Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 10
BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þótt tæpir átta mánuðir séu liðnir frá því að Sigurður Ingi Jóhannsson velti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni úr formannsstóli Framsóknarflokks- ins, er ennþá bullandi ágreiningur og óánægja innan Framsóknarflokks- ins, og þá vitanlega í röðum helstu stuðningsmanna Sigmundar Davíðs, með þá niðurstöðu sem varð í for- mannskjöri á flokksþinginu 2. októ- ber sl. Fullyrt er að mikil undiralda sé í flokknum, ekki síst meðal stuðn- ingsmanna Sigmundar Davíðs og er andrúmsloftið sagt lævi blandið og hitastigið nálægt frostmarki. Eins og kunnugt er verður vor- fundur miðstjórnar flokksins haldinn á morgun, á Hótel Natura, og eiga ákveðnir viðmælendur blaðamanns úr Framsóknarflokknum allt eins von á því að upp úr sjóði á fundinum og flokkurinn klofni endanlega í tvær fylkingar, Framsókn Sigurðar Inga og Framsókn Sigmundar Dav- íðs. Það hefur legið fyrir frá því fyrir síðasta flokksþing að Framsóknar- flokkurinn er klofinn í tvær fylk- ingar, en ekki er jafnljóst hversu stórar fylkingarnar eru. Fleiri við- mælendur blaðamanns úr röðum framsóknarmanna telja að fylkingin sem styður Sigmund Davíðs sé tals- vert fámennari en sú sem styður Sig- urð Inga. Svo eru framsóknarmenn sem segjast ekki vera í neinni fylk- ingu og lýsa eftir sáttum og ein- drægni í flokknum. Mikill taugatitringur Framsóknarmenn sem blaðamað- ur hefur rætt við undanfarna daga, segja stöðuna innan flokksins vera afskaplega viðkvæma. Það er aug- ljóst að mikill taugatitringur er í röðum framsóknarmanna og óvissa um hvernig fundinum muni lykta. Það einkennilega er að ekki virð- ist vera um neinn málefnaágreining að ræða á milli fylkinganna tveggja. Enginn viðmælenda sagðist vilja breyta stefnu Framsóknarflokks- ins, sem hefði dugað flokknum ágætlega í heila öld, en Framsókn- arflokkurinn var stofnaður 16. des- ember 1916. Ágreiningurinn virðist þannig einungis vera persónulegur og snú- ast um það hvor sé heppilegri for- maður flokksins, Sigurður Ingi eða Sigmundur Davíð. Eins og endurspeglað hefur verið í fréttum Morgunblaðsins að undan- förnu hafa ákveðin Framsóknar- félög ályktað um það að flýta beri flokksþingi og kjósa nýja forystu. Næsta flokksþing ætti að vera næsta vor, en ákveðinn hópur stuðningsmanna Sigmundar Davíðs vill að flokksþing verði haldið í haust. Vilja að Lilja taki við Einn viðmælandi orðaði það svo: „Það verður engin sátt í flokknum fyrr en Sigurður Ingi hættir sem formaður. Við vitum að ólíklegt er að sátt náist í flokknum um að Sig- mundur Davíð komi strax inn sem formaður á ný. Því teljum við eðli- legt að varaformaðurinn, Lilja Al- freðsdóttir, taki við sem formaður. Seinna gæti svo Sigmundur Davíð orðið formaður á nýjan leik. Þetta yrði einskonar biðleikur, til þess að reyna að sætta stríðandi fylkingar.“ Ekki liggur fyrir hver afstaða Lilju er til þessarar hugmyndar, en fullyrt er af framsóknarmönnum úr báðum fylkingum að hún hafi átt mjög gott samstarf við þá báða, Sig- mund Davíð og Sigurð Inga. Flestir viðmælendur hallast þó að því að Lilja, sem er nýkomin inn á vettvang stjórnmálanna, þurfi lengri tíma sem varaformaður, til þess að læra betur á Framsóknarflokkinn og kynnast framsóknarfólki betur. Það sé engin spurning að hún sé kandídat í það að verða formaður flokksins, en bara ekki strax. Eru rólegri í tíðinni Stuðningsmenn Sigurðar Inga virðast mun rólegri í tíðinni og segja að menn megi ekki hrökkva af hjör- unum og efna til sundrungar í flokknum. Sigurður Ingi hafi staðið sig með ágætum eftir að hann varð formaður og hann eigi a.m.k. að fá að gegna formennsku til næsta vors. „Það getur brugðið til beggja vona og ástandið er virkilega brothætt. Ég hef ekki mikla trú á því að við náum á fundinum þeim áfanga að verða á ný ein sameinuð fylking, sem hafi náð málefnalegum og góðum umræðum um stöðu flokksins og for- ystuna og tekist að grafa stríðs- öxina,“ segir einn þingmaður Fram- sóknarflokksins. Allt í bál og brand Annar þingmaður sagði: „Á fund- inum munu menn tjá sig á báða bóga. Mér finnst gott að það hefur verið ákveðið að leyfa meiri tíma í al- mennar umræður en alla jafna ger- ist. Menn geta þá vonandi talað sig inn á skynsamlega, sameiginlega niðurstöðu. Ég óttast það samt mjög að allt eigi eftir að fara í bál og brand.“ Framsóknarmenn sem rætt hefur verið við eru sammála um að mikil heift sé í stuðningsmannahópi Sig- mundar Davíðs í garð Sigurðar Inga. „Það er engin launung á því, að Sigurður Ingi beinlínis rændi for- mennskunni af Sigmundi Davíð og við sem styðjum Sigmund Davíð og höfum gert frá því hann var kjörinn formaður 2009 fyrirgefum ekki slík- an gjörning, ekki núna og ekki seinna,“ segir einn hinna heift- úðugu. Engin sókn án sátta Stuðningskona Sigurðar Inga úr Suðurkjördæmi segir á hinn bóginn: „Ég skil nú ekki hamaganginn í þessu stuðningsliði Sigmundar Dav- íðs og honum sjálfum. Sigurður Ingi var kjörinn formaður í lýðræðislegri kosningu á flokksþingi og að vera svona tapsárir vegna niðurstöðu í lýðræðislegri kosningu ber nú ekki vitni um mikinn félagslegan þroska. Auk þess fæ ég þær fregnir, bæði hér í kjördæminu og úr þingflokki Framsóknarflokksins, að Sigurður Ingi hafi staðið sig mjög vel sem formaður frá því hann var kjörinn.“ Önnur framsóknarkona úr Reykjavík segir: „Eigum við ekki bara að sjá til hvernig miðstjórnar- fundurinn fer á laugardaginn. Þar fær fólk að blása og skiptast á skoð- unum. Svo fara menn bara út í sum- arið með sitt veganesti og nægur tími gefst í sumar til þess að ákveða næstu skref. Ég held að að fram- sóknarmenn almennt séu ekki mikið fyrir að bera raunir sínar og reiði á torg og ég vona að það verði niður- staðan að loknum fundinum.“ Umsagnir um formanninn og hinn fallna formann úr báðum fylk- ingum eru á þann veg að hvorugur hafi verið iðinn við að rétta fram sáttahönd í átt til hins, frá því að flokksþingi lauk. Það þurfi að breyt- ast, því aðeins með sáttum geti flokkurinn farið í sókn á nýjan leik. Hitastig í Framsókn við frostmark  Ágreiningur stríðandi fylkinga í flokknum er sagður vera einvörðungu persónulegur  Takmörk- uð bjartsýni á að sættir náist á vorfundinum  Búist við að mikil harka verði í almennum umræðum Morgunblaðið/Eggert Kosinn Sigurður Ingi Jóhannsson tekur á móti hamingjuóskum á flokks- þinginu í október sl. eftir að hafa verið kosinn formaður Framsóknar. Morgunblaðið/Eggert Fallinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, á flokksþinginu þegar úrslit í formannskjörinu voru kynnt. Morgunblaðið/Eggert Milli steins og sleggju Báðar fylk- ingar gera tilkall til Lilju Daggar. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, setur vorfund miðstjórnar kl. 10.30 á morgun á Hótel Natura (Loftleiðir). Að lokinni ræðu formanns, kl. 11.20, flytur Lilja Dögg Alfreðsdóttir varaformaður ræðu og Þórunn Egilsdóttir þingflokksformaður flytur síð- ustu ræðuna fyrir matarhlé sem gert verður kl. 11.40. Eftir matarhlé, kl. 12.40 verða almennar umræður, sem standa til fundarloka, sem áætluð eru samkvæmt dagskrá kl. 16.00. Samkvæmt dagskránni hefur því verið ætlaður óvenjulangur tími til al- mennra umræðna, sem væntanlega munu að stórum hluta snúast um stöðu flokksins, óskir ákveðins hluta fundarmanna (stuðningsmanna Sig- mundar Davíðs) um að næsta flokksþingi verði flýtt og ný forysta kjörin, eða að núverandi forysta endurnýi umboð sitt. Ríflegur tími fyrir umræður DAGSKRÁ VORFUNDAR MIÐSTJÓRNARINNAR Bandalag íslenskra leigubifreiða- stjóra mótmælir sinnuleysi lögregl- unnar í málefnum svokallaðra skutl- ara. Var það samþykkt í lok málþings um ólöglegan leiguakstur sem sambandið stóð fyrir í vikunni. „Þetta snýr að okkar hagsmunum. Við erum með löggilt leyfi til leigu- bifreiðaaksturs. Í annan stað hræð- umst við, eins og margir aðrir, af- leiðingar þessarar starfsemi fyrir almenning,“ segir Ástgeir Þor- steinsson, formaður Bandalags ís- lenskra leigubifreiðastjóra. Hann getur þess að sambandið hafi snúið sér til lögreglunnar í byrjun árs 2014 og lagt fyrir hana gögn um Facebook-síðu þar sem ólöglegur akstur er auglýstur. Ást- geir segir að á sömu síðu sé einnig auglýst undir dulnefni áfengi og fíkniefni. Lögreglan lét málið ekki til sín taka þrátt fyrir ítrekanir leigubíl- stjóra en þeir fengu loks svar í ágúst þar sem þeim var tilkynnt að rannsókn málsins hefði verið hætt en engar skýringar gefnar á því. Ekki of fáir leigubílar Bandalag íslenskra leigubifreiða- stjóra bar málið strax undir ríkis- saksóknara en ekkert hefur heyrst frá því embætti að sögn Ástgeirs. Lögreglan vildi ekki einu sinni senda fulltrúa á málþingið. Ásgeir segir að það sé ekki ein- ungis til að vernda sína atvinnu sem þeir hafi kært skutlarana. Allir eigi þeir börn og jafnvel barnabörn sem kunni að nota þjónustu þeirra og séu hræddir um líf þeirra og limi. 560 leyfi til leigubílaaksturs eru á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesj- um eftir að svæðin voru sameinuð fyrir fáeinum árum. Að sögn Ást- geirs eru flest leyfin í notkun, flesta daga vikunnar, því menn hafi heim- ild til að fá afleysingamenn og noti það mikið um helgar. Hann telur ekki að skortur sé á leigubílum. Menn þurfi almennt ekki að bíða lengi eftir bíl. Á álags- tímum um helgar geti vissulega ver- ið bið en allir komist heim. Fjölgun ferðafólks í borginni hef- ur ekki haft mikil áhrif á leiguakst- ur. „Við erum ekki að fá þann fjölda sem til dæmis bílaleigur og hóp- ferðafyrirtæki verða vör við,“ segir hann. helgi@mbl.is Bílstjórar vara við skutlurum  Samtök leigubifreiðastjóra átelja lögregluna fyrir að taka ekki á ólöglegum akstri Morgunblaðið/Jim Smart Akstur Leigubílstjórar óttast sam- keppni frá óskráðum keppinautum. Hæstiréttur dæmdi í gær Matvæla- stofnun til að greiða Kræsingum ehf. 600.000 krónur í málskostnað. Áður hafði héraðsdómur viður- kennt skaðabótaskyldu Matvæla- stofnunar vegna tjóns sem Kræs- ingar urðu fyrir vegna tilkynningar sem birt var á heimasíðu Matvæla- stofnunar fyrir fjórum árum. Matvælastofnun hafði meðal ann- ars keypt eina pakkningu með tveimur kjötbökum frá Kræsingum og hafði rannsókn á þeim leitt í ljós að ekkert kjöt var í bökunum. Kom sú niðurstaða fram í umræddri til- kynningu, sem birt var á heimasíðu Matvælastofnunar. Í dóminum segir m.a. að Mat- vælastofnun hefði brostið heimild að lögum til að standa að birtingu tilkynningarinnar. Einnig var fund- ið að meðferð málsins af hálfu starfsmanna Matvælastofnunar. Matvælastofnun greiðir Kræsingum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.