Morgunblaðið - 22.04.2017, Page 52
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 112. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. „Leggstu niður, leggstu niður“
2. Grettisgötu lokað í …
3. Út að borða á brjóstahaldara …
4. Síðasti naglinn í líkkistuna …
Ágúst Ólafsson barítón og Gerrit
Schuil píanóleikari halda ljóða-
tónleika í Kaldalóni í Hörpu á morgun
kl. 17 og flytja á þeim ljóðaflokkinn
Svanasöng eftir Franz Schubert.
Svanasöngur er safn fjórtán söngva
við ljóð eftir Ludwig Rellstab, Hein-
rich Heine og Johann Seidl sem gefin
voru út að Schubert látnum, árið
1829.
Flytja Svanasöng
Anna Jóns-
dóttir sópran
og Brynhildur
Ásgeirsdóttir
píanóleikari
flytja sönglög
eftir banda-
rísk 20. aldar tónskáld í Norræna
húsinu á morgun kl. 15.15 og eru tón-
leikarnir hluti af tónleikaröðinni
15.15. Þar verða á dagskrá ljóð eftir
Charles Ives, Virgil Thomson og
Samuel Barber auk þess sem þær
frumflytja verkið Dropinn holar auga-
steininn, eftir Jeffrey Lependorf, sem
samið er við sjö ljóð Ingimars E. Sig-
urðssonar.
Sönglög eftir banda-
rísk tónskáld í 15.15
Bókauppboð verður haldið í safn-
aðarheimili Grensáskirkju , Háaleit-
isbraut 66 í Reykjavík í dag kl. 14.
Bjarni Harðarson, bóksali á Sel-
fossi, verður uppboðshaldari og
meðal þeirra
gripa sem
boðnir verða
upp er Waysen-
húss-Biblían frá
árinu 1747.
.
Bjarni Harðarson
heldur bókauppboð
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s seint í dag og víða él, en dálítil
snjókoma syðst seint í kvöld. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum.
Á sunnudag Norðan 8-15, hvassast austast á landinu. Él á Norður- og Austurlandi og
snjókoma um kvöldið, en lengst af léttskýjað sunnan til. Frost 0 til 5 stig, en hiti rétt yfir
frostmarki sunnanlands yfir hádaginn.
Á mánudag Vestan 3-10 með þurru veðri, en norðvestan 10-15 og dálítil él á Austurlandi.
GSÍ hefur fyrst allra landssambanda í
alþjóðagolfhreyfingunni svo vitað sé
afnumið ákvæði í reglugerðum sínum
um að golfmót á vegum þess þurfi að
fara fram á 18 holna völlum. Haukur
Örn Birgisson, forseti GSÍ, segir
hreyfinguna þurfa að horfast í augu
við breyttar þarfir kylfinga. „Margir
segjast ekki hafa tíma fyrir 18 holur
og vilja fleiri valkosti.“ »1
GSÍ krefst ekki lengur
móta á 18 holna völlum
Þriggja stiga skot Philips
Alawoya í blálokin tryggði
KR hádramatískan sigur
á Grindavík í öðrum úr-
slitaleik liðanna í einvíg-
inu um Íslandsmeist-
aratitil karla í
körfuknattleik í
gærkvöld. KR get-
ur tryggt sér tit-
ilinn fjórða árið í
röð á heimavelli sín-
um á mánudag. »3
Dramatík og KR
er sigri frá titli
„Við verðum að fylla Valshöllina að
þessu sinni af stuðningsmönnum
íslensks handbolta, hvort sem
þeir styðja Val dagsdaglega eða
ekki,“ segir Óskar Bjarni Ósk-
arsson, þjálfari Vals sem mætir
Potaissa
Turda
frá
Rúm-
eníu í
undanúrslitum Áskor-
endakeppni Evrópu í dag. »
4
Valsmenn vilja halda
áfram að skrifa söguna
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Tíundi flokkur Þórs á Akureyri í
körfubolta fór með sigur af hólmi á
Scania Cup í Svíþjóð á dögunum.
Leikstjórnandi liðsins, hinn 15 ára
gamli Júlíus Orri Ágústsson, fékk
þær upplýsingar frá sænskum lækni
fyrir úrslitaleikinn að hann væri
mögulega fingurbrotinn á skothend-
inni. Læknirinn ákvað að setja Júlíus
í spelku en hann lét það ekki stöðva
sig og leiddi lið Þórs til sigurs.
