Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 Knattspyrnudómarafélags Reykja- víkur. Garðar stofnaði Talffélag Seltjarn- arness sem starfaði með miklum blóma í áratug undir hans for- mennsku. Hann sat í stjórn Skák- sambands Íslands og er formaður í Æsum, taflfélagi eldri borgara. Garðar sá um útvarpsþætti á nokkrum útvarpsstöðvum um árabil. Hann söng með hinum ýmsum dans- hljómsveitum frá 1957, þ. á m. með Flamingó Kvintett sem lék mikið í Vetrargarðinum í Tívólí í Vatnsmýr- inni, með Pónik, með Tónum, í Lídó í Skaftahlíð (síðar Tónabær) með Garðari og Gosum og loks með JJ Kvintett, árið 1967. Eftir 17 ára hlé steig Garðar aftur á svið í Brodway, árið 1983-84, ásamt nokkrum eldheitum eldri rokkurum sem síðan hafa haldið hópinn og verið með tónleika, m.a. á Brodway, Hótel Íslandi og í Salnum í Kópavogi, nú síðast í apríl – og alltaf fyrir fullu húsi. Meðal þessara frumherja rokksins á Íslandi má nefna Guðberg Auðunsson, Skapta Ólafsson, Sigga Johnnie, Önnu Vilhjálms, Stefán Jónsson í Lúdó, Þorstein Eggerts- son, Sigurdór Sigurdórsson, Astrid Jensdóttur, Mjöll Hólm, Einar Júl- íusson, Berta Möller, Harald G. Har- alds, Berthu Biering, Helenu Eyj- ólfsdóttur og ótal fleiri snillinga. Þegar íþróttum, skákinni og klass- íka rokkinu sleppir fara Garðar og eiginkona hans, Anna María, í sum- arbústaðinn sinn í Brekkuskógi þar sem Garðar slakar á, sest út á verönd og hlustar á diska með Chuck Berry, Little Richard og Jerry Lee Lewis. Fjölskylda Eiginkona Garðars er Anna María Sampsted, f. 28.2. 1946, heilbrigð- isritari. Hún er dóttir Hannesar Ósk- ars Sampsted, f. 12.8. 1908, d. 21.4. 1983, vélsmiðs í Reykjavík, og k.h., Camillu Þorgeirsdóttur, f. 4.7. 1913, d. 23.4. 1976, húsfreyju. Börn Garðars og Önnu Maríu eru: 1) Kristín Birna Garðarsdóttir, f. 25.8. 1962, búsett í Mosfellssveit en maður hennar er Guðbergur Guðbergsson og þau reka fasteignasöluna Bæ; 2) Kamilla Björk Garðarsdóttir, f. 8.5. 1966, fjármálaráðgjafi hjá Íslands- banka, búsett í Mosfellsbæ en maður hennar er Friðrik Þór Goethe, vél- stjóri og framkvæmdastjóri; 3) Linda Garðarsdóttir, f. 18.7. 1980, starfs- maður hjá Vodafone, búsett í Kópa- vogi en maður hennar er Ágúst Árna- son, starfsmaður hjá Glófaxa, og 4) Lilja Garðarsdóttir, f. 18.7. 1980, verkefnastjóri hjá Símanum, búsett í Reykjavík en maður hennar er Jón Helgi Pálsson, starfsmaður hjá Gló- faxa. Barnabörnin eru nú sex talsins og langafabörn Garðars eru þrjú. Hálfsystkini Garðars, samfeðra, eru Sigríður Guðmundsdóttir, f. 18.11. 1944, fyrrv. starfsmaður hjá Happdrætti Háskóla Íslands, búsett í Reykjavík, og Agnar Guðmundsson, f. 18.4. 1954, húsagagnasmiður, bú- settur í Reykjavík. Foreldrar Garðars voru Guð- mundur Kristinn Agnarsson, f. 4.9. 1915, d. 19.5. 1989, leigubílstjóri, lengst af hjá Hreyfli, og k.h., Kristín Gísladóttir, f. 19.2. 1916, d. 23.2. 