Freyr - 01.10.2005, Blaðsíða 36
VELAR OG TÆKI
Aflmikill
pallbíll frá
Nissan
Ekkert lát virðist vera á sölu pallbíla um þessar mundir.
Ingvar Helgason hefur nýlega hafið sölu á Nissan
Navara og seldust á þriðja tug bíla strax við komuna til
landsins í september. Um 60 pantanir liggja fyrir en
önnur sending af þessum vinsæla pallbíl er ekki
væntanleg fyrr en í janúar á næsta ári. Verksmiðjur
Nissan á Spáni anna einfaldlega ekki eftirspurn.
Það sem gerir Navara frábrugð-
inn öðrum japönskum pallbílum
af svipaðri þyngd er sérlega kraft-
mikil dtselvél sem alls er 174 hest-
öfl. Aflið er slíkt að þessi jeppi
ætti ekki að vera í vandræðum
með veglegar hestakerrur í eftir-
dragi. Togið er 403 Nm og upp-
gefin dráttargeta er 2,7 tonn.
Eyðsla er um 8,5 lítrar í blönduð-
um akstri en vélin er búin sk.
samrásarinnsprautun sem gerir
hana hljóðlátari en eldri díselvélar.
Innspýtingin á einnig að minnka
titring frá því sem áður var.
Útlit Navara gefur til kynna að
þarna er kraftajötunn á ferðinni
- kassalaga og nokkuð grófgerð
hönnun. Framendinn óneitan-
lega likur Patrol-útgáfunni.
Jeppinn er einnig vel útbúinn að
innan en innréttingin er sam-
bærileg þeirri sem er í Nissan
Pathfinder. Jeppinn er fimm
manna og leyfir rúmlega tonn i
hleðsluþyngd. Hægt er að fá
Navara King Cab og Double
Cab á (slandi en jeppinn sem er
á myndunum hér til hliðar er
Double Cab.
Jidosha-Seizo Kabushiki-
Kaisha bílaverksmiðjurnar voru
stofnaðar í desember 1933.
Nafninu breytt ( Nissan Motor
Co. í júní 1934.
Nissan kaupir bílateikn-
ingar og verksmiðjur Graham-
Paige Motors Co. í Bandaríkj-
unum. Graham-Paige fram-
leiddi fólksbíla og vörubfla.
Þegar seinni heimsstyrjöldin
nálgaðist framleiddi Nissan
mikið af hertrukkum en einnig
flugvélamótora og vélar i tund-
urspilla.
Verksmiðjur Nissan (Jap-
an herteknar af innrásarherjum
bandamanna og voru undir
þeirra stjórn til 1955.
Framleiðsla á Datsun-
fólksbilum kemst aftur á fullt
skrið.
Samstarf við Austin Mo-
tor í Bretlandi. Ári siðar kom
fyrsti Austin-billinn úr fram-
leiðslulinu Nissan.
Nissan Bluebird kemur
fram á sjónarsviðið.
Nissan Cedric slær f
gegn.
mm Nissan-verksmiðja opn-
uð í Mexikó.
Nissan Sunny settur á
markað. Talinn einn af frum-
kvöðlunum í þróun smáblla í
heiminum.
ÍMB Nissan tekur forystu i
þróun mengunarvarnarbúnað-
ar í fólksbilum.
kjölfar oliukreppu á
heimsmarkaði aukast vinsældir
Datsun á Bandarikjamarkaði.
Verksmiðja opnuð í
Bandarikjunum.
KSH Framleiðsla hefst í Bret-
landi.
Samstarfssamningur við
Renault í Frakklandi undirritað-
ur. Viðtæk samvinna á sviði
þróunar og reksturs.
Fyrstu rafmagnsbilarnir
frá Nissan komu á markað.
Nissan er með fram-
leiðslu og samsetningarverk-
smiðjur á 17 stöðum í heimin-
um.
s
FREYR 10 2005
VÉLBÚNAÐUR
• 2,5 Itr. Common Rail
diselvél, 4 strokka, 174
hestöfl.
• Forþjappa og millikælir
• Samrásarinnsprautun
• Dráttargeta: 2,7 tonn
• Tog: 403 Nm v/ 2000 sn.
• Eldsneytistankur: 80 Itr.
DRIFLlNA
• 4WD, 2WD, hátt og lágt
drif.
• 6 gíra beinskipting eða 5
þrepa sjálfskipting
HEMLAR OG FJÖÐRUN
• ABS-bremsukerfi
• Blaðafjaðrir að aftan en gor-
mar að framan.
• Loftkældar diskabremsur að
framan, skálar að aftan.
ÞYNGD
• Eigin þyngd 2.113 kg
• Hleðsluþyngd 1.070 kg
STÆRÐIR
• Lengd: 5.220 mm
• Breidd: 1.850 mm með
brettaköntum.
• Hæð: 1.764 mm
• Hjólhaf: 3.200 mm
• Lengd palls: 1.511 mm
• Breidd palls: 1.560
STAÐALBÚNAÐUR M.A.:
• Útvarp og CD
• Vökvastýri
• CSR halogenljós
• Loftpúðar
• Samlæsingar
• Rafmagn í rúðum
• 16" álfelgur
• NATS þjófavörn