Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
✝ Guðrún Har-aldsdóttir
fæddist í Reykjavík
21. október 1931.
Hún lést á Dval-
arheimilinu Lundi
á Hellu 15. apríl
2015.
Foreldrar henn-
ar voru Haraldur
Axel Jóhannesson,
f. 21. mars 1898, d.
26. nóvember 1940,
og Elín Kristjana Guðmunds-
dóttir, f. 14. október 1908, d.
27. febrúar 1984. Systkini Guð-
rúnar sammæðra, Haraldur
Sigurvin, f. 5.5. 1933, d. 24.3.
1991, Elín Guðmunda, f. 4.5.
1935, d. 19.2. 2005, Helga
Henrý, f. 17.8. 1936, d. 4.2.
1981, Þórir Jóhannes, f. 21.11.
1937, d. 6.5. 2012, Guðríður
Erna, f. 17.10. 1939, d. 13.6.
1977, Ásdís, f. 10.2. 1943, og
Jósef Jón, f. 28.9. 1946. Systir
Guðrúnar samfeðra Soffía Að-
alheiður, f. 23.10. 1919, d. 9.10.
1994.
Eiginmaður Guðrúnar var
Ágúst Sæmundsson, f. 19. sept-
ember 1923, d. 19. maí 2013,
Þau gengu í hjónaband 25.
urþórs Halldórssonar, f. 16.2.
1979, eru Auður, f. 2004, og
Björk, f. 2008. Synir Halldórs
eru Kári, Logi og Máni, f. 2001.
b) Ólafur, f. 9.5. 1985. 3) Elín
Ágústsdóttir, f. 20.11. 1957.
Dóttir hennar og Sigurjóns M.
Egilssonar, f. 17.1. 1954, er
Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, f.
27.5. 1975, maki Óskar Finn-
björnsson. Þeirra börn er Mark-
ús Ari, f. 2007, og Helga Birna,
f. 2010. Sonur Óskars er Er-
lendur Þór, f. 1998. Synir El-
ínar og Arnar Haukssonar, f.
3.2. 1960 eru: a) Ari Arnarson,
f. 24.7. 1982, maki Inga Dóra
Magnúsdóttir, f. 4.3. 1985. Börn
þeirra eru Stella Björk, f. 2011,
og Jón Ingi, f. 2015 b) Egill, f.
6.1. 1987, maki Hanna Katrín
Finnbogadóttir, f. 26.9. 1989.
Börn þeirra eru Haukur Páll, f.
2011, og Eva Hrönn, f. 2014.
Guðrún ólst upp í Reykjavík,
byrjaði ung að vinna ýmis störf.
Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík
en hafði ekki tækifæri til frek-
ara náms þótt hugur hennar
stæði til þess. Þau Ágúst byrj-
uðu búskap að Tumastöðum í
Fljótshlíð þar sem hann starf-
aði. 1952 fluttu þau að Hellu,
þar bjuggu þau til 2013. Þegar
Ágúst lést voru þau bæði komin
á dvalarheimilið Lund.
Guðrún verður jarðsungin
frá Oddakirkju í dag, 29. apríl
2017, klukkan 14.
ágúst 1951. Börn
þeirra: 1). Guð-
björg Ágústsdóttir,
f. 5.7. 1951, maki
Agnar Már Sig-
urðsson, f. 7.9.
1950, börn þeirra:
a) Ágúst, f. 8.9.
1973, maki El-
isabeth Stubdal, f.
26.7. 1976, dóttir
þeirra er Freyja
Björg, f. 2015.
Dætur Ágústs og Ingu Guð-
rúnar Gestsdóttur, f. 14.2. 1970,
eru Ástrós Ögn, f. 1999, og
Sunna Dögg, f. 2002. Dætur El-
isabethar eru May Elin, f. 1996,
og Mari Isabell, f. 2006. b) Kári,
f. 6.9. 1978, maki Ivalo Kristian-
sen, f. 19.6. 1984 , synir þeirra
Agnar Ole Nanoq, f. 2013, og
Inuk Úlfur, f.,2015. c) Helena
María, f. 29.4. 1980, maki Guð-
mundur Kristinn Ögmundsson,
f. 13.5. 1980, dætur þeirra Kara
Sóley, f. 2007, og Rakel Örk, f.
