Morgunblaðið - 19.05.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 19.05.2017, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 ✝ Guðmundur B.Guðbjarnason fæddist 5. ágúst 1940. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 7. maí 2017. Guðmundur var sonur hjónanna Guðbjarna Guð- mundssonar, full- trúa í Reykjavík, f. 1900, d. 1945, og Ástu Málfríðar Eiríksdóttur, hús- móður, f. 1899, d. 1992. Hann á eina systur, Ernu Guðleifu, f. 1932, sem lifir bróður sinn. Eft- irlifandi eiginkona Guðmundar er Þórunn Magnúsdóttir, fyrr- verandi skólaritari í Seljaskóla, f. 1943. Saman eiga þau þrjú börn. a) Guðbjarna, f. 1968, kvæntur Ragnheiði Marteinsdóttur, f. 1969, saman eiga þau Guðmund f. 1996, Telmu Sigþrúði, f. 1999, og Hildi, f. 2004. b) Magnús, f. 1970, kvæntur Lovísu Maríu Gunnarsdóttur, f. 1969, saman varpa til nýrra laga um bókhald og laga um ársreikninga. Á ný lá leið hans 1996 til embættis rík- isskattstjóra sem forstöðumaður ársreikningaskrár og gegndi hann því starfi til starfsloka 30. júní 2009. Guðmundur var stundakenn- ari í skattaskilum og skattarétti við Viðskiptadeild Háskóla Ís- lands frá 1984 til 1998 og Tækni- skóla Íslands 1985 til 1986. Guðmundur var einn af stofn- félögum Rótarýklúbbsins í Breið- holti þar sem hann gegndi stöðu gjaldkera, ritara, dagskrár- stjóra, verðandi forseta og for- seta frá 1989 til 1998. Hann var einnig öflugur talsmaður rétt- inda sumarhúsaeigenda og var stjórnarmaður Landssambands sumarhúsaeigenda frá 1999 til 2016, þar af lengst sem formað- ur. Sá hann til þess að lög voru sett er tryggðu réttindi sum- arhúsaeigenda gegn landeig- endum. Eftir Guðmund liggur fjöldi greina um skattamál sem hann ritaði í Tíund, rit Rík- isskattstjóra, auk fjölda annarra greina í blöð og tímarit um gagn- leg þjóðfélagsmál. Guðmundur verður jarðsung- inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 19. maí 2017, klukkan 15. eiga þau Unni Mar- íu, f. 1998, og Fann- eyju, f. 2001. c) Sig- rún, f. 1980, unnusti Sujesh Sundarraj, f. 1983. Guðmundur út- skrifaðist sem stúd- ent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1962 og sem viðskiptafræð- ingur frá Háskóla Ís- lands 1967. Hann stundaði fram- haldsnám í opinberri stjórnsýslu við Ohio State University 1975- 1976. Frá útskrift starfaði hann nán- ast alla sína starfsævi hjá embætti ríkisskattstjóra, fyrst sem fulltrúi við embættið til ársins 1969, síðar skrifstofustjóri Skattstofu Reykjanesumdæmis til 1976. Árið 1986 var hann skipaður skattrannsóknarstjóri og gegndi því embætti til ársins 1992. Þaðan lá leið hans í fjármálaráðuneytið sem sérfræðingur við gerð frum- Þrátt fyrir skammvinn veikindi pabba þá var hann óhræddur við það sem biði sín, var sáttur við lífs- verk sitt og það sem hann skildi eftir. Vildi að við fögnuðum lífi hans í stað þess að syrgja dauða hans. Fyrstu minningar mínar um pabba eru frá dvöl okkar í Banda- ríkjunum 1975, ég þá fimm ára. Ekki var algengt að menn, ekki á dæmigerðum skólaaldri, færu með eiginkonu og börn vestur um haf til að læra meira og létu eftir öruggt starf. Situr