Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 38
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi verðlaun hafa mikla þýðingu
af því að það er afar mikilvægt að
fá viðbrögð við því sem maður er að
gera. Þetta eru frábær verðlaun og
löngu tímabært að stofna ljóðlistar-
verðlaun. Hvað á eiginlega að verð-
launa ef ekki ljóð? Ég hygg að
kannski sé mikilvægast að fá svona
verðlaun í upphafi ferils og einnig
undir lokin,“ segir Sigurður Pálsson
sem hlaut Maístjörnuna þegar hún
var afhent í fyrsta sinn í gær á degi
ljóðsins.
Rithöfundasamband Íslands og
Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn stofnuðu til ljóðabóka-
verðlaunanna sem nefnast Maí-
stjarnan, að frumkvæði Kára
Tulinius, skálds og rithöfundar.
Gjaldgengar voru allar útgefnar ís-
lenskar ljóðabækur ársins 2016 sem
skilað var til Landsbókasafnsins og
fékk dómnefnd þær til umfjöllunar,
en hana skipuðu Ármann Jakobsson
fyrir hönd Rithöfundasambandsins
og Áslaug Agnarsdóttir fyrir hönd
Landsbókasafnsins. Alls voru fimm
bækur tilnefndar í ár. Samkvæmt
upplýsingum frá skipuleggjendum
eru verðlaunin þau einu hérlendis
sem eingöngu eru veitt fyrir út-
gefna íslenska ljóðabók. Er verð-
laununum ætlað að hvetja skáld til
að yrkja og koma ljóðum sínum í
útgáfu. Verðlaunahafi hlýtur 350
þúsund krónur að launum.
Hættir til að vera fullábyrgur
Verðlaunin hlýtur Sigurður fyrir
ljóðabókina Ljóð muna rödd.
Er bókin hugsuð sem fyrsta bók-
in í nýrri Ljóð muna-trílógíu?
„Já, reyndar er sú ágiskun þín
hárrétt! Mjög fljótlega á ferlinum
fór að þróast hugmynd að heildar-
byggingu sem birtist m.a. í titlum
bókanna sem mynda þrennur eða
trílógíur. Fimm þrennur komnar,
fimm hæðir í byggingunni, hver og
ein með þremur íbúðum eða bókum.
Ljóð muna rödd er svo byrjunin á
sjöttu hæðinni, fyrsta íbúðin af
þremur. Þaðan er mesta útsýnið.
Sem díalektískt mótvægi er sú hæð
lögð undir minnið, innsýnina. Þessi
bygging verður í fyllingu tímans allt
mitt höfundarverk í ljóðlist. For-
sjónin ein veit hvort mér auðnast að
klára sjöttu þrennuna. Hver bók
tekur meiri tíma og orku en áður.“
Fylgir því einhver aukin ábyrgð
að vera fyrstur til að hljóta þessi
nýju verðlaun?
„Ég vona reyndar að því fylgi
aukið ábyrgðarleysi, mér hættir til
að vera fullábyrgur í því sem ég
geri.“
Ljóðlistin er hjartað
í bókmenntunum
Inntur eftir því hvort hann telji
ljóðið í sókn um þessar mundir og
hver staða ljóðsins sé segist Sig-
urður lítið fyrir að tala um ljóð í
eintölu, eins og það sé eitthvert eitt
mengi. „Ef eitthvað í veröldinni
verður að vera í fleirtölu, þá eru
það ljóðtextar. Ljóðlistin er hjartað
í bókmenntunum, hún á sér lengri
sögu en nokkur önnur grein rit-
listar og hún er að sjálfsögðu
ódrepandi. En það er meira skrifað
af ljóðum í heiminum í dag en
nokkru sinni fyrr. Það segir ekki
neitt, magnhyggjan hefur aldrei
haft neitt að segja fyrir ljóðlistina.
Ætli sé ekki álíka hlutfall sem
hverfur eins og alltaf hefur verið,
hvað veit ég. En ef við tökum bara
tuttugustu öldina, þá er rjóminn af
ljóðtextum hennar hreint ótrúlega
glæsilegur. Aðalatriðið er að lesa
ljóð. Alltof margir vilja bara skrifa
ljóð, of fáir átta sig á því að lestur
er skapandi athöfn. Raunar gengur
námskeiðið mitt í ritlist í HÍ út á
það að setja lestur í forgrunn. Þú
getur ekkert skrifað af viti í ljóðlist
ef þú ert ekki djúpur og ástríðu-
fullur lesandi ljóða. En ef þú átt við
stöðuna hér og nú, hvort „ljóðið“ sé
í sókn – þá er ég klár á því. Ljóðið
er í sókn og ljóðið er í vörn. Sam-
tímis.“
Þess má að lokum geta að sam-
tímis verðlaunaafhendingunni í gær
var sýning á verðlaunabókinni og
fyrri verkum höfundar opnuð í
Landsbókasafninu og stendur sýn-
ingin út árið.