2009. 2) Haraldur Ágústsson, f.
23.6. 1952, maki Ingigerður
Ólafsdóttir, f. 4.12. 1954. Börn
þeirra: a) María, f. 16.3. 1979,
maki Halldór Meyer, f. 20.6.
1970. Dætur Maríu og Sig-
Elsku amma, hér sit ég og
fletti í minningabankanum og ég
veit ekki hvar ég á að byrja. Ég
trúi því vart að við eigum ekki
eftir að hittast aftur, að minnsta
kosti í þessu lífi. Mér finnst það
enn svo óraunverulegt, þó að ég
viti vel að það kemur að kveðju-
stund einn daginn, það er bara
svo sárt að kveðja. Ég ætlaði að
hitta þig og spjalla í þessari ferð
minni til Íslands en þú fórst á
fund við afa og ég trúi því að þið
séuð sameinuð á ný og að hann
hafi tekið á móti sinni með stæl
og sé þegar farinn að stjana við
þig.
Þegar ég hugsa til baka sé ég
okkur saman þar sem ég skott-
aðist með þér út um allt. Minn-
ingarnar eru svo ljúfar að ég
hlýt eiginlega að hafa verið
ótrúlega þægilegt barn en lík-
lega kom okkur bara svona vel
saman. Við bárum út póstinn, á
eftir fórum við saman í bakaríið,
sjoppuna og svo heim til ykkar
afa eða bara beint heim þar sem
við fengum okkur ristað brauð
og te með sykri. Við fórum í
keramikbúðina á Hvolsvelli,
völdum okkur viðfangsefni sem
við pússuðum og máluðum.
Hluti sem ég á enn ásamt ýmsu
öðru handverki frá þér sem ég
varðveiti og fæ að njóta áfram.
Af þér hef ég lært margt. Á
unglingsaldri fundaði ég ásamt
öðrum starfsmönnum Kaup-
félagsins með stjórnendum og
eigendum vegna kjaramála.
Haft var orð á því að það væri
greinilegt hverra manna ég væri
þegar ég þorði að bera fram
krefjandi spurningar. Það var
augljóst til hverra var verið að
vísa enda varstu kraftmikil og
lést til þín taka í verkalýðs-,
jafnréttis- og öðrum réttlætis-
málum. Þú kenndir mér líka að
skoðanir manns eða konu þurfa
ekki að samrýmast norminu í
litla samfélaginu ef tilfinningin
segir annað.
Eftir að ég flutti frá Hellu
kom ég ósjaldan við í heimsókn
og kræsingar með vini upp á
arminn sem fengu að njóta með
mér þess sem boðið var upp á í
Vaðnesi. Þar sem nánast var
hægt að stóla á að amma ætti
fermingarveislu í ísskápnum eða
dýrindis heimalagaða súpu. Súp-
urnar þínar voru svo góðar að
við Gústi létum okkur dreyma
um að opna súpueldhús sem
gæti ekki annað en slegið í gegn
því það átti að byggja á upp-
skriftunum þínum.
Elsku amma, mér finnst enn
að ég geti tekið upp símann,
spjallað um þjóðmálin, heims-
málin, líðanina, börnin, föndrið
og bara allt. Ég á eftir að sakna
þín oft en ég ætla fyrst og
fremst að þakka fyrir þær
stundir sem við áttum og þær
stundir sem börnin mín fengu
með þér. Það var okkur öllum
mjög dýrmætt þegar þú komst
út til Stokkhólms til okkar með
mömmu. Takk fyrir allt, amma
mín, við munum hittast á ný.
