Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 28
28 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
komin í verslanir
Útsölustaðir:
• Momo.is – Garðabæ
• Cocos – Grafarvogi
• Kroll – Laugavegi
• Share – Kringlunni
• Stíll – Síðumúli
• Dion.is – Glæsibæ
• Corner - Smáralind
• Smartey.is – Vestmannaeyjum
• Rexin – Akureyri
• Gallery Ozone – Selfossi
• Palóma – Grindavík
• Sentrum – Egilsstöðum
• Blómsturvellir – Hellissandi
• Verslunin Nína – Akranesi
• Borgarsport – Borgarnesi
• Kóda – Keflavík
• Töff föt – Húsavík
• Mæðgur og Magasín – Stykkishólmi
• SiglóSport – Siglufirði
• Pex – Neskaupsstað/Reyðarfirði
• Efnalaug Dóru – Höfn
• Skagfirðingabúð – Sauðárkróki
run@run.is • www.run.is
30
ÁRARÚN
HEILDVERSLUN
Vorlínan
Aðventkirkjan í Reykjavík | Í dag, laugardag:
Biblíufræðsla kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Í dag,
laugardag: Samvera og bein útsending frá kirkj-
unni í Reykjavík.
Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum | Í dag,
laugardag: Lokað vegna sameiginlegrar guðs-
þjónustu í Hafnarfirði
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Í dag, laug-
ardag: Lokað vegna sameiginlegrar guðsþjón-
ustu í Hafnarfirði
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Í dag, laug-
ardag: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur: Björgvin Snorrason, Stefán Rafn Stefánsson,
Gavin Anthony og Eric Guðmundsson.
Sameiginleg máltíð eftir samkomu.
AKUREYRARKIRKJA | Lokahátíð barnastarfs-
ins, fjölskylduguðsþjónusta, kl. 11. Yngri og
eldri barnakórar syngja undir stjórn Sigrúnar
Mögnu Þórsteinsdóttur. Umsjón sr. Sunna Dóra
Möller og Hjalti Jónsson.
Cohen-messa kl. 20. Listamaðurinn stórkostlegi
Leonard Cohen er nýlega fallinn frá og mun Svav-
ar Alfreð Jónsson minnast hans, fjalla um skáld-
ið og texta hans. Tónlist Cohens flytja þau Konni
Bartsch, Elvý G. Hreinsdóttir, Kristján Edelstein,
Ólafur Sveinn Traustason og Eyþór Ingi Jónsson.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Nú-
palind 1, sunnud. kl. 14. Biblíufræðsla, söngur
og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Söngur, brúðuleikhús og gleði. Prestur sr.
Þór Hauksson ásamt Ingunni Björk Jónsdóttur
djákna. Undirleikur Benjamín Gísli Einarsson.
Boðið upp á kaffi og safa að lokinni guðsþjón-
ustu.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sigurður Jóns-
son sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Félagar úr Gideonfélaginu kynna starf samtak-
anna að útbreiðslu Nýja testamentisins. Hljóm-
félagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Niku-
lásdóttur. Organisti Elísabet Þórðardóttir.
Kaffisopi að messu lokinni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Eldri borgarar eru sérstaklega velkomnir. Matt-
hías V. Baldursson leiðir söng, meðhjálpari er
Sigurður Þórisson og prestur sr. Kjartan Jóns-
son. Sunnudagaskóli á sama tíma.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Hans Guðberg þjónar ásamt Margréti djákna.
Álftaneskórinn syngur undir stjórn Bjarts Loga
organista. Aðalsafnaðarfundur í safnaðar-
heimilinu Brekkuskógum 1 að messu lokinni.
Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um-
sjón með stundinni hafa Elín Hrund og Guð-
mundur Jens.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Vorhátíð kirkjustarfsins
kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta með söng og
gleði og leik. Prestur sr. Þórhallur Heimisson.
Halldór Bjarki Arnarson leiðir tónlistina. Grillaðar
pylsur eftir stundina.
Fáskrúðsfirðingamessa kl. 14. Prestur sr. Jóna
Kristín Þorvaldsdóttir. Kór og organisti Fáskrúðs-
fjarðarkirkju leiða söng. Kaffisala Fáskrúðsfjarð-
arfélagsins eftir messu.
