Morgunblaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017 Þú nærð nýjum hæðum í Cross Polo. Frábærir eiginleikar og ríkulegur staðal- búnaður breyta akstrinum í ævintýr. Komdu og prófaðu nýjan Cross Polo. www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Tilboðsverð frá: 2.990.000 kr. 5 ára ábyrgð • 17,5 cm veghæð • Hraðastillir • Íslenskt leiðsögukerfi • Xenon aðalljós og LED dagljós • Nálgunarvarar að aftan og framan • 17" Canyon felgur • Hiti í framsætum • App Connect með Mirror Link og Apple Car Play • Bluetooth búnaður fyrir síma og afspilun á tónlist Tilbúinn í ný ævintýr. VW Cross Polo 400.000 kr. afslátt ur! Verðlistaverð: 3.390.000 kr. Guðrún Erlingsdóttir gue32@hi.is Veglegt safnaðarheimili sem hýsa mun starfsemi Ástjarnarkirkju er nú risið við Kirkjutorg á Völlunum. Í fjölnotasal safnaðarheimilisins munu guðsþjónustur Ástjarnar- kirkju fara fram ásamt fjölbreyttu safnaðarstarfi. Byggingin er um 580 fermetrar að stærð. Starfsmannaálma er tilbúin og unn- ið er að fullu við framkvæmdir og frágang á fjölnotasalnum. Arkís arkitektar ehf. sjá um hönnun byggingarinnar. Hönnuðir vinningstillögu úr samkeppni sem efnt var til eru arkitektarnir Björn Guðbrandsson, Hulda Sigmars- dóttir, Aðalsteinn Snorrason og Egill Guðmundsson. ÞG verktakar sjá um byggingu safnaðarheimilis- ins. Jarðvegsframkvæmdir hófust 23. ágúst 2015 og verður húsnæðið tekið í notkun á næstu vikum. Kirkjustarf mun þá færast úr nú- verandi húsnæði sem er löngu sprungið. Það húsnæði sam- anstendur af tveimur skólastofum sem gefnar voru af Hafnarfjarð- arbæ og gerðar upp árið 2007. Núverandi kirkja tekur um 70 manns í sæti. Með tilkomu nýs hús- næðis verða sæti fyrir allt að 270 manns. Vegna smæðar núverandi kirkju hafa stærri guðsþjónustur farið fram í Haukaheimilinu einu sinni í mánuði og fermingar farið fram í Víðistaðakirkju. Sr. Kjartan Jónsson sóknar- prestur er ánægður með nýju bygginguna. „Við hlökkum til að sjá starfið stóreflast. Fjölbreytt starf fer fram í núverandi húsnæði, öflugt barna- og unglingastarf. Starf eldri borg- ara, tónlistarstarf og þjónusta er veitt fólki af erlendu bergi brotnu, meðal annars með íslensku- kennslu.“ Kjartan bætir við að Ástjarnar- kirkja hafi hlotið tilefningu til hvatningarverðlauna Foreldra- félags Hafnarfjarðar fyrir starf sitt. Ein stærsta sókn landsins Ástjarnarsókn var stofnuð fyrir 16 árum, hún er fyrir íbúa á Völl- unum, Áslandi og Skarðshlíð í Hafnarfirði. Á svæðinu búa 8.000 íbúar en búast má við að þeim fjölgi í 17.000 í framtíðinni. Þar leikur byggðin í Skarðshlíð stórt hlutverk. Ástjarnarsókn mun ef að líkum lætur verða ein stærsta sókn lands- ins. Í sókninni eru tveir skólar, Ás- landsskóli og Hraunvallarskóli, sem sprengt hafa utan af sér húsnæði. Til þess að leysa húsnæðisvanda- mál skólans eru uppi hugmyndir um að Hafnarfjarðarbær taki á leigu núverandi kirkju og hluta af safnaðarheimilinu undir skólastarf. Ástjarnarkirkja er í Tjarnarsókn ásamt Kálfatjarnarkirkju á Vatns- leysuströnd. Tjarnarsókn tilheyrir Kjalarnessprófastsdæmi, sem er eitt af elstu prófastsdæmum lands- ins með 16 sóknir. Safnaðarheimili rís á Völlunum  Ástjarnarkirkja í nýtt húsnæði  Stefnir í 17.000 manna sókn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vellirnir Nýtt safnaðarheimili rís nú í Hafnarfirði. Kirkjustarf Ástjarnarkirkju mun fara þar fram innan skamms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.