fast í huga mínum þessi fyrsta flugferð mín, framandi land, nýtt tungumál og fjölmenningar- samfélag sem ekki var til á Íslandi á þeim tíma og pabbi sem sá til þess að allt gengi upp. Meðan á dvöl okkar í Banda- ríkjunum stóð áttum við samskipti við ástvini okkar á Íslandi í gegn- um „Skype“ þess tíma. Við töluð- um inn á kassettur sem mamma tók upp og sendi til Íslandi. Kas- settan var síðan endurnýtt og send til baka til okkar með kveðj- um að heiman. Þannig var tæknin í þá daga. Eftir útskrift pabba frá HÍ tók hann til starfa hjá ríkisskattstjóra og starfaði hann á vettvangi skattamála, reikningsskila og í skyldum störfum allt sitt líf. Pabbi tileinkaði sér að vera nákvæmur embættismaður, réttsýnn og mannlegur sem hafði ávallt í fyr- irrúmi að komast að réttlátri nið- urstöðu í sérhverju máli. Mörgum árum eftir skólagöngu pabba fetaði ég í fótspor hans og lagði stund á viðskiptafræði við HÍ. Þar var pabbi mættur að kenna mér skattaskil og skatta- rétt, nú var betra að standa sig. Enn í dag heilsa ég fólki sem segir mér að það þekki pabba minn, þar sem hann hafði kennt þeim, vonaði ég þá innilega að viðkomandi hefði staðist prófið þar sem pabbi var þekktur fyrir að gefa ekkert eftir við að meta þau. Nemendur áttu að hafa fullan skilning á framtals- skilum og skattamálum og enginn afsláttur gefinn. Hann hefur því kennt flestum samferðamönnum mínum úr Viðskiptadeild HÍ í á annan áratug. Meðan á háskólagöngu minni stóð vann ég eitt sumar hjá pabba á skrifstofu skattrannsóknar- stjóra. Var nú fátt annað rætt á heimilinu en skattamál. Síðar þeg- ar ég hóf störf hjá Kaupþingi leit- aði ég oft í visku pabba um skatta- mál og oftar en ekki benti hann mér á að skattalögin væru til þess að útskýra hvernig ætti að greiða skatta en ekki hvernig ætti að komast hjá þeim. Fjármagns- skattur var settur á 1997 en í að- draganda þess var settur upp breiður starfshópur hagsmuna- aðila. Vorum við pabbi báðir skip- aðir í þá nefnd, hann til að gæta hagsmuna skattkerfisins en ég til að gæta hagsmuna fjármálafyrir- tækja. Oft enduðu fundir með þeim orðum að við feðgar gætum bara rætt þetta heima þegar öðr- um þótti við taka of langan tíma í að rökræða okkar skoðanir. Að lokum urðu til lög og reglugerðir sem tóku tillit til allra þátta þeirra hagsmuna sem um var rætt og standa enn. Á síðustu árum hefur hann ver- ið mín stoð og stytta í þeim erf- iðleikum sem ég/við höfum gengið í gegnum þar sem slík mál eru því miður ekki einkamál þess sem í þeim stendur heldur allrar fjöl- skyldunnar. Eftir tvo áratugi er- lendis var það mjög verðmætt að tengjast foreldrum mínum enn sterkari böndum, bróður mínum og vinum á Íslandi sem ég mun alltaf búa að og vera þakklátur fyrir. Skrifaði hann fjölda greina um þessi mál og lagði mikið á sig til að þekkja þau vel og vera mál- efnalegur. Honum var alveg sama hvað aðrir segðu, hann stóð sterk- ur og sagði sína meiningu. Hann er hetjan mín. Magnús Guðmundsson. Elsku hjartans bróðir minn. Ég er svo sorgmædd að þú sért búinn að kveðja þetta líf. Það hringdi til mín frænka okkar fyrir nokkrum dögum, sem var að votta mér samúð og sagði við mig: „Erna, manstu eftir 5. ágúst 1940, hvað við vorum að gera og hvar við vorum staddar?