Þangað til næst og við fyrsta
tækifæri ætla ég að kaupa sérrí
og elda góða súpu að þínum
hætti. Þín
Hjördís Rut.
Ég elska þig, Aggí mín, og
sakna þín, ég mun geyma allar
minningarnar um þig og Gústa
vel í hjartanu mínu. Ég er svo
lánsöm að eiga góðar minningar
um ykkur.
Það er virkilega sárt að
kveðja og ég vil trúa því að þú
sért á góðum stað með öllum
sem þér þótti vænt um og hafa
fallið frá, ég vil trúa því að nú
séuð þú, Gústi og Elín amma
saman í sumarbústað/orlofshúsi
að hafa það huggulegt og spjalla
saman um góða tíma. Jafnvel að
þú, elsku Aggí mín, sért að
segja Elínu ömmu frá því
hvernig gengur hjá okkur. Þér
þótti það svo spennandi og
skemmtilegt að ég ætti von á
tvíburum og sagðir mér að þig
hefði alltaf langað í tvíbura svo
það var virkilega gaman að
gleðja þig með því að bæta
tvíburapari í fjölskylduna, elsku
Aggí mín. Þú átt stóran sess í
hjarta mínu og ég sakna þín svo
mikið, það er alltaf jafn erfitt að
kveðja þá sem maður elskar og
ég á virkilega erfitt með að trúa
því að þú sért farin. Það var
gott að koma til þín og kveðja
þig og þakka þér fyrir allar
góðu stundirnar sem við áttum
saman. Við eigum svo sannar-
lega góðar minningar saman,
Nökkvi Steinn og Elín Ásdís
Náttsól sakna þín svo mikið og
hafa alltaf talað mikið um hana
Aggí sína. Gústi var alltaf svo
skemmtilegur þegar við heim-
sóttum ykkur og í öllum æv-
intýrunum sem við deildum þeg-
ar ég var yngri, ég var litla
snúllan hans og mér hefur alltaf
þótt vænt um það að eiga stað í
hjarta ykkar. Það var svo gott
að heyra það frá þér, elsku Aggí
mín, að amma hefði orðið glöð
með hvað ég væri búin að vera
dugleg eftir að hún féll frá og ég
hef verið virkilega heppin að
eiga þig, Aggí mín, og hana Ás-
dísi mína að í gegnum allt.
Ég á ótal margar minningar
um þig og Gústa sem mér þykir
svo vænt um og kem til með að
geyma á góðum stað í hjarta
mínu um alla tíð. Ég er svo
þakklát fyrir stundirnar sem ég
átti með þér og mér hefur alltaf
þótt gaman að heimsækja þig,
við höfðum alltaf eitthvað til að
tala um, svo áttir þú líka svo
góð ráð varðandi mat sem er
klárlega sameiginlegt áhugamál
okkar. Mig langar að halda uppi
hefðinni þinni með að gera ára-
mótatertur eins og þú gerðir
lengi vel eða alveg þangað til þú
hafðir ekki lengur tök á því. Það
verður gaman að renna í gegn-
um myndaalbúmin þín og rifja
upp gamla og góða tíma. Ég
kem aldrei til með að gleyma
garðinum ykkar Gústa þar sem
ég lék mér með því að fara í
leiðangra um „völundarhúsið“
eins og ég kallaði það, sú leið
fólst í því að ganga upp skeifuna
öðrum megin, bak við trén í ein-
hverskonar „sikksakki“, þar
næst niður stigann sem er hin-
um megin við runnann og svo
sömu leið til baka. Þetta gat ég
gert oft á dag, oftast staldraði
ég nú við á leiðinni og skoðaði
það sem ég fann eða dótið sem
ég hafði tekið með mér. Það er
gott að rifja upp góðar minn-
ingar en einnig erfitt vitandi að
ég get ekki búið til fleiri með
þér, elsku Aggí mín. Þú verður
alltaf Aggí amma og ég mun
segja börnunum allar skemmti-
legu sögurnar sem við eigum
saman, Hanna Stella og Hannes
munu þekkja þig eins og þú
varst, yndisleg, góðhjörtuð,
skemmtileg, hugulsöm og
hjartahlý. Ástarkveðja, þín
Hafsteina Guðmundsdóttir.
