Morgunblaðið - 22.04.2017, Page 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017
AF UPPISTANDI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Pungsig, Hitler, transfólk,barnaníð, nauðganir, fæðu-ofnæmi, simpansar, flugslys,
vöggudauði, bókstafstrúarmenn og
kynþáttafordómar var meðal þess
sem enski grínistinn, uppistand-
arinn, leikarinn og gamanþáttahöf-
undurinn Ricky Gervais tók fyrir í
bleksvörtu uppistandi sínu Human-
ity í Eldborg í fyrrakvöld. Gervais
skaust upp á stjörnuhimininn með
gamanþáttum sínum The Office og
hefur notið mikilla vinsælda æ síð-
an, m.a. sem kynnir Golden Globes-
verðlaunanna í Bandaríkjunum þar
sem kolsvart spaug hans á kostnað
viðstaddra, fræga fólksins í Holly-
wood, hefur vakið athygli og farið
mjög fyrir brjóstið á viðkvæmum. Á
tímum samfélagsmiðla á borð við
Twitter þarf lítið til að allt ætli um
koll að keyra þegar spaugið verður
hvað svartast og hneykslunargjarn-
ir ausi úr skálum reiði sinnar yfir
því hversu óforskammaður Gervais
geti verið. Og eins og púkinn á fjós-
bitanum fitnar Gervais af slíku mót-
læti, þeir sem hvað mest æsa sig
virðast ekki átta sig á því að um-
mæli þeirra eru ekkert annað en
olía á eld þessa óttalausa grínista.
Gervais varð tíðrætt í uppi-
standinu um þessa gerð netverja,
þessa boðbera réttlætisins og sjálf-
skipuðu æðstupresta þegar kemur
að því að ákveða að hverju megi
gera grín og hverju ekki. Vísaði
hann m.a. í Twitter-skrif manns frá
Texas, sem hann sagði kristilegan
bókstafstrúarmann, þess efnis að
vísindin gætu ekki bjargað Gervais
frá því að Satan nauðgaði honum í
helvíti og þegar þar að kæmi myndi
hann fylgjast hlæjandi með. Allt
var það skrifað með hástöfum, að
sjálfsögðu. Gervais lék þennan
skelfilega atburð í neðra með til-
þrifum og henti gaman að því að ef
kristilegi bókstafstrúarmaðurinn
yrði viðstaddur hefði líklega eitt-
hvað klikkað hjá honum sjálfum og
að Satan yrði líklegri til að hafa
áhuga á honum en trúlausum, ensk-
um grínista. Eldborgargestir grétu
af hlátri, á kostnað hins ráðvillta
Texasbúa.
Þó að yfirskrift uppistandsins
sé Humanity, sem getur allt í senn
þýtt mannkynið, mannlegt eðli eða
manngæska, fór Gervais um víðan
völl og rakti ekki sögu mannkyns
frá upphafi til vorra tíma, eins og
búast hefði mátt við, þó vissulega
hafi hann tæpt á ýmsu er varðar þá
sögu, m.a. að svo virtist sem heimur
versnandi færi. Því til dæmis vissi
fólk ekki lengur hver væri barna-
Dansað við djöfulinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skrattakollur Ricky Gervais hló að eigin fyndni og gestir Eldborgar með honum á uppistandinu Humanity.
níðingur og hver ekki, í gamla daga
hafi auðveldlega verið hægt að
koma auga á slíka náunga en með
tilkomu Michael Jackson hefði það
allt saman gjörbreyst.
Oft var Gervais á persónuleg-
um nótum, sagði m.a. frá því að
hann og systkini hans hefðu hrekkt
prest sem sá um útför móður þeirra
og frá baráttu sinni við aukakílóin
sem hann væri búinn að tapa. Þá
bölvaði hann lýsingu í lyftum sem
er víst til þess gerð að afhjúpa
hversu þunnhærður grínistinn er
orðinn. Í framhaldi af því átti
Gervais frábæran sprett í lýsingum
á hárkollu gamals frænda síns sem
var sköllóttur en fyrir kraftaverk
birtist hann dag einn með fagur-
svartan makka í anda Elvis Presley.
Þá fór Gervais líka á kostum þegar
hann lýsti því hvernig pungurinn á
honum hefur sigið með hverju
árinu, flýtur nú upp á yfirborðið
eins og björgunarbátur þegar hann
fer í bað. Limurinn liggur makinda-
lega í þeirri sæng og telur Gervais
að stellið allt sé heldur ólíklegt til
að enda á sýningu hins furðulega,
íslenska reðasafns.
Gervais virðist þeirrar skoðun-
ar að ekkert sé heilagt þegar kem-
ur að uppistandi, að engin séu tabú-
in. Fólk sem er á annarri skoðun
virðist fara óskaplega í taugarnar á
honum því hann varði góðum tíma í
að úthúða því og benti á að þó hann
segði brandara þar sem nauðgun
kæmi við sögu væri hann ekki að
lýsa yfir stuðningi við nauðgara.