“ „Já,“ sagði ég og hún samsinnti því. Við vorum staddar á stakkstæðinu í Keflavík að breiða saltfisk, þegar Fríða frænka kom hlaupandi í áttina til okkar baðandi út höndunum. Það er fæddur strákur. Það fyrsta sem ég hugsaði með mér var: Mikið er ég heppin að hafa falið allar dúkk- urnar mínar uppi á háalofti á Lindargötunni áður en ég fór til Keflavíkur. Þetta voru nú óþarfa áhyggjur hjá mér þar sem þú lést alltaf dúkkurnar og dótið mitt í friði. Þú varst mér alltaf góður bróðir. Þú bjóst við kvennaveldi sterkra kvenna, mömmu, ömmu og mín, þar sem faðir okkar lést snögglega aðeins 45 ára að aldri. Það breyttist allt hjá okkur við fráfall föður okkar en við kom- umst áfram enda mamma hörku- dugleg og ósérhlífin kona og við systkinin einnig. Elsku Guðmund- ur minn, mig langar að þakka þér fyrir öll árin okkar saman, hvað þú varst mér alltaf góður bæði í sorg og gleði. Alltaf tilbúinn að hjálpa og oftar en ekki búinn að því óum- beðinn. Ég vil einnig þakka ykkur Þóru fyrir allar ógleymanlegu stundirnar í fallega sumarbú- staðnum ykkar í Skorradal sem var ykkar paradís. Þar varstu á heimavelli og undir þér best. Þú varst ekki lengi að kveikja undir heita pottinum þegar komið var upp eftir og i kjölfarið kom þessi yndislega viðarlykt og þú byrjað- ur að töfra fram dýrindis máltíð. Ég og fjölskylda mín vottum fjölskyldu þinni, yndislegri eigin- konu, Þóru, og börnunum ykkar, Guðbjarna, Magnúsi og Sigrúnu og þeirra fjölskyldum okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði, Guð þig geymi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Fegurð og hamingja er lífsins lind sem finnst með innri manni. Hlusta þú á ár og fossa renna. Finnur þú frelsi þitt renna til alheimsins. (E.G.) Þín systir, Erna. Kveðja frá Landssambandi sumarhúsaeigenda Guðmundur Guðbjarnason fé- lagi minn og vinur er látinn. And- látsfregnin kom mér á óvart og án nokkurs fyrirvara. Guðmundi kynntist ég þegar hann gekk í stjórn Landssambands sumar- húsaeigenda 1999. Í stjórninni var hann til dauðadags og var formað- ur sambandsins 2008-2016. Guð- mundur var mjög ráðagóður og vandvirkur í öllum þeim málum sem hann tók að sér fyrir sam- bandið. Guðmundi var veittur fjöldi viðurkenninga fyrir störf sín hjá sambandinu og var kjörinn heiðursfélagi á aðalfundi sam- bandsins 27. apríl 2016. Hann var máttarstólpi í starf- inu og lagði sig allan fram þegar hann vann að tilteknum verkefn- um sem hann taldi brýn fyrir sam- bandið og félagsmenn þess. Guð- mundur taldi ef að sambandið ætti að vera trúverðugur og áhrifamik- ill þrýstihópur, eins og það er kall- að, eða hagsmunasamtök yrði hann að vera fjölmennur og áber- andi í þjóðlífinu. Guðmundur lagði áherslu á það að sambandið hefði það á stefnu- skrá sinni að stuðla að náttúru- vernd með góðri umgengni, virð- ingu fyrir landi og gróðri, ásamt aukinni fjölbreytni í trjárækt á Guðmundur B. Guðbjarnason ✝ Már Sigurðs-son fæddist á Geysi 28. apríl 1945. Hann