Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 44

Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 44
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 139. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Costco mun selja áfengi 2. Svíinn gagnrýnir orð Portúgalans 3. Ganga berserksgang í … 4. Costco-vörurnar sem netið … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Útskriftarverk Atla K. Petersen og Björns Pálma Pálmasonar úr meist- aranámi í tónsmíðum við Listahá- skóla Íslands verða flutt af tónlistar- hópnum Caput, undir stjórn Guðna Franzsonar, í Sölvhóli, húsi LHÍ við Sölvhólsgötu 13, í kvöld kl. 20. Atli K. Petersen lauk prófi frá blás- arakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík árið 1988, þar sem kenn- arar hans voru m.a. Kjartan Ósk- arsson og Oddur Björnsson. Hann hefur stundað kennslu og unnið að tónsmíðum og útsetningum í Fær- eyjum síðan hann lauk námi. Björn Pálmi lauk framhaldsprófi í píanóleik undir handleiðslu Júlíönu Rúnar Indriðadóttur frá Tónskóla Sig- ursveins D. Kristinssonar árið 2011 og bakkalárnámi við Listaháskóla Ís- lands í tónsmíðum árið 2014. Und- anfarin tvö ár hefur hann stundað meistaranám í tónsmíðum undir handleiðslu Páls Ragnars Pálssonar. Caput flytur tvö útskriftarverk  Kammersveit Vínar og Berlínar heldur tónleika í Eldborg í Hörpu í kvöld kl. 19.30. Hljómsveitin er skip- uð nafntoguðustu hljóðfæraleikurum Fílharmóníusveitar Vínar og Fílharm- óníusveitar Berlínar sem teljast með þeim fremstu í heimi. Á tónleikunum verða flutt þrjú verk eftir Joseph Ha- ydn; Sinfónía nr. 59 „Eldsinfónían“, Sellókonsert í C-dúr og Sinfónía nr. 49 „Passían“ ásamt Concertone KV 190 eftir W.A. Mozart. Einleik- arar á tónleikunum eru Gautier Capu- çon á selló, Rainer Honeck og Noah Bendix-Balgley á fiðlu. Kammersveit Vínar og Berlínar í Eldborg Á laugardag Breytileg átt 3-8 m/s. Léttskýjað um mestallt land en líkur á þokubökkum austast. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast suðvestan til, en svalast við austurströndina. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg breytileg átt, en norðaustan 5- 10 við suðausturströndina um tíma. Víða bjart, en sums staðar þokuloft úti við sjóinn. Hiti 7 til 15 að deginum. VEÐUR Ekkert varð af því að Ís- landsbikarinn í handknatt- leik karla væri afhentur í Valshöllinni í gærkvöldi eins og vonir Valsmanna stóðu til. FH-ingar spilltu gleðinni með sigri á heimamönnum, 30:25 að viðstöddum rúm- lega 1.600 áhorfendum og rífandi góðri stemningu. Þar af leiðandi verður hreinn úrslitaleikur um Ís- landsmeistaratitilinn á sunnudaginn. »2 Bikarinn bíður til sunnudags „Í janúar var þetta orðið virkilega slæmt og ég gat varla kastað bolta. Ég fór í myndatöku og það kom í ljós að ég þyrfti að fara í aðgerð, en ég var bara ekki alveg tilbúin til þess þá, því við ætluðum okkur stóra hluti,“ segir Hildur Þorgeirs- dóttir sem lét meiðsli í öxl ekki hindra sig í að leika stórt hlut- verk í Ís- landsmeist- aratitli Fram. »4 Vildi ekki aðgerð því lið- ið ætlaði sér stóra hluti Andreas Stefansson er líklega ekki nafn sem margir Íslendingar kann- ast við. Þó stendur hann ansi fram- arlega í sinni íþrótt og fór fyrir ís- lenska landsliðinu á fyrsta stórmóti þess í greininni, í fyrravetur. Andr- eas, sem á íslenska móður en sænskan föður, var svo valinn efni- legasti leikmaður sænsku úrvals- deildarinnar í vetur. »1 Sá efnilegasti í bandý í Svíþjóð er