Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leikhópurinn Miðnætti frumsýnir í
Tjarnarbíói í dag kl. 15 nýja íslenska
bunraku-brúðusýningu sem nefnist Á
eigin fótum, í samstarfi við leikhópinn
Lost Watch Theatre. Sýningin er ætl-
uð allra yngstu leikhúsgestum, börn-
um frá tveggja ára aldri og fjöl-
skyldum þeirra og er í lengd við hæfi,
40 mínútur en við
þann tíma bætist
svo leikstund þar
sem börnum gefst
tækifæri á að
hitta brúður og
leikara og skoða
leikmyndina.
Leikstjóri sýn-
ingarinnar er
Agnes Wild og er
saga verksins
byggð á endurminningum ömmu
hennar, Signýjar Óskarsdóttur sem
kölluð er Ninna, og fjallar verkið um
hugrekki og vináttu. Segir af sex ára
stúlku, Ninnu, sem er uppátækjasöm
og býr í Reykjavík á millistríðs-
árunum og er send í sveit sumarlangt.
„Þetta eru sögur sem ég ólst upp við
þegar ég var lítil, sögur sem amma
sagði mér af henni sjálfri þegar hún
var send í sveit þegar hún var fimm
eða sex ára, á bæ þar sem var ekkert
vegasamband, enginn sími, ekkert
rafmagn eða rennandi vatn. Hún fór
alveg aftur í fortíðina og upplifði dýr
og náttúru í fyrsta sinn, í rauninni,“
segir Agnes. Þessar sögur hafi veitt
henni innblástur, þær hafi verið mjög
myndrænar og hún hafi hreinlega
orðið að búa til leiksýningu upp úr
þeim. Í verkinu eignast Ninna nýja
vini og lærir að standa á eigin fótum.
Sveitin er töfrum gædd og hvers-
dagslegir hlutir öðlast líf og nýtt hlut-
verk.
Agnes rekur leikhópinn Miðnætti
með Sigrúnu Harðardóttur og Evu
Björg Harðardóttur og hefur hann
verið starfræktur í þrjú ár. Agnes
rekur einnig breska leikhópinn Lost
Watch Theatre Company í Lund-
únum. Leikarar í sýninguni eru Nick
Candy, Þorleifur Einarsson, Olivia
Hirst og Rianna Dearden og höf-
undar tónlistar og flytjendur eru Sig-
rún Harðardóttir og Margrét Arn-
ardóttir. Um leikmynd, búninga og
brúðugerð sá Eva Björg Harð-
ardóttir, framleiðandi sýningarinnar
er Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og
ljósahönnuður Kjartan Darri Krist-
jánsson.
Þrír stjórna brúðunni
Bunraku er upprunalega japönsk
brúðuleiktækni og segist Agnes hafa
kynnst henni þegar hún var í leiklist-
arskóla. „Þar kynntist ég leikstjóra
sem er mikið fyrir brúðuleik og flyt
hann hingað til landsins og fæ hann til
að kenna okkur tæknina. Ég varð al-
veg heilluð af þessu, ég safnaði böngs-
um þegar ég var lítil og hafði alltaf
langað að sjá leikföng lifna við. Við er-
um ekki með leikföng sem lifna við en
þarna er brúða og þegar þrjár mann-
eskjur stjórna henni verður hún bara
einhvern veginn lifandi,“ segir Agnes.
Brúðunni er s.s. ekki stýrt með
strengjum af einni manneskju í bun-
raku heldur af þremur manneskjum
sem sjást á leiksviðinu og eru á því
alla sýninguna. Tæknin gerir það að
verkum að athygli gesta beinist allan
tímann að brúðunni en ekki þeim sem
stjórna henni. „Þessir þrír ein-
staklingar skipta með sér líkams-
pörtum brúðunnar og þetta er mjög
mikil samvinna og krefst mikillar ein-
beitingar,“ útskýrir Agnes.
Sýningin er nánast án orða því að-
eins fimm orð eru sögð í henni:
Ninna, pabbi, Snati, já og nei. „Ann-
ars er söguþráðurinn skýr og við gef-
um okkur góðan tíma,“ segir Agnes.
