Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 1

Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. M A Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  122. tölublað  105. árgangur  Alltaf til staðar *Þegar keyptir eru 25 lítrar eða meira af eldsneyti. LISTIN AÐ LIFA LÍFINU OG NJÓTA SUMARSINS HÚSIN OG FÓLKIÐ Í INNBÆNUM SIGURÐUR VERÐ- LAUNAÐUR Á DEGI LJÓÐSINS KRISTÍN GEFUR ÚT BÓK 16 MAÍSTJARNAN 38GARÐAR OG GRILL 32 SÍÐUR Morgunblaðið/Golli Aldar gamall Framsókn hélt upp á aldar- afmæli sitt í Þjóðleikhúsinu í desember.  Vorfundur miðstjórnar Fram- sóknarflokksins verður haldinn á Hótel Natura á morgun. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er búist við hörðum deilum á fund- inum, á milli stríðandi fylkinga, þar sem annars vegar eru stuðnings- menn Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns flokksins, og hins vegar stuðningsmenn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi for- manns flokksins. Eins og kunnugt er felldi Sig- urður Ingi Sigmund Davíð í for- mannskjöri á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins í október- byrjun í fyrra. Síðan þá hefur mikið ósætti verið á milli fylkinganna, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins. agnes@mbl.is »10 Búist við átakafundi hjá miðstjórn Fram- sóknar á morgun Stórframkvæmd » Miðað við að fermetrinn kosti 350 þúsund mun það kosta 70 milljarða að byggja 200 þúsund fermetra á nýja Köllunarklettsreitnum. » Það er mjög hóflegt mat. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verktakafyrirtækið Þingvangur hyggst byggja 200 þúsund fermetra hverfi í Laugarnesi í Reykjavík. Pálmar Harðarson, framkvæmda- stjóri Þingvangs, vonast til að upp- byggingin geti hafist á næsta ári. Hann segir að í hverfinu verði byggingar sem muni henta vel sem höfuðstöðvar fyrirtækja. Þá verði upplagt fyrir stofnanir og ráðuneyti að hafa aðsetur í nýja hverfinu. Pálmar segir hugmyndir um að byggja 200 hótelíbúðir í hverfinu. Þær geti verið hagkvæm fjárfesting fyrir almenning, sem geti þannig keypt íbúðir og leigt ferðamönnum. Hann segir til skoðunar að byggja litla útgáfu af Umferðarmiðstöðinni BSÍ í nýja hverfinu. Þá sé nú miðað við að rúmlega 45 þúsund fermetrar fari undir hótelbyggingar. Til samanburðar er Fosshótelsturninn á Höfðatorgi, stærsta hótel landsins, í 17 þúsund fermetra byggingu. Nýja hverfið er á svonefndum Köllunarklettsreit við Laugarnesið. Núverandi hugmyndir gera ráð fyrir fjölda bygginga á svæðinu. Nýtt 70 milljarða kr. hverfi  Þingvangur byggir nýtt skrifstofuhverfi í Laugarnesi  Gert ráð fyrir hótelum  Með hverfinu stækkar miðborgin til austurs  Lítil útgáfa af BSÍ er í skoðun MÁforma nýtt hverfi … 6 Teikning/Melvær&Co Í mótun Borgarlínan er jafnvel talin kosta á annað hundrað milljarða. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð- inu horfa til skattheimtu sem fjár- mögnunarleiðar fyrir borgarlínuna. Þorsteinn R. Hermannsson, sam- göngustjóri Reykjavíkur, kynnti í vikunni undirbúningsvinnu sveitar- félaganna vegna þessa verkefnis. Þar ræddi hann meðal annars um hækkun eldsneytisskatta, vegtolla og gjaldtöku af bílastæðum sem leið- ir til að fjármagna verkefnið. Þá nefndi hann sértæka skatta á upp- byggingu fasteigna nærri nýjum samgöngukerfum. Sú leið tengist svonefndum innviðagjöldum. Benedikt Jóhannesson fjármála- ráðherra sat kynningu Þorsteins. Benedikt segir málið verða skoðað af alvöru. Þá minnir hann á að getið sé um samstarf ríkis við sveitarfélög um borgarlínuna. Rætt sé um að verkefnið kosti 50-150 milljarða. Fram kom í umræddri kynningu Þorsteins að skipulagsyfirvöld í Reykjavík hefðu gert drög að bland- aðri byggð á svæði Reykjavíkurflug- vallar. Þá byggð á að tengja borgar- línu. Samkvæmt kynningu Þorsteins skýrast næstu skref í uppbyggingu borgarlínu í sumar. »14 Skoða aukagjöld á bíla  Fjármögnun borgarlínu í undirbúningi  Skýrist í sumar Mannbjörg varð þegar eldur kviknaði í strand- veiðibáti um 2,6 sjómílur utan við Vopnafjörð rétt fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. Einn skipverji var um borð og setti hann út gúmmíbjörgunar- bát og yfirgaf brennandi bát sinn. Björg- unarsveitin Vopni fór á vettvang á björg- unarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sveinbirni Sveinssyni, og slökkti eldinn og er myndin frá vettvangi. Skipverjinn fékk far í land með nærstöddum báti. Fiskibáturinn var mjög illa farinn. Hann var tekinn í tog en sökk á leiðinni í land. Mannbjörg þegar bátur brann á Vopnafirði Ljósmynd/Stefán Grímur  Velta á fjarskiptamarkaði jókst um 3% á milli ára og nam um 56,6 milljörðum króna á síðasta ári. Þar af var 4% vöxtur í tekjum af gagna- flutningi. Engu að síður drógust tekjur af talsíma saman um 12%, en þær hafa farið lækkandi á undan- förnum árum. Markaðshlutdeild stærstu fjar- skiptafélaganna í farsímaáskrift stóð nokkuð í stað á milli ára. Hlut- deild Nova var 34%, Símans 33%, Vodafone 29% og 365 var með 3%. Fjarskiptafyrirtækin juku fjár- festingar sínar um 13% í 9 milljarða króna í fyrra. »18 Veltan var 57 millj- arðar í fjarskiptum Eigendur veiði- réttar við Anda- kílsá í Borgar- firði óttast að Orka náttúrunn- ar hafi valdið stórkostlegu tjóni á laxveiði- ánni og tala um umhverfisslys í því efni. Þegar hleypt var úr miðlunarlóni Andakíls- árvirkjunar kom svo mikill aur nið- ur í ána að hann fyllti hylji og við- kvæm uppeldissvæði laxaseiða. Standa leirhryggir upp úr ánni þar sem áður voru veiðistaðir. »4 Óttast umhverfis- slys í Andakílsá Andakílsá Leir stendur upp úr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.