Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
29. apríl 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 105.81 106.31 106.06
Sterlingspund 137.02 137.68 137.35
Kanadadalur 77.49 77.95 77.72
Dönsk króna 15.554 15.646 15.6
Norsk króna 12.409 12.483 12.446
Sænsk króna 12.008 12.078 12.043
Svissn. franki 106.79 107.39 107.09
Japanskt jen 0.9489 0.9545 0.9517
SDR 145.01 145.87 145.44
Evra 115.73 116.37 116.05
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 146.275
Hrávöruverð
Gull 1265.55 ($/únsa)
Ál 1954.0 ($/tonn) LME
Hráolía 51.57 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Eimskip hefur
samið við þýska
bankann KfW IPEX-
Bank um 80% lán
vegna smíði tveggja
skipa. Lánið er í evr-
um og er til 15 ára.
Gylfi Sigfússon, for-
stjóri fyrirtækisins,
segir í tilkynningu til
Kauphallar að kjörin
séu hagstæð fyrir
Eimskip. Lánið er tryggt af China Export &
Credit Insurance Corporation (Sinosure).
Í janúar undirritaði skipafélagið samn-
ing um smíði á skipunum tveimur við
China Shipbuilding Trading Company
Limited og Guangzhou Wenchong Shipy-
ard Co. Ltd. Samningsverð hvors skips
nemur um 32 milljónum dollara og gert
er ráð fyrir að skipin verði afhent á árinu
2019. Greiðslufyrirkomulag skipanna er
að 40% af samningsverði er greitt á
smíðatíma skipanna og 60% við afhend-
ingu.
Þýskur banki lánar
Eimskip fyrir skipum
Gylfi
Sigfússon
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ísland er ekki lengur samkeppn-
ishæft þegar kemur að starfsemi
stórra tæknifyrirtækja sem eyða
miklum fjármunum til rannsókna
og þróunar. Þetta segir Stefanía G.
Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
leikjafyrirtækisins CCP á Íslandi.
Stefanía, ásamt fulltrúum nýsköp-
unar- og tækniiðnaðarins á Íslandi,
átti nýverið fund með Benedikt Jó-
hannessyni fjármálaráðherra
vegna málsins þar sem vakin var
athygli á þeirri staðreynd að ná-
grannalönd eins og Bretland bjóða
upp á mun hagfelldari skilyrði fyrir
sambærileg fyrirtæki.
Óvissa með stækkun hér á landi
CCP stendur núna frammi fyrir
því að ákveða hvort nýr tölvuleikur,
sem fyrirtækið er með í þróun,
verði stækkaður
og framleiddur á
Íslandi eða í
Bretlandi að
loknum undir-
búningsfasa.
Frumgerð
leiksins hefur
verið í þróun á
starfsstöð fyrir-
tækisins í
Shanghai í Kína,
en verkefnið
verður flutt í heild sinni til Evrópu
á næstu dögum, þar sem þróun
verður haldið áfram. Verkefnið tel-
ur 24 starfsgildi, en aðeins tæpur
helmingur þróunarstarfsins verður
hér á Íslandi. Þar með verður Ís-
land af um 200 milljónum króna á
ári, að sögn Stefaníu, sem er áætl-
aður kostnaður við þróunarvinnu
sem unnin verður í Bretlandi. Fari
leikurinn í framleiðslu í kjölfarið er
stóra spurningin hvar framleiðslu-
starfið verði og hvar leikurinn
verði gefinn út á endanum.
Á Íslandi er 20% kostnaðar við
rannsókn og þróun í tæknifyri-
tækjum endurgreidd árlega, en 300
milljóna króna þak er á kostnaði
vegna endurgreiðslu, sem þýðir að
ef fyrirtæki eyðir meiru en 300
milljónum króna í rannsóknir og
þróun á ári fæst engin endur-
greiðsla. CCP fer auðveldlega upp
fyrir það þak með rannsóknar- og
þróunarvinnu sinni við EVE On-
line, sem er framleiddur hér á Ís-
landi. Öll ný þróunarverkefni njóta
því engrar endurgreiðslu hér á
landi.
Bretland styrkir áfram um 20%
Bretar hafa markvisst verið að
efla laga- og stuðningsumhverfi
sitt fyrir nýsköpunarfyrirtæki og
bjóða 33% endurgreiðslu rannsókn-
ar- og þróunarkostnaðar og setja
ekkert þak á þann kostnað. Auk
þess fá leikjafyrirtæki áframhald-
andi 20% endurgreiðslu eftir að
leikurinn fer í framleiðslu. „Ef
horft er til hagkvæmni- og við-
skiptasjónarmiða liggur í augum
uppi að stækkun verkefnisins í
framtíðinni fer fram í Bretlandi, en
ég hef ástæðu til að trúa því að það
sé verið að laga þessi mál hér á Ís-
landi.
Störfin sem fara til Bretlands á
þessu ári hefðu skilað um 70 millj-
ónum í skatttekjur til ríkissjóðs.
