Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 52
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 119. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hróplegt ósamræmi í frásögn Olsens
2. „Ég sit hérna bara og nötra“
3. Fundu 12 fanga í leyniklefa
4. Sló sér upp með tengdamömmu sinni
Ný barnaópera, Ævintýrið um norð-
urljósin, verður frumsýnd á Barna-
menningarhátíðinni í Reykjavík í dag
kl. 13 í Ráðhúsi Reykjavíkur og verður
hún sýnd aftur á morgun kl. 17 í Mið-
garði í Varmahlíð og 2. maí kl. 17 í
Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Óper-
an er byggð á sögu eftir Evgeniu
Chernyshovu og segir af ástum
tröllastelpu og álfadrengs en ávöxtur
þeirrar ástar eru sjálf norðurljósin.
Leikgerðina samdi Guðrún Ásmunds-
dóttir og er hún einnig leikstjóri og
sögumaður. Tónlistin er eftir sópran-
söngkonuna og tónskáldið Alexöndru
Chernyshovu sem syngur einnig í óp-
erunni og af öðrum söngvurum má
nefna Margréti Einarsdóttur sópran
og Egil Árna Pálsson tenór.
Morgunblaðið/RAX
Barnaópera frum-
sýnd í Ráðhúsinu
Óperan Hamlet in absentia eftir
tónskáldið Huga Guðmundsson er ein
þriggja ópera sem tilnefndar eru til
Reumert-sviðslistaverðlaunanna í ár
sem ópera ársins í Danmörku en Hugi
hlaut fyrr á þessu ári Íslensku tón-
listarverðlaunin fyrir hana. Verðlaun-
in verða afhent 10. júní. Óperan var
frumflutt í ágúst í fyrra í Krónborg-
arkastala, sögusviði Hamlets eftir
Shakespeare sem óperan er inn-
blásin af. Upptaka af óperunni verður
sýnd í Norðurljósasal
Hörpu 14. maí nk. kl.
15 og mun Hugi
flytja stutta kynn-
ingu á verkinu.
Unnið er að því að
sýna óperuna hér á
landi, skv. heim-
ildum Morgun-
blaðsins.
Ópera Huga tilnefnd
til Reumert
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-15 m/s og skúrir eða slydduél, en dálítil rigning eða
súld suðaustan til. Yfirleitt bjartviðri nyrðra. Fer að rigna eystra í kvöld. Hiti 3-11 stig.
Á sunnudag Austan 8-15 m/s, hvassast á annejsum. Víða súld eða rigning, en yfirleitt
þurrt norðanlands. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast á Norðurlandi. Á mánudag Austan 10-18 m/s,
hvassast við suðurströndina og skýjað með köflum, en skúrir á Austurlandi. Hiti 5 til 13
stig, hlýjast vestanlands.
Þegar flautað verður til leiks í fyrstu
leikjum Pepsi-deildar karla síðdegis á
morgun verður brotið blað í knatt-
spyrnusögunni. Aldrei áður hefur
keppni á Íslandsmóti karla hafist í
aprílmánuði á þeim 105 árum sem
liðin eru frá því þrjú félög börðust um
meistaratitilinn í fyrsta skipti. Fjallað
er um fyrstu umferð deildarinnar í
blaðinu í dag. »4
Mótið hefur aldrei
áður hafist í apríl
„Þegar hópur saman-
stendur af vinnusömum
topppersónuleikum, sem
eru tilbúnir að leggja mikið
á sig, er hægt að gera ýmsa
hluti. Leikmenn sem hlusta
í stað þess að benda í aðrar
áttir af því þeir telja sig vita
betur,“ segir Sverrir Þór
Sverrisson, hinn sigursæli
þjálfari Íslands- og bik-
armeistara Keflavíkur í
körfubolta. »3
Hlusta í stað
þess að benda
„Við lítum ekki svo á að við séum
með átta marka forskot. Okkar
markmið er að vinna leikinn burt-
séð frá hvernig sá fyrri endaði,“
segir Guðlaugur Arnarsson, annar
af þjálfurum karlaliðs Vals í hand-
knattleik sem mætir Potaissa
Turda í íþróttahöllinni í Turda í
Rúmeníu klukkan 15 á
morgun. » 1
Markmiðið að vinna
burtséð frá fyrri leik
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Gítarleikarinn Björn Thoroddsen
eða Bjössi Thor og Laufið gefa út
eins lags plötu eftir helgi og þá skil-
ur leiðir á ný. Bjössi fer í tónleika-
ferð með þekktum bandarískum
tónlistarmönnum, meðal annars gít-
arleikaranum Robben Ford, um
austurströnd Bandaríkjanna en
Geir Gunnarsson lætur sig dreyma
um frekari söngframa á meðan hann
vinnur við smíðar í Reykjanesi við
Ísafjarðardjúp. Jón Trausti Harð-
arson, Svavar Ellertsson og Jens
Pétur A. Jensen bíða átekta á með-
an.
