Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 24
Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 VINNINGASKRÁ 3. útdráttur 18. maí 2017 564 12066 21710 30272 39401 50705 62084 70179 1204 13146 21748 30587 39568 50979 62234 70486 1237 13328 21764 30650 39768 51362 63022 70863 1258 13583 21812 31123 39973 51373 63028 70942 1328 13734 22186 31301 40016 51563 63278 71669 1344 14736 22502 31612 40547 51943 63665 71678 1741 14819 22508 31823 41209 52234 63803 71747 1830 14952 22648 31857 41689 52872 63975 72007 2382 15004 22995 32014 41880 52913 64575 73191 2784 15036 23186 32183 42662 53475 64941 73737 2936 15196 23334 32188 42741 54379 65070 73758 3145 15466 24076 32475 42926 54477 65146 73842 3489 15561 24095 32628 43064 54527 65281 74039 3581 15597 24201 32705 43384 54530 65295 74087 3615 15854 24406 32738 43931 54642 65349 74566 3716 16424 24528 32899 44233 54709 65799 74616 3912 16488 24727 33012 44239 54911 65828 75438 3937 16544 24800 33426 44384 55858 65889 75451 4481 16954 25264 33733 45342 56059 66005 76023 4700 16999 26037 33906 45533 56124 66078 76036 4993 17032 26235 34034 45804 56918 66431 76863 5128 17418 26387 34209 46021 56947 66997 77181 7313 18029 26715 35516 46304 57319 67732 77292 7617 18173 27075 35530 46402 57591 67917 77750 7637 18292 27084 35877 46566 57766 68232 77985 8691 19162 27235 35904 46655 57811 68239 77992 8792 19177 27389 35930 46826 57884 68281 78200 8900 19186 28055 36094 46947 58414 68411 78252 8958 19430 28235 36224 47337 58932 68590 78382 9068 20106 28551 36626 47465 60146 68771 79697 9316 20141 28692 37714 47915 60182 68793 79716 9441 20149 28712 37806 48348 60369 69688 10887 20268 28983 38179 48660 60545 69726 10969 20390 29438 38448 49071 60715 69752 11085 20633 29645 38514 49225 60902 69791 11673 20746 29952 38519 49555 61034 69832 11976 20779 29954 38728 50594 61883 69965 2292 17080 29877 37466 43878 56012 62907 74475 2857 17487 30103 38256 44349 56163 63654 75333 3167 17682 30323 39483 46354 56885 64010 75975 4067 19005 31224 40175 46539 57660 65457 76388 4291 19744 32193 40390 47351 57746 66469 76770 6065 20754 32614 40498 49126 57822 68244 77358 7213 22311 33195 41533 49977 58062 69207 77395 8041 25619 33674 41549 50837 58894 69773 77405 8120 25685 33781 42927 51185 59124 72081 79939 8218 26873 34067 43159 51358 59525 73396 9214 27761 35115 43181 52949 60442 73509 13495 28254 36717 43772 53267 62066 74188 16786 29100 37416 43873 55909 62665 74432 Næstu útdrættir fara fram 26. maí & 1. júní 2017 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 10690 44825 59515 77189 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 525 8252 16655 31827 47808 69937 1979 8947 21580 43336 53725 73893 2588 11781 23630 44110 55954 74380 5268 12624 30836 46397 69553 79225 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 1 1 8 1 0 ✝ Þorkell Gunn-arsson Hólm fæddist í Reykja- vík 19. ágúst 1938. Hann andaðist í Danmörku 6. maí 2017. Foreldrar hans voru Guð- björg Þorvarð- ardóttir, f. 3.7. 1906, d. 24.2. 1986, og Gunnar S. Hólm, f. 5.8. 1907, d. 9.10. 2001. Systkini Þorkels eru Þór- hildur Hólm Gunnarsdóttir, f. 1.12. 1932, Garðar Hólm Gunnarsson, f. 5.2. 1934, Vikt- oría Hólm Gunnarsdóttir, f. 4.4. 1935, Aðalbjörn Hólm Gunnarsson, f. 5.3. 1937, d. 10.8. 2004, og Margrét Hólm Gunnarsdóttir, f. 12.11. 1939. Þorkell kvæntist þann 17.3. 1962 eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðlaugu Hjaltadóttur, f. 19.3. 1941. Börn Þorkels og Guðlaugar eru: 1) Hólmfríður Eyjólf Þorra, og d) Ríkharður, f. 22.7. 1999. 3) Berþóra Silva Hólm, f. 2.12. 1975. Barn hennar er Aðalbjörn S. Hólm, f. 2.9. 