lést á heimili sínu 3. maí 2017. Foreldrar Más voru Sigrún Bjarnadóttir frá Bóli í Bisk- upstungum, f. 7. nóvember 1903, d. 10. ágúst 1979, og Sigurður Greipsson frá Hauka- dal í Biskupstungum, f. 22. ágúst 1897, d. 19. júlí 1985. Systkini Más eru: Bjarni, f. 1933, d. 1936, Bjarni, f. 1935, Katrín, f. 1937, d. 1938, Greipur, f. 1938, d. 1990, Þórir, f. 1939. Eiginkona Más er Sigríður Vilhjálmsdóttir, f. 1. september 1951 í Sandgerði. Foreldrar hennar voru Gróa Axelsdóttir, f. 21. október 1924, d. 9. apríl 2004, og Vilhjálmur Ásmunds- son, f. 20. maí 1926, d. 4. janúar 1960 frá Kverná, Grundarfirði. Börn Más og Sigríðar eru: Mábil Gróa, f. 9. janúar 1970. ferðaþjónustu á sumrin, stund- aði ferðamannaleiðsögn og byggði upp aðstöðu á hvera- svæðinu. Már útskrifaðist 1964 frá Íþróttaskóla Íslands á Laugavatni og sótti svo frekara nám í íþróttafræðum við danska háskólann Danmarks Højskole for Legemsøvelser og útskrif- aðist þaðan 1968. Frá útskrift starfaði hann sem íþróttakenn- ari á Hólum í Hjaltadal, Stykk- ishólmi, Fáskrúðsfirði, Reykja- nesi við Ísafjarðardjúp og farkennari á vegum HSK. Árið 1969 hóf hann starf sem kennari við grunnskólann á Laugalandi í Holtum, Rangárvallasýslu, og starfaði þar í 25 ár. Már hóf uppbyggingu á ferðaþjónustu við Geysi í Haukadal árið 1972 og helgaði sig alfarið uppbyggingunni við fjölskyldufyrirtækið Hótel Geysi frá árinu 1993 og var mik- ill frumkvöðull á sviði ferða- þjónustu. Már hlaut riddarakross Hinn- ar íslensku fálkaorðu árið 2005 fyrir frumkvæði í uppbyggingu ferðaþjónustu. Útför Más fer fram frá Skál- holtskirkju í dag, 19. maí 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. Dætur hennar eru Sigríður Alma, f. 1996, og Salka Kristín, f. 2004. Stjúpbörn hennar eru Unnur, f. 1988, og Alex Baldvin, f. 1994. Vilhjálmur, f. 17. ágúst 1976. Sigurður, f. 13. mars 1976. Maki hans er Elín Svafa Thoroddsen, f. 14. janúar 1981. Dóttir Sigurðar og Drífu Bjarkar Linnet Kristjánsdóttur er Sara Jasmín, f. 2001. Dætur Sigurðar og Elínar eru Saga Natalía, f. 2011, Emelía Ís- old, f. 2014, og Antonía Elín, f. 2015. Már ólst upp á Geysi í Hauk- dal. Foreldrar hans ráku íþróttaskólann í Haukadal í 43 ár en ættfaðir Haukdæla, Teitur Ísleifsson, stofnaði fyrsta lær- dómssetur Íslands. Faðir Más var íþróttafrömuður og glímu- kappi, stundaði sauðfjárbúskap á jörðinni, nýtti skólahúsið fyrir Ég á eina minning, sem mér er kær: Í morgundýrð vafinn okkar bær og á stéttinni stendur hann hljóður, hann horfir til austurs þar ársól rís, nú er mín sveit eins og Paradís. Ó, hvað þú, Guð, ert góður. Ég á þessa minning, hún er mér kær. Og ennþá er vor og þekjan grær og ilmar á leiðinu lága. Ég veit að hjá honum er blítt og bjart og bærinn hans færður í vorsins skart í eilífðar himninum bláa. (Oddný Kristjánsdóttir.) Í dag kveðjum við ástkæran föður og tengdaföður. Hann er horfinn yfir móðuna miklu og eng- inn megnar að fylla það tóm sem skapast. Er við kveðjum hann í hinsta sinn er okkur efst í huga þakklæti fyrir þann góða tíma sem við átt- um með honum, ótal dýrmætar minningar koma upp í