Það má segja að það sé svolít-
ið furðulegt að kveðja foreldra
æskuvina þegar minningarnar
ná að teygja sig svo langt aftur
sem minnið nær. Lengst af var
hún Aggí bara mamma hennar
Ellu, og þó ekki bara, hún var
alltaf svolítið öðruvísi. Svolítill
„uppreisnarseggur“ og dálítið
Guðrún
Haraldsdóttir
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HILMAR BERNBURG
prentari,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, 22. apríl.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 2. maí klukkan 15.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Rúnar Bernburg Þóra Svanbergsdóttir
Hanna Hilmarsdóttir Örn Héðinsson
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær bróðir minn, mágur og frændi,
TÓMAS HANNESSON,
Arahólum 2,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
11. apríl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sverrir J. Hannesson Helga Vallý Björgvinsdóttir
Hannes Sverrisson
Sigurlaug Sverrisdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN KRISTBERGSDÓTTIR,
Lækjargötu 32,
Hafnarfirði,
sem lést mánudaginn 10. apríl, verður
jarðsungin frá Fríkirkju Hafnarfjarðar þriðjudaginn 2. maí
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Kristján S. Sigurgeirsson
Friðrik Friðriksson Guðrún Helga Sigurðardóttir
Herborg Friðriksdóttir Guðjón Ágúst Sigurðarson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg systir mín og frænka okkar,
ANNA INGIBJÖRG HELGADÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu 23. apríl.
Jarðsungið verður frá Háteigskirkju
föstudaginn 5. maí klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaheill og
Blindrafélagið.
Bestu þakkir fær starfsfólk Sólteigs á Hrafnistu.
Helgi Helgason og aðstandendur
Elskulegur bróðir okkar,
JÓNMUNDUR FRIÐRIK ÓLAFSSON,
áður bóndi í Kambakoti,
Mánabraut 13,
Skagaströnd,
lést 19. apríl. Útför hans fer fram frá
Hólaneskirkju á Skagaströnd miðvikudaginn 3. maí klukkan 14.
Blóm og kransar afþakkast en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarfélög.
Systkini og fjölskyldur þeirra
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
MATTHÍAS EGGERTSSON,
fyrrv. ritstjóri Búnaðarblaðsins Freys,
Hagamel 37,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 24. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkju við
Hagatorg miðvikudaginn 3. maí klukkan 15.
Margrét Guðmundsdóttir
Sigríður Matthíasdóttir Jón Pálsson
Jóhann Eggert Matthíasson Þórhildur Halla Jónsdóttir
Pétur Ólafur Matthíasson Anna Eleonora Hansson
og barnabörn
Yndislega ástin mín, móðir okkar og amma,
BÁRA BALDURSDÓTTIR,
kvaddi okkur á páskadagsmorgun á
krabbameinsdeild Landspítalans.
Útförin verður í Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 3. maí klukkan 13.
Stefán E. Sigurðsson
Hanna Katrín Stefánsdóttir
Aldís Fönn Stefánsdóttir
Ingibjörg Bára Gunnlaugsdóttir
Erna Kristín Jónsdóttir
Stefán Geir Geirsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
INGVELDUR SIGRÍÐUR
FILIPPUSDÓTTIR,
fyrrum til heimilis að Gnoðarvogi 42,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk miðviku-
daginn 19. apríl. Útförin fer fram í
Langholtskirkju þriðjudaginn 2. maí klukkan 13.
Edda Jóhanna Sigurðardóttir
Rúnar F. Sigurðsson
Jónína Stefanía Sigurðardóttir
Sigurður Ingi Sigurðsson, Ann Sigurdsson
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn