fáðu aðstoð við að selja
þína eign, hratt og vel.
Ertu í söluhugleiðingum?
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is