Morgunblaðið - 22.04.2017, Page 26

Morgunblaðið - 22.04.2017, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Gróskan í ís-lenskumsjávar- útvegi mun verða til sýnis á sjávar- útvegssýningunni, sem haldin verður í Brussel í næstu viku. Lesendur Morgunblaðsins gátu kynnt sér fjölbreytnina og um- svifin er þeir flettu 48 síðna sér- blaði 200 mílna, sérvefs Árvak- urs um málefni sjávarútvegsins, sem fylgdi blaðinu í gær. Umfangið nær allt frá sjávar- afurðum til tækni í fiskvinnslu, umbúða og hugbúnaðar. Við- tölin í blaðinu bera því einnig vitni hversu mikilvæg fag- mennska er í grein, sem snýst um að koma viðkvæmri vöru sem ferskastri til neytenda á fjarlægum mörkuðum allt frá Evrópu til Asíu. About Fish, sölufyrirtæki Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum, leggur áherslu á að nýta sýninguna í Brussel. Í viðtali við Björn Matthíasson, rekstrarstjóra About Fish, kemur fram hversu mikilvægt er að hafa mörg járn í eldinum í greininni. Í sjávarútvegi er aldrei á vísan að róa þegar kem- ur að mörkuðum eins og sést hefur á undanförnum miss- erum, hvort sem horft er til lok- unar á Rússamarkaði vegna við- skiptabannsins eða verð- lækkunar á Bretlandi vegna falls pundsins. Síðan getur hrikt í mörkuðum út af heima- tilbúnum vandamálum á borð við sjómannaverkfallið. Fyrir- tækið horfir nú sérstaklega á Asíumarkað og segir Björn að með því skapist einnig betri áhættudreifing í rekstrinum, lögð sé áhersla á „að setja ekki öll eggin í sömu körfuna“. Það er einnig athyglisvert að lesa viðtalið við Jóhannes Eg- ilsson, útflutningsstjóra hjá Ora. Þar eru mikil áform um að leita tækifæra í útflutningi á fullunninni vöru með áherslu á sjávarforrétti, sem eingöngu byggist á íslensku hráefni. Hjá Ora er einnig horft á markaði víða um heim og hafnar við- ræður við verslanir í Evrópu, Ameríku og Asíu. Hingað til hefur Ora flutt út fullunnar vörur án þess að vörumerkið kæmi fram. Nú á að breyta því og segir Jóhannes að hug- myndin með því sé að virðisauki varanna verði í auknum mæli á Íslandi, ekki erlendis. Fyrirtækið iCan á sér styttri sögu en Ora. Þar er áherslan á sérhæfða framleiðslu. Fyrir- tækið framleiðir niðursoðna þorskalifur og hyggst markaðs- setja hana sem lúxusvöru. Kost- urinn við að framleiða þessa vöru hér er að hafið umhverfis Ísland er hreint og díoxín- mengun í þorsklifrinni hverf- andi. Íslendingar eru orðnir ráðandi í þessari framleiðslu og telur Guð- mundur Davíðsson, framkvæmdastjóri iCan, að fimm eða sex íslensk fyrirtæki framleiði allt að 80% af allri niðursoðinni þorsklifur í Vestur-Evrópu. Hann segir að ekki sé hörgull á kaupendum að þessari vöru, áskorunin sé að hækka verðið. Íslensk fyrirtæki, sem þróa og smíða tækjabúnað fyrir sjáv- arútveginn, hafa einnig haslað sér völl víða um heim. Nú virð- ast íslensk hugbúnaðarfyr- irtæki vera að sigla í kjölfarið. Fyrirtækið Wise hannar hug- búnað til að létta rekstur fyr- irtækja, þar á meðal útgerða. Hallgerður Elvarsdóttir, sölu- stjóri sjávarútvegslausna hjá Wise, segir að fyrirtækið njóti góðs af því að geta átt í náinni samvinnu við íslensk sjáv- arútvegsfyrirtæki. Sú samvinna hafi orðið enn betri með tilkomu Íslenska sjávarklasans. Fyr- irtækin gefi hugmyndir að breytingum og bótum og prófi um leið nýjungar, sem forrit- urum Wise detti í hug. Umræða um sjávarútveg á til að vera einsleit og ímynd hans hefur ekki alltaf verið jákvæð. Fyrr í vikunni var stofnað félag ungs áhugafólks um sjávar- útveg sem er ætlað að vera vett- vangur upplýstrar umræðu um sjávarútveg og sjávarútvegs- mál. Í 200 mílum er rætt við Ás- björn Daníel Ásbjörnsson, einn stofnenda félagsins, sem heitir Ufsi. „Fólk myndar sér oft ekki sjálfstæða skoðun þegar kemur að málefnum sjávarútvegsins að manni finnst, heldur finnst því oft sem svo að sjávarútvegurinn sé bara leiðinlegur þegar það horfir á hann utan frá,“ segir hann og bætir við: „Það vantar vettvang þar sem fólk getur leitað réttra upplýsinga og þannig í kjölfarið myndað sér sjálfstæða skoðun.