Tómasarmessa kl. 20. Þorvaldur Halldórsson
leiðir tónlistina. Fyrirbænir, hugleiðing, söngur
og gleði.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11 í
umsjá Daníels og Jónasar Þóris organista. Góð
samvera fyrir börn og fullorðna.
Guðsþjónusta kl. 14. Séra Kristín Pálsdóttir
þjónar og prédikar. Félagar úr kór Bústaðakirkju
syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista.
DIGRANESKIRKJA | Sunnudagaskóli og
kántrímessa í beinni útsendingu á Rás 1 kl. 11.
Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Hljómsveitin
Axel O & co leikur. Hljómsveitina skipa Axel Óm-
arsson, Magnús Kjartansson, Jóhann Ás-
mundsson, Sigurgeir Sigmundsson og Fúsi Ótt-
ars. Súpa og brauð í safnaðarsal að messu
lokinni
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku, kl. 15 á litháísku og
kl. 18 á ensku. Messa virka daga kl. 18, og
má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og
kl. 18 er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Karl biskup
prédikar og þjónar. Dómkórinn syngur og Kári
Þormar er organisti. Sunnudagaskóli á kirkju-
loftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns. At-
hugið að þetta er síðasti sunnudagaskólinn fyr-
ir sumarfrí.
EYRARBAKKAKIRKJA | Fermingarmessa
sunnudag kl. 11. Nöfn fermingarbarna eru í
fermingarblaðinu og á fb-síðu Eyrar-
bakkaprestakalls. Kór kirkjunnar syngur. Org-
anisti er Haukur Arnarr Gíslason. Sr. Kristján
Björnsson.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskyldumessa og
lokahátíð sunnudagaskólans kl. 11. Það verður
líf og fjör á lokahátíð sunnudagaskólans. Pétur
og félagar hafa umsjón með stundinni ásamt
sr. Guðmundi Karli Ágústssyni. Andlitsmálun.
Boðið verður upp á pylsur í lokin.
Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Fjölskylduhátíð á
Thorsplani í Hafnarfirði og hefst kl. 11. Hljóm-
sveit kikjunnar leiðir sönginn ásamt leiðtogum
sunnudagaskólans.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
sunnudag kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhanns-
son safnaðarprestur þjónar fyrir altari.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn ásamt
Gunnari Gunnarssyni organista.
GLERÁRKIRKJA | Laugardagurinn 29. apríl.
Fermingarmessa kl. 13.30. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson og sr. Jón Ómar Gunnarsson
þjóna. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Val-
mars Väljaots.
Sunnudagur 30. apríl. Sunnudagaskóli kl. 11.
Fermingarmessa kl. 13.30. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson og sr. Jón Ómar Gunnarsson
þjóna. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Val-
mars Väljaots.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Sel-
messa kl. 13. Guðrún Karls Helgudóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Vox populi syngur og org-
anisti er Hilmar Örn Agnarsson. Þetta er
síðasta Selmessan fyrir sumarið.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11. Um-
sjón hafa Silvía, Ásta Lóa o.fl. Messa kl. 11.
Altarisganga. Samskot til Unicef. Messuhópur
þjónar. Félagar í kirkjukór Grensáskirkju syngja.
Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prestur sr. Ólaf-
ur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.
Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag
kl. 18.10-18.50. Þorvaldur Halldórsson sér um
tónlist.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta í hátíðarsal Grundar klukkan 14 í um-
sjón Dómkirkjunnar í Reykjavík. Herra Karl Sig-
urbjörnsson biskup þjónar. MR-kórinn leiðir
söng undir stjórn Kára Þormar organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming-
arguðsþjónusta 30. apríl kl. 10.30. Prestar sr.
Karl V. Matthíasson og sr. Skírnir Garðarsson.
Organisti Ástvaldur Traustason og kór Guðríð-
arkikju syngur. Meðhjálpari Guðný Aradóttir.
Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf.