Ekki fótalúinn
Hafnfirska unglingahljómsveitin
Laufið átti miklum vinsældum að
fagna árin 1975 og 1976. Þá fór hver
í sína áttina og aðeins Bjössi Thor
hélt áfram á tónlistarsviðinu. Um
fjörutíu árum síðar hóaði hann
sveitinni saman og hélt hún tónleika
í Bæjarbíói í Hafnarfirði í febrúar í
fyrra, þar sem fyrstu sporin voru
stigin á áttunda áratugnum.
„Strákarnir höfðu ekki tækifæri
til þess að halda áfram á sínum
tíma, voru komnir með fjölskyldur
og farnir að axla ábyrgð, og þegar
ég leit til baka fannst mér ég skulda
þeim þetta og við skelltum í giggið,“
rifjar Bjössi upp. „Þá sá ég að neist-
inn var fyrir hendi og fannst nauð-
synlegt að hljóðrita bandið og ekki
síst söngröddina hans Geirs, sem
hafði verið sem í formalíni í 40 ár.
Árangurinn er lagið It’s up to you,
sem verður aðgengilegt á öllum
helstu tónlistarveitum eftir helgi.“
Geir segir að þetta sé allt með
ólíkindum. „Bjössi hringdi í mig og
spurði hvort ég væri nokkuð rosa-
lega fótalúinn og þegar ég sagði svo
ekki vera var ákveðið að blása til
tónleika og svo kom hugmyndin um
plötuna í framhaldinu,“ áréttar
söngvarinn. „Ég hafði ekkert sungið
í 40 ár og allt í einu fór ég út úr
þægindarammanum. Þetta var auð-
vitað það sem okkur langaði alltaf til
þess að gera áður en við lögðum upp
laupana, en eins og Bjössi segir þá
var ekkert stúdíó fyrir okkur.“
Þótt Geir hafi verið söngelskur
sem barn og unglingur datt hann
inn í Laufið fyrir algjöra tilviljun.
„Mágur minn var að gutla í bandi og
eitt sinn, þegar ég keyrði hann á æf-
ingu, álpaðist ég inn með honum og
fór ekkert út aftur, en nokkrum
mánuðum seinna hafði Bjössi sam-
band og ég gekk til liðs við Laufið,“
rifjar hann upp. „Þegar við hættum
setti ég sönginn í frost og þíddi
hann ekki fyrr en 40 árum síðar.“
Bjössi er á leið til Bandaríkjanna
þar sem hann heldur nokkra tón-
leika með Robben Ford, Mackenzie
Wasner, Brian Allen og Wes Little
4. til 13. maí. „Það er stórt skref fyr-
ir mig að túra með Robben Ford,
við komum fram víða á austur-
ströndinni á hverjum degi og stund-
um tvisvar á dag,“ segir Bjössi. Geir
segist hins vegar vera fyrir vestan
og ekkert vera á leiðinni vestur um
haf. „Við áttum aldrei von á því að
gefa út plötu en fyrst það varð að
veruleika getur allt gerst. Við erum
samt ekki farnir að tala um Am-
eríku.“
Söngröddin í formalíni í 40 ár
Laufið með eins lags plötu og Bjössi Thor tekur stórt skref í túr í Ameríku
Hljómsveitin Laufið Frá vinstri: Jón Trausti Harðarson bassaleikari, Geir Gunnarsson söngvari, Svavar Ellertsson trommuleikari, Bjössi Thor gítarleikari
og Jens Pétur A. Jensen gítarleikari um 40 árum eftir að bandið gerði garðinn frægan og hætti á hátindinum.
Fyrir 40 árum Jón Trausti, Geir, Svavar, Bjössi Thor og Jens Pétur.