Morgunblaðið - 19.05.2017, Qupperneq 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hengir ekki mynd þar sem ekkert
ljós er, og þú meðhöndlar vini þína af sömu
virðingu. Reyndu að ýta efasemdunum frá
þér og minna þig á að þú átt allt gott skilið.
20. apríl - 20. maí
Naut Afneitun á ástríðum lætur þær ekki
hverfa, en gerir glufur, sem myndast, svo
þröngar að maður þarf að troða sér í gegnum
þær. Ekki gera tilboð sem þú getur ekki stað-
ið við.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það hefur ekkert upp á sig að vera
með einhver látalæti. Allir hlutir kosta sitt en
það er forgangsröðin sem skiptir öllu máli.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Frekja og yfirgangur kemur þér ekki
áleiðis í dag. Ef þú tengist tilfinningum þín-
um, mun það snerta við öðrum að kynnast
sköpunarverkum þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef maður nálgast viðfangsefni sín af ást,
ver maður minni orku í að klára þau. Gættu
þess að varðveita þau eins og þú vildir að
aðrir varðveittu leyndarmál um þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ekki hyggilegt að hleypa mál-
um af stað án þess að reyna að sjá framvind-
una fyrir. Ekki vera hræddur við að segja öðr-
um frá þeim því þær eiga eftir að vekja
verðskuldaða athygli.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er engu líkara en að samstarfsmenn
þínir vilji halda þér utan við ákveðið verkefni.
Ef þú treystir upprunanum, gæti þetta verið
sannleikurinn – eða nálægt því.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er óþarfi að vera að burðast
með allar heimsins syndir á bakinu. En þá
reynir líka á að menn taki tillit hver til annars.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er góð regla að skrifa niður
verkefnalistann þegar margt er á döfinni.
Málið er að vinna aðra á sitt band hægt og
örugglega.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú áttar þig á að það eru tvær
hliðar á öllum sögum. Hlustaðu á það sem
fólk hefur að segja en bíddu með fram-
kvæmdir til morguns.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu fyrst og fremst sannur í
samskiptum þínum við aðra og gættu þess
að lofa ekki upp í ermina á þér. Vertu ekkert
að tvínóna við hlutina, en taktu enga óþarfa
áhættu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki hika við að verja fé í fasteignir
eða annað sem tengist fjölskyldunni. Látið
ekki misvísandi fréttir trufla ykkur.
Ólafur Stefánsson segir á Leir aðskáldhúmoristanum Heinz Er-
hardt virðist ekkert heilagt. Hann
geri sér oft leik að því að skopfæra
kvæði stórskáldanna og sýna þau í
öðru ljósi. Ólafur hefur gaman af því
að íslenska paródíur hans og hér er
hin fræga ballaða Goethes um fiski-
manninn, sem lætur ginnast af fag-
urgala hafgúu, eftir að Erhardt hefur
farið höndum um hana og er ekki að
sökum eða endi að spyrja.
Af vatni var svartfullur sjórinn,
og sumsstaðar ægidjúpt haf.
Þar sat hann og sötraði bjórinn,
– hann sat ekki’ en lá, því ei gaf.
Ég segi: Hann sötraði bjórinn,
en sat ekki’ en lá, því ei gaf.
Og af vatni var svartfullur sjórinn,
og sumsstaðar ægidjúpt haf.
Þá birtist úr bárunum meyja,
barmprúð með flautu við munn.
Hún hafði heilmargt að segja,
þar hjalaði alda við grunn.
Og seiðurinn settist í hjarta,
þó söngurinn væri’ ekki hreinn.
Hann sá ekki sólina bjarta
en sökk niðr’í hafið sem steinn.
Það er mörg „villan“ eins og fram
kemur í limrum Helga R.:
Hún er í sínum öngum
Elinóra á Dröngum.
Vafrar um
á vordögum
í Vaðlaheiðargöngum.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir vor-
vísu á Boðnarmiði:
Frosti kveður kalinn svörð,
kuldaveður undan lætur.
Vorið gleður, vaknar jörð,
vænkast geð um bjartar nætur
Óður Jóns Gissurarsonar til vorsins:
Létt í spori lambahjörð
leikur sér um mó og rinda
Grænka tún og gróa börð,
glampar sól á fjallatinda.