hugann og gott er að geta yljað sér við þær núna. Við erum þakklát fyrir þá fyrirmynd sem hann var okkur og þann dýrmæta lærdóm sem hann kenndi okkur. Mikil er okkar gæfa að hafa fengið að njóta góð- mennsku, leiðsagnar og hvatning- ar hans sem við munum hafa sem veganesti í okkar lífi. Haukadalur er fyrrum stórbýli, höfðingjasetur og rómað lær- dómssetur. Teitur Ísleifsson, son- ur Ísleifs fyrsta biskupsins í Skál- holti, tók við búsforráðum í Haukadal og stofnaði þar fyrsta skólann sem settur var á stofn hér á landi. Hann var talinn ættfaðir Haukdæla og setti sterkan svip á sögu lands og þjóðar. Ari fróði nam meðal annarra hjá Teiti og er nafn hans og Haukadals tengt órjúfanlegum böndum. Eplið féll ekki langt frá eikinni þegar Már Sigurðsson kom í heiminn. Hann var mikill stórhugi eins og hann átti kyn til og byggði upp af sama eldmóði og metnaði og Sigurður Greipsson hafði byggt upp á Geysi í Haukadal og Haukdælir þar á undan. Hann lauk námi sem íþrótta- kennari bæði á Íslandi og í Dan- mörku og starfaði lengi vel við kennslu. Árið 1985 tóku þau hjón- in við stjórnartaumunum á Geysi en uppbyggingin hófst 1971 með söluskálanum á Geysi. Þau byggðu upp af miklum eldmóði og metnaði og gáfust aldrei upp þótt móti blési. Árið 2000 opnuðu þau svo Geysisstofu. Þar gafst gestum einstakt tækifæri til þess að kynn- ast jarðfræði Íslands á raunveru- legan og nýstárlegan hátt. Safnið var að mörgu leyti einstakt í sinni röð en nýjasta tækni var notuð til þess að sýna það sem liggur að baki eldvirkni og gosvirkni. Það var auðvelt að hrífast af metnaðinum og áhuganum sem geislaði af Má okkar. Hann var þeirrar manngerðar, að hann hlaut að snerta sérhvern þann, er honum kynntist. Hann var hug- sjónamaður sem lét aldrei staðar numið og var hamhleypa til verka. Það var þó stutt í prakkaraskap- inn og glensið allt til hinstu stund- ar. Þó að Parkinsonsjúkdómurinn hafi sett sitt mark á hann og þrek- ið hafi dvínað eftir því sem tíminn leið var andinn ætíð sterkur og barðist áfram, hann hlífði sér aldrei. Már, faðir og tengdafaðir okk- ar, mun ferðast áfram með okkur í hugum okkar, við erum ríkari með þær minningar í farteskinu, hann mun ætíð lifa í hjarta okkar. Far í friði og Guð geymi þig. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigurður Másson, Elín Svafa Thoroddsen. Elskulegur mágur minn og vin- ur er genginn á vit feðra sinna. Kynnin voru löng og kynnin voru góð. Þar bar aldrei skugga á. Hann fæddist á Geysi og lést á sama stað 72 árum síðar. Mikil er sú saga sem þar er á milli en verð- ur ekki rakin hér nema að litlu leyti. Heimilishættir voru afar sér- stakir, þ.e. íþróttaskóli að vetri með 25 til 30 nemendum og síðan hótel á sumrin. Í þessu umhverfi ólst Már upp, yngstur sex systk- ina, tvö dóu í frumbernsku. Snemma þótti Már nokkuð mikill fyrir sér, kraftmikill og ófeiminn. Alltaf var stúlka sem hafði þann starfa að líta eftir Má. Inga systir mín var ein þeirra og minntist oft þess tíma. Drengur- inn var óþekkur, en alltaf skemmtilegur, sagði hún. Síðan tók við skólaganga hér- lendis og erlendis. Glæsilegur