Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 36

Morgunblaðið - 29.04.2017, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 Atvinnuauglýsingar 569 1100 VERKEFNASTJÓRI VIÐ BORFRAMKVÆMDIR Ræktunarsamband Flóa og Skeiða óska eftir að ráða verkefnastjóra við borframkvæmdir. Verkefnastjóri hefur umsjón með áætlanagerð, undirbúningi og hönnun borverka ásamt því að annast verkefnastjórn við borframkvæmdir. Starfsstöð verkefnastjóra er á Selfossi. Starfs- og ábyrgðarsvið · Verkefnastjórn við borframkvæmdir · Eftirlit með framvindu verkefna og framvinduskýrslur · Undirbúningur og gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlana · Samskipti við hlutaðeigandi aðila innan sem utan fyrirtækisins · Undirbúningur verksamninga, eftirlit með framkvæmd og uppgjör samninga · Verkefnaöflun og gerð viðhaldsáætlana Menntunar- og hæfniskröfur · Háskólagráða í verk- eða tæknifræði · Minnst 3 ára starfsreynsla við verkefnastjórnun · Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum · Hæfni í mannlegum samskiptum · Gott vald á íslensku og ensku, talaðri sem ritaðri · Geta til að koma fram fyrir hönd fyrirtækisins Ræktunarsamband Flóa og Skeiða | Gagnheiði 35 | 800 Selfossi | Sími 480 8500 | raekto.is Upplýsingar um starfið veitir Steinn Leó Sveinsson, framkvæmdastjóri í síma 860 2054 eða í steinn@raekto.is. Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi. Utanríkisráðuneytið Verkefnastjóri í Malaví Capacent — leiðir til árangurs Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra. Umsóknir geta gilt í 6mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfummeð síðari breytingum. Umsóknir gilda í sexmánuði. Öllumumsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar og umsókn capacent.is/s/4918 Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf sem nýtist í starfi. Þekking og reynsla af verkefnastjórn og áætlanagerð. Stjórnunarreynsla er kostur. Framúrskarandi enskukunnátta og góð íslenskukunnátta í ræðu og riti. Þekking á þróunarmálum og á aðminnsta kosti einu af áherslusviðum Íslands í þróunarsamvinnumeðMalaví. Þekking á stjórnsýslu ogmeðferð fjármuna og á helstu stjórntækjum í þeim efnum. Hæfni og lipurð í samskiptum og upplýsingamiðlun. Aðlögunarhæfni og geta til að starfa undir álagi. Reynsla af störfum í þróunarlöndumæskileg. • • • • • • • • • • • • • • • Umsóknarfrestur 15. maí Starfssvið Verkefnastjórn og undirbúningur verkefna í þróunarsamvinnu. Áætlanagerð og eftirfylgni. Greinaskrif og skýrslugerðir. Samskipti við stjórnvöld, þar með talið héraðsstjórn. Samvinna og stuðningur við hagsmunasamtök, stofnanir og aðra haghafa. Aðstoð og ráðgjöf við forstöðumann sendiráðs Íslands í Lilongwe. Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir verkefnastjóra til starfa í þróunarsamvinnu í Malaví. Starfið felst í stuðningi við héraðsstjórn Mangochi-héraðs í suðurhluta Malaví þar sem íslensk stjórnvöld styrkja verkefni í lýðheilsu-, vatns- og menntamálum, auk stjórnsýslu. Starfsmaður vinnur undir stjórn forstöðumanns sendiráðsins í Lilongwe og er búsettur þar, en starfið krefst mikillar viðveru í Mangochi sem er 260 km fjarlægð frá Lilongwe. Ráðið verður til tveggja ára með möguleika á framlengingu og er reiknað með að starfsmaðurinn hefji störf eigi síðar en í september nk. Vélgæslumaður FISK Seafood ehf. óskar eftir að ráða starfs- mann til vélgæslu hjá landvinnslu fyrir- tækisins á Sauðárkróki. Í starfinu felst m.a. almenn vélgæsla, yfir- umsjón með keyrslu frystivéla, umsjón hússtjórnarkerfis, umsjón með viðhaldi og viðgerðum í landvinnslu fyrirtækisins. FISK Seafood ehf. rekur öfluga landvinnslu á Sauðárkróki, sem er í mikilli þróun og því um spennandi starf að ræða. Skriflegar umsóknir skal senda til framkvæmdastjóra FISK, Jóns E. Friðrikssonar, Háeyri 1, 550 Sauðárkróki og skulu hafa borist fyrir 1. maí nk. Blaðberar Upplýsingar veitir Egill í síma 847 8529 Blaðbera vantar í Hveragerði Brunahönnun slf óskar eftir brunavarnaverkfræðingi Brunahönnun er lítið en öflugt fyrirtæki á sviði brunavarnaráðgjafar sem leggur áherslu á praktísk- ar lausnir í brunavörnum og greiningarvinnu í sam- ræmi við þarfir verkefna og viðskiptavina. Fyrirtækið býr að stórum reynslubanka úr fjölbreyttum verk- efnum og verkefnastaðan fer vaxandi. Fyrirtækið kemur að fjölbreyttum verkefnum á sviði bruna- varnaráðgjafar. Óskað er eftir sjálfstæðum og þjónustuliprum eins- taklingi með grunnmenntun og/eða reynslu á sviði brunavarnaverkfræði. Upplýsingar um starfið gefur Gunnar H. Kristjánsson í síma 662-5990. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir berist í netfangið brunahonnun@bruna- honnun.com fyrir 5. maí nk. Brunahönnun slf er með heimasíðuna; www.brunahonnun.com þar sem hægt er að kynna sér starfsemi fyrirtækisins. Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Gluggar og Garðhús hf. óskar eftir að ráða vana smiði eða starfsmanna sem er vanur iðnframleiðslu í fullt starf við smíðar. Eining óskum við eftir vönum starfsmanni í bókhald 2 daga í viku frá kl. 9-12. Laus störf Vinsamlega sendið inn umsókn á gluggar@solskalar.is fyrir 10.maí 2017.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.