Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // S ími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Jötunn kynnir
Goes Iron og
Goes Cobalt
• Lengd: 2.130 mm
• Þyngd: 371 kg
• Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC
• Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK
• Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan
• Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun
• Rafléttistýri (EPS)
• Diskabremsur framan og aftan
• Bensíntankur 18 L
• Bein innspýting (EFI)
• Götuskráð
• Dekk framan 25x8x12
• Dekk aftan 25x10x12
með vsk
IRON 450 Kr. 1.259.000
• Lengd: 2.330 mm
• Þyngd: 383 kg
• Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC
• Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK
• Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan
• Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun
• Rafléttistýri (EPS)
• Diskabremsur framan og aftan
• Bensíntankur 18 L
• Bein innspýting (EFI)
• Götuskráð
• Dekk framan 25x8x12
• Dekk aftan 25x10x12
með vsk
Kr. 1.499.000COBALT MAX 550
• Lengd: 2.330 mm
• Þyngd: 383 kg
• Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC
• Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK
• Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan
• Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun
• Rafléttistýri (EPS)
• Diskabremsur framan og aftan
• Bensíntankur 18 L
• Bein innspýting (EFI)
• Götuskráð
• Dekk framan 25x8x12
• Dekk aftan 25x10x12
með vsk
Kr. 1.299.000IRONMAX 450
„Svona atburður er fyrst og fremst fagn-
aðardagur fyrir verktakann og starfsmenn
hans. Þeir hafa borið hitann og þungann af
þessu verki í fjögur ár,“ segir Sigurður R. Ragn-
arsson, forstjóri ÍAV, en í gær var sprengt síð-
asta haftið á milli Eyjarfjarðar og Fnjóskadals.
„Þetta er langþráður og kærkominn áfangi.
Það var líka afskaplega notalegt að finna þing-
eyska loftið koma hingað yfir í Eyjafjörðinn,“
segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á
Akureyri.
Barátta við dreka
Skilið hafði verið eftir þriggja og hálfs metra
haft til að sprengja á þessum tímamótum.
Starfsmenn verktakans Ósafls og boðsgestir
fóru fyrst inn að stafni Eyjafjarðarmegin þar
sem búið var að mála táknræna mynd, ganga-
mann í baráttu við eldspúandi dreka. Fjallið hef-
ur verið gangamönnum erfitt og tafið mjög
vinnu þeirra. „Það er mikilvægast að enginn
starfsmaður sem hér hefur unnið hefur borið
varanlegan skaða af þessari framkvæmd. Það
tel ég kraftaverk miðað við það sem hér hefur
gengið á,“ segir Sigurður.
Sigurður og Benedikt Jóhannesson fjár-
málaráðherra ávörpuðu gesti í útskoti og þaðan
var síðasta haftið sprengt. Fólkið gekk því næst
inn að stafni aftur og áttu samskipti við starfs-
menn verktakans sem komu að honum Fnjóska-
dalsmegin. Að því búnu var Ósafl með opið hús
fyrir áhugasama á verkstæði fyrirtækisins. Þar
kynntu starfsmenn vinnu sína við gangagerðina.
Á annað hundrað manns komu þar við.
Þegar búið var að aka í burtu grjótinu óku
fyrstu bílarnir gegnum göngin.
Verkið heldur áfram. „Við eigum eftir fimm-
tán mánaða vinnu. Stærstu óvissuþáttunum er
þó eytt, þegar við erum komnir í gegn,“ segir
Sigurður. helgi@mbl.is
Notalegt að finna þingeyskt loft
Síðasta haftið sprengt í Vaðlaheiðargöngum Starfsmenn verktakans fagna lokum glímunnar
við fjallið Kraftaverk að enginn starfsmaður hafi borið varanlegan skaða af erfiðri framkvæmd
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Eldspúandi dreki Gangamenn hrósuðu sigri á fjallinu og öllum erfiðleikum þess. Gegnumslags-
dagurinn var fyrst og fremst þeirra hátíðisdagur. Gleði og ánægja skein út úr öllum andlitum.
Áfangi Fjármálaráðherra og tveir fyrrver-
andi ráðherrar mættir til að fagna.
Sprengt Þórunn Arnardóttir og Anita Lind
Björnsdóttir ýta spenntar á rofann.