Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
Öxlum ábyrgð – Hvað get ég gert?
Málþing um ábyrga ferðamennsku
Fimmtudaginn 4. maí 2017 kl. 15.00–17.00
í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6
Ferðafélag Íslands, í tilefni af 90 ára afmæli sínu, og Landgræðslan boða
til málþings um hlutverk útivistarfélaga og ferðaþjónustunnar í að vernda
og tryggja aðgengi að náttúrunni.
15:00 Setning
15:05 Gönguleiðir og verndun náttúrunnar
– Hvað getum við gert?
Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands
15:20 Gætum velferðar landsins – Sýn ferðaþjónustunnar
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Hey Iceland /
Ferðaþjónusta bænda og stjórnarformaður Íslenska ferðaklasans
15:35 Helping the Hills – Raising conservation awarness
Helen Lawless, Mountaineering Ireland
16:00 Kaffihlé
16:15 Gæði og gönuhlaup – Nýting, ábyrgð, áskoranir
Andrés Arnalds, Landgræðslu ríkisins
16:35 Umræður – Nýting og ábyrgð
16:55 Samantekt
17:00 Málþingi slitið
Fundar- og umræðustjórar:
Steinar Kaldal, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra
Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Fundurinn er öllum opinn
og aðgangur ókeypis.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Borgarfulltrúar í Reykjavík eru ekki
á einu máli um hvort fjölga eigi borg-
arfulltrúum úr 15 í 23 að loknum
sveitastjórnarkosningum 2018. Borg-
arfulltrúum mun fjölga samkvæmt
núgildandi lögum en Jón Gunnarsson
samgöngu- og sveitarstjórnarráð-
herra hefur lagt fram frumvarp þess
efnis að borgarstjórn fái að ákveða
hvort fjölga þurfi fulltrúum eða ekki.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur
talað gegn fjölgun borgarfulltrúa síð-
an breytingin var ákveðin 2011. Hann
segir borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins vera samstiga í málinu.
Kjartan segir það vera einsdæmi á
Íslandi að vera með 15 manns í borg-
arstjórn í fullri vinnu og bendir á
bæjarstjórnir nærliggjandi sveitarfé-
laga sem og borgarstjórnir annars
staðar á Norðurlöndunum en þar er
ekki um fullt starf að ræða.
Aukin útgjöld eða hagkvæmni?
Áætlað hefur verið að launakostn-
aður muni vera um 92 milljónir á ári
vegna fjölgunarinnar en Líf Magn-
eudóttir, borgarfulltrúi Vinstri
grænna, og Halldór Auðar Svansson,
borgarfulltrúi Pírata, telja að hægt
sé að spara með fjölgun borgarfull-
trúa og meiri hagkvæmni. Halldór
segir að í greinargerð sé einfaldlega
gert ráð fyrir auknum kostnaði við
fjölgun en svo þurfi ekki að vera.
Hann telur að hægt sé að lækka út-
gjöld með minni nefndarsetu ókjör-
inna fulltrúa flokkanna í nefndum og
ráðum borgarinnar sem fá greitt fyr-
ir fundarsetu. Kostnaður við slíkt
hleypur á 80 milljónum, segir Hall-
dór.
Líf segir að lýðræðisleg rök styðji
fjölgunina. „Með fleiri fulltrúum
nærðu meiri breidd, fjölbreyttari
sjónarmiðum og fjölbreyttari hópi
fólks,“ segir Líf. Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi
Framsóknar og flugvallarvina, segir
að sveitarstjórnir eigi að hafa sjálfs-
ákvörðunarrétt um fjölda borgarfull-
trúa. „Ég tel ekki þörf á að fjölga
borgarfulltrúum í Reykjavík, það
þarf heldur að breyta verkskipulagi,
fjölda nefnda og skipan í þær.“
Deilt um fjölgun
Að öllu óbreyttu fjölgar borgarfulltrúum um átta 2018
Frumvarp á Alþingi um að gera fjölgunina valkvæða
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Borgastjórnarfundur Borgarfulltrúum gæti fjölgað í 23 á næsta ári.
Nýtt málverk af Davíð Oddssyni,
fyrrverandi formanni Sjálfstæðis-
flokksins, var afhjúpað í Valhöll í
gær að viðstöddu fjölmenni. Það
voru sonardætur Davíðs, Ástríður
og Dagný Þorsteinsdætur, sem af-
hjúpuðu málverkið með aðstoð afa
síns. Sjálfstæðisflokkurinn fékk
Stephen Lárus, einn fremsta port-
rettmálara landsins, til þess að
mála myndina af Davíð og luku
gestir miklu lofsorði á listaverkið,
sem „þótti bæði fanga svip hans og
skaphöfn, en jafnframt bregða upp
svipmyndum af sögulegum ferli
hans á hugvitsamlegan hátt,“ eins
og segir í tilkynningu frá Sjálf-
stæðisflokknum.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokkins og forsætisráð-
herra, sagði við þetta tækifæri að
allir þekktu þá umbyltingu á þjóð-
lífi og hugarfari, sem Davíð hefði
áorkað í forystustörfum fyrir land
og þjóð, og rakti feril hans stutt-
lega. „Davíð er sigursælasti for-
ystumaður flokksins frá upphafi,
leiddi flokkinn þrisvar sinnum í röð
til sigurs í borgarstjórnar-
kosningum og þrisvar sinnum í röð
til sigurs í alþingiskosningum.
Hann er jafnframt sá maður, sem
lengst allra hefur gegnt embætti
forsætisráðherra Íslands, í rúm 13
ár samfellt. Það verður seint jafn-
að.“
Hefð er fyrir því að Sjálfstæðis-
flokkurinn láti mála myndir af fyrr-
verandi formönnum flokksins og
eru þær hafðar á heiðursstað í
Bókastofu á jarðhæð Valhallar,
höfuðstöðva flokksins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afhjúpun Eftir að verkið hafði verið afhjúpað þakkaði Davíð Oddsson Bjarna Benediktssyni góð orð í sinn garð og bar lof á listamanninn, Stephen Lárus, fyrir vel unnið verk.
Morgunblaðið/Eggert
Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, og
Stephen Lárus, sem málaði myndina.
Morgunblaðið/Eggert
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
flutti ávarp áður en myndin var afhjúpuð.
Málverk af Davíð Oddssyni afhjúpað