Nefndi hann í þessu sambandi konu
sem skammaði hann fyrir að gera
grín að alvarlegu fæðuofnæmi og
sagði að það mætti hann alls ekki
gera. Nú, ég má gera grín að Hel-
förinni en ekki fæðuofnæmi? segist
Gervais hafa svarað þessum Twitt-
er-skömmum og fengið það svar að
börn hefðu a.m.k. ekki dáið í Hel-
förinni (!). „Meðalmanneskjan er
heimskingi,“ sagði Gervais og benti
því til sönnunar á úrsögn Breta úr
Evrópusambandinu en sú niður-
staða fékkst með þjóðaratkvæða-
greiðslu. „Tökum miðann af klór-
flöskum sem á stendur að ekki megi
drekka innihaldið, bíðum í tvö ár og
kjósum svo aftur,“ sagði Gervais og
uppskar mikinn hlátur og lófatak.
Hvar liggja mörkin?
Eins og sjá má af ofansögðu er
uppistand Gervais ekki fyrir við-
kvæma og fjallar að stóru leyti um
eðli skopskyns og að hverju megi
hlæja og hverju ekki. Uppistands-
gestir eru auðvitað hinn endanlegi
mælikvarði á það og ef þeir hlæja
hljóta þeir að gefa um leið sam-
þykki sitt fyrir því að gert sé grín
að tilteknu efni, t.d. transfólki en
Gervais gerði stólpagrín að Caitlyn
Jenner sem áður hét Bruce Jenner.
„Ef ég segist vera simpansi þá er ég
simpansi,“ sagði Gervais og lék
simpansa með tilþrifum. Ég efast
um að þeir sem gengist hafa undir
kynleiðréttingu eða aðstandendur
þeirra geti hlegið að slíku gríni.
Eða hvað? Auðvitað er hægt að
gera grín að kynleiðréttingu eins
og öllu öðru, en spurningin er hvar
siðferðismörkin liggja. Gervais
ítrekaði að hann væri ekki haldinn
fordómum í garð transfólks og
gestir Eldborgar virtust taka það
gott og gilt og skellihlógu.
Í einstaka tilfellum gat ég ekki
hlegið að gamanmálum Gervais,
t.d. þegar hann gerði grín að
vöggudauða en ég geri mér grein
fyrir því að skopskyn er flókið fyr-
irbæri og persónulegt. Hvað er
fyndið og hvað ekki? Það er stóra
spurningin sem grínistinn þarf að
svara og hann stendur og fellur
með svarinu. Þegar djöfullinn býð-
ur þér upp í dans er valið þitt, að
stíga dans eða sitja hjá.
Á heildina litið var Gervais frá-
bær þetta kvöld, öruggur á sviði og
mun öruggari en grínistinn sem hit-
aði upp fyrir hann, Sean McLough-
lin, sem þó var oft bráðfyndinn en
hafði fullmiklar áhyggjur af við-
tökum gesta. Grínið hjá Gervais er
vissulega ekki allra en þeir sem
kunna að meta bleksvart spaug fá
það varla svartara. Og Gervais er
meðvitaður um eigið ágæti, frægð
og ríkidæmi, sagðist hæglega geta
brennt Hörpu til grunna sér til
skemmtunar og líkti vinsældum sín-
um við vinsældir Jesú Krists. „En
ég er betri en Jesús því ég er, ólíkt
honum, mættur á svæðið!“ sagði
hann og ískraði af hlátri yfir eigin
fyndni. Þeir sem hlógu ekki með
honum hefðu betur heima setið.
» Grínið hjá Gervaiser vissulega ekki
allra en þeir sem kunna
að meta bleksvart spaug
fá það varla svartara.
Á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu
á sunnudag klukkan 19 kemur fram
úrval söngvara og hljóðfæraleikara
frá nokkrum virtum menntaskólum
í Bandaríkjunum, skólum þar sem
unnið er öflugt tónlistarstarf.
Nokkrir íslenskir tónlistarnemar
eru auk þess gestir á tónleikunum.
Hljómsveit, kór og blásarasveit
flytja fjölbreytta efnisskrá sem
spannar allt frá klassískum verkum
til nýrrar tónlistar frá Vesturheimi.
Greg Gilpin stjórnar kórnum, Kirt
Mosier hljómsveitinni og Jeffery
Grogan blásarasveit.
Metnaður Frá tónleikum mennta-
skólahljómsveitarinnar vestanhafs.
Bandarísk ung-
menni í Hörpu
EITT
ER VÍST: ALNO
FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2016 63
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
eldhús er 90 ára í ár
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 12 OG 2
TILBOÐ KL 12 OG 2
TILBOÐ KL 12 OG 2
5%
SÝND KL. 12, 2, 3.50, 6
SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 12, 2.10, 4.30
SÝND KL. 12(LAUG), 2, 4
SÝND KL. 7, 10 SÝND KL. 5.40, 8, 10.25