Endurgreiðslan af þeim hluta verk-
efnisins hefði verið um 40 milljónir
ef hér væri ekkert þak á kostnaði
vegna endurgreiðslu, sem þýðir að
ríkið hefði samkvæmt þessu dæmi
komið út í 30 milljóna króna plús.“
Hagstæðara fyrir CCP að
framleiða nýjan leik erlendis
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skatttekjur CCP þarf nú að ákveða hvort nýr tölvuleikur verði framleiddur á Íslandi eða í Bretlandi.
Leikjaiðnaður í sókn
» CCP hagnaðist um 2,3 millj-
arða á síðasta ári.
» Félagið framleiðir leikina
EVE Online, Gun Jack 1 og 2,
Valkyrie og Sparc.
» Starfsstöðvar eru í Reykja-
vík, Shanghai, London, New-
castle og Atlanta.
» Enginn nýr leikur fram-
leiddur á Íslandi síðan 2003.
» Leikjaiðnaðurinn vex um
30% á ári.
Vill framleiða leikinn á Íslandi Bretland lokkar leikjafyrirtækin til sín
Stefanía G.
Halldórsdóttir
Hagnaður Össurar á fyrsta ársfjórð-
ungi jókst um 13% á milli ára mælt í
dollurum. Nam hagnaðurinn 10 millj-
ónum dollara eða um 1,1 milljarði
króna. Sala jókst um 17% á milli ára,
þar af var 7% innri vöxtur. Stóran
hluta veltuaukningar má því rekja til
yfirtöku á fyrirtækjum á árinu 2016.
Tekjurnar námu 131 milljón doll-
ara á fjórðungnum eða um 14,7 millj-
örðum króna. Hagnaður fyrir vaxta-
greiðslur, afskriftir og tekjuskatt, þ.e.
EBITDA, jókst um 26% milli ára og
var 20 milljónir dollara eða um 2,3
milljarðar króna.
Í afkomutilkynningu Össurar til
Kauphallar segir Jón Sigurðsson for-
stjóri það ánægjuefni að skila nú
fjórðungi sem sýnir góðan innri vöxt
og stöðuga arðsemi, í ljósi þess að
fyrsti ársfjórðungur er jafnan sá slak-
asti á árinu hjá félaginu.
Sölunni er skipt í grófum dráttum á
milli þriggja heimsálfa. Um 50% af
sölunni voru í Evrópu, en undir þeim
þætti í uppgjörskynningu heyra líka
Mið-Austurlönd og Afríka. Þar nam
vöxturinn 22% á milli ára. Sé litið til
innri vaxtar var hann 11% á þessu
svæði.
Um 43% af sölunni áttu rætur að
rekja til Ameríku og nam tekjuvöxt-
urinn þar 10% á milli ára og var 1%
vegna innri vaxtar.
Loks skapaði sala í Asíu um 7% af
tekjum Össurar. Markaðssvæðið í As-
íu nær frá Pakistan til Nýja-Sjálands
með sérstakri áherslu á Japan, Ástr-
alíu, Kína, Kóreu og Indland. Salan á
svæðinu jókst um 21% á milli ára og
var innri vöxtur 14%.
Markaðsvirði Össurar er 179 millj-
arðar króna en gengið hefur lækkað
um 14% á 12 mánuðum.
helgivifill@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Össur Jón er sáttur við innri vöxt
og stöðuga arðsemi á fjórðungnum.
Hagnaður Össur-
ar jókst um 13%
Tekjur jukust
um 17% og þar af
er 7% innri vöxtur
FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐA
Nutrilenk fyrir liðina
GOLD
NNA
Vertu laus við
LIÐVERKINA
Eitt mest selda efnið fyrir liðina hér á landi
„NUTRILENK GOLD GAF MÉR
LÍFSGLEÐINA Á NÝ“
Náttúrul
egt
fyrir liðin
a
„Ég hef stundað skíði í 60 ár, línuskauta, hjólreiðar, fjallgöngur og svo æfi ég í ræktinni daglega. Fyrir
nokkrum árum stóð ég frammi fyrir því að ökklarnir voru algjörlega ónýtir, aðallega vegna endalausrar
tognunar á skíðum. Ástandið var orðið þannig að ég gat varla gengið. Læknirinn minn sagði að annar
ökklinn væri svo illa farinn að það þyrfti að stífa hann. Þessar fréttir fundust mér vera endalokin fyrir mig
og mín áhugamál og ég lagðist í mikið þunglyndi. Mér var bent áNUTRILENKGOLD sem ég ákvað
að prófa og það gerði kraftaverk. Í dag fer ég á fjöll og geri nánast allt semmig langar til að gera algjörlega
verkjalaus. Ef ég hætti að taka Nutrilenkið minnir ökklinn fljótt á sig. Ég skora á alla þá sem eru að glíma við
svipuð vandamál að prófa þetta undraefniNUTRILENKGOLD sem gaf mér lífsgleðina á ný.“
Guðfinnur S. Halldórsson, sveitarforingi skíðasveitarskáta í Reykjavík og landskunnur bílasali.