2002, húsfreyja og starfsmaður við umönn- un. Þau voru búsett í Reykjavík. Úr frændgarði Garðars V. Guðmundssonar Garðar Víðir Guðmundsson Elísabet Rakel Jóhannsdóttir vinnuk. á Eiði í Seyðisfirði Pétur Ólason húsm. í Reykjafirði og víðar á Ströndum Halldóra Steinunn Pétursdóttir húsfr. á Skálpastöðum og á Reykjum Gísli Guðmundsson b. á Skálpastöðum og Reykjum í Hrútafirði Kristín Gísladóttir húsfr. í Rvík Unnur Jónsdóttir húsfr. á Neðri-Fitjum, frá Illugastöðum Unnur Gísladóttir húsfr. á Ísafirði Elísabet Gísladóttir húsfr. á Hvarfi í Víðidal Halldór Gíslason b. á Kambshól í Vestur-Hún. Guðmundur Þ. Agnarsson forstj. GK-hurða í Rvík Pétur Gíslason verkamaður í Rvík Friðbjörn Agnars- son löggiltur endurskoðandi og mikill KFUM-maður Jóhannes I. Gíslason múrarameistari í Rvík Ragnar Ó.Agnarsson sjóm. í Rvík Guðmundur Gíslason brúarsmiður á Hvammstanga Guðbjörn Sævar (Dúddi) hárgreiðslu- meistari í Rvík Guðrún Agnarsdóttir ljósmóðir í Rvík Guðmundur Guðmundsson b. á Neðri-Fitjum í Vestur-Hún. Agnar Guðmundsson verkam. í Rvík Sigríður Þorsteinsdóttir húsfr. á Skárastöðum Guðmundur Agnarsson leigubifreiðastj. í Rvík Guðrún Finnbogadóttir frá Reynhólum í Staða- bakkasókn Þorsteinn Sigurðsson úr Breiðabólstaðarsókn Flottur á sviði Garðar kemur enn fram og hefur engu gleymt. Ásgeir Hannes Eiríksson fædd-ist í Reykjavík 19.5. 1947.Foreldrar hans voru Eiríkur Ketilsson stórkaupmaður og Sigríður Ásgeirsdóttir lögfræðingur. Móðir Eiríks var Guðrún Eiríks- dóttir, veitingakona í Reykjavík og hóteleigandi í Hafnarfirði, frá Járn- gerðarstöðum, en Sigríður var dóttir Ásgeirs Þorsteinssonar, efnaverk- fræðings og forstjóra, og Elínar Jó- hönnu Guðrúnar, dóttur Hannesar Hafstein, skálds og ráðherra, og k.h., Ragnheiðar Hafstein. Systur Ásgeirs Hannesar, sam- feðra: Guðrún Birna og Dagmar Jó- hanna, en systkini hans, sammæðra: Baldvin Hafsteinsson og Elín Jó- hanna Guðrún Hafsteinsdóttir. Eftirlifandi eiginkona Ásgeirs Hannesar: Valgerður Hjartardóttir og börn þeirra: Sigríður Elín, Sig- urður Hannes, og Sigrún Helga. Ásgeir Hannes lauk prófi við Verslunarskóla Íslands 1967 og prófi frá Hótel- og veitingaskóla Íslands 1971. Hann stundaði verslunarstörf í Reykjavík, var auglýsingastjóri DB við stofnun blaðsins og rak m.a. Pylsuvagninn við Lækjartorg. Ásgeir Hannes gekk til liðs við Al- bert Guðmundsson við stofnun Borg- araflokksins vorið 1987 og var þing- maður flokksins 1989-91. Ásgeir Hannes var forseti Sam- bands dýraverndunarfélaga á Ís- landi, sat í stjórn samtakanna Gamli miðbærinn, var formaður Karate- félags Reykjavíkur, sat í stjórn Verndar, SÁÁ og Krýsuvíkur- samtakanna og Félags áhugamanna um frjálsan útvarpsrekstur. Ásgeir Hannes skrifaði fjölda dagblaðs- greina, var ritstjóri blaða og sendi frá sér bækur, m.a. um gamansögur og hnyttin tilsvör eftirminnilegra ein- staklinga. Hann var vinsæll og hlý persóna, umhyggjusamur gagnvart samborgurum sem stóðu höllum fæti, hafði skarpar og oft frumlegar skoð- anir, var annálaður sagnamaður og sjálfur hnyttinn í tilsvörum. Ásgeir Hannes lést 14.2. 