Íslendingur ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja@mbl.is Karlakórinn Bartónar hefur notið sí- vaxandi vinsælda síðustu ár. Kórinn var stofnaður árið 2010 og hefur síð- an þá komið fram á fjölda skemmt- ana víða um land, meðal annars á Menningarnótt og Iceland Air- waves, auk þess að koma fram á ár- legri sumarhátíð Kaffibarsins, HumarSumar. Lúðvík Snær Hermannsson, fjöl- miðlafulltrúi kórsins og einn af stofnendum hans, sagði í samtali við Morgunblaðið að kórinn hefði upp- haflega verið stofnaður sem eins- konar grínatriði á áðurnefndri sum- arhátíð Kaffibarsins. „Við vorum nýbúnir að sjá auglýsingu frá fyr- irtækinu Puma í sjónvarpinu, þar sem breskar fótboltabullur voru að syngja á bar. Okkur fannst þeir nú ekki syngja neitt svakalega vel, við gætum eflaust gert þetta betur. Svo sungum við á þessari sumarhátíð og fólki fannst það meira fyndið heldur en flott,“ segir Lúðvík. Áhersla lögð á gæðin Fljótlega sáu kórfélagar fram á að þetta væri eitthvað sem þeim hugn- aðist vel að gera, hittast á barnum og syngja saman. „Það var nú samt aðallega til að við hefðum afsökun til að komast á barinn í miðri viku,“ segir Lúðvík og hlær. Kórmönnum fjölgaði ört og margir þóttu hafa góða söngrödd. Í upphafi voru kór- meðlimir aðeins í kringum 14 talsins en eru nú hátt í 40. Við það hafi áherslan á gæði söngsins orðið meiri og síðan þá hafa Bartónar vaxið og dafnað. Kórmeðlimir hittast á hverj- um mánudegi á Kaffibarnum til þess að syngja saman. Að sögn Lúðvíks hefur fólk tekið vel í þetta uppátæki en kórinn hefur undanfarið sungið með þekktu tón- listarfólki, bæði íslensku og erlendu og má þar nefna söngvarana Damien Rice, McGauta og fleiri. Í næstu viku er svo komið að fyrstu utanlandsferð kórsins, þegar meðlimir leggja land undir fót og halda til London 25. maí næstkomandi. Þar mun kórinn koma fram á tónlistarhátíðinni Courtyard, ásamt bresku hljómsveitinni Throws, en Bartónar sungu á nýj- ustu plötu hljómsveitarinnar. Bartónar munu halda brott- farartónleika í Gamla bíói kl. 20 hinn 23. maí næstkomandi. „Við syngjum ekki oft á svona stórum stöðum eins og í Gamla bíói, nema þegar við syngjum á árlegum jólatónleikum með kvennakórnum Kötlunum. Svo þetta verða flottir tónleikar, það verður ákveðin bar- stemning ríkjandi,“ segir Lúðvík að lokum. Ljúfir Bartónar óma víða  Fara í tónleika- ferð til London í næstu viku Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bartónar Kórinn hóf göngu sína á Kaffibarnum og hefur notið vinsælda síðan. Þar eru æfingar einu sinni í viku. Bartónar hafa komið fram á fjölda skemmtana og tónlistarhátíða, til að mynda Ljósanótt í Reykja- nesbæ og á þjóðhátíðartónleikum í Reykjavík 17. júní. Kórinn hefur einnig komið fram við önnur tæki- færi, en 13. janúar árið 2012 sungu þeir þjóðsöng Íslands fyrir lands- leik Íslands og Finnlands í Laug- ardalshöll. Þá hafa þeir tekið þátt í auglýs- ingu fyrir N1, kynningarátaki jóla- bjórsins hjá Vífilfelli og mörgu fleira. Kórmeðlimir koma úr ýms- um áttum, en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa unun af því að hittast yfir góðum bjór og syngja saman. Hægt er að bóka Bartóna til þess að syngja á árshá- tíðum og í veislum, en kórinn hefur verið vinsæll við ýmis tilefni. Allt snýst þetta um að syngja og skemmta sér. Stjórnandi kórsins er Jón Svavar Jósepsson. Hittast á barnum til að syngja NJÓTA ÞESS AÐ SKEMMTA FÓLKI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.