„Hvað á eiginlega að
verðlauna ef ekki ljóð?“
Sigurður Pálsson hlýtur Maístjörnuna fyrstur ljóðskálda
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skáldið „Ég hygg að kannski sé mikilvægast að fá svona verðlaun í upphafi
ferils og einnig undir lokin,“ segir Sigurður Pálsson um Maístjörnuna.
„Hér af spássíu Evrópu“ heitir
eitt ljóð í bókinni Ljóð muna
rödd, bók sem er rík af röddum,
ljósi, skuggum, nálægð og fjar-
lægð. Spássían getur á óvæntan
hátt verið auðugt svæði og það
lýsir vel skáldinu sem svo yrkir.
Í þessari bók birtist auðugur
ljóðheimur Sigurðar Pálssonar,
skálds sem hefur sannarlega
lagt sitt fram til endurnýjunar
og krafts íslensks ljóðmáls.
Ljóð muna rödd er sterk bók þar
sem glímt er við stórar spurn-
ingar. Röddin í titlinum er áleit-
in, ljóðin eru myndræn, trega-
full og magnþrungin, en eru
jafnframt óður til lífsins og lífs-
gleðinnar,“ segir í rökstuðningi
dómnefndar um sigurbókina.
„Auðugur
ljóðheimur“
RÖKSTUÐNINGURINN
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Sjáðu þetta!
Centro Style 56212
umgjörð kr. 16.800,-
Ljóðskáldið Sig-
urður Pálsson
flutti ávarp þeg-
ar hann tók við
Maístjörnunni.
Þar las hann upp
nýja þýðingu
sína á ljóði eftir
Ilya Kaminsky og
benti á að ljóðaþýðingar minni
okkur á að ljóðlistin er alþjóðleg.
„Ljóðlistin er innri rödd bók-
menntanna.
Rödd ljóðsins er rödd mennsk-
unnar sem aldrei gefst upp í
heimi sem böðlast áfram. Rödd
friðar í ofbeldisdýrkandi heimi.
Rödd mannréttinda og jöfnuðar
í heimi þar sem átta menn eiga
jafnmikil auðæfi og 50% af
mannkyninu.
Rödd frelsis og lýðræðis í
heimi sem er dauðþreyttur á mis-
notkun á hugtökunum frelsi og
lýðræði.
Rödd ljóðsins vinnur gegn of-
stopafullri einsleitni í notkun
tungumálsins, hún býr yfir marg-
ræðni og blæbrigðum, býr til hug-
renningatengsl, tilfinningatengsl,
allan fínvefnað tungumálsins.
En umfram allt er rödd ljóðsins
hin heilaga innri rödd hvers og
eins, röddin sem gerir okkur að
einstaklingum í samfélagi ann-
arra,“ sagði m.a. í ávarpinu.
„Rödd frelsis og lýðræðis“
BROT ÚR ÁVARPI SIGURÐAR PÁLSSONAR Á DEGI LJÓÐSINS
Þessi nefnist myndlistarsýning sem
Sara Riel opnar í Listamönnum við
Skúlagötu 32 í dag kl. 16.
„Verkin á sýningunni eru gerð
með blandaðri tækni og eru per-
sónueinkennalaus portrett af fólki,
af hugarástandi eða sammannlegri
manngerð,“ segir í tilkynningu frá
Listamönnum.
Þar kemur fram að Kristín Óm-
arsdóttir skrifaði prósa meðfram
verkunum og er hann gefinn út í til-
efni af sýningunni.
„Sara Riel hefur verið iðin við
sýningahald hér heima og erlendis.
Hún á fjölda veggverka í Reykjavík
og víða um heim og hefur meðfram
veggjalist fært sig í átt að notkun
fleiri miðla og blandaðrar tækni
með náttúruna, vísindi og tónlist
sem sitt helsta stef. Á sýningunni
Þessi notast hún í fyrsta sinn við
manneskjuna sem viðfangsefni.“
Þess má að lokum geta að sýn-
ingin stendur til 25. júní.
Sara Riel opnar sýn-
ingu í Listamönnum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vegglistaverk Listakonan Sara
Riel við eitt vegglistaverka sinna.
Fjöðrin er staðsett í Breiðholti.
Í tengslum við umfjöllun blaðsins í
gær um ljósmyndasýningu ljós-
myndarans Sigurgeirs Sigurjóns-
sonar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
var hann rangfeðraður í tvígang,
bæði í undirfyrirsögn og í mynda-
texta, Morgunblaðið harmar þessi
mistök og biðst afsökunar.
LEIÐRÉTT
Sigurgeir rangfeðraður