Skemmtileg og fyndin
Hún segir sýninguna bæði
skemmtilega og fyndna. „Ég var með
hóp af fimm ára börnum hérna í gær
[miðvikudag, 26. apríl] og þau bæði
hlógu og skemmtu sér rosalega vel,“
segir Agnes.
Á eigin fótum verður sýnt tvisvar
um helgina og svo allar helgar í maí,
ein til tvær sýningar hverja helgi.
Frekari upplýsingar má finna á tjarn-
arbio.is.
Ömmusögur sagðar
með japanskri aðferð
Brúðusýningin Á eigin fótum frumsýnd í Tjarnarbíói
Agnes Wild
Töfrandi Úr sýning-
unni Á eigin fótum.
megin á línunni var smitandi. En
stælaleysið, það að þetta „væri
það sem það væri“ og lúmsk
kímnigáfan náði mér einnig. Í
þessu fjórtán ára gamla viðtali
sagði Friðjón t.d.: „Svona þegar
ég pæli í þessu þá er lítið um að
svona tónlist sé gefin út. Þetta
fær enga spilun í útvarpi t.d. og
kannski þykir hún hallærisleg. Ef
við lítum t.d. til textagerðarinnar
þá er hún vissulega alveg sér á
báti í þessari íslensku sveitaróm-
antík. Þetta er líka í ætt við þessa
skandinavísku dægurlagasveiflu
og Íslendingar þekkja ekkert
hallærislegra en skandinav-
íska tónlist (hlær).“ Þá líkaði
mér og þessi hispurslausa yf-
irlýsing: „Eins og nafn
þessarar sveitar
gefur til kynna
leikum við fyrst og
fremst dansmúsík
– við erum ekki að
spila neina tíma-
mótamúsík. Við
leikum bara venju-
lega íslenska tón-
list.“
Friðjón fór í
viðtal við Bænda-
blaðið fyrir stuttu
og þar lýsir hann
því hvernig söfnunarhættirnir séu
og jafnframt hver framtíðarsýnin
– og vonin – sé með þessari starf-
semi sem er fyrst og síðast áhuga-
mál, framlag Friðjóns og hans
fólks til íslenskrar alþýðumenn-
ingar: „Lögin hafa komið til okkar
með ýmsu móti, fyrir utan það að
þekkja svæðið býsna vel tónlist-
arlega, þá gaukar fólk þeim að
okkur hér og hvar, sum hef ég
fengið í hendur á
ferðum mínum
um
svæðið, en nú veit fólk líka af okk-
ar hugsjón og hefur samband …
það er minn draumur að gefa út
fleiri diska, það væri mjög gaman
að geta gefið út diska með laga-
og textahöfundum frá fleiri
landshlutum. Staksteinum
að norðan, vestan og
sunnan. Við finnum
vonandi einn góðan
veðurdag tíma og
grundvöll til að sá
draumur rætist.“
Útgáfa þessi
fylgir mikið til
reglum heimilisiðn-
aðarins og er áhugasöm-
um því bent á prýðilega
Fésbókarsíðu hljóm-
sveitarinnar þar sem
hægt er að nálgast
myndir, tóndæmi og
margvíslegar upplýs-
ingar. Einnig er hægt að senda
tölvubréf á frjo@simnet.is.
»Ef við lítum t.d. tiltextagerðarinnar þá
er hún vissulega alveg
sér á báti í þessari ís-
lensku sveitarómantík.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Nýja sviðið)
Lau 29/4 kl. 20:00 17. sýn Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Þri 6/6 kl. 20:00 aukas.
Sun 30/4 kl. 20:00 18. sýn Sun 14/5 kl. 20:00 aukas. Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn
Mið 3/5 kl. 20:00 aukas. Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn
Fim 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn
Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn
Lau 6/5 kl. 20:00 19. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn
Sun 7/5 kl. 20:00 20. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn
Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn
Fim 11/5 kl. 20:00 22. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn
Fös 12/5 kl. 20:00 23. sýn Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn
Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara.