„Ég fékk upplýsingar frá lækni í
Svíþjóð um að fingurinn væri líkleg-
ast brotinn. Ég var settur í spelku en
spilaði nú án hennar. Ég fann ekkert
mikið fyrir fingrinum, bara smá,“
segir Júlíus.
Þegar heim var komið kom í ljós að
ekki var um brot að ræða, sem var
mikill léttir þar sem Júlíus stefnir á
keppni með undir 16 ára landsliði Ís-
lands í sumar. „Það er mjög stíft
æfingaprógramm með landsliðinu í
sumar og síðan er Norðurlandamót í
Finnlandi og Evrópumót í Rúmen-
íu.“ Fimm aðrir leikmenn úr sigurliði
Þórs voru einnig valdir í landsliðið.
Sætur sigur í Svíþjóð
Í fyrra lék Þór einnig til úrslita á
Scania Cup en laut þá í lægra haldi
fyrir Solange Vikings frá Svíþjóð. Júl-
íus segir að það hafi ekki komið annað
til greina í ár en að vinna mótið. „Eina
markmiðið var að vinna mótið, við ætl-
uðum okkur aldrei neitt annað, við
ætluðum bara að vinna þetta.“ Úr-
slitaleikurinn í ár var á móti liði
Stjörnunnar og var því um sannan Ís-
lendingaslag að ræða. Hann segir að
það hafi verið sætt að vinna Stjörnuna
í úrslitaleiknum enda mikil keppni á
milli liðanna á mótum hérlendis.
Júlíus segist afar ánægður með
frammistöðu liðsins á mótinu í ár en
það fór taplaust í gegnum allt mótið.
„Við spiluðum sex leiki og unnum þá
alla. Við mættum mjög sterku liði frá
Finnlandi í riðlakeppninni og unnum
rétt svo með tveim stigum. Það var
tæpasti sigurinn.“
Úr mikilli íþróttafjölskyldu
Júlíus á ekki langt að sækja körfu-
boltahæfileikana en faðir hans,
Ágúst Herbert Guðmundsson, spil-
aði með meistaraflokki Þórs á ár-
unum 1987 til 1992 og hefur þjálfað í
körfubolta síðan, meðal annars tí-
unda flokk Þórs. Ágúst segir að ár-
angur liðsins á Scania Cup hafi kom-
ið sér á óvart. „Við fórum taplausir í
gegnum þetta mót og unnum með
meiri yfirburðum en ég sjálfur átti
von á,“ segir Ágúst.
Móðir Júlíusar, Guðrún Gísladótt-
ir, er fyrrverandi bikarmeistari í þol-
fimi og tvöfaldur Íslandsmeistari í
fitness.
Lét meiðslin ekki stöðva sig
Júlíus Orri var
valinn maður móts-
ins á Scania Cup
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Meistarar Júlíus Orri Ágústsson og faðir hans, Ágúst Herbert Guðmundsson, sem þjálfar liðið, á æfingu í gær.
Scania Cup er boðsmót fyrir lið
frá Norðurlöndum. Keppt er í sjö
aldursflokkum karla og kvenna
og eru 16 lið í hverjum aldurs-
flokki. Að sögn Ágústs Herberts
Guðmundssonar, þjálfara sig-
urliðs Þórs, hafa Íslendingar ein-
ungis farið með sigur af hólmi í
7 úrslitaleikjum af þeim 504
sem spilaðir hafa verið á mótinu.
„Það sýnir hvað þetta er sterkt
mót,“ segir Ágúst. Lið Þórsara
sigraði lið Stjörnunnar með 29
stiga mun í úrslitakeppninni í ár.
Júlíus Orri Ágústsson var valinn
Scania Cup King eða maður
mótsins í ár en meðal Íslendinga
sem hafa hlotið þann titil má
nefna Herbert Arnarson, Jón
Arnór Stefánsson, Jón Arnar
Ingvarsson og Hauk Helga Páls-
son. Helena Sverrisdóttir hefur
síðan verið valin Scania Cup
Queen, ein íslenskra kvenna.
Fetar í fótspor körfuboltasnillinga
STERK LIÐ FRÁ NORÐURLÖNDUM KEPPA Á SCANIA CUP