Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 8

Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 Aðgerðir Seðlabankans gegnSamherja hófust fyrir fimm ár- um og hafa staðið yf- ir óslitið síðan.    Upphafið var einsog unnið upp úr bandarískri bíómynd þar sem ákæruvaldið fer í áberandi að- gerðir gegn meintum fjárglæpamönnum. Til að undir- strika það var Ríkisútvarpið haft á staðnum þegar aðgerðir hófust og tilkynningar sendar út, bæði á ís- lensku og ensku, skömmu síðar.    Allt benti þetta til þess að stór-glæpur hefði verið framinn en smám saman kom í ljós að ekki stóð steinn yfir steini í forsendum rann- sóknarinnar.    Seðlabankinn var ítrekað gerðurafturreka með málið, af ákæru- valdi, skatti og dómstólum. Þá sætti hann gagnrýni fyrir málsmeðferð- ina af umboðsmanni alþingis.    Síðar kom í ljós að bankaráðiSeðlabankans hafði ofboðið framganga seðlabankastjóra í fjöl- miðlum gagnvart fyrirtækinu og hafði krafist þess að hann hætti að tjá sig um málið opinberlega. Mun slíkt vera einsdæmi.    Nú hefur það gerst að héraðs-dómur hefur hafnað síðasta út- spili Seðlabankans með því að fella úr gildi 15 milljóna króna stjórn- valdssekt gegn fyrirtækinu.    Allt er þetta með miklum ólík-indum en nú bregður svo við að seðlabankastjóri fæst ekki til að út- skýra framgöngu bankans.    Er það frambærileg afstaða? Már Guðmundsson Kallar þetta ekki á neinar skýringar? STAKSTEINAR Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur Hagkvæmur kostur til upphitunar Verð frá aðeins kr. 180.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 90m2.. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma Veður víða um heim 28.4., kl. 18.00 Reykjavík 7 rigning Bolungarvík 7 skýjað Akureyri 9 alskýjað Nuuk -6 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 3 rigning Kaupmannahöfn 9 skúrir Stokkhólmur 6 léttskýjað Helsinki 9 heiðskírt Lúxemborg 8 skúrir Brussel 10 léttskýjað Dublin 10 skýjað Glasgow 10 léttskýjað London 12 skúrir París 11 skýjað Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 8 skúrir Berlín 12 skúrir Vín 6 rigning Moskva 6 rigning Algarve 19 léttskýjað Madríd 16 heiðskírt Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 16 léttskýjað Róm 13 léttskýjað Aþena 24 heiðskírt Winnipeg 4 léttskýjað Montreal 16 léttskýjað New York 23 þoka Chicago 11 alskýjað Orlando 29 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:06 21:46 ÍSAFJÖRÐUR 4:55 22:06 SIGLUFJÖRÐUR 4:38 21:49 DJÚPIVOGUR 4:31 21:19 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á fundi borgarráðs á fimmtudaginn var kynnt bréf Dags B. Eggertsson- ar borgarstjóra til dómsmálaráð- herra og fjármálaráðherra varðandi mögulegan flutning lögreglustöðvar- innar af Hverfisgötu. Í bréfinu, sem er dagsett 12. apríl, segir borgarstjóri að unnar hafi ver- ið deiliskipulagshugmyndir um upp- byggingu á baksvæði lögreglustöðv- arinnar og þar megi sjá fyrir sér ýmsa möguleika í húsnæðismálum lögreglunnar og /eða annarri starf- semi á vegum ríkisins, t.d fyrir Landsrétt. En sem kunnugt er af fréttum tek- ur Landsréttur til starfa um næstu áramót í bráðabirgðahúsnæði við Vesturvör í Kópavogi. „Hver svo sem niðurstaðan verður í þeim efnum þá mun Reykjavíkur- borg afmarka nýja byggingu með nýrri lóð og er óskað eftir samstarfi við ríkið um slíka afmörkun í deili- skipulagi,“ segir borgarstjóri í bréf- inu. Sömuleiðis óskar hann eftir sam- starfi við ríkið ef til stendur að selja húsnæði lögreglunnar. Í því tilviki verði væntanleg uppbygging á reitn- um til annarra nota skilgreind í því skipulagsferli sem framundan er. „Varðandi mögulegan flutning lögreglunnar af Hverfisgötunni leggur borgin mikla áherslu á að staðsetning hennar verði tryggð í miðborginni – vegna þess þunga sem er í störfum hennar í tengslum við miðborg Reykjavíkur,“ segir borgarstjóri. Úthlutaði lóðinni árið 1960 Í bréfinu áréttar borgarstjóri að Reykjavíkurborg hafi úthlutað rík- inu lóð undir lögreglustöð við Hverf- isgötu þann 19. júlí 1960 . Samkvæmt þágildandi lögum bar Reykjavíkurborg að taka þátt í kostnaði við byggingu fangelsa rík- isins. Við byggingu fangelsishluta lögreglustöðvarinnar hafi því orðið til eignarhlutur Reykjavíkurborgar í lögreglustöðinni. Samkvæmt með- fylgjandi eignaskiptasamningi sé hlutur Reykjavíkurborgar 26,2 % og eignarhlutur ríkissjóðs 73,8 % í lög- reglustöðinni . Morgunblaðið/Golli Lögreglustöðin Hlemmi Stöðin var tekin í notkun um 1970. Áður höfðu aðalstöðvar lögreglunnar verið til húsa í Pósthússtræti um áratuga skeið. Vill viðræður um lögreglustöðina  Borgin á 26,2% í stöðinni við Hlemm

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.