Félagar úr Barbörukórnum syngja, organisti er
Guðmundur Sigurðsson, prestur er Þórhildur
Ólafs. Leiðtogar sunnudagaskólans eru Erla
Björg og Hjördís Rós. Hressing í Ljósbroti
Strandbergs eftir stundirnar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Hörður Áskelsson. Umsjón barnastarfs Inga
Harðardóttir. Aðalsafnaðarfundur Hallgríms-
sóknar að lokinni messu. Ensk messa kl. 14 í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Bænastund
mánud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta
þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl.
8. Kyrrðarstund fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Ei-
ríkur Jóhannsson. Organisti er Magnús Ragn-
arsson. Félagar úr söngsveitinni Fílharmóníu
annast messusöng að þessu sinni. Veitingar í
safnaðarheimili eftir messu.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudagaskól-
inn býður í heimsókn. Kl. 11 á sunnudaginn
verður allt helgihald í Hjallakirkju í salnum á
neðri hæð kirkjunnar. Þetta er síðasti sunnu-
dagaskóli vetrarins og því tökum við öll þátt í
honum. Umsjón með stundinni hafa Markús
Bjarnason, Heiðbjört Arney og sr. Sigfús Krist-
jánsson. Eftir stundina verður léttur hádeg-
isverður í salnum niðri.
HRUNAKIRKJA | Messa kl. 14. Tvennir tímar,
sönghópur eldri borgara í uppsveitunum, leiða
sönginn. Kaffi á eftir.
HVERAGERÐISKIRKJA | Fermingarmessa kl.
10.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Laug-
ardagur 29. apríl. Kennsla með Meesh Fo-
menko kl. 16. Samkoma með Meesh Fomenko
kl. 19. Sunnudagur 30. apríl. Samkoma með
Meesh Fomenko kl. 11 og 14.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnakirkja kl. 13
og almenn samkoma með lofgjörð og fyr-
irbænum hefst um hálftíma síðar. Kaffi að sam-
verustund lokinni. Halldóra Ásgeirsdóttir prédik-
ar.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagurinn 30.4.
kl. 11. Heiðarskólabörn verða fermd af prest-
unum Erlu Guðmundsdóttur og Evu Björk Valdi-
marsdóttur. Arnór organisti leiðir kórinn. Helga
Jakobsdóttir og Þórunn Þórisdóttir eru messu-
þjónar. Þriðjudagskvöldið 2.5. Börn og ung-
menni í Skapandi starfi í Keflavíkurkirkju bjóða
til lokakvölds í söng og leikþáttum. Allir vel-
komnir
Miðvikudagur 3.5. kl. 12. Kyrrðarstund í kapellu
vonarinnar. Sr. Eva og Arnór organisti leiða
stundina. Gæðakonur bjóða upp á máltíð í
Kirkjulundi.
KOLAPORTIÐ | Á sunnudaginn er messa kl.
14 í Kaffi porti. Prestur og Ragnheiður Sverr-
isdóttir djákni þjóna. Þorvaldur Halldórsson og
Margrét Scheving spila og syngja.
KOTSTRANDARKIRKJA | Fermingarmessa
kl. 13.30.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Fermt verður í messunni. Kór
Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Má-
téová kantors.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jó-
hanna Gísladóttir þjónar. Organisti er Birna
Kristín Ásbjörnsdóttir. Söngfjelagið Góðir grann-
ar leiðir safnaðarsöng og tekur lagið fyrir kirkju-
gesti. Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og
messuþjónar aðstoða við helgihaldið.
Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma. Sara
Grímsdóttir og Hafdís Davíðsdóttir taka vel á
móti börnum á öllum aldri. Kaffi, djús og ávextir
í boði í safnaðarheimili eftir stundina.
LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa | Ferming kl.
13. Fermdur verður Magnús Aldan Eiríksson,
Háengi 14, Selfossi. Prestur Kristinn Ágúst Frið-
finnsson.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Arngerð-
ur María Árnadóttir er organisti. Helga Soffía
Konráðsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á meðan.
Kaffi og samvera á eftir.
Hátún kl. 13. Helgistund. Arngerður María og
Hjalti Jón.
Miðvikudagur 3. maí kl. 12. Kyrrðarstund. Hug-
ljúf tónlist, hugvekja, altarisganga og fyrirbænir.
