Morgunblaðið - 19.05.2017, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Ég ætla að haldaafmælispartí,það verður
garðpartí heima hjá
mér. Það á víst að
verða sól og bongó-
blíða. Það er eiginlega
alltaf gott veður á af-
mælisdaginn minn, ég
er mjög heppin með
það,“ segir Sólveig
Guðmundsdóttir sem á
40 ára afmæli í dag.
Hún er sjálfstætt
starfandi leikkona og
formaður Sjálfstæðu
leikhúsanna og hefur
verið það undanfarið
ár.
„Ég mun láta af for-
mennskunni í næsta
mánuði en þar sem ég
hef alltaf unnið sjálf-
stætt hefur verið mjög
gefandi að taka þátt í
starfi SL og mér finnst starfsemi sjálfstæðu leikhúsanna skipta
máli enda hefur vegur þeirra verið að vaxa og dafna jafnt og
þétt.“
Tveimur sýningum sem Sólveig lék í á síðastliðnu leikári er ný-
lokið, annars vegar sýningum á Illsku eftir Eirík Örn Norðdahl,
sem leikhópurinn Óskabörn ógæfunnar setti upp og hins vegar
sýningum á verkinu Sóley Rós ræstitæknir, sem leikhópurinn
Kvenfélagið Garpur setti upp, en Sólveig stendur fyrir þeim leik-
hópi og hún samdi leikritið ásamt Maríu Reyndal leikstjóra.
„Ég fer núna að vinna sem leiðsögumaður í Þríhnúkagíg og í
júlí fer ég í þriggja vikna ferð til Shanghæ með barnaleikritið Líf-
ið – stórkostlegt drullumall. Þetta er barnaleikverk án orða þar
sem unnið er og leikið er í mold, en verkið hlaut tvenn Grímuverð-
laun árið 2015. Við förum fjögur saman út með verkið og svo er
líka búið að bjóða okkur til Möltu að sýna verkið þar, svo það er
líklega að fara á flakk um heiminn“
Meðal áhugamála Sólveigar er garðrækt. „Er það ekki voða
mikið fertugt? Svo hef ég gaman af því að fara í sund og sjósund
og leika mér með stelpunum mínum.“
Sólveig er í sambúð með Graeme Maley leikstjóra, en hann vinn-
ur erlendis. Dætur þeirra eru Emily Rún 7 ára og Eva Iona 4 ára.
Leikkonan Sólveig Guðmundsdóttir.
Lofar bongóblíðu
í afmælisveislunni
Sólveig Guðmundsdóttir er fertug í dag
G
arðar Víðir Guðmunds-
son fæddist í Reykjavík
19.5. 1942 og ólst þar
upp, lengst af við Hverf-
isgötuna. Hann var í
Laugarnesskóla og stundaði nám við
Gagnfræðaskóla verknáms sem þá
var í Brautarholti.
Garðar hóf sinn starfsferil sem
sendill hjá Samvinnutryggingum
sem þá voru til húsa í aðalstöðvum
SÍS við Sölvhólsgötu. Hann var
verslunarmaður og síðan versl-
unarstjóri hjá Ziemsen í Hafnar-
stræti 1962-71. Þá stofnuðu Garðar
og Ragnar Haraldsson bygginga-
verslunina Ragnar Haraldsson hf. í
Borgartúni og starfræktu hana í þrjú
ár.
Garðar var síðan verslunarstjóri í
versluninni Virkni í Ármúla í nokkur
ár, var verslunarstjóri hjá Litaveri
við Grensásveg, var síðan verslunar-
stjóri hjá Málaranum við Grensásveg
um skeið, en síðan aftur versl-
unarstjóri í Litaveri til 2012.
Garðar og eiginkona hans fluttu á
Seltjarnarnesið er þau hófu búskap,
árið 1965 og bjuggu þar í nokkur ár.
Þar hóf Garðar að þjálfa stráka í
knattspyrnu. Strákahópurinn stækk-
aði óðum og fyrr en varði voru á ann-
að hundrað stráka í hópnum. Þetta
varð vísirinn að íþróttafélaginu
Gróttu sem Garðar stofnaði árið
1967. Grótta varð því 50 ára í apríl
síðastliðnum.
Garðar sóttist aldrei eftir for-
mennsku í félaginu en var varafor-
maður þess um skeið og einbeitti sér
að þjálfun drengjanna. Hann stofnaði
síðan Eldri klúbb Gróttu og hefur
sinnt knattspyrnuiðkun, mótaþátt-
töku og félagsstarfi eldri Gróttu-
manna í 34 ár. Þá var Garðar knatt-
spyrnudómari í 16 ár og sat í stjórn
Garðar V. Guðmundsson, verslunarmaður – 75 ára
Heima í stofu Garðar og Anna María umkringd börnunum sínum, barnabörnunum og barnabarnabörnunum.
Stofnandi Gróttu og
rokkari af guðs náð
Með átrúnaðargoði Anna María,
Cliff Richard og rokkarinn Garðar.
Vinkonurnar Dagbjört Lilja
Jóhannsdóttir og Lilja Mist
Birkisdóttir seldu flöskur til
styrktar Rauða krossinum.
Ágóði af sölunni var 6.406
krónur.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 2. júní
Fjallað verður um sumartískuna 2017
í fatnaði, förðun og snyrtingu auk
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 29. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.