Morgunblaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 Plop plop, ég er sápukúlur kallar Magnús Helgason myndlistar- maður sýninguna sem hann opnar í Listamenn gallerí að Skúlagötu 32 í dag, laugardag, klukkan 15. Verkin hefur Magnús, sem er búsettur á Akureyri, unnið á síðustu tólf mán- uðum, tímabili sem hann segir óvissutímabil í heiminum og það standi enn yfir. Í tilkynningu segist Magnús ásamt mörgum öðrum búa „í sápu- kúlu eða kannski tyggjókúlu, við umkringjum okkur eigin veruleika sem eru okkar eigin upplifanir af heiminum og skiljum ekki tilveru annarra“. Í samtali segir Magnús að hann hrærist í sínum heimi og rútínu. „Ég er heppinn að búa ekki við stríðsátök og ég er ekki hræddur um að ég eða börnin mín séum drepin úti á götu. Við búum mörg í sápukúlu eða tyggjókúlu. Þá eru verkin mín ekki til að breyta heim- inum, ég er ekki að reyna það, ég er inni í minni sápukúlu að gera það sem mér finnst áhugavert.“ Fegurðin eftirsóknarverð Magnús segist hafa komið með ein fimmtán ný verk með sér suður en tólf hafi ratað upp á veggi sýn- ingarsalarins. „Þetta hefur verið gjöfult ár,“ segir hann. „Ég sé reyndar núna að hvað liti varðar hefur það verið frekar einhæft, mikið af gulum málverkum.“ – Hvers vegna eru mörg gul? „Ég laðast líklega svona að þeim lit. En það er ekkert fjólublátt verk. Ég er laus við það …“ – Þú setur málverkin þín saman úr fundnum hlutum, spýtum, gleri og plasti, sem þú vinnur áfram og bætir til að mynda við textum. „Já, ég geng um götur og ef það er verið að gera upp hús eða verið að rífa út gamlar inréttingar þá er oft settur ruslagámur þar fyrir ut- an. Ég kíki alltaf í slíka gáma og ef ég sé spýtur sem eru skemmtilegar á litinn eða góðar í laginu þá kippi ég þeim með mér. Svo púsla ég spýtum saman í vinnustofunni og með því er ég á einhvern hátt ekki að stjórna verkinu heldur náttúran og annað fólk sem hefur málað eða valið sér gula eða græna eldhús- innréttingu. Það ræður því hvaða stefnu ég tek með verkið. Rétt eins og einn kunningi minn sem lætur vini sína alltaf panta fyrir sig mat á veitingastöðum, því annars myndi hann alltaf panta sér það sama …“ – En þú vinnur úr hlutunum, steypir þeim saman og vinnur í verkin. „Í mörg ár hef ég líkt vinnu minni við störf garðyrkjumanns. Hann býr ekki til tré og blóm held- ur raðar þeim saman á smekklegan hátt. Það er sama kerfið hjá mér.“ – Og þú reynir að finna smekk- lega útkomu? „Já, ég er alltaf að reyna að vera smekklegur! Fegurð er eftirsókn- arverð í sjálfu sér, mér finnst allt í lagi að segja það – þótt fegurðin sé oft viðkvæmt hugtak í myndlist.“ Og talandi um skilgreiningar þá segir Magnús verkin vera málverk. „Ég hef gert ýmislegt, kvikmynd- ir, innsetningar og annað, en ákvað síðan að ég myndi vinna með þetta gamla tvívíða form. Ekki fara mikið út í þrívíddina, þó hún læðist aðeins inn í þau,“ segir hann. efi@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Mörg gul Magnús Helgason á vinnustofu sinni á Akureyri. Hann opnar í dag sýningu á nýjum verkum í Listamenn gallerí við Skúlagötu. Alltaf að reyna að vera smekklegur  Magnús Helgason sýnir ný málverk Hildigunnur Halldórsdóttir leikur á barokkfiðlu og Guðný Einarsdóttir á sembal á tónleikum 15:15 í Nor- ræna húsinu á morgun. Þær flytja verk eftir Bach, blanda saman þátt- um úr þremur einleikspartítum fyr- ir fiðlu og enskum og frönskum svítum fyrir sembal. Að lokum verður flutt Sónata nr. 3 í E-dúr BWV 1016 fyrir fiðlu og sembal. Fiðla og semball á 15:15 tónleikum Tónleikar Hildigunnur og Guðný. Ungverski orgelleikarinn Katalin Lörincz heldur upp á sextugs- afmæli sitt með einleikstónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun kl. 17. Lörincz mun flytja ungverska orgeltónlist eftir kennara sinn fyrr- verandi, Szõnyi Erzsébet, Liszt Fe- renc, Pikéthy Tibor og Frigyes Hi- das. Flytur ungverska orgeltónlist Afmælisblóm Katalin Lörincz. Fast and Furious 8 12 Nú reynir á vini okkar sem aldrei fyrr! Hópurinn ferðast heimshornana milli. Metacritic 61/100 IMDb 8,1/10 Laugarásbíó 19.00, 22.00 Sambíóin Álfabakka 14.00, 17.00, 20.00, 22.50 Sambíóin Egilshöll 19.40, 22.30 Sambíóin Keflavík 19.20 Smárabíó 16.40, 17.00, 19.30, 19.50, 22.20, 22.40 Háskólabíó 20.50 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.40 Í myndinni halda útverðir alheimsins áfram að ferðast um alheiminn. Þau þurfa að passa upp á hópinn, og leysa ráðgátuna um foreldra Peter Quill. Metacritic 66/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 16.00, 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.50 Sambíóin Álfabakka 14.00, 15.00, 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.50 Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.10, 16.50, 18.00, 19.40, 21.