Morgunblaðið - 07.04.2017, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Þóra Halldórsdóttir, eftirlitsmaður hjá Samgöngustofu ogqigong-leiðbeinandi, á 50 ára afmæli í dag, „Ég starfa við eftir-lit með flugumferðarþjónustu, sem veitt er samkvæmt íslensk-
um lögum, reglugerðum og í samræmi við annars vegar ákvæði Al-
þjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) og Evrópureglugerðir sem
koma m.a. frá Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA).
Samgöngustofa er ábyrg fyrir því að tryggja viðeigandi eftirlit,
einkum að því er varðar öruggan og skilvirkan rekstur veitenda flug-
leiðsöguþjónustu innan þess loftrýmis sem er á ábyrgð íslenska ríkis-
ins.“ Þóra er sjálf fyrrverandi flugumferðarstjóri og er með meistara-
gráðu í tölvunarfræði.
Þóra er enn fremur með kennsluréttindi í qigong frá Yang‘s
Martial Arts Association og hefur leiðbeint í qigong til margra ára.
„Í qigong erum við að vinna með líkamann, öndun og huga. Með æf-
ingum og hugleiðslu er unnið að því að koma jafnvægi á orkuflæðið í
líkamanum.
Ég hef til margra ára verið með qigong-tíma yfir vetrartímann
nokkrum sinnum í viku, verið með námskeið og fyrirlestra og svo hef
ég fengið erlenda meistara hingað til lands. Núna í júní verð ég með
útitíma í Laugardalnum, þar sem allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.“
Áhugamál Þóru eru margvísleg og snúa flest að heilsu og heil-
brigði. Auk qigong stundar hún meðal annars sund, göngur og golf.
Þessa dagana fer frítíminn aðallega í að sinna ömmuhlutverkinu.
„Ég ætla að byrja afmælisdaginn á að taka langan og góðan göngu-
túr, kannski um sexleytið, geri svo qigong-æfingarnar mínar og ef
veðrið verður gott geri ég þær úti. Svo held ég til vinnu og býð vinnu-
félögunum upp á eitthvert góðgæti og í dagslok ætla ég að njóta þess
að vera með fjölskyldu og vinum.“
Sonur Þóru er Ari Elísson, hann er giftur og á tvö börn.
Afmælisbarnið Þóra í qigong-búningi, en hún stundar æfingarnar
mikið úti við og verður með ókeypis æfingar í Laugardalnum í júní.
Orkan í öndvegi
Þóra Halldórsdóttir er fimmtug í dag
G
uðmundur Árnason
fæddist á Óðinsgötu
14A hinn 7.4. 1932 en
þegar hann var tveggja
ára flutti fjölskyldan í
nýja íbúð í verkamannabústöðunum
við Hringbraut. Þar átti hann heima
þar til hann hóf búskap með eigin-
konu sinni en þau voru skólasystkini
og samstúdentar úr MR.
Guðmundur var í sveit á Kambi í
Holtum, á fæðingarstað föður síns,
þegar hann var 9 og 10 ára, á Þóris-
stöðum í Svínadal í Borgarfirði, 11
og 12 ára og var 13 ára við störf í
herstöðinni í Hvalfirði. Næstu sex
sumur vann hann við Kirkjugarða
Reykjavíkur en á námsárunum við
HÍ starfaði hann lengst af hjá Land-
mælingum Íslands á sumrin, með
dönskum mælingamönnum: „Við ók-
um um landið, gengum á fjöll, fund-
um mælingapunkta og merktum þá
með vörðum eða sérútbúnu tréverki.
Við mældum t.d. Eyjafjallajökul,
Lómagnúp, Snækoll og Snæfell.“
Guðmundur var í Miðbæjarbarna-
skólanum, Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar, lauk stúdentsprófi frá MR
1952 og prófi í tannlækningum frá
HÍ í maí 1958.
Að námi loknu hóf Guðmundur
störf hjá Halli L. Hallssyni tann-
lækni í Austurstræti 14 í Reykjavík,
og vann þar til 1959. Þá keypti hann,
ásamt félaga sínum, Þorgrími Jóns-
syni, tannlæknastofu Pálma Möller í
Þingholtsstræti 11 en Guðmundur
átti síðan stofuna einn frá 1964. Stof-
an er þar enn og er með þeim elstu
ef ekki sú elsta á landinu. Þar starf-
aði Guðmundur samfellt í tæp 55 ár.
Guðmundur sat í styrktarsjóðs-
nefnd TFÍ 1964-78, í aganefnd KKÍ
1972-82, var gjaldkeri í stjórn TFÍ
1972-74 og 1980-82, sat í stjórn Den-
tex 1972, í stjórn Dentalíu hf. um
skeið frá 1974, var endurskoðandi
TFÍ 1974-83 og 1985-91, í taxtanefnd
1974-91 og í skemmtinefnd 1975-76.
„Sveitadvölin og landmælingarnar
vöktu áhuga minn á ferðalögum um
landið og ég naut þess að ferðast um
óbyggðir landsins á góðum jeppa.
Síðar komust ferðalög til útlanda
einnig á dagskrá og voru Danmörk,
Írland og Spánn þá vinsælust.“
Guðmundur æfði knattspyrnu
með KR frá átta ára aldri: „Við æfð-
um á Skálholtstúni þar sem Mela-
búðin er nú og áður var Camp Knox.
Ég lék knattspyrnu með KR alla
yngri flokka og einnig handknattleik
en þar lék ég með meistaraflokki í 10
ár. Ég heillaðist svo af körfuknatt-
leik þegar ég var 18 ára en honum
kynntist ég í MR 1950. Nokkrir
nemendur skólans vildu halda áfram
að æfa saman og við níu félagar
stofnuðum Körfuknattleiksfélagið
Gosa, en nafninu varð síðar breytt í
KFR, Körfuknattleiksfélag Reykja-
Guðmundur Árnason tannlæknir – 85 ára
Stórfjölskyldan saman komin Guðmundur og Elín eru hér með börnum, tengdabörnum, barnabörnum og barna-
barnabörnum. Myndin var tekin í síðasta mánuði, þann 17. mars síðastliðinn, í tilefni af 85 ára afmæli Elínar.
Hefur stundað sund og
golf af kappi í áratugi
Mosfellsbær Daníel
Brynjar Elefsen fædd-
ist 13. apríl 2016 kl.
17.48. Hann vó 4.300 g
og var 53 cm langur.
Foreldrar hans eru
Katrín Eva Björgvins-
dóttir og Brynjar
Elefsen Óskarsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Guðrún Antonsdóttir
lögg. fasteignasali
Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu.
Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð.
Núna er tækifærið ef þú vilt selja.
Hringdu núna í 697 3629
og fáðu aðstoð við að selja
þína eign, hratt og vel.
Ertu í söluhugleiðingum?
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is