Súpa og samvera í safnaðarheimilinu á eftir.
Vorferð eldri borgara kl. 13
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 20. Djasstríóið Máfurinn ann-
ast tónlistina. Það er skipað hjónunum Áslaugu
Helgu og Matthíasi Baldurssyni ásamt gítarleik-
aranum Friðriki Karlssyni. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson þjónar.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Vorboðar, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, syngja
í guðsþjónustunni undir stjórn Hrannar Helga-
dóttur, kórstjóra og organista. Sr. Arndís G.
Bernhardsdóttir Linn þjónar fyrir altari.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur.
María Kristín Jónsdóttir spilar á orgelið. Prestur
sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á
Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson. Túlkað á
ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Krossamessa kl. 11 sem
jafnframt er uppskeruhátið barna- og unglinga-
kóra kirkjunnar. Þar fá þær stúlkur sem útskrif-
ast á þessu vori úr kórastarfi kirkjunnar afhenta
sérsmíðaða silfurkrossa af sóknarnefnd kirkj-
unnar í þakklætisskyni fyrir það sem þær hafa
lagt af mörkum og gefið af sér í kórastarfinu.
Kórarnir syngja í messunni undir stjórn Edit
Molnár. Prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir. Vor-
gleði og tónlistarveisla í kirkjunni.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14, prestur
dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, Kór Seljakirkju leiðir
almennan safnaðarsöng, molasopi að messu
lokinni.
Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 15.30, prestur er
Bryndís Malla Elídóttir, Kór Seljakirkju syngur.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund, sum-
arsöngvar og harmónikkuleikur í dag kl. 13.15 í
Alberetsbúð í Gróttu á Gróttudaginn.
Fræðslumorgunn sunnudaginn kl. 10. Sveinn
H. Guðmarsson fréttamaður segir frá dvöl sinni
í Jemen.
Fjölskylduhátíð kl. 11. Stúlkur úr Ballettskóla
Guðbjargar sýna dans. Æskulýðsfulltrúi, sókn-
arprestur og leiðtogar sjá um stundina, andlits-
málning og pylsuveisla. Athöfn fyrir allan aldur.
Hinn 1. maí er aðalsafnaðarfundur í safn-
aðarheimili kirkjunnar klukkan 11.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11 30.
apríl. Kór Seyðisfjarðarkirkju undir stjórn
Tryggva Hermannssonar organista leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Sr. Sigríður Rún
Tryggvadóttir þjónar og meðhálpari er Jóhann
Grétar Einarsson.
Kaffi og kökur í safnaðarheimili eftir messu.
VÍDALÍNSKIRKJA | Árleg messa eldri borgara
í Vídalínskirkju kl. 11.
Helgi Pétursson fjölmiðlamaður flytur hugleið-
ingu og Sóley Björk Thorsteinsdóttir leikur á
flautu.
Garðakórinn syngur. Stjórnandi og organisti er
Jóhann Baldvinsson.
Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Félagar úr Lions-
klúbbunum bera fram súpu í safnaðarheimilinu
að lokinni athöfn.
Sunnudagaskólinn er á sama tíma.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Blóma-
messa kl. 11. Vorhátíð Víðistaðakirkju. Barna-
kórinn syngur undir stjórn Helgu Þórdísar. Fjöl-
breytt fjölskyldustund í umsjá Braga og Maríu.
Eftir guðsþjónustu á kirkjutorginu: Grill, hoppu-
kastali og leikir!
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta 30.
apríl kl. 11. Sóknarprestur prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Stefáns H. Kristinssonar organista. Meðhjálp-
ari er Pétur Guðmundsson. Aðalfundur Ytri-
Njarðvíkursóknar haldinn að lokinni guðsþjón-
ustunni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalsafnaðarfundur Njarðvíkursóknar 30. apríl
kl. 13.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kirkjuvogskirkja. Aðalsafnaðarfundur Kirkju-
vogssóknar 30. apríl kl. 14. Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf.
ORÐ DAGSINS:
Ég er góði hirðirinn.
(Jóh. 10)
Morgunblaðið/Einar FalurMelstaður