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 00.40, 01.00, 01.40, 13.10, 14.00, 16.00, 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.50 Sambíóin Akureyri 14.00, 16.40, 17.00, 20.00, 22.10, 22.50 Sambíóin Keflavík 14.00, 16.00, 17.00, 20.00, 22.00, 22.50 Guardians of the Galaxy Vol. 2 12 Beauty and the Beast Ævintýrið um prins í álögum sem verður ekki aflétt nema stúlka verði ástfangin af honum áður en rós sem geymd er í höll hans deyr. Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Metacritic 65/100 IMDb 7,8/10 Sambíóin Álfabakka 14.30, 17.30 Sambíóin Egilshöll 14.00, 17.00 Sambíóin Kringlunni 14.00, 20.00 Sambíóin Akureyri 14.00 The Circle 12 Ung kona fær vinnu hjá stóru hugbúnaðarfyrirtæki sem kallast Circle. Þar hittir hún dularfullan mann. Metacritic 53/100 IMDb 7,7/10 Smárabíó 14.00, 17.10, 19.50, 22.20 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 The Shack 12 Metacritic 32/100 IMDb 6,5/10 Sambíóin Kringlunni 17.20 Unforgettable 16 Eftir skilnað við eiginmann sinn David hefur Tessa borið þá von í brjósti að hann muni snúa til hennar og dóttur þeirra aftur. Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.10 Sambíóin Egilshöll 22.10 Going in Style 12 Metacritic 50/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.50, 20.00 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00 Land of Mine 12 Þegar seinni heimsstyrjöldin líður undir lok þvingar danski herinn hóp þýskra stríðsfanga til að sinna lífs- hættulegu verkefni. Metacritic 75/100 IMDb 7,8/10 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.40 Undirheimar 16 IMDb 8,0/10 Laugarásbíó 17.45, 20.00 Háskólabíó 21.00 Ghost in the Shell 12 Metacritic 53/100 IMDb 6,9/10 Sambíóin Álfabakka 22.10 Hidden Figures Metacritic 74/100 IMDb 7,9/10 Háskólabíó 21.00 Get Out 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 83/100 IMDb 8,3/10 Laugarásbíó 22.25 Hjartasteinn Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,9/10 Háskólabíó 18.00 Life 16 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 54/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 20.00, 22.20 Logan 16 Metacritic 75/100 IMDb 9,0/10 Smárabíó 22.10 Stubbur stjóri Metacritic 50/100 IMDb 6,5/10 Laugarásbíó 13.50, 16.00, 16.30, 17.50 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.40 Smárabíó 12.30, 13.00, 14.45, 15.15, 17.30, 20.00 Háskólabíó 15.40, 18.00, 18.10 Borgarbíó Akureyri 13.40, 15.40, 17.40 Dýrin í Hálsaskógi Morgunblaðið bbbbn IMDb 7,1/10 Laugarásbíó 14.00, 16.00 Sambíóin Keflavík 14.00 Smárabíó 13.00, 15.00 Háskólabíó 16.00 Strumparnir: Gleymda þorpið Metacritic 45/100 IMDb 5,9/10 Smárabíó 13.00, 15.00, 17.40 Háskólabíó 16.00 Stóra stökkið IMDb 6,9/10 Háskólabíó 16.00 Rock Dog Metacritic 49/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Álfabakka 13.50 Sambíóin Egilshöll 17.50 The Lego Batman Movie Morgunblaðið bbbmn Metacritic 75/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 15.40 I, Daniel Blake Metacritic 78/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 18.00 Velkomin til Noregs Petter Primus er maður með stóra drauma, sem verða sjaldnast að veruleika. IMDb 6,3/10 Bíó Paradís 22.30 The sea of trees Metacritic 23/100 IMDb 5,9/10 Bíó Paradís 22.00 Spólað yfir hafið Morgunblaðið bbbbn Bíó Paradís 20.00 Souvenir IMDb 6,5/10 Bíó Paradís 18.00 No Man’s Land Bíó Paradís 20.00 Á nýjum stað Bíó Paradís 18.00 MAMMA MIA! Sing along sýning Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Bíó Paradís 20.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.