2015. Merkir Íslendingar Ásgeir Hannes Eiríksson 95 ára Þorleifur Benediktsson 90 ára Haraldur Magnússon Óskar Sigurðsson 85 ára Guðlaug Benediktsdóttir Höskuldur Aðalst. Sigurgeirsson 80 ára Árni Jón Sigurðsson Jónína Kristjánsdóttir Rúnar Már Vagnsson Sigurður Kristjánsson 75 ára Ásmundur Þórarinsson Garðar Víðir Guðmundsson Gerður Lúðvíksdóttir Jens Jóhannsson Kristín Erlingsdóttir 70 ára Alda Ruth Sigurjónsdóttir Jónína Helgadóttir Magnús Hringur Guðmundsson Pétur Óskar Ársælsson Sigurður Ragnarsson Örlygur Antonsson 60 ára Elín Friðbertsdóttir Guðjón Sigmundsson Guðrún Magnúsdóttir Gunnlaugur Ö. Þórhallsson Helga Gísladóttir Helgi Sigurbjörnsson Ivars Dumpis Joanna Maria Gancarek Kjartan Már Svavarsson Laufey Ásgeirsdóttir María Sigurðardóttir Ólafur Sigurðsson Sigrún Greta Magnúsdóttir Sigurjóna Skarphéðinsdóttir Stefanía Snorradóttir 50 ára Anna Bryndís Sigurðardóttir Birgir Bjarnfinnsson Bjarghildur Finnsdóttir Björgvin Rúnar Pálsson Dagur Gunnarsson Matthildur I. Eiríksdóttir Sigrun Farcher Unnur Friðþjófsdóttir 40 ára Anna Jolanta Wisniowska Arnar Már Kristinsson Ásta Kristín Andrésdóttir Björk Tómasdóttir Guðfinna Hugrún G. Jónasdóttir Hafsteinn Þórólfsson Jóhann Carlo Helguson Kristinn Ingvarsson Kristín Björg Yngvadóttir Leifur Dam Leifsson Sólveig Guðmundsdóttir Sverrir Jónsson Tinna Rúnarsdóttir 30 ára Ásta Rakel Hafsteinsdóttir Bjarni Viðarsson Guðmundur E.S. Láruson Guðrún Þórdís Halldórsdóttir Gylfi Már Sigurðsson Margrét Lena Kristensen Nína Björk Valdimarsdóttir Ólafur Hjörtur Kristjánsson Sigrún Arna Gylfadóttir Sigrún Hauksdóttir Sverrir Guðmundsson Tinna Ósk Grímarsdóttir Valgeir Pétur Magnússon Til hamingju með daginn 30 ára Sverrir ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í margmiðlunarfræði og starfrækir farfugla- heimilið Galaxy Pod Hostel við Laugaveg 172. Dóttir: Aðalheiður Hrafndís, f. 2014. Foreldrar: Sóley Ragn- arsdóttir, f. 1947, fyrrv. myndmenntakennari við Árbæjarskóla, og Guð- mundur Bogason, f. 1945, fyrrv. leigubifreiðarstjóri. Þau búa í Reykjavík. Sverrir Guðmundsson 30 ára Nína Björk ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk ML-prófi í lögfræði frá HR og starfar hjá Val- itor. Maki: Ragnar Þór Þrast- arson, f. 1983, leið- sögumaður hjá Asgard. Sonur: Örvar Breki, f. 2014. Foreldrar: Valdimar Jó- hannsson, f. 1961, vél- stjóri hjá Eimskip, og Ingi- björg Ragnarsdóttir, f. 1961, grunnskólakennari. Nína Björk Valdimarsdóttir 30 ára Margrét Lena ólst upp í Hafnarfirði, er bú- sett í Reykjavík, lauk BSc- prófi í líffræði og stundar nú MSc-nám í líf- og læknavísindum við Há- skóla Íslands. Systir: Katrín Birna Krist- ensen, f. 1997. Foreldrar: Inga S. Guð- bjartsdóttir, f. 1959, hjúkrunarfræðingur í Hafnarfirði, og Jón Valgeir Kristensen, f. 1960, bif- vélavirki í Reykjavík. Margrét Lena Kristensen bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á k júklinginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.