Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 23

Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 Vætutíð Það rigndi án afláts í höfuðborginni í gær, síðan kom slydda síðdegis og útlit er fyrir úrkomu á sunnanverðu landinu næstu daga, en þurrt verður nyrðra og fremur hlýtt í veðri. Eggert Í umræðunni um fjölgun ferðamanna gleymist iðulega að landið nýtur ekki allt sama ferðamanna- straumsins. Það er öðru nær. Á meðan umræða um ferðamenn á suðvesturhorninu snýst um álag og erf- iðleika vegna mikils fjölda og jafnvel að- gangsstýringu veitir stórum hlutum landsins ekki af um- talsverðri fjölgun. Í Norðausturkjördæmi leita menn allra leiða til að fá fleiri ferðamenn á Norður- og Austurland, alls ekki færri. Á því byggist rekstrargrund- völlur fyrirtækjanna sem og atvinna og lífsviðurværi þeirra sem þar starfa. Sömu sögu er að segja víðar af landinu. Á þessu virðist vera lítill skiln- ingur hjá stjórnvöldum, meðal ann- ars hjá fjármálaráðherra og þing- manni kjördæmisins. Reglulega er minnt á mikilvægi þess að ferða- menn dreifist betur um landið. Allir hafa hag af því að dreifa álaginu og uppbyggingunni betur og nýta auð- lindina sem í landinu liggur. Áform ríkisstjórnarinnar um að stórhækka skatta á ferðaþjónustu ganga hins vegar þvert á þessi markmið. Ljóst er að ferða- þjónusta getur skilað enn meiri tekjum en nú er. Sú aðferð sem rík- isstjórnin boðar myndi hins vegar bitna verst á greininni á þeim svæð- um þar sem hún á erf- iðast uppdráttar og þörfin fyrir fjölgun ferðamanna er mest. Það á til dæmis við um þá fjölmörgu aðila sem reka litlar einingar en hafa lagt mik- ið undir til að bjóða upp á gistingu eða aðra þjónustu fjarri höfuðborg- arsvæðinu. Uppbygging á lands- byggðinni er öllum í hag Uppbygging ferðaþjónustu á landsbyggðinni snýst ekki bara um að veita ferðafólki gistingu eða aðra þjónustu. Slík uppbygging, eins og öll önnur atvinnuuppbygging utan höfuðborgarsvæðisins, snýst líka um að styrkja byggðir landsins, jafna kjör og aðstæður fólks til búsetu á landinu öllu og treysta í sessi sam- félög í hinum dreifðu byggðum. Landsmenn allir njóta góðs af því. Sú uppbygging sem ferðaþjón- ustan hefur fært fjölmörgum stöðum um allt land hefur haft mjög margt gott í för með sér. En því miður virð- ist skilningur á mikilvægi og eðli þessarar vaxandi starfsgreinar vera takmarkaður þegar kemur að ákvörðunum um starfsumhverfi hennar. Það gerist ekki á hverjum degi að ég vitni í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn máli mínu til stuðnings. En hvað varðar starfsumhverfi ferðaþjónust- unnar hefur AGS gert góða grein fyrir mikilvægi þess að atvinnu- greinin njóti stöðugleika og „sjálf- bærs vaxtar“. Sérstaklega hefur verið minnt á mikilvægi þess að varðveita samkeppnishæfni grein- arinnar. Það vekur manni því ugg að heyra forsætisráðherrann lýsa því yfir í viðtali að það síðasta sem hann hafi áhyggjur af sé samkeppnisstaða ís- lenskrar ferðaþjónustu. Fjármála- ráðherrann skákar í þessu skjóli og virðist líta á greinina sem ótæmandi gullkistu sem hægt sé að ausa úr til að fylla í götin á fjármálaáætlun rík- isstjórnarinnar. Traðkað á ferðaþjónustu í Norðausturkjördæmi Það er áhyggjuefni að fjármála- ráðherra, sem er þingmaður Norð- austurkjördæmis, skuli skorta skiln- ing á aðstæðum greinarinnar í kjördæminu. Norður- og Austurland geta sannarlega tekið við miklu fleiri ferðamönnum en nú er og gert það vel. Tækifærin til uppbyggingar án- ingarstaða og afþreyingar eru ótelj- andi. Samkeppnin við suðvesturhorn landsins og restina af heiminum er hins vegar erfið, nýtingarhlutföll lægri en þau þyrftu að vera og fram- legðin of lítil, minni en svo að menn ráði við skyndilega tvöföldun virð- isaukaskatts og rúmlega það. Á sama tíma er greinin að takast á við verulega styrkingu krónunnar. Áform fjármálaráðherra og rík- isstjórnarinnar um að hækka virð- isaukaskatt á ferðaþjónustu munu hafa mjög neikvæð áhrif á greinina á stórum hluta landsins og þar með á byggðaþróun, atvinnuþróun og lífs- kjör. Nefna má Breiðdalsvík sem dæmi. Eftir langvarandi öfugþróun í atvinnumálum hafa íbúar og að- komufólk náð árangri í að snúa þró- uninni við. Þeir bundu miklar vonir við að stærsta útflutningsgrein landsins myndi renna stoðum undir vöxt og viðgang byggðarlagsins. Verði sú leið sem ríkisstjórnin boðar við gjaldtöku af ferðaþjónustunni farin munu brothættustu byggð- irnar líða mest fyrir það. Það er staðreynd sem meira að segja er hægt að sannreyna í töflureikni. Á mörgum stöðum í Norðaustur- kjördæmi hefur harðduglegt fólk lagt eigur sínar og lánsfé í að byggja upp ferðaþjónustu á undanförnum árum. Aðstandendur flestra þessara verkefna munu nú horfa nú fram á fullkomna óvissu verði virðisauka- skattshækkunin að veruleika. Ferðaþjónustufyrirtæki í Norð- austurkjördæmi þurfa ekki óljós til- boð um bitlinga eins og fjármála- ráðherra otaði að þeim á fundi á Austurlandi nýverið. Ferðaþjón- ustan og fólkið sem treystir á hana sem lífsviðurværi þarf stöðugt starfsumhverfi sem tryggir sam- keppnishæfni og styður við upp- byggingu og fjárfestingu. Á því byggir sjálfbær atvinnustarfsemi. Flöt hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna gengur þvert gegn öllum þessum markmiðum og mun hafa mjög alvarlegar afleiðingar á landsbyggðinni til framtíðar. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson » Flöt hækkun virðis- aukaskatts á ferða- þjónustuna gengur þvert gegn öllum þess- um markmiðum og mun hafa mjög alvarlegar af- leiðingar á landsbyggð- inni til framtíðar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er alþingismaður. Fjármálaráðherra bregður fæti fyrir ferðaþjónustu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.