Morgunblaðið - 19.05.2017, Síða 33

Morgunblaðið - 19.05.2017, Síða 33
lifa með okkur og þegar ég fæ mér kaffi mun ég hugsa til þín og orðanna sem þú sagðir svo oft: „komdu nú og fáðu þér kaffi, elskan.“ Kveðja, Sigurbjörg Karlsdóttir. Elsku amma, nú hefur þú lagst til þinnar hinstu hvíldar, laus við alla þreytuna og verkina. Ég veit að afi hefur tekið vel á móti þér og getið þið enn á ný hafið fleiri ævintýri saman. Ég er svo þakk- lát og glöð að þú beiðst eftir litlu prinsessunni minni og þinni. Þeg- ar ég setti hana í fangið þitt þá ljómaðir þú af ánægju og gast ekki tekið augun þín af henni. Ég mun aldrei gleyma þessari stundu. Ég hef þessa kveðju ekki lengri núna þar sem við munum hittast aftur síðar og veit ég að þú munt vaka yfir mér og dóttur minni. Þín Íris Þórdís og litla prinsessan. Elsku amma. Í dag kveð ég þig í hinsta sinn og horfi á eftir þér inn í eilífðina. Með þakklæti að leiðarljósi en sorg í hjarta, minnist ég góðra tíma sem við áttum saman. Hjartahlýja þín og gjafmildi var einstök. Þú varst afar barn- góð og við mæðgur erum heppn- ar að hafa fengið að fara sam- ferða þér í gegnum lífið. Jákvætt fas þitt og tignarlegt yfirbragð var alltaf til staðar. Það hefur myndast skarð í fjölskyldugarð- inn sem erfitt verður að fylla. Eftir standa hlýjar minningar um brosmilda konu við af- greiðslustörf í bókabúðinni góðu, hjálpleg og falleg. Hér eru erindi úr kvæði Dav- íðs Stefánssonar, Vorboði, sem er mín hinsta kveðja til þín. Elsku amma – takk fyrir allt og allt, þú varst ómetanleg. Ég veit að vorið kemur og veturinn líður senn. Kvæðið er um konu, en hvorki um guð né menn. Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor, því hún var mild og máttug og minnti á – jarðneskt vor. (Davíð Stefánsson.) Þín, Arna Ómarsdóttir. Elsku langamma. Takk fyrir allt sem þú varst okkur í lifandi lífi. Í eftirfarandi orðum finnum við huggun: Grátið ekki þótt ég sé farin því ég er aðeins í „burtu“. Ég dó ekki og mun ekki deyja. Ég er hjá ykkur alla daga. Það er satt að ég hef yfirgefið jörðina, en ég lifi í anda hjá ykkur. Óttist ekki um mig, því ég er ham- ingjusöm í þeim friði og ást sem hér er. Það, sem ég var, er ég nú, jafnvel betri en ég var. Himnaríki hefir svo mikla fegurð, fjöll og tré og svo margt annað. Grátið mig ekki, talið um mig á sama hátt og þið gerðuð áður. Gerið minningar okkar að ánægju- legum minningum, sem geta róað og huggað ykkur. Minnist mín með gleði. Syrgið mig ekki, þótt ég sé farin. Í himnaríki eflist ég og líf mitt heldur áfram. Grátið mig ekki, því ég er hjá ykkur í því, sem þið segið og gerið á hverri stundu á hverjum degi. Ást mín er líka hjá ykkur. (M. Philbrook) Kveðja frá langömmubörnun- um, Ísabella, Hilmar Andri, Guðjón Leifur og Ólavía Karen.  Fleiri minningargreinar um Stellu Þórdísi Guðjóns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 Atvinnuauglýsingar Vélavörður Vísir hf. óskar eftir að fastráða vélavörð sem getur leyst af yfirvélstjóra á Kristínu Gk 457. Kristín er línuveiðiskip með beitningarvél. Nánari upplýsingar gefur skipstjóri í síma 856-5730 eða á heimasíðu Vísis www.visirhf.is. Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Kaupmannasamtaka Íslands verður haldinn miðvikudaginn 24. maí nk. í húsakynnum Kaupmannasamtaka Íslands, Húsi verslunar- innar, 13. hæð, kl. 15:00. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Engjasel 67, Reykjavík, fnr. 205-5334 , þingl. eig. Kristín Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi Birta lífeyrissjóður, miðvikudaginn 24. maí nk. kl. 11:00. Flúðasel 94, Reykjavík, fnr. 205-6808 , þingl. eig. Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 24. maí nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 18. maí 2017 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir Hátröð 5, Kópavogur, fnr. 206-1464 , þingl. eig. Lára Gyða Bergsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 23. maí nk. kl. 10:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 18. maí 2017 Styrkir Umsóknir um styrki úr Stofnverndarsjóði íslenska hestakynsins Frá Bændasamtökum Íslands: Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni. Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar. Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í júní 2017. Nánari upplýsingar fást hjá Bændasamtökunum. Frestur til að skila inn umsóknum er til 16. júní 2017 og skal umsóknum skilað til: Fagráð í hrossarækt, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík. Fagráð í hrossarækt. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar/útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Boccia m/Guðmundi kl. 9.30-10.30. Opið innipútt kl. 11-12. Opið hús kl. 13-16. Spilað canasta kl. 13. Bókabíllinn, kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10.30. Gönguhópur 13.30, tekinn léttur hringur um hverfið. Opið kaffihús 14.30-15.30. Verið velkomin. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Handavinna kl. 10-12. Bókband kl. 13-17. Bingó kl. 13.30-14.30. Handaband kl. 13 - vinnustofa þar sem aðferðir við textílhönnun eru kenndar og er unnið með textílefni sem fellur til við framleiðslu hérlendis. Verið velkomin til okkar í Félagsmiðstöðina Vitatorgi, Lindargötu 59, sími 411-9450. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20 ef óskað er, frá Hleinum kl. 12.30, frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist. Vatnsleikfimi kl. 8, 8.50 og 12.10. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9, 10 og 11, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Spilað brids kl. 13, bíódagur kl. 13.30, kaffisala í hléi. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan er opin 9-12,Thai Chi kl. 9, Boccia kl.10.15, kvik- myndasýning kl.13, síðdegiskaffi kl.14.30 kynning og spjall í kaffinu. Stelpur úr Réttarholtsskóla koma að kynna skemmtilega dagskrá. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu nánar í síma 411 2790. Korpúlfar Leikfimishópur Korpúlfa í fimleiksalnum í Egilshöll kl. 10.30 í dag, BRIDS kl. 12.30, Hannyrðahópur kl. 12.30, sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30 og síðsta vöfflfukaffi þessa vetrar kl. 14.30 í Borgum. Selið Sléttuvegi Selið er opið í dag kl. 10-14. Upp úr 10 er boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin, hádegisverður kl. 11.30-12.30 og botsía kl. 13. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma 568 2586. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga/hláturjóga salnum Skólabraut kl. 11. Syngjum saman með Friðriki og Ingu Björgu í sal- num á Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30. Ath. Jóga verður ekki nk. mánudag vegna uppsetningar á handverkssýningunni sem hefst fimmtudaginn 25. maí. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl.20-23 - Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Akstur um heimahaga 6. júní. Heiðmörk frá Vífilsstöðum, um Reynisvatnsheiði, byggð í Grafarholti , Grafarvogi og Gufunes, Skerjafjörð ofl. Þjórsárdalur 8. júní dagsferð. Heimsókn á virkjunarsvæði og skoðun á náttúruperlum. Skráning í allar ferðir sumarsins s. 588 2111. Vesturgata 7 Enska kl. 10-12, Peter R.K.Vosicky. Sungið við flygilinn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl. 14-14.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt V I Ð L O K U M Meyjarnar Austurveri | Háaleitisbraut 68 Sími 553 3305 30. maí UNDIR ÞESSU MERKI SIGRAR ÞÚ Hálsmen úr silfri 6.900 kr., gulli 49.500 kr., (silfur m. demanti 11.500 kr., gull m. demanti 55.000 kr.), silfur- húð 3.500 kr. ERNA, Skipholti 3, s. 552 0775, www.erna.is Póstsendum Vélar & tæki Vinnulyftur ehf Eigum á lager nýjar skæralyftur frá Skyjack og bómulyftur frá Niftylift. eyvindur@simnet.is, sími 774 2501 www.skyjack.is. Bílar Sjö manna dökkblár Mitsubishi Montero árgerð 2005 innfluttur frá Bandaríkjunum - ekinn 107 þús mílur (172 þús km). Er með svörtu leðri að innan auk DVD spilara, með skjá í loftinu. Fjarstart innbyggt í fjarstýr- ingu - ómetanlegt að vetri til. Búið að skipta um tímareim. Fjögur nagladekk fylgja. Verð 990.000 kr. Uppl. í síma 690-7525. Hjólbarðar Sumardekk til sölu Ný Continental sumardekk til sölu 2215/55 R17. Verð 60.000. kr Uplýsingar í síma 820-3725 Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. Hreinsa þakrennur ryðbletta þök og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Til leigu Íbúð til leigu 3 - 4 herb. íbúð til leigu í Kópavogi, með innbúi. Leigist frá 3. júlí í 4 - 5 vikur. Verður líka til leigu í vetur. Leiga er 200þús á mán. Upplýsingar oloffinna@hotmail.com Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.