Morgunblaðið - 19.05.2017, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 19.05.2017, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 Mannasiðir nefnist nýtt útvarps- leikrit eftir Maríu Reyndal sem Út- varpsleikhúsið frumflytur á morg- un, laugardag, kl. 14. „Líf tveggja fjölskyldna fer á hvolf þegar drengur er ásakaður um að hafa nauðgað skólasystur sinni í menntaskóla. Verkið er unn- ið upp úr viðtölum við þolendur og gerendur kynferðisbrota og að- standendur þeirra en þar er velt upp spurningum um ábyrgð, refs- ingu og fyrirgefningu,“ segir í til- kynningu frá Útvarpsleikhúsinu. Í hlutverkum eru Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Oddur Júlíusson, Sólveig Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Snæfríður Ingvarsdóttir, Arndís Hrönn Egils- dóttir, Rúnar Freyr Gíslason og Kjartan Darri Kristjánsson, en María leikstýrir eigin verki. Úlfur Eldjárn semur tónlist verksins og um hljóðvinnslu sér Einar Sigurðsson. Útvarpsleikhúsið stendur fyrir sérstöku hlustunar- partíi í Iðnó á morgun þar sem áhugasömum er boðið að koma til að hlusta á verkið á sama tíma og það er flutt í útvarpinu. Hlustunin hefst kl. 14 en húsið verður opnað kl. 13. Verkið tekur um klukku- stund í flutningi og í kjölfarið verð- ur boðið upp á umræður. Aðgangur er ókeypis. Mannasiðir frumfluttir á morgun Ábyrgð María Reyndal, höfundur og leik- stjóri, beinir sjónum að erfiðu málefni. Rokkkór Íslands heldur tónleika í Norðurljósasal Hörpu í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru þekkt rokklög frá tíunda áratugnum eftir flytj- endur á borð við No Doubt, Radio- head, Jet black Joe, Stone Temple Pilots, Metallica, Guns ŃRoses, Queen, Nirvana, Red Hot Chilli Peppers, Skunk Anansie, Alanis Morissette og The Cranberries. „Það verður því mikið rokkað þetta kvöld þar sem stuð og stemning verður í hámarki,“ segir í tilkynn- ingu frá kórnum. Hljómsveit kvöldsins skipa Davíð Sigurgeirsson á gítar, Róbert Þór- hallsson verður á bassa, Pálmi Sig- urhjartarson á hljómborð, Fúsi Ótt- ars á trommur og Þorbergur Ólafsson sem sér um slagverk. Hljóðmaður er Hrannar Krist- jánsson. Einsöngvarar koma allir úr röðum kórfélaga, en stjórnandi er Matthías V. Baldursson. „Rokkkór Íslands er tveggja ára gamall og fer heldur óhefðbundn- ari leiðir en gengur og gerist í kór- söng. Kórinn skipa um 40 söngv- arar sem flestir eiga það sameiginlegt að hafa mikla reynslu í popp-, rokk- og dægurlagasöng. Útkoman er kraftmikill og al- gjörlega einstakur hljómur sem er klárlega nýr sinnar tegundar.“ Reynsluboltar Um 40 reyndir söngvarar skipa Rokkkór Íslands. Rokkkór Íslands í Norðurljósum í kvöld Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við í Norðurópi erum alltaf að leita okkur að skapandi og skemmti- legum óperuverkefnum,“ segir Jóhann Smári Sævarsson bass- baríton um óperurokktónleika sem haldnir verða í Hljómahöll Reykja- nesbæjar í kvöld, föstudag, kl. 20. „Við höfum sett upp óperu í skipa- smíðastöð, í kirkju, fokheldu húsi og úti undir berum himni. Okkar sér- staða er að flytja útdrætti úr óp- erum og við nálgumst tónlistina eftir okkar höfði. Að þessu sinni datt okk- ur í hug að flytja aðgengilegustu óp- eruna eftir Richard Wagner sem er Hollendingurinn fljúgandi og nálg- ast verkið þannig að við flytjum út- drátt úr óperunni, nokkurs konar „best off“, með rokkhljómsveit og klassískum söngvurum og könnum þannig hversu langt er á