Morgunblaðið - 19.05.2017, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Viðskipti
Ný glæsileg
heimasíða
acredo.is
Hátúni 6a Sími 577 7740
carat.is acredo.is
Trúlofunarhringir
fh
Giftingarhringir
fh
Demantsskartgripir
Str. 36-46
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Hvítar
gallabuxur
Verð kr. 9.800
EKKI VELJA
HVAÐ SEM ER
FRÁ HVERJUM
SEM ER
svanurinn.is
Veljum Svansmerkta þjónustu og vörur
sem eru framleiddar í sátt við umhverfið.
Það er það minnsta sem við getum gert.
The Lightning
Process
FREE INTRODUCTION
LECTURE (English)
with the Norwegian
practitioner
Ann Schifte
Saturday 20th of May
Time: from 13.00-14.30.
How to move yourself from stuck
to flourishing in most areas of life
For registration;
send name and phone nr. to
mail@schifte.no
More information at:
www.schifte.no and
www.lightningprocess.com
Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.is
Laugavegi 63, Skipholti 29b • S. 551 4422
Sumarbuxur
í úrvali
Verð frá 12.900 kr
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sauðárkrókur KS án innlána.
komulag þjónar ekki þeim tilgangi
lengur. Hvorki að afla rekstrarfjár
né sinna viðskiptavinum. Þetta er
meira orðið að geymslustað fyrir
Kaupfélag Skagfirðinga (KS) hefur
ákveðið að leggja niður starfsemi
innlánsdeildar sinnar. Tilkynning
þess efnis var nýverið send til inni-
stæðueigenda. Ljúka á inn-
greiðslum fyrir júnílok.
Samkvæmt ársreikningi KS fyrir
árið 2015 námu innlán í innláns-
deildinni rúmlega 1,8 milljörðum
króna og tæplega 2,4 milljörðum
hjá samstæðunni í heild.
„Þetta er síðasta innlánsdeildin á
landinu. Kaupfélögin ráku slíkar
deildir um árabil og tilgangurinn
var að afla rekstrarfjár og þjónusta
viðskiptavini sína. En þetta fyrir-
peninga. Síðan spilar þarna inn í sú
þróun sem hefur átt sér stað í fjár-
málaþjónustu. Við erum til dæmis
ekki með neinn netbanka,“ segir
Ingólfur Jóhannesson, forstöðu-
maður fjármála og innheimtu hjá
KS. Spurður hvort segja megi
þannig að innlánsdeildin sé barn
síns tíma segir Ingólfur mikið til í
því. Hér áður fyrr lögðu bændur
gjarnan inn vörur í kaupfélagið og
tóku út vörur. Það sem eftir stóð
gátu þeir síðan geymt í innláns-
deildinni. „Sumir voru bara með
allt sitt í kaupfélaginu,“ segir Ing-
ólfur. hjortur@mbl.is
Lokað fyrir innlán hjá KS
Síðasta innlánsdeild kaupfélaganna verður lögð niður
Hæstiréttur dæmdi í gær fjóra
karlmenn í fimm til átta og hálfs
árs fangelsi fyrir stórfelldan inn-
flutning á fíkniefnum, auk mál-
svarnarlauna. Voru þeir fundnir
sekir um að flytja inn 19,5 kíló af
amfetamíni og 2,6 kíló af kókaíni
frá Hollandi. Mennirnir sem um
ræðir eru Jeffrey Felice Angelo Uy-
leman (5 ára dómur), Peter Schmitz
(5 ár), Baldur Guðmundsson (8 ár)
og Davíð Berndsen Bjarkason (8
ára og 6 mánaða dómur).
Á mbl.is kemur fram að Hæsti-
réttur hafi þar með staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjaness frá
því í september. Í héraði kom fram
að Hollendingarnir tveir hefðu ein-
vörðungu komið að innflutningi
efnanna en Baldur og Davíð verið
sakfelldir fyrir að hafa lagt á ráðin
um innflutning fíkniefnanna og
fjármagnað að hluta kaup á þeim
og kostnað við innflutning.
Þungir dómar fyrir
smygl á fíkniefnum
Hæstiréttur dæmdi í gær Martein
Jóhannsson í þriggja ára og sex
mánaða fangelsi fyrir kynferðis-
brot gegn stúlku sem var 17 ára
þegar brotið var framið. Héraðs-
dómur hafði áður dæmt hann til
tveggja og hálfs árs fangelsisvistar
og þyngdi því Hæstiréttur refs-
inguna.
Hann var einnig dæmdur til að
greiða stúlkunni miskabætur, áfrýj-
unarkostnað, málsvarnarlaun skip-
aðs verjanda síns og þóknun réttar-
gæslumanns stúlkunnar.
42 mánaða fangelsi
fyrir kynferðisbrot