Morgunblaðið - 07.04.2017, Qupperneq 1
„Stjórnmálahreyfingar og fjármálastofnanir
hafa verið duglegar að hirða til sín þekktari nöfn
goðafræðinnar,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson,
allsherjargoði Ásatrúarfélagsins, og biðlar því
til fólks að senda hugmyndir að nafni á nýju hofi
félagsins sem nú rís við rætur Öskjuhlíðarinnar.
„Ég vona að almenningur taki við sér og hjálpi
okkur að finna hofinu nafn en við höfum tæpt ár
til stefnu.“
Hof Ásatrúarfélagsins að rísa en vantar nafn
Morgunblaðið/Golli
F Ö S T U D A G U R 7. A P R Í L 2 0 1 7
Stofnað 1913 83. tölublað 105. árgangur
TRJÁPLÖNTUR
GÆÐAPRÓFAÐAR
Á AKUREYRI
VEISLUMATUR,
SKREYTINGAR
O.FL.
ÆTTFRÆÐI-
GRÚSK OG FJÖL-
SKYLDUSÖGUR
SÉRBLAÐ UM PÁSKA ENDURMENNTUN 12-13SKÓGRÆKT 14
„Mér finnst
bréf Rauða
krossins van-
hugsað og bera
vott um uppeld-
isleysi, að skrifa
fólki bréf og
spyrja; má ég eiga pakkann þinn?“
segir kona sem verður sextíu ára á
árinu. Hún fékk nýverið bréf frá
Rauða krossinum þar sem vakin er
athygli á leið sem hún getur valið
til að láta afmælisgjafir í tilefni
stórafmælisins renna til samtak-
anna. Hún segir þetta vera frekju
en Rauði krossinn segist aðeins
vera að benda á möguleika. »4
Fjáröflun „vottur
um uppeldisleysi“
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Framkvæmdir hefjast í haust og við
finnum að eftirspurn eftir húsnæði er
mikil,“ segir Björn Traustason, fram-
kvæmdastjóri Íbúðafélagsins Bjargs.
Tilkynnt var í gær um stofnframlag
til félagsins frá Íbúðalánasjóði vegna
byggingar 1.150 leiguíbúða í Reykja-
vík og Hafnarfirði á næstu árum.
Byggingamagnið er um 80 þúsund
fermetrar og kostnaður verður rúm-
lega 30 milljarðar króna. Af því verða
um 30% stofnframlag frá eigendum
Bjargs, sem eru ASÍ og BSRB, en
70% eru 50 ára lán frá Íbúðalánasjóði
og fleirum. Leiguíbúðir Bjargs í
Reykjavík verða 1.000 og reistar á
svonefndum þéttingarreitum. „Við
byrjum í Spöng, í Úlfarsárdal og á
Kirkjusandi. Nágrenni Öskjuhlíðar
og fleiri svæði koma síðar. Fyrstu
íbúðirnar ættu að verða tilbúnar seint
á næsta ári,“ segir Björn sem gagn-
rýnir ströng og flókin skilyrði í deilu-
skipulagi sem tefji öll mál.
Íbúðirnar verða leigðar beint til
íbúa eða þá félagasamtaka til fram-
leigu. Reynt er að fara nýjar leiðir í
hönnun með félagsleg sjónarmið að
leiðarljósi. Þá hefur verið unnið með
Félagsbústöðum í Reykjavík sem fá
um 20% íbúðanna til ráðstöfunar.
Opnað verður fyrir umsóknir um
næstu áramót.
Á vegum Bjargs verða 150 íbúðir
reistar í Skarðshlíðarhverfi í Hafnar-
firði. Uppbygging í fleiri sveitarfélög-
um er í skoðun.
Byggja 1.150 íbúðir
Bjarg stefnir á stórframkvæmdir Þúsund íbúðir í Reykjavík Spöng, Úlf-
arsárdalur og Kirkjusandur 30 milljarðar kr. Deiliskipulagið er gagnrýnt
„Miklum útlánavexti fylgir alltaf
áhætta og mikilvægt er að fylgst
sé vel með henni,“ segir Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri, en út-
lán til ferðaþjónustunnar jukust
um 27% á síðasta ári að því er
fram kemur í riti Seðlabankans
um fjármálastöðugleika sem kynnt
var í gær.
Alls nema útlán til ferðaþjónstu
nú rúmlega 14% af heildarútlánum
viðskiptabankanna til fyrirtækja.
Er greinin orðin þriðji stærsti at-
vinnuvegaflokkurinn í útlánasafni
bankanna, á eftir fasteignafélögum
og sjávarútvegi. Segir í ritinu að
þótt útlán ferðaþjónustu vegi enn
ekki mjög þungt í bókum við-
skiptabankanna gæti útlánaáhætta
þeim tengd verið hlutfallslega
nokkuð mikil. Í skýrslu sem Ís-
landsbanki hefur unnið segir að
bankinn sé vakandi fyrir áhættu
sem fylgi vexti í lánveitingum til
ferðaþjónustu og vandi val útlána.
» 18
Hraður
vöxtur
útlána
Útlán til ferðaþjón-
ustu jukust um 27%
Í allri gleðinni sem fermingardeginum fylgdi
tók Sóley Guðmundsdóttir, sem nú leggur
stund á viðskiptafræði við Háskóla Íslands,
ekki eftir því að eitt peningaumslagið sem
henni var ætlað var horfið. Umslagið var frá
föðursystur hennar og hafði það dottið á bak
við ofn í sal veitingahússins Lækjarbrekku
fyrir níu árum, eða 10. maí 2008.
Bjarni Ingvar Árnason, veitingamaður á
Lækjarbrekku, lýsti eftir eiganda umslags-
ins í forsíðufrétt Morgunblaðsins í gær, sem
náði til fermingarbarnsins. „Foreldrar mínir
kölluðu á mig í [gær]morgun. Við vissum þá
ekki hvort þetta var endilega ég, en þetta
stemmdi allt,“ segir Sóley og á þá við að hún
fermdist á þessu ári, hélt veisluna í umrædd-
um sal og föðursystir hennar heitir Berg-
lind, en umslagið var undirritað af einhverri
Berglindi. Hún segir ekkert fermingarsystk-
ina sinna hafa kveikt á því að þetta hefði
verið hún, en einhverjir vinir hennar og
kunningjar sem vissu að hún hefði fermst ár-
ið 2008 forvitnuðust um hvort hún væri
týnda fermingarbarnið, sem hún kvaðst þá
vera.
Í umslaginu voru átta þúsund krónur sem
Sóley segir rausnarlegt miðað við að árið
hafi verið 2008. Hún fer fljótlega ásamt
frænku sinni og borðar í boði Bjarna á Lækj-
arbekku.
Fermingarbarnið
Sóley komið í leitirnar
Morgunblaðið/Golli
Fundur Sóley Guðmundsdóttir og Bjarni Ingvar Árnason, veitingamaður á Lækjarbrekku. Þar
fannst við framkvæmdir peningaumslag merkt „Sóleyju fermingarbarni“ frá 2008.