“ Það er eftirtektarvert að frumkvæði að stofnun þessara samtaka kemur ekki að ofan, heldur neðan frá. Ásbjörn lýsir því þannig: „Við vorum þrír sem hittust og vorum að furða okkur á því að væri ekki einn einasti vettvangur fyrir ungt fólk í sjávarútvegi, hvað þá fyrir fólk sem hefði einlægan áhuga á þessu. Þannig að við bara slóg- um til.“ Sjávarútvegur hefur lengi verið ein af undirstöðugreinum íslensks atvinnulífs. Mikilvægi hans sýndi sig svo um munaði þegar íslensku bankarnir fóru á hliðina fyrir tæpum áratug. Það er því ánægjulegt að sjá kraft- inn og fjölbreytnina, sem ríkir í greininni um þessar mundir. Fjölbreytt starfsemi á öllum sviðum greinarinnar} Gróska í sjávarútvegi S umarið 1938 stóðu vegagerð- armenn í stórræðum skammt frá bænum Litlu-Ketilsstöðum á Austurlandi. Þar sem þeir ruddu jarðvegi úr stað komu þeir niður á mannabein og gripi sem þeir kunnu engin deili á. Þeim var að sjálfsögðu brugðið en áttuðu sig á að þarna væri sennilegast um fornminjafund að ræða. Matthíasi Þórð- arsyni þjóðminjaverði var gert viðvart og hraðaði hann sér á staðinn. Í ljós kom að vegagerðarmennirnir höfðu komið niður á merka gröf frá víkingaöld. Brot úr höf- uðkúpu reyndist af konu sem borið hafði beinin fyrir allt að 1000 árum og verið borin til grafar í Hjaltastaðaþinghá. Eitt það merkasta við þennan fund er sú staðreynd að á kjálkabeini hinnar óþekktu konu fannst enn órotnað hold. Verður það að teljast ótrúlegt en skýringarinnar er að leita í þeirri stað- reynd að við kjálka konunnar hafði um allan þann ald- ur sem hún hvíldi í jörðu legið koparnæla en í kop- arnum voru svo sterk eiturefni að þau komu í veg fyrir að örverur, sem alla jafna brjóta niður líkamsleifar, kæmust að. Er þessi „holdlegi“ fundur einstakur hér á landi og er hann raunar sagður fágætur á heimsvísu. Ástæða þess að ég nefni þennan merka fornleifa- fund, og hina einstöku varðveislu jarðneskra leifa kon- unnar óþekktu, er sú staðreynd að kjálkabein hennar og gripir þeir sem fundust í gröfinni hafa nú um tveggja ára skeið verið sýnileg almenningi á sérstakri sýningu í Þjóðminjasafninu. Þar er fjallað um fornleifafundinn, konuna og þær rannsóknir sem fyrir örfáum árum var ráðist í á grundvelli nýrrar tækni sem gerir vísindamönnum betur kleift að átta sig á hver nafnlausa konan var. Og þótt teljast verði ólíklegt að nokkurn tíma verði með fullkominni nákvæmni kom- ist að því hver konan var þá hefur hún hlot- ið nafnið „bláklædda konan“ í ljósi þess að önnur koparnæla, einnig eitruð, varð til þess að hluti klæðnaðar hennar varðveittist í jörðu í gegnum aldirnar. Í ljós kom að fatnaður hennar hafði að hluta verið blár að lit. „Bláklædda konan“ er aðeins hluti af gríðarlegum safnkosti Þjóðminjasafnsins og á hverjum tíma hefur almenningur gott aðgengi, jafnt að grunnsýningum safnsins og einnig sérsýningum sem hver um sig varpar ljósi á merkilega þætti í menningararfi þjóðarinnar. Við eigum að vera miklu duglegri að sækja Þjóð- minjasafnið heim. Þangað streyma tugir þúsunda er- lendra ferðamanna á hverju ári og eru mikill meirihluti safngesta. Við eigum að taka þá okkur til fyrirmyndar. Það er til dæmis gaman að fara með yngstu kynslóðina á safnið og kynna henni arf kynslóðanna. Þar vekur bláklædda konan sannarlega áhuga en það á einnig við um fjölmarga gripi af fjölbreyttu tagi. ses@mbl.is Stefán Einar Stefánsson Pistill Eitraður kopar gerði gæfumuninn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bílamiðstöð ríkislög-reglustjóra er að leggjalokahönd á örútboð vegnakaupa á sérútbúnum og sértilbúnum lögreglubílum. Ætlunin er að kaupa níu sérútbúna lögreglu- bíla á þessu ári fyrir lögreglu- embættin á landsbyggðinni. Stefna