Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 25

Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 Til þess að slíta sig frá öðr-um og ná toppsætinu áopnu móti sem telur yfir200 keppendur þarf að vinna nokkrar lykilskákir og taka áhættu. Anish Giri hefur stundum verið legið á hálsi fyrir að reiða sig um of á tæknilega þátt skákarinnar en þegar hann hefur mætt til leiks gegn sterkustu skákmönnum heims rignir niður jafnteflum. Minnisstætt er t.d. þegar hann gerði jafntefli í öllum 14 skákum sínum í áskor- endakeppninni í Moskvu í fyrra. Á Reykjavíkurskákmótinu sem lauk í Hörpunni á fimmtudaginn fetaði hann kunnuglegar slóðir framan af; hann takmarkaði áhætt- una, vann skákir sínar gegn minni spámönnunum og hélt sig með hjörðinni sem fremst fór. Á loka- sprettinum virtist hann vakna til vitundar um það að til að ná sigri yrði hann að þyrla upp ryki óviss- unnar; sigrar hans með svörtu í átt- undu og níundu bentu a.m.k. í þá átt. Úrslitaskák mótins má telja við- ureign hans í 9. umferð við „mann- inn með sólgleraugun“, Baadur Jo- bava, sem er án efa einhver hæfileikaríkasti skákmaður heims. Skákir þessa litríka Georgíumanns eru alltaf athyglisverðar og þegar hann er í stuði halda honum engin bönd; á Ólympíumótinu í Baku fékk hann 7 ½ v. úr tíu skákum á 1. borði fyrir Georgíu og lagði að velli skák- menn á borð við Topalov, Ponom- ariov og Rapport. Í skákinni sem hér fer á eftir reyndist áhorfendum erfitt að ráða í þær myndir sem birtust á skákborðinu. „Vélarnar“ sátu þó við sinn keip og mátu ástandið á borðinu þannig að að allt væri í himnalagi hjá Giri jafnvel þó svo að peð hans á drottningarvæng þurkuðust út: Reykjavikurskákmótið 2017; 9. umferð Baadur Jobnava Anish Giri Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Db6 8. Rb3 Rbd7 9. Be2 Be7 10. Dd3 Dc7 11. O-O Eftir að hafa hafnað „tillögu“ Gir- is í 7. leik, að tefla upp „eitraða peðs-afbrigðið“, sem hefst með 8. Dd2 Dxb2 9. Hb1 eða 9. Rb3, sættir Jobava sig við stöðu sem er þægi- legt að tefla með svörtu. 11. … b5 12. a3 Bb7 13. Kh1 Hc8 14. Hae1 O-O 15. Dh3 Hfe8 16. Bd3 e5 17. fxe5 dxe5 18. He3!? Hér mátti eiga von á 18. Rxd5 en eftir 18. … Rxd5 19. exd5 Rf8 kemst hvítur ekkert áfram. 18. … Rf8 19. Re2 Dd7 20. Hf5 De6 21. Rd2 R6d7 22. Bxe7 Hxe7 23. Rb3 g6 24. Dg3 Rf6 25. Hf1 R8d7 26. De1 Kg7 27. Rg3 h5! „Najdorf-elementin“ eru hér komin fram í öllu sínu veldi. 28. Re2 Hh8 29. h3 Db6 30. Rg1 h4! Eftir þennan einfalda leik þarf hvítur að glíma við veikleika á g3 og f4. 31. Rf3 Hee8 32. Kh2 Hh5 33. He2 Heh8 34. Df2 Dxf2 35. Hfxf2 g5 36. Hf1 g4 37. Rfd2 Hg5 38. c4 Rh5 39. cxb5 axb5 40. Bxb5 Rdf6 41. Rc5 Bc8 42. Hee1 Rf4 43. hxg4 Rxg4 44. Kh1 Rf6 45. Rd3 Hg3! - Sjá stöðumynd 1 - Ein aðalhótun svarts er að leika h-peðinu til h3. Þannig má svara 47. Rxf4 með 47. … h3! t.d. 48. gxh3 Bxh3! 49. Kh2 exf4 50. Hxf4 Hg2+ og riddarinn á d2 fellur. 46. Hf3 Bg4 47. Hfe3 Hxg2 Ekkki slæmt en „Houdini 5“ bendir á að 47. … Bd7! sé sterkara t.d. 48 Bxd7 Rxd3 o.s.frv. 48. Rc4 Hc2 49. Rdxe5? Hann varð að leika 49. Rcxe5 en svartur ætti að vinna eftir 49. .. Rg2. 49. … R6h5! Frábær leikur sem gerir út um taflið. Hvítur ræður ekkert við ridd- arana. 50. Kg1 Rg3 51. Hxg3 hxg3 52. Re3 Rh3+ - og Jobava lagði niður vopnin. Hann verður mát í næsta leik. Frábær endasprettur færði Giri sigur Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Maðurinn með sólgleraugun Baadur Jobava að tafli í Hörpunni. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. mbl.is alltaf - allstaðar Við sérhæfum okkur í miðlun á sviði fyrirtækja, sjávarútvegs og fjármögnunar. www.vidskiptahusid.is Til sölu einkahlutafélag sem á og rekur 2 íbúðir í skammtímaútleigu í miðbæ Reykjavíkur. Fasteignirnar eru á Skólavörðustíg 2, 3ja og 4ja hæð, samtals birt stærð eignanna er 268,9 fm.Óskað eftir tilboði. Fjárfestingartækifæri Ólafur Steinarsson Sími: 822 7988 olafur@vidskiptahusid.is Nánari upplýsingar veitir:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.