2004. Þorkell ólst upp með fjöl- skyldu sinni við hefðbundin sveita- og bústörf í Kjósinni til tíu ára aldurs og svo á Mið- nesi á Suðurnesjum til 18 ára aldurs. Þorkell lærði bílasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík og meistararéttindi fékk hann í iðngreininni 1966. Þorkell vann mikið í kringum stór- virkar vinnuvélar og varð góð- ur kranamaður. Sem slíkur vann hann í mörg ár bæði á Íslandi og erlendis. Þorkell vann síðari hluta ævinnar við réttingar og sprautun á bílum bæði hjá öðrum og svo á eigin verkstæði. Lengst af var Þorkell bú- settur á Selfossi með fjöl- skyldu sinni, en bjó einnig um stund í Reykjavík, í Færeyjum og að síðustu í Danmörku. Þorkell andaðist eftir snarpa baráttu við erfið veik- indi á líknarheimilinu Hospice Djursland, í Rønde Danmörku. Hann verður jarðsettur frá kirkjunni í Foldby, Danmörku, í dag, 19. maí 2017. Hólm, f. 2.4. 1964, gift Sigurgeiri Pálssyni. Þau skildu. Börn þeirra a) Guðlaug, f. 5.2. 1985, í sam- búð með Daniel Rosu, b) Helena, f. 28.12. 1986, í sam- búð með Óskari Valdórssyni, Mar- grét, f. 20.9. 1990, í sambúð með Ras- mus Hansen, óskírður dreng- ur, f. 18.10. 1988, d. 18.10. 1988. og Páll, f. 19.4. 1994. 2) Guðbjörg Hólm, f. 26.8. 1966, gift Eyjólfi Sturlaugssyni. Börn þeirra a) Birna Björt, f. 28.7. 1989, í sambúð með Bjarna D. Dagbjartssyni og eiga þau synina Birki Rafn og Bjarka Frey, b) Þorkell Hólm, f. 23.6. 1991, í sambúð með Ju Young, c) Sturlaugur, f. 14.5. 1993, í sambúð með Anítu Rún Harðardóttur og saman eiga þau börnin Bríeti Ernu og Þorkell Hólm Gunnarsson, tengdafaðir minn, er látinn eftir 34 ára vegferð okkar saman. Að honum gengnum geri ég mér betur grein fyrir því að í happ- drætti lífsins dró ég mér afar góðan tengdaföður. Þorkell, eða Keli eins og hann var ávallt kallaður, var iðinn maður. Vinnusemi var dyggð í hans augum sem bar að rækta. Hann var einn af þeim sem þótti yfirvinna kostur, var tilbúinn að vinna langan vinnudag, en hafði engu að síður einhvern veginn alltaf tíma fyrir aðra. Vinna hans kallaði tíðum á fjarveru frá heimili og fjölskyldu þegar hann vann á virkjunarsvæðum á há- lendinu eða þá erlendis með jarðvegsverktökum. Þessi fjar- vera var fjölskylduföðurnum áreiðanlega nokkuð þungbær, en engu að síður að hans mati nauðsynleg til að búa fjölskyld- unni sem allra best viðurværi. Keli var verklaginn og smið- ur góður bæði í tré og járn. Hann byggði hús fyrir fjöl- skyldu sína, lagaði eigin bíla og annarra í fjölskyldunni og gerði við bilað dót; leikföng, raf- magnsverkfæri, húsgögn o.fl. Þá hannaði hann allskyns nota- drjúga hluti, sem sáust hvergi nema á heimili hans. Honum fannst mikilvægt að eiga góð verkfæri og fannst það slæmt hlutskipti að sitja uppi með við- fangsefni en léleg eða engin verkfæri til verksins. Þótt Keli væri meistari í bíla- smíði og bílasprautun var alveg ljóst að bakvið eðlislægt gott verklag hans var skapandi lista- maður. Þetta braust m.a. fram í járnsmíði þar sem hann smíðaði listræna kertastjaka um árabil og seldi. Einnig sást þetta á ljósmyndum eftir hann þar sem sérstakt sjónarhorn og frumleg efnistök sjást víða, en á tímabili tók Keli mikið af ljósmyndum. Keli var gjafmildur með af- brigðum og var hann sífellt að gefa mér verkfæri, hluti og tæki sem hann taldi að gæti komið mér og minni fjölskyldu vel. Þetta varð m.a. til þess að lengst af ævi minnar keypti ég nánast aldrei verkfæri. Þá voru myndavélar, sjónvörp, ísskápar og myndbandtæki ekki keypt í búskapartíð okkar Guggu fyrstu 10-15 árin. Keli var alltaf með eitthvað slíkt á lausu í bíl- skúrnum sínum enda duglegur að uppfæra sinn tækjakost og fylgja nýjustu tækni í hvívetna. Þótt áhugasvið okkar Kela væru í flestu ólík gekk okkur alltaf vel að vera saman og man ég aldrei eftir að eitthvað skyggði á vinskap okkar. Keli var vel lesinn um málefni sam- tíðar sinnar, gang náttúrunnar og hafði sögulegan áhuga á mörgu. Sérstaklega var hann áhugasamur um gamla bíla og allt sem viðkom seinni heims- styrjöldinni bæði hér heima og erlendis. Nú skyndilega er ævistarf Kela orðið að minningu. Hjá mér minning um tengdaföður, sem studdi tengdason sinn í öllu sem hann gat