ríkislögreglustjóra er að kaupa sem mest sértilbúna bíla, að sögn Agnars Hannessonar, rekstrar- og þjón- ustustjóra hjá ríkislögreglustjóra. Hjá bílamiðstöð ríkislögreglu- stjóra eru nú um 140 ökutæki. Bíla- miðstöðin sér um rekstur ökutækja lögreglunnar og búnaðarins sem í þeim er. Í raun er um að ræða sam- rekstur með lögreglustjóraembætt- unum, að sögn Agnars. Ríkislög- reglustjóri innheimtir tvíþætt gjald vegna ökutækjanna. Fastagjald af hverju ökutæki sem stendur undir endurnýjun og kílómetragjald sem stendur undir rekstri, þ.e. elds- neyti, viðhaldi, hjólbörðum, tjónum o.fl. „Ljóst er að við þyrftum mun meira fjármagn til að geta haldið úti hraðari endurnýjun,“ sagði Agnar í skriflegu svari. „Til fróðleiks má geta að margt getur skekkt rekst- urinn. Ábyrgðartrygging ökutækja okkar hefur t.d. hækkað úr 21 millj- ón króna í tæplega 50 milljónir á þessu ári vegna tjóna á ökutækj- unum. Í fjármálahruninu var það meðvituð ákvörðun okkar að reyna að viðhalda meðalaldri ökutækjanna enda nýkaup í minna mæli þá. Nú er stefnan að endurnýja eins hratt og mögulegt er og höfum við um 190 m.kr. á ári í það.“ Þess ber að geta að hluti af þeirri upphæð fer í að endurnýja gamlan búnað í ökutækj- unum. Þar má nefna endurnýjun á fjarskiptabúnaði, radar- og upp- tökubúnaði, vopnakistum ásamt for- gangsbúnaði. Öll ný ökutæki lögreglunnar eru tölvuvædd. Þannig geta lögreglu- menn unnið í öllum kerfum lögregl- unnar úti á vettvangi. Lögreglu- stjórar óska eftir þessum búnaði. Hver búnaðarpakki kostar 4-5 millj- ónir króna. Ríkislögreglustjóri keypti 13 ný ökutæki 2016. Þá fengu lögreglu- stjóraembættin á Suðurlandi, Suð- urnesjum, Norðurlandi vestra og eystra ásamt lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu ný ökutæki. Nýir bílar en skortir föt Lögreglan á Austurlandi er með átta lögreglubíla. Mest ekna bílnum verður skipt út fyrir nýjan síðar á árinu. Jónas Wilhelmsson Jensen yf- irlögregluþjónn sagði að bílunum væri vel við haldið. Embættið er með lögreglustöðvar á Vopnafirði, Egils- stöðum, Neskaupstað, Eskifirði, Fá- skrúðsfirði og Djúpavogi. Stefnt er að því að opna lögreglustöð á Seyð- isfirði. Þau áform hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð, að sögn Jónasar. Ekki eru til ný einkennisföt fyrir sumarstarfsmenn lögreglunnar á Austurlandi og lítur út fyrir að finna þurfi notuð föt á sumarfólkið. Lögreglan á Vesturlandi á von á nýjum bíl á þessu ári. Hún bað um þrjá bíla í fyrra en fékk engan þá, að sögn Jóns S. Ólasonar yfirlögreglu- þjóns. Lögreglustöðvar eru í Snæ- fellsbæ, Grundarfirði, Stykkishólmi, Akranesi, Búðardal og Borgarnesi. Embættið er nú með átta lögreglu- bíla, flesta talsvert mikið ekna. Búið er að aka mest ekna bílnum tæplega 300.000 km, fjórir eru komnir á þriðja hundrað þúsund km og tveir eru á öðru hundraðinu. „Þetta eru fínir bílar,“ sagði Jón. Líkt og víðar munu sumarstarfs- menn lögreglunnar á Vesturlandi fá notuð einkennisföt. Þarf jafnvel að fá hluta þeirra lánaðan. Fé vantar til hraðari endurnýjunar bíla Morgunblaðið/Júlíus Lögreglubílar Frá afhendingu nýrra lögreglubíla árið 2015. Lögregluemb- ættin úti á landi fá níu nýja lögreglubíla á þessu ári. Lögregluembætti á landsbyggð- inni sem eiga að fá nýja lög- reglubíla á þessu ári eru Vest- urland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland, Vest- mannaeyjar og Suðurland. Auk þess á að kaupa þrjú sér- útbúin og tilbúin lögreglubifhjól og tvo sendibíla fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Eins og greint hefur verið frá nýlega fékk sérsveit ríkislög- reglustjóra fjóra nýja sérútbúna bíla fyrir sérsveit frá Bandaríkj- unum. Nýir lög- reglubílar ÖKUTÆKIN ENDURNÝJUÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg Sérsveitin Fjórir sérútbúnir sér- sveitarbílar keyptir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.