Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Trésagarblöð, álsagarblöð, járn-
sagarblöð, demantssagarblöð.
Allar stærðir, allar gerðir.
Þjónusta við tréiðnaðinn í yfir 30 ár
HJÓLSAGARBLÖÐ
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur • Sími 564 1212 • asborg.is
Ferðalangar á Mare e Sol-ströndinni á Korsíkueyju
komust í óvanaleg tengsl við náttúruna þegar villt kúa-
hjörð gerði sig heimakomna á ströndinni.
Í hjörðinni eru um þrjátíu kýr, en þær hafa tekið upp
á því síðustu sumur að sleikja sólina ásamt sólstrand-
argestum og gangandi.
AFP
Villt kúahjörð sleikir Korsíkusólina
Miri Regev, menningarmálaráð-
herra Ísraels, þótti djörf í fatavali
sínu á kvikmyndahátíðinni í Cannes,
þar sem hún mætti í kjól sem sýndi
helstu kennileiti hinnar helgu borgar
Jerúsalem.
Þótti sumum samfélagsmiðlanot-
endum sem Regev væri að ögra mús-
limum með kjólnum, þar sem á hon-
um mátti meðal annars finna
Al-Aqsa-moskuna, sem er þriðji
helgasti staður múslima á eftir borg-
unum Mekka og Medína.
Moskan er á þeim stað þar sem
talið er að Salómon, konungur gyð-
inga, hafi reist musteri sitt og er
staðurinn talinn helgasta vé gyðinga.
Mátti einnig finna á samfélags-
miðlum ljósmyndir, þar sem kjóll
Regevs hafði verið afmyndaður, með
misprenthæfum skilaboðum.
Regev er í Likud-flokknum, flokki
Benjamíns Netanyahu forsætisráð-
herra, og hefur hún meðal annars
talað fyrir því að gyðingum verði
leyft að biðja við Al-Aqsa-moskuna.
Olli pilsaþyt á
rauða dreglinum
Regev gagnrýnd fyrir Jerúsalem-kjól
AFP
Umdeildur kjóll Regev gengur upp rauða dregilinn í kjólnum.
Mako, prinsessa af Japan og barna-
barn Akihitos keisara, mun trúlofast
æskuást sinni, hinum 25 ára gamla
Kei Komuro, en hann var eitt sinn
kallaður „prins hafsins“. Komuro er í
framhaldsnámi í háskóla auk þess
sem hann starfar á lögfræðistofu.
Samkvæmt japönskum lögum
mun Mako missa alla titla sína og
konungborna stöðu sína þegar hún
giftist Komuro, þar sem hann er al-
múgamaður. Lögin eiga ekki við um
karlmenn í keisaraættinni, en bæði
Naruhito krónprins og bróðir hans
Akishimo, faðir Mako, giftust al-
múgakonum.
Tíðindin hafa því dregið athyglina
að hinum umdeildu lögum á ný, en
þau voru sett árið 1947. Þykir sum-
um ástæða til þess að endurskoða
þau, ekki síst í ljósi þess að keisara-
tignin sjálf getur einungis gengið í
karllegg.
Sú staðreynd
hefur aftur valdið
áhyggjum, þar
sem Naruhito
krónprins á bara
eina dóttur, og
Akishimo, sem
þar með er næst-
ur í erfðaröðinni,
á tvær dætur og
einn son, hinn tíu
ára gamla Hisahito, sem mun þá erfa
keisaratignina að Akishimo gengn-
um. Börn Mako verða hins vegar
ekki gjaldgeng, óháð kyni þeirra.
Áður en Hisahito fæddist árið
2006 hafði umræða hafist í Japan um
hvort breyta þyrfti erfðareglum
keisaradæmisins, en íhaldsmenn í
landinu segja það óhugsandi að rjúfa
erfðaröðina, sem gengið hefur í 2.600
ár í beinan karllegg, í gegnum 125
kynslóðir.
Tigninni fórnað
fyrir æskuást
Mako prinsessa missir titla sína
Mako prinsessa
Donald Trump, Bandaríkjaforseti,
var vígreifur í gær, gagnrýndi rann-
sókn á meintu leynimakki starfs-
manna hans með Rússum fyrir for-
setakosningarnar í haust en sagðist
ekkert óttast.
„Þetta eru mestu einstöku norna-
veiðar gegn stjórnmálamanni í sögu
Bandaríkjanna!“ tísti forsetinn á
twitter, eftir að tilkynnt var um sér-
stakan saksóknara, Robert Mueller,
til að stýra rannsókninni. Trump
nefndi hann þó ekki á nafn.
Forsetinn sagði að þrátt fyrir
ýmsar „ólöglegar aðgerðir“ fram-
boðs Hillary Clinton, keppinauts
hans í kosningunum, og ríkisstjórnar
Baracks Obama, hefði ekki þótt
ástæða til að sérstakrar rannsóknar.
Trump neitaði staðfastlega sem
fyrr að nokkur tengsl hefðu verið á
milli starfsmanna framboðs hans og
fulltrúa rússneskra stjórnvalda í að-
draganda forsetakosninganna í
haust. Í gær greindi Reuters-frétta-
stofan hins vegar frá því að hún hefði
heimildir fyrir því að ráðgjafar
Trumps hefðu að minnsta kosti 18
sinnum átt í samskiptum við rúss-
neska embættismenn og fólk tengt
ráðamönnum í Kreml áður en
Trump tók við embætti forseta.
Annað hljóð er komið í strokkinn
hjá sumum flokksbræðra forsetans.
Jason Arnash, sem sæti á í fulltrúa-
deildinni, sagði í gær að ekki væri
lengur óhugsandi að forsetinn sætti
formlegri ákæru fyrir embættisglöp.
„Nornaveiðar“
Trump óttast eigi Flokksbróðir
á þingi segir ákæru ekki óhugsandi
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna hefur skipað Robert Muell-
er, fyrrverandi forstjóra alríkis-
lögreglunnar, FBI, stjórnanda
ítarlegrar rannsóknar á meint-
um tilraunum Rússa til að hafa
áhrif á forsetakosningarnar
vestanhafs í haust og meintum
tengslum við starfsmenn fram-
boðs Donalds Trumps.
Skipun Muellers var vel tekið
af bandarískum stjórnmála-
mönnum, hvar í flokki sem þeir
standa. Mueller stýrði FBI frá
2001 til 2013 í forsetatíð repú-
blikanans George W. Bush og
demókratans Baracks Obama.
Mueller tekur
til óspilltra
málanna
RANNSÓKNIN