milli þess- ara tveggja tónlistarheima,“ segir Jóhann Smári og tekur fram að ópera Wagners liggi vel við höggi þar sem hún hljómi á köflum eins og hreinasta rokk. Stór og mikill hljómur Auk Jóhanns Smára, sem fer með hlutverk Hollendingsins og Dalands, syngja einsöng á tónleikunum þau Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sem túlk- ar Sentu, og Egill Árni Pálsson, sem syngur hlutverk Eriks og stýri- mannsins. Rokkhljómsveitin SíGull sér um allan tónlistarflutning og einnig taka þátt Karlakór Keflavík- ur, Kvennakór Suðurnesja og Söng- sveitin Víkingarnir. „Þetta verður stór og mikill hljómur,“ segir Jóhann Smári og leggur áherslu á að um tónleika sé að ræða. „Við erum þannig ekki með neina leikmynd eða í búningum, en hins vegar verðum við með flotta lýsingu og hljóðkerfi sem magnar stemninguna. Þannig ætti þetta að höfða jafnt til þeirra sem þekkja óp- eruna og þeirra sem aldrei hafa kynnst forminu áður. Við sjáum það sem hlutverk okkar hjá Norðurópi að kveikja óperuneistann hjá fólki. Þetta er aðgengilegasta ópera Wag- ners, enda stútfull af fallegum lag- línum. Við höfum skemmt okkur mjög vel á æfingum, því það er ein- staklega gaman að heyra þessa tón- list í nýjum búningi,“ segir Jóhann Smári sem þekkir Hollendinginn af- ar vel, en hann hefur sungið í ófáum uppfærslum óperunnar víða um lönd. „Þetta er ein af mínum uppá- haldsóperum. Þegar ég söng Hol- lendinginn úti í Skotlandi árið 2013 ræddum við Johann Tilli, finnskur vinur minn og bassasöngvari, það á hljómsveitaræfingum hversu mikið rokk væri í þessari tónlist Wag- ners.“ Rokk, djass og hip-hop í bland Að sögn Jóhanns Smára tekur flutningurinn um 80 mínútur. „Við nálgumst þetta algjörlega eftir okk- ar höfði. Þannig spilar rokk- hljómsveitin SíGull sumt eins og það kemur fyrir í nótunum hjá Wagner, sumt djassa þeir, síðan detta þeir yf- ir í hip-hop og hreina dægurlaga- stemningu, allt eftir stemningu verksins hverju sinni og hver er að syngja. Þetta er svo ótrúlega flott hjá þeim að við söngvararnir hlæjum og dönsum á æfingum,“ segir Jó- hann Smári og bendir á að meðlimir SíGulls séu allir strákar af Suður- nesjunum sem getið hafi sér gott orð í tónlistinni. „Þetta eru flottir og klárir strákar sem spiluðu lengi vel með Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þeir kepptu í Músíktilraunum 2015 og voru þá valdir hljómsveit fólksins að mati áhorfenda. Þeir spiluðu í tveimur öðrum böndum, þ.e. Par Ðar sem lenti í öðru sæti og AvÓkA sem hafnaði í því þriðja,“ segir Jó- hann Smári. Einn hljómsveitarmeðlima er Sævar Helgi, sonur Jóhanns Smára, og sér hann að mestu um útsetning- arnar. „Hann er að klára fyrsta árið í tónsmíðum við Listaháskólann. Hann hefur sökkt sér ofan í þetta verkefni og endaði á að skrifa rit- gerð fyrir skólann um Hollending- inn, fyrst hann var að kynna sér þetta á annað borð,“ segir Jóhann Smári kíminn. Þess má að lokum geta að miðar eru seldir á vefnum hljomaholl.is og við innganginn. Kanna hversu langt er milli tónlistarheima  Ópera eftir Richard Wagner flutt í rokkútgáfu Stuð Hollendingurinn fljúgandi eftir Wagner verður fluttur á rokkóperu- tónleikum í Hljómahöll í kvöld og búast skipuleggjendur við miklu fjöri. – fyrir salernið! Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 4, 6 SÝND KL. 8, 10.20 SÝND KL. 5, 8, 10.30 SÝND KL. 10SÝND KL. 4.10SÝND KL. 8 ÍSL. TAL ÍSL. TAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.