Morgunblaðið - 22.04.2017, Side 13

Morgunblaðið - 22.04.2017, Side 13
Ljósmyndir/Erla Þórey Spekingar Miðjubörnin í systkinahópnum, Bjarni Dagur og Ólöf Ósk Bjarnabörn, gauka heyi að Einhyrningi. ingnum á móti honum, sem og annarri tvílembu. Þetta voru því sex kindur saman sem fundust og skiluðu sér heim á aðventunni. Eins og eftir andlitslyftingu „Við höldum að það sé ein- hverskonar stökkbreyting sem veldur þessum undarlega vexti hornanna. Móðir hans og faðir eru ekki ferhyrnd eða neitt slíkt, og það er ekkert ferhyrnt fé í okkar kindum, svo ekki hefur hann feng- ið þetta með genunum. Eldri bændur hér í sveitinni hafa gert sér sérstaka ferð hingað til okkar til að skoða hrútinn, því vissulega er þetta eitthvað sem fáir hafa áð- ur séð. En þeir hafa engar sér- stakar kenningar um hvers vegna skepnan er svona. Hann er bara einstakt fyrirbæri og auk þess nokkuð sérstakur á svipinn, því hann er með uppglennt augu af þessum sökum, það er líkt og hornin með þessum óvenjulega vexti beint upp, nái að teygja á augnlokunum og fyrir vikið er hann svolítið hissa á svipinn, eða jafnvel sorgmæddur. Hann er eig- inlega svolítið strekktur í framan, eins og fólk sem fer í andlitslyft- ingu,“ segir Erla og hlær og bætir við að hann hafi verið svona strekktur í framan þegar hann kom í heiminn. „Hann bar alveg rétt að í burði og átti ekki í neinum erf- iðleikum með að sjúga.“ Hann er ekki kynbótakind Erla segir Einhyrning vera frekar rólegan og hafa gott geðs- lag. „Hann er meinlaus greyið, en þeir berjast hrútarnir sem eru með honum í stíu, og það hefur skafist af honum skinn á kúbunni, kannski leggja þeir hann í einelti af því að hann er öðruvísi, hver veit. Hann hefur ekki sýnt nein undarleg persónueinkenni, en hann er klókur að finna sínar leiðir og lausnir, hann þarf til dæmis að skáskjóta hausnum til að koma honum milli garðabands og garða, svo hann geti étið heyið þegar við gefum á garðann. Hornið eina á honum er vissulega til trafala því í fjárhúsinu er ekkert hannað fyrir einhyrninga,“ segir Erla og hlær. „Ekki var heldur vandræðalaust að rýja hann, sem Bjarni maðurinn minn gerði nýlega, því volduga hornið vísar vissulega ekki í þá átt sem venja er að horn á kindum vísi, en rúningurinn tókst samt að lokum.“ Þó að Einhyrningur sé svo skemmtilega óvenjulegur sem raun ber vitni, þá dugar það honum ekki til lífs. „Hann fær ekki að lifa nema fram á næsta haust, greyið. Hann er ekki kynbótakind, það er alveg ljóst, hann er helst til holdrýr og þrífst ekki nógu vel, hann heldur illa holdum. En hann fær sitt auka sumar núna,“ segir Erla að lokum sem ekki hefur grafið upp einhyrn- ingssögur til að lesa fyrir börnin sín í tilefni af furðuskepnunni á bænum. Hátt horn og klofið Smalar héldu að Einhyrningur væri geithafur. Sveitalíf Kötturinn Litli kisi kann vel við sig í fjárhúsinu með krökkunum. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017 ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2017 Hilton Reykjavík Nordica Miðvikudagur 26. apríl kl. 14 • Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra Ávarp • Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Ávarp • Hörður Arnarson forstjóri Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Þarf framtíðin orku? • Gerður Björk Kjærnested fundarstjóri • Inga Lind Karlsdóttir stjórnar umræðum að erindum loknum Þarf framtíðin orku? Verið öll velkomin Skráning á www.landsvirkjun.is #lvarsfundur Landsvirkjun hvetur til opinnar umræðu um orkumál og þau tækifæri og áskoranir sem eru framundan. Hvernig er rekstur og fjárhagur fyrirtækisins að þróast? Hvað er að gerast á orkumörkuðum heimsins? Hvaða áhrif hefur það á Íslandi? Hver er orkuþörf framtíðar og hvernig mætum við henni? Bein útsending verður frá fundinum á landsvirkjun.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.