Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.2005, Blaðsíða 37

Freyr - 01.10.2005, Blaðsíða 37
Lífrænn landbúnaður í meðvindi og mótvindi Á sfðasta ári gáfu Alþjóðasam- tökin um lífrænan landbúnað, IFOAM, út skýrslu um stöðu líf- ræns landbúnaðar í heiminum. Hann er nú stundaður ( 110 löndum, á 559 þúsund bújörðum með 26 milljón hektara af rækt- unarlandi, sem nemur þó aðeins fáum prósentum af akurlendi í heiminum. Að auki eru 15 milljón hektarar af vottuðu landi þar sem ræktaðar eru skráðar „villtar" jurtir. Hæsta hlutfall af lífrænni rækt- un í Evrópu er 26% í Lichten- stein, 12% í Austurríki og 12% í Sviss. Á Norðurlöndunum er Finnland með 7%, en Svíþjóð og Danmörk með yfir 6%. Frakk- land og Holland eru aðeins með 2% og Bandaríkin aðeins 0,22% af lífrænu ræktunarlandi. Á 10. áratug síðustu aldar jókst lífræn ræktun í Evrópu en undan- farin ár hefur vöxturinn stöðvast eða jafnvel dregist saman. Þann- ig hefur hún minnkað f Hollandi um þriðjung og í Finnlandi verður www.velaborg.is vart við samdrátt. ( ESB sem heild er lífræn ræktun nú á um 3,4 % af ræktunarlandi. Til að bæta úr því samþykkti ESB árið 2004 framkvæmdaáætlun um aukna framleiðslu lífrænna afurða. Jákvæð reynsla margra landa sýnir að vænta má góðs árangurs af slíku átaki. í Bandaríkjunum er eftirspurn eftir lífrænum matvör- um nú mjög vaxandi og námu viðskiptin þar árið 2003 alls 13 milljörðum dala. ( Evrópu hafa viðskiptin tvöfaldast frá 1998 og í Frakklandi, Ítalíu, Spáni og Þýskalandi námu þessi viðskipti átta milljörðum evra árið 2003, sem nemur þó aðeins um einu prósenti af matarinnkaupum fólks. Lífrænar afurðir geta sjaldnast keppt við aðrar vörur í verði. I Bandaríkjunum og sumum Evr- ópulöndum eru neytendur þó fúsir til að borga þennan verð- mun. Þannig má nefna að f Eng- landi seljast Iffrænar mjólkurvörur og lambakjöt oft á þónokkuð John Mackey, stofnandi Whole Foods Market, sem selur lífrænar afurðir í stórum stíl. hærra verði en hefðbundnar vör- ur. í nokkrum löndum hafa bændur f lífrænni ræktun náð fast að því eins mikilli uppskeru og í hefðbundinni ræktun - gagnstætt því sem oft er haldið fram. Það hefur, ásamt lægri út- gjöldum f aðföng, gefið góða rekstrarafkomu. Samkvæmt skoðanakönnun- um segjast aðspurðir gjarnan oft vilja greiða allt að 30-50% auka- lega fyrir hollar, öruggar og um- MOLAR hverfisvænar afurðir. Á hinn bóg- inn viðurkenna flestir að oftast láti þeir verðið ráða vali sfnu. Það vekur þó vonir að reynslan sýnir að betri merkingar og vönduð kynningarstarfsemi auki sölu á líf- rænum vörum. í viðtali í blaðinu The Econom- ist við stofnanda verslanakeðj- unnar Whole Foods Market, Bandaríkjamanninn John Mac- key, kemur fram að unnt er að selja lífrænar afurðir í stórum stíl. Hann stofnaði fyrirtæki sitt árið 1970 og lagði strax áherslu á líf- rænar vörur. Nú rekur fyrirtækið 178 verslanir í Bandaríkjunum og Bretlandi og árleg velta þeirra er um fjórir milljarðar dala, og þannig er fyrirtækið hið stærsta í sölu lífrænna afurða í heiminum. Starfsmenn eru um 32 þúsund. „Við leggjum áherslu á um- hverfi og hollustu í kynningu okkar," segir Mackey. „Á því byggist markaðssetning Iffrænna vara. Keppni við lágvöruverslanir hefur ekkert upp á sig. Við verð- um að sannfæra neytendur um að þeirfái verðmuninn greiddan í meiri gæðum," segir hann. (U.B. Lindström, Landsbygdens Folk nr. 37/2005, stytt). S: 414 BBOO NYTT FRA VELABORG Röwei0lub staðlaðar þýskar innréttingar í hesthús Eigum mjög vandaðar galvaniseraðar innréttingar á lager Staðlaðar stíustærðir: 2,50 x 2,50m Hurðar á framhliðum úr Bongossviði, stærð: 0,85 x 1,30m Milligerði úr Bongossviði með loftraufum, hæð: 1.B5m Bjóðum einnig sérsmfðaðar innréttingar eftir óskum kaupanda Gerum föst verðtilboð Takmarkað magn á lager LEITIÐ TILBOÐA HJÁ SÖLUMÖNNUM OKKAR —|Q|I 20D/o afsláttur af völdum hestavörum Hnakkar, beisli, múlar, tauman, gjarðin og töskur (Vfelaborg ehf Reykjavík Krókhálsi 5F (gengið inn frá Járnhálsi) • 110 Reykjavík • Sími: 414 8600 • Fax: 414 8601 Akureyri Njarðarnesi 2 • 603 Akureyri • Sími: 464 8600 • Fax: 464 8601 ------------------------------------------------------—.......-......................... ^ FREYR 10 2005 37

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.