Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 2

Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 HARÐPARKET Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Álftin Svanhildur og ónefndur steggur hennar leiddu fjóra unga sína út á vatn í fyrradag. Steggurinn gekk í broddi fylkingar og ungarnir gerðu sitt besta til að fóta sig á sinuvöxnum þúf- unum. Svanhildur fylgdi á eftir og gætti þess að ekkert kæmi fyrir ungana. Ungahópurinn hjá þeim hjónum taldi sex unga í fyrra og komust fimm þeirra á legg. Þau hafa því lagt sitt til að viðhalda álftastofninum. Morgunblaðið/Ómar Frú Svanhildur í Elliðaárdal er stolt móðir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sýni verða tekin í dag úr jarðvegi og grunnvatni á Flugvöllum, nýju bygg- ingarsvæði ofan Iðavalla í Keflavík. Þar var grafið niður á mengaðan jarðveg í síðustu viku. Vitað var að járn hafði verið urðað á svæðinu. Unnið er að gatnagerð en búið er að úthluta atvinnulóðum á svæðinu. Þegar mengunin kom í ljós, aðal- lega járnarusl en líka tjörusmit, stöðvaði Heilbrigðiseftirlit Suður- nesja framkvæmdirnar. Guðlaugur Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- sviðs Reykjanesbæjar, sagði að framkvæmdir hefðu síðan verið leyfðar undir eftirliti. „Sérfræðingar fylgjast með. Við getum grafið á svæðum sem eru auðsjáanlega óhreyfð, þar sem er bara mói. Svo eru önnur svæði sem hafa verið tyrfð eða sáð í og þá förum við varlega þar,“ sagði Guðlaugur. Hann sagði að verkið hefði verið komið töluvert langt þegar mengun- in kom í ljós. Ljóst sé að þetta muni tefja gatnagerðina eitthvað. Þar sem upp kemur annað en mold og grjót er efnið sett til hliðar til förgunar. „Ef jarðvegurinn er óhreinn verð- ur honum fargað á viðurkenndan hátt,“ sagði Guðlaugur. Hann sagði útlit fyrir að kanna þyrfti einhver svæði á lóðunum, sem búið væri að úthluta, með tilliti til mögulegrar mengunar. „Við munum klárlega gera lóðirnar byggingarhæfar. Það verður ekkert slegið af því,“ sagði Guðlaugur. Hann sagði að mengunin sem hefði fundist teldist ekki alvarleg, að- allega járnarusl og einhverjar tjöru- tunnur. Engin lykt væri á svæðinu og ekki vísbendingar um lífrænan úrgang. Ef rannsóknir leiddu hins vegar í ljós alvarlega mengun þá þyrfti að taka á því. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri í Reykjanesbæ, sagði að á svæðinu ætti að vera flugtengd starf- semi enda nálægt flugvellinum. Búið var að úthluta nær öllum lóðunum. Flestar fóru til bílaleiga og þjónustu- fyrirtækja sem tengjast þeim. Grófu upp gamalt rusl  Vinna við gatnagerð í Keflavík undir eftirliti vegna mengunar á svæðinu Ljósmynd/Hilmar Bragi Flugvellir Bílaleigur hafa fengið flestar lóðirnar sem úthlutað var. „Það er mjög góð spá fyrir helgina, það er hæðasvæði að koma yfir okkur, hlýnandi veður í kortunum og stefnir í að hitinn fari í tveggja stafa tölu um land allt,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Ís- lands. Spáð er góðu veðri um helgina og sól víðast hvar um land allt, þar sem hitinn gæti náð allt að 17 stigum þegar líða tekur á helgina. Búast má við hægum vindi og létt- skýjuðu almennt yfir landið þó að möguleiki sé á smá- þokulofti við ströndina austan til. „Það stefnir í mjög gott veður, þessi skammvinna norðanátt sem hefur verið hérna er að líða undir lok,“ segir Einar Sveinbjörnsson, sjálfstætt starfandi veð- urfræðingur. Hann segir að lægðin sem verið hefur hérna skammt suður af Hornafirði láti í minni pokann eða fjarlægist landið og við taki háþrýstisvæði. Til að byrja með mun það liggja ílangt yfir landinu en síðar meir einungis norður og vestur af landinu, þessu há- þrýstisvæði fylgir hlýrra loft og hæglætisveður víðast hvar. „Þessu veðri fylgir heldur hlýrra loft en það sem mestu máli skiptir er að sjást mun til sólar og létta mikið til strax í dag. Það er ekki annað að sjá en að þetta veður muni haldast lengst af um helgina,“ sagði Einar að lok- um. aronthordur@mbl.is Sumarveður í vændum víða  Gott veður í kortunum um mestallt landið yfir helgina Morgunblaðið/Ómar Sumar Gera má ráð yrir að fólk víða um landið muni nýta sér góða veðrið sem spáð er yfir helgina. Í nefndaráliti meirihluta fjárlaga- nefndar Alþingis, sem kynnt verður þinginu í dag, eru engar breytinga- tillögur við fjármálaáætlun ríkis- stjórnarinnar samkvæmt heimild Morgunblaðsins. Í því felst þó ekki stuðningur við virðisaukaskatts- breytingu sem fjármálaráðherra hefur lagt til. Stjórnarmeirihlutinn lagði upp með að afgreiða málið frá sér án þess að í áætluninni fælist samþykki á virðisaukaskattsbreyt- ingum fjármálaráðherra en án þess að þeim væri hafnað í umsögnunum. Hins vegar kemur það fram, sem einn af ábendingarpunktum og áminningum til ríkisstjórnarinnar, frá umsagnaraðilum, að óheppilegt sé að gera virðisaukaskattsbreyting- ar á miðju ári. Fjárlaganefndin reynir þannig að sigla fram hjá deilumálinu um breyt- ingar á virðisaukaskatti. Ríkis- stjórninni er því gefinn frestur til hausts til að afla frekari stuðnings við virðisaukaskattsbreytinguna eða endurskoða afstöðu sína. vilhjalmur@mbl.is »14 Ekki stuðn- ingur við vsk- breytingu  Fjármálaáætlun kynnt þinginu Vilborg Arna Gissurardóttir var í gær komin upp í þriðju búðir sem eru í 7.300 metra hæð á leið- inni upp á topp Mount Everest. Stefnt er að því að fara upp í fjórðu og síðustu búðirnar í dag áður en reynt verður við toppinn. Ferðin upp í þriðju búðir gekk mjög vel. Stefnt var að því að hefja gönguna upp í fjórðu búðir klukkan fimm um morgun- inn. Í gær kom fram á alanarn- ette.com að stutt tækifæri, þröngur gluggi, gæfist vegna veðurs föstu- daginn 19. maí til að komast upp á topp. Grunnbúðirnar við fjallið eru nær tómar. Flestir hóparnir stefna á að ná á toppinn frá 21. til 25. maí. Mount Everest er 8.848 metra hátt. Vilborg Arna á leið í fjórðu búðir  Þröngur gluggi Vilborg Arna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.