ævi sína á enda. Skyndilegt brotthvarf til Dan- merkur og svo andlát gerir það að verkum að tækifæri mitt til að styðja hann er horfið. Með þakklæti í hjarta yfir því að hafa kynnst þessum sígefandi og styðjandi manni kveð ég hann nú. Tómið sem blasir við verður ekki fyllt og missirinn ekki aft- ur tekinn. En minning hans er björt og hún mun lifa í hjörtum þeirra sem hann þekktu. Eyjólfur Sturlaugsson. Í dag kveðjum við Kela, ynd- islegan mág. Upp í hugann koma fallegar minningar um góðar samverustundir. Síðast- liðnu gamlárskvöldi eyddum við saman í Réttarholtinu. Er það ómetanleg minning að hafa eytt með honum og Gullu þeirri stund. Lífið er hverfult, á einu og hálfu ári höfum við systurnar kvatt mennina okkar. Við kveðjum þig, Keli, með þessum orðum: En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Elsku Gulla, Fríða, Gugga, Begga og fjölskyldur. Í dag sitj- um við systur við kertaljós og hugurinn er hjá ykkur í Dan- mörk. Megi Guð gefa ykkur styrk um ókomna tíð. Guðrún (Rúna) og Ragna (Didda). Bróðir minn, Þorkell, eða Keli eins og hann var oftast kallaður, fluttist ásamt fjöl- skyldu sinni tæplega ársgamall að Hurðarbaki í Kjós vorið 1939 en foreldrar hans hófu þar bú- skap og bjuggu þar í sjö ár en fluttu þá til Selfoss. Hann ólst upp í stórum systkinahópi, næstyngstur sinna systkina. Snemma kom handlagni Kela í ljós því hann var aðeins 10 ára þegar hann fór að smíða leik- fangabíla með fjaðrandi dívan- gormum sem hann gaf síðan leikfélögum sínum. Þóttu þeir miklir kjörgripir á þessum tíma. Þegar hann var 10 ára flutti fjölskyldan að Þóroddsstöðum á Miðnesi og tók Keli þar þátt í bústörfum ásamt systkinum sín- um. Árið 1956 flutti fjölskyldan til Keflavíkur og vann hann þar við ýmis störf. Síðan fór hann að vinna hjá Aðalverktökum á Keflavíkurflugvelli og var þar í um það bil tvö ár. Síðan fór hann að vinna hjá Bílasmiðjunni hf. í Reykjavík og líkaði vinnan það vel að hann fór á náms- samning og lauk svo sveinsprófi í bifreiðasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík og meistararéttindi öðlaðist hann árið 1966. Segja má að lengi býr að fyrstu gerð, samanber leikfangabílana. Eftir námið vann hann um tíma í Bílasmiðjunni. En vinna á stór- virkum vinnuvélum freistaði hans alltaf og hann réð sig til vinnu hjá dönsku verktakafyr- irtæki sem hét Pihl & Søn, sem var með stór verkefni á Íslandi svo sem vega- og jarðgangagerð við Oddsskarð og verk við Blönduvirkjun og Borgarfjarð- arbrú. Keli náði mjög góðum tökum á að vinna með stóra krana og er vinnu verktakanna lauk á Íslandi fór hann að vinna hjá þeim erlendis, fyrst í Fær- eyjum. Einnig vann hann bæði í Danmörku og Sómalíu um tíma. Að þessu loknu flutti fjölskyld- an til Selfoss þar sem hann fór að vinna á bifreiðaverkstæði Kaupfélags Árnesinga og síðan stofnaði hann eigin réttinga- verkstæði ásamt fleirum. Nokkru seinna fluttu þau aftur til Reykjavíkur og bjuggu þar um tíma en fluttu síðan aftur á Selfoss. Keli var vandvirkur fagmaður og sóttust menn eftir starfskröftum hans. Hann var mikill ljúflingur og átti marga vini. Sem dæmi um greiðvikni hans get ég nefnt að hann var alltaf boðinn og búinn að skutla mér til Reykjavíkur í lækniser- indum og gat ég ekki keyrt sjálfur. Í hvert einasta skipti fór Keli með mér. Keli og Gulla fluttu í lok janúar á þessu ári til Danmerkur og hvarflaði ekki að mér að þá ætti hann aðeins rúma þrjá mánuði ólifaða. Við hittumst nánast daglega hin síð- ari ár og ég saknaði hans mjög eftir að hann flutti út en við ráð- gerðum að ég kæmi til hans og við færum saman í ferðalag um Danmörku. Margt fer öðruvísi en ætlað er. Ég fór út til hans nokkrum dögum áður en hann andaðist og átti góðar stundir með honum en þær stundir voru þó ólíkar þeim sem við ráðgerð- um. Hann var þá við það að leggja í aðra og meiri ferð. Garðar Hólm. Þorkell Hólm Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.