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 29/4 kl. 20:00 25. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 28. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 31. sýn
Sun 30/4 kl. 20:00 26. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 29. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn.
Fim 4/5 kl. 20:00 27. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 30. sýn
Sprenghlægilegur farsi! Síðustu sýningar leikársins komnar í sölu.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 6/5 kl. 20:00 166 s. Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Mið 7/6 kl. 20:00 182 s.
Fös 12/5 kl. 20:00 167 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s.
Lau 13/5 kl. 13:00 168 s. Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s.
Sun 14/5 kl. 20:00 169 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s.
Fös 19/5 kl. 20:00 170 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s.
Lau 20/5 kl. 13:00 171 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Mið 14/6 kl. 20:00 187 s.
Sun 21/5 kl. 20:00 172 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s.
Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s.
Allra síðustu sýningar komnar í sölu!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 30/4 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas.
Sun 7/5 kl. 13:00 aukas. Sun 21/5 kl. 13:00 aukas.
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 30/4 kl. 13:00 aukas.
Lokasýning.
Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið)
Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn
Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 6. sýn
Sýningar í haust komnar í sölu.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 30/4 kl. 13:00 Sun 7/5 kl. 13:00
Sun 30/4 kl. 16:00 Lau 13/5 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 6/5 kl. 19:30 Mið 17/5 kl. 19:30 Lau 27/5 kl. 19:30
Fös 12/5 kl. 19:30 Lau 20/5 kl. 19:30
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Lau 29/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 6/5 kl. 19:30 17.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 20.sýn
Fös 5/5 kl. 19:30 16.sýn Fös 12/5 kl. 19:30 18.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 21.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Sun 30/4 kl. 19:30 Sun 14/5 kl. 19:30
Lau 6/5 kl. 20:00
Edinborgarhúsið Ísafirði
Sun 21/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 29/4 kl. 20:00 Fös 5/5 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00
Lau 29/4 kl. 22:30 Fös 5/5 kl. 22:30 Lau 6/5 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Álfahöllin (Stóra sviðið)
Lau 29/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 5/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 10.sýn
Fim 4/5 kl. 19:30 7.sýn Sun 14/5 kl. 19:30 9.sýn
Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Alþjóðlegi djassdagurinn verður
haldinn hátíðlegur á morgun og
meðal viðburða verður Stórsveita-
maraþon sem Stórsveit Reykjavík-
ur stendur fyrir kl. 12-17.30 í Flóa í
Hörpu. Stórsveitin býður til sín
yngri og eldri stórsveitum landsins
og leikur hver hljómsveit í u.þ.b. 30
mínútur. Stórsveitamaraþonið er
nú haldið í 21. sinn og gera má ráð
fyrir að flytjendur verði um 200.
Sveitirnar eru á ólíkum getustigum
og aldri; allt frá börnum til eldri
borgara, eins og segir í tilkynningu
og er aðgangur ókeypis.
Kex hostel heldur líka upp á dag-
inn því í kvöld kl. 20.30 leikur
Kvartett saxófónleikarans Jóels
Pálssonar. Í Petersen-svítunni í
Gamla bíói leikur Kvartett Maríu
Magnúsdóttur kl. 16 og á Bryggj-
unni Brugghúsi,
Grandagarði 8,
leikur Kvartett
Óskars Guðjóns-
sonar kl. 20.
Jazzklúbburinn
Múlinn stendur
fyrir tónleikum í
Hörpu kl. 21 en
þá leikur Kvart-
ett Kristjönu
Stefánsdóttur og
á Mímisbar Radisson Blu hótelsins
við Hagatorg leikur Björn Thor-
oddsen Band kl. 21 og á Hressó í
Austurstræti Böddi Reynis og Tríó
Hjartar Stephensen kl. 21. Rás 1
tekur einnig þátt í hátíðahöldunum,
með beinni útsendingu kl. 16.05 á
tónleikum Kvintetts Þorgríms Jóns-
sonar og Kristjönu Stefánsdóttur.
Fjöldi tónleika á alþjóðlegum djassdegi
Sigurður
Flosason