Ármann Þorgrímsson hlustaði á
umræður á Alþingi:
Hæla bara sjálfum sér,
svona þeirra lífsstíll er
saman um það sögum ber
að sé of mikið talað hér.
Þessi staka eftir Magnús Sigurðsson
á Heiði í Gönguskörðum er klassísk en
hann orti hana daginn áður en hann
drukknaði, 12. mars 1862:
Þótt ég sökkvi í saltan mar
sú er eina vörnin:
ekki grætur ekkjan par
eða veina börnin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fiskimaðurinn, Vaðlaheið-
argöng og bjartar nætur
Í klípu
„ÞETTA ER EKKI ÁKVEÐIÐ NEI.
SPYRÐU MIG AFTUR EFTIR VIKU
EÐA KANNSKI TVÆR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÞARF AÐ FINNA NÝRA SEM
MUN EKKI HAFNA ÞÉR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum umkringd
gildrum.
HEY, HLUSTAÐU
Á ÞETTA
STÓRMARKAÐURINN
ER MEÐ ÚTSÖLU Á
GRÆNKÁLI
ÞEIR BORGA ÞÉR
FYRIR AÐ TAKA ÞAÐ
HVERSU
MIKIÐ?
ÞÚ ERT
MJÖG FÖLUR!
ERTU VEIKUR?
HVERSU LENGI
HEFURÐU VERIÐ AÐ
SINNA ÞEIM?
NEI…
HELGA LÆTUR
MIG VINNA
HEIMILISSTÖRFIN
BAKI BROTNU!
HÚN ÆTLAST TIL
ÞESS AÐ ÉG BYRJI
Á MORGUN…
Ein eftirminnilegasta frétt vik-unnar fjallaði um konu sem ók
bíl sínum á 80 km hraða yfir á rang-
an vegarhelming á Reykjanesbraut
og olli þar árekstri við annan bíl.
Konan gleymdi sér við aksturinn,
þar sem hún var að senda smáskila-
boð úr farsíma, og krafðist slysa-
bóta. Dómstóll sýknaði trygging-
arfélagið af kröfu konunnar, sem
taldi sig í fullum rétti í símanum.
x x x
Önnur frétt var ekki síður athygl-isverð. Leikmaður KA fékk gult
spjald í fyrri hálfleik á móti Fjölni í
Pepsi-deild karla í fótbolta. Hann
fékk aftur gult spjald í seinni hálf-
leik og hefði þá samkvæmt reglum
átt að fá rautt og brottvísun, en
dómarinn sá ekkert athugavert við
eigin gjörðir og leikmaðurinn lauk
leiknum og fagnaði sigri.
x x x
Dómarar geta gert mistök eins ogaðrir, og gera mistök. Víkverji
þekkir það vel að geta ekki lesið eig-
in skrift og þegar við bætast læti og
hamagangur þarf ekki að vera von á
góðu. Aðrir geta samt hjálpað.
x x x
Blessunarlega er vel búið að allriumgjörð í fótboltanum og á
leiknum fyrir norðan voru, eins og
vera ber, tveir aðstoðardómarar, áð-
ur línuverðir, sem þótti ekki nógu
virðulegt og ábyrgðarfullt, eftirlits-
maður og varadómari dómaranum
til aðstoðar. Þeir töldu líka bara eitt
gult og svo aftur eitt gult án þess að
setja það í samhengi við regluna um
að tvö gul jafngildi einu rauðu og þar
með brottvísun.
x x x
Leikmaðurinn hafði líka gleymt þvíað hann hafði áður fengið gult
spjald og sama má segja um alla
aðra sem að leiknum komu, leik-
mennina, þjálfarana og 1.044 skráða
áhorfendur. Formaður dómara-
nefndar KSÍ lét ekki blekkjast og í
uppfærðri skýrslu á vef sambands-
ins er rauða spjaldið nú samvisku-
samlega skráð og leikmaðurinn var
úrskurðaður í eins leiks bann á fundi
aganefndar sl. þriðjudag. Hvort
lyktir mála verði öðrum víti til varn-
aðar skal ósagt látið. vikverji@mbl.is
Víkverji
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir
sál mín þig, ó Guð.
(Sálm. 42:2)