íþróttamaður, hvort sem var í glímu, sundi eða öðrum íþróttum. Þó Már væri í námi og vinnu í mörg ár var hans fastur punktur á Geysi. Rak söluskálann frá fyrstu tíð. Eiginkona Más og besti vinur var Sigríður Vilhjálmsdóttir. Kornung kom hún að Geysi, glæsileg og forkur dugleg, stoð hans og stytta alla tíð. Í minningunni finnst mér að Már hafi alltaf verið að byggja, reisa hús, bæta við álmum í suður, vestur og austur, ef ekki söluskál- ann, þá hótelið. Umsvifin feikileg. Sérlega gott og gaman var að vinna hjá þeim hjónum, þar ríkti alltaf jákvæðni og glaðværð þótt mikið væri að gera. Sama starfs- fólk árum saman segir sína sögu. Það var nokkuð mikið áfall þeg- ar Greipur lést skyndilega, fimm- tíu og tveggja ára. Hann hafði staðið með Má í gegn um þykkt og þunnt í öllum hans framkvæmd- um og verið hans hjálparhella. Einstaklega náið samband var með þeim bræðrum, þeir mátu hvor annan mikils. Græskulaus glettni einkenndi þá alla tíð. Ég minnist þess hve Már var mér hjálplegur og umhyggjusamur eftir að Greipur lést. Sagan end- urtekur sig, það er lífsins gangur. Hans góðu börn, Mábil og Sigurð- ur, hafa nú tekið við keflinu, byggja í austur og upp. Fjölskyld- an var honum einkar kær alla tíð. Veikindum sínum, sem voru bæði löng og grimm, tók hann af stakri karlmennsku. Aldrei heyrði ég hann kvarta yfir hlutskipti sínu og má segja að hann hafi staðið á meðan stætt var. Hún er máttug kveðjan sem móðir náttúra á Suðurlandi sendi þessum syni sínum, jarðskjálfti um allt Suðurland daginn sem hann lést. Síst vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða sælli funda; það kemur ekki mál við mig. Flýt þér, vinur, í fegri heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson) Veri hann kært kvaddur. Kirstín Sigurðardóttir. Í dag kveðjum við góðan mann, Má Sigurðsson, sem hefur verið hluti af mínu lífi frá því ég var 9 ára gamall eða frá því að hann og Sigga systir urðu par. Strax á þeim árum fór ég að verja miklum tíma fyrir austan fjall á Geysi og á Laugalandi í Holtum. Ég tel það hafa verið forréttindi að fá að alast upp að hluta til í sveitinni, að fá tækifæri til að annast dýrin og vinna þau verk sem þurfti, þótt ungur væri. Ég tók þátt í öllum þeim verkum sem Már lagði fyrir mig, hvort sem var að mjólka kýrnar, moka flórinn eða aka far- artækjum um sveitina. Már var í raun sú föðurímynd sem ég átti þar sem ég missi minn föður að- eins 6 mánaða gamall. Margar góðar og skemmtilegar minningar koma upp í huga minn þegar ég hugsa til baka þar sem Már átti hlutdeild í lífi mínu og síðar fjölskyldu minnar. Hann var svaramaðurinn minn þegar ég gifti mig, hann gaf mér fyrsta hestinn minn, reiðbuxurnar og reiðskóna svo eitthvað sé nefnt. Hann var alltaf mjög góður við mömmu sem mér þótti alltaf mjög vænt um. Hann tók vel á móti börnunum mínum þegar þau fóru að verja tíma hjá þeim bæði á Laugalandi og Geysi. Ég verð ávallt þakklátur fyrir vinskap okkar, aðstoð og